Alþýðublaðið - 06.05.1944, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 06.05.1944, Blaðsíða 8
ALÞYÐUBLAÐiÐ Laugardagiu' 6. œaí 1944. STJARNARBIOSS m j Vér muniim koma lljj aflur. wiL '&KMs (WE WILL COME BACK) m Rússnesk mynd úr ófriðn- um. — Aðalhlutverk: V I Vanin Marina Ladynina Bönnuð börmim innan 16 ára Sýnd kl. 7 og 9. Á fætur Reveille with Beverly Bráðfjörug amerísk mússík mynd Ann Miller Frank Sinatra Mills-bræður Hljómsveitir Bob Crosbys, Freddie Slacks, Duke Elling- tons og Count Basies Sýnd kl. 3 og 5 Aðgöngumiðar seldir frá kl. 11. I BETRI SPRETTA. Kvöld nokkwrt i góðu veðri, sat margnefndur Jón Guð- mundsson fyrir utan lit'la sum- arhúsið sitt í útjaðri bæjarins og naut kvöldblíðunnar. Kemur þá mannaumingi. flækingsgrey, að hliðinu, fer inn fyrir, legst þar á fjóra. fæt- ur og byrjar að bíta gras í á- kafa. Hugði hann að geta hrært Jón til meðaumkunar með sér með þessu tiltæki. Jón horfir á manninn nokkra stund, en segir síöan: „Hvað ertu að gera, góði maður?Ci „Ég er bara að bíta gras“, svarar manngarmurinn, „ég hcfi ekki bragðað mat í marga daga. Ég er orðinn svo hungraður, að ég get orðið borðað gras.“ „Aumingja maðurinn“, segir Jón, og rödd hans ber vott um hina innilegustu meðaumkun með manninum. „Heyrðu góði, viltu ekki fara bakdyrameg- in. . .“ „Jú, takk kærlega fyrir“, seg ir maðurinn og sprettur á fæt- ur, því hann býst við góðum feng þar. En Jón lýkur við setninguna og segir „ það er töluvert betur sprottið þar, góði.“ straumi ðrlaganna skulum við gera ráð fyrir að þeir stöðvi þig og rannsaki böggulinn. Eða það, sem verra væri: að þeir veittu þér eftir- för og kæmust að raun um, hvert þú færir með þennan grunsamlega pakka. Þá kæm- ust þeir beina leið til Flori, skil- urðu? Við skulum láta hann eiga sig i þessum einu fötum. Það er ekki vert að eiga neitt á hættu, eða finnst þér það? — Ef til vill eru fötin rif- in, orðin óhrein eða eitthvað svoleiðis. Guð má vita nema hann hafi neyðzt til að klifra. yfir húsaþök; hvað vitum við? Klara varp öndinni. — Já, guð veit, sagði hún. — En láttu hann þá kaupa sér tilbúin föt. En kannske — kannske, pening- ar; þú vildir kannske hjálpa honum um ofurlítið af pening- um. Ég hygg, að hann þarfnist þeirra meira en brúnu fatanna eins og sakir standa. Hann þarf áreiðanlega að greiða Ap- el drjúgan skilding fyrir að hilma yfir með sér. — Þekkirðu þessa fuglabúð? — Já. Apel er kvæntur einka- þjónustustúlku móður Flori. Hann var tamningamaður en varð fyrir slysi og fótbrotnaði illa og varð þá að hætta því starfi. Ég vona bara, að hann sé trúverðugur, sagði Klara. Hiún skrifaði Flori bréf og Ren- ate teiknaði röð af litlum kross- um undir bréfið. — Sérhver kross á að tákna koss og fyrir- bæn, skrifaði hún á blaðröndina. Ég tók drengskaparheit af Klöru að thalda kyrru fyrir og gera engin heimskupör og lagði því næst af. stað. Dyravörðurinn, sem var á höttunum í gangin- um niðri kvaddi mig með Hitl- erskveðjunni, en gerði það á þann hátt, að það yar einber skrípaleikur. Þegar ég kom út úr gamla húsinu skyggndist ég til 'beggja hliða eftir götunni og reyndi að glöggva mig á, hvort ég sæi ekki neinn, sem liti út fyrir að vera spæjari leynilögreglunnar. Mér fannst mér farast þetta bjánalega. Þó að einhver hefði veitt mér eft- irför hefði ég ekki verið nógu skilningsskörp til að uppgötva það. Ég tók leiguvagn og ók aft- ur til hótelsins. Leið mín lá um götur, sem urðu mér æ meir framandi með hverri klukku- stund, sem leið. Þegar ég fór framhjá hinum skrautlega búna Ahmed, virtist mér hann gefa mér leynilegt merki. Þetta er eins og að heimsækja hring- leikahús, hugsaði ég. Maður veit aldrei, með hverju manni verð- ur komið á óvart næst. Ég fór inn í drykkjustofu hótelsins og fékk mér drykk til að róa taug- arnar, sem voru ekki í sem beztu ásigkomulagi. Að því búnu tók ég annan leiguvagn og ók til fuglabúðarinnar. Fuglabúð Apels var lítil. Tveir páfagaukar sváfu í búri í glugganum. Inni var marg- þætt angan, en mest bar þar á lykt af fuglum. Smávaxinn maður kom haltrandi fram und- an fortjaldi aftast í búðinni og spurði hvers ég óskaði. — Mig langaði til að spyrja um svartan loðhund, sagði ég, en fannst þetta írámunalega heimskulegt og fjarstætt. Hann virti mig fyrir sér með nokk- urri undrun. — Svartan loðhund? endur- tók hann og ræskti sig. — Já, svartan loðhund. Þér senduð mér þessa auglýsingu, var ekki svo? sagði ég og hamp- aði græna og gula umslaginu. — Eruð þér frúin, sem býr í Bristol-hóteli? spurði hann. — Já, það er ég, svaraði ég. — Gerið svo vel< að koma inn fyrir, sagði hann og dró for- tjaldið lítið eitt til hliðar. Við fórum gegnum sóðalegt eldhús, eftir dimmum gangi, gegnum dyr með" glerhurð, sem ræfils- leg tjöld héngu fyrir, og kom- um að lokum inn í svefnher- bergi, sem var svo troðfullt af húsgögnum, að ég varð að renna mér á rönd til þess að komast framhjá gríðarstóru rúmi. Einn- ig hér var megn lykt af dýrum. í litlu búri var vesaldarlegur api, sem þvaðraði og lét skína í tennurnar, þegar hann sá mig. Frá litlu útvarpstæki barst mik- ill hávaði, og tveir kanarífugl- ar reyndu að gera meiri hávaða en útvarpið. Florian Rieger stóð upp af rúminu, sem hann hafði setið á, laut mér djúpt og sagði af frábærri austurrískri kurteisi: — Ég kyssi hönd þína, Marion. Þetta er dásamlega fagur hatt- ur, sem þú hefir. Augu hans voru rauð og þrútin, eins og hann hefði ekkert sofið, síðan ég sá hann síðast, og hann var órakaður og ógreiddur. — Hvernið líður þér, Flori? spurði ég. — Ennþá á lífi — og það er nokkurs virði, svaraði hann. Ég fékk honum bréf Klöru og hann las það áfergjulega. En virtist verða óánægður, þegar ég fór að skýra þetta fyrir hon- um með brúnu fötin. — Ég hefi alltaf vei-ið í þessum görmum, síðan Sehuschnigg gafst upp — — sagði hann og leit niður á sig og tók í brotin í buxunum, sem mjög voru farin að láta á sjá. — Mér finnst ég vera eins og flækingur — — Apel stóð hjá apanum í búr- inu. — Þökk fyrir Apel, sagði Flori, og Apel haltraði brott. — Klara óttast, að hann sé ekki áreiðanlegur, sagði ég, þegar glerhurðin lokaðist á 'hæla lians. —• Hver er það nú á dögum? sagði Flori vonleysislega. k’ **&£,&*& NYJA BIO Arabisker næiur (Arabian Nights) Litskreytt æfintýramynd úr 1001. nótt. Böm innan 12 ára fá ekki aögang. Sýnd kl. 5, 7 og 9. PP Barnasýning kl. 3 er það svari maður' „rr |MeS Bod Abbott og Lou Costello ISalá aðgöngum. hefst kl. GAMLA Blð S ÍÆvinlýri í herskóla |(The Major and the Minor) Amerísk gamanmynd. Ginger Rogers Ray Milland Sýnd kl. 7 Síðasta og 9. sinn. lll Ver®lr laganna Cowboymynd með Wiliiam Boyd Svnk ki. 3 oq 5. iBörn innan 12 ára fá ekki aðgang. ÍAðgöngum. seldir frá kl. 11 — Hefirðu verið hér síðan á föstudag? — Drottinn minn góður, nei. Ég þori ekki að vera nema nokkrar klukkustundir á sama staðnum. Fyrstu tvær næturn- ar var ég á ferli, þar sem þröng- in var þéttust. Síðustu nótt var ég í vændiskvennahúsi og lézt vera dauðadrukkinn. Það er tiltölulega öruggur staður, en kostnaðarsamUr. — Ég kom með ofurlítið af peningum, sagði ég. Flori brást illa við, þegar ég tróð þeim í vasa hans, eftir að hann hafði neitað að taka við þeim. — Mér finnst ég vera eins og úrhrak, ef ég tek við peningum af konu ----sagði hann. — Þetta er ekki stund til að hafa á hyggjur af smámunum, sagði ég. — Hvað hefirðu nú hugsað fyrir? Hvað á ég að segja Klöru? Eru nokkrir mögu- leikar fyrir þig að komast brott IVIEÐAL BLÁMANNA EFTIR PEDEBSEN-SEJEBBO þeim að finna nokkra gúlsopa á botni ílátsins, en það líka allt og sumt. **.» Þeir félagar skiptu hinum fáu dropum bróðurlega á milli sín. Líka höfðu þeir fengið sér dálítinn matarbita til þess að deyfa sárasta sultinn. En hvað myndi nú taka við? Wilson reis snögglega á fætur. — Við verðum að haida áfram, mælti hann. — Við höfum hér ekkert við að vera. Páll og Hjálmar risu einnig á fætur og teygðu úr hin- um stirðu limum sínum. Og andlit þeirra urðu en alvar- legri, þegar þeir sáu, að Englendingurinn reikaði í spori eins og hann væri örmagna. Þeir litu í síðasta sinn til sandhólsins, er verið hafði samastaður þeirra um nóttina. Því næst lögðu þeir upp að nýju í för sína, um auðn og óendanleik eyðimerkurinnar. Þeir urðu að á og hvílast, er líða tók að hádegi. Þá var þeim með öllu ógerlegt að halda för sinni lengur áfram. Þeir kvöldust af þorsta og tóku það ráð að tyggja munn- fylli sína af hrísgrjónum. En engum þeirra tókst þó að slökkva þorsta sinn þannig, og þeir urðu að sætta sig við það að skyrpa hrísgrjónunum út úr sér áður en langt um leið. Áningin jók aðeins á vanlíðan þeirra. Þegar þeir lögðu af stað að nýju, var tungan eins og hart, þurrt flykki í munni þeirra. Wilson var svo máttfarinn, að Páll varð að styðja hann fyrstu skrefin. Því næst gekk hann sem í draumi — klukkustund eftir klukkustund. Þeir héldu för sinni meira PICTURE Op.WW KID TO SHOW VOU/ VOU MU5T LOOK UPMV WIFE WHEN VOU &ET HOME ANDTELL .HERVOU METME... FÉLAGAR Sammys horfa á hann dansa: HANK: „Ekkert skil ég í hvernig Sammy fer að því að dansa þannig eftir Vínarvalsi. Mér finst satt að segja líka að giftur maður sem nýlega er orðinn faðir skuli geta látið svona. En það kemur mér svo sem ekkert við. FLUGFORINGINN (talar við sína stúlku) En hún segir: „Þetta er elsti sonur minn. Hann er nú í gagnfræðaskóla. FLUGFORINGINN: „Ég vildi óska að ég ætti mynd af mín- um strák til að sýna þér. Þú verður að heimsækja konuna mína, þegar þú kemur heim og ségja henni að þú hafir hitt

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.