Alþýðublaðið - 31.05.1944, Page 8

Alþýðublaðið - 31.05.1944, Page 8
ALÞTÐUiyypifL MiðrilradaKni 31. miú 1941. STIGAMENN (Tlie Desperadoes) ÍSpennanjdi mynd á eðlileg- |um litum úr vesturfylkjum Bandarxk j anna. Randolph Scott Glenn Ford Claire Trevor Evelyn Keyes Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð fyrir börn innan 14 ára. Jacaré Meinvsettur frumskóganna Barnasýning kl. 3 EAðgangseyrir 1 króna M FRÁ ALÞINGI ÞEGAR ÚTVARPAÐ var frá Alþingi umræðum um fjárlög fyrir árið 1944, blöskraði ein- um góðum norðlenzkum hag- yrðingi svo, að hann kvað: Út úr hlóðum alþingis eiturflóðið rennur, í þeim glóðum eins og fis auðna þjóðar brennur. Annar hagyrðingur norð- lenzkur á mjög bágt með að heyra pólitíska leirkerasmiði ó- kalla sannleikann til stuðnings sínu máli. Er hann hlýddi á út- varpsumræður frá alþingi, fannst honum einn þingmanna misnota nafn sannleikans all- freklega og varð að orði: Gaular Jóseps gullkálfur gegnum útvarp, mannýgur, auðvaldsboli ágætur Einar málasannleikur. * * * BARKAKÝLIÐ. Siggi og Óli voru einu sinni að ræða um, hvers vegna barka kýlið væri kallað „Adams-epl- ið“. „Veiztu það ekki, „hlandaul- inn“ þinn“, segir Siggi, „af hverju það er kallað þessu nafni? Það er í minningu um það, þegar Adam beit Evu á barkann, eftir að hún hafði narrað hann til að éta eldsúr- an eplisgrænjaxlinn.“ * * * FLEST er útlendum manni falt sé hann frakkur. ICK slraumi irlaeanua vélar handa Frökkum. Það var líka orðrómur á kreiki um það, að þýzkir njósnarar væru um borð, og nokkrum vikum síðar las ég í blöðunum, að eldur hefði komið upp í þessu skipi, þar sem það lá í höfn, og það brunnið til kaldra kola. Ég minnist þess, þegar ég dansaði við fyrsta liðsforingjann á spegilgólfi skipsins, og allt í einu kom maður, sem ég ekki man hvað hét, og stöðvaði okk- ur. Andlit hans var fölt, og hann sagði á frönsku: Þjóð- verjar hafa farið inn í Prag. Ég man eftir fyndninni um Hitler og nazistana, sem allir höfðu á hraðbergi, og hvernig sérhver maður á gangstéttunum í París og í skemiíitigörðunum í Lond- on sagði, að það yrði að stöðva þennan náunga, hann Hitler. Maginotlínan var enn óvinn- andi, franski herinn ósigrandi. Hægt væri að veita vatni yfir Holland á fáum klukkustund- um og drekkja þannig þýzkum innrásarher á svipstundu. í Hyde Park var farið að grafa skotgrafir og leika sér að því, að byggja örlítil loftvarnabyrgi. Hver einasti maður, karlar, konur og börn, vissi, að stríðið var yfirvofandi, en enginn vissi, hverrar tegundar það myndi verða að þessu sí Enginn óskaði eftir þessu stríði, en enginn vissi með hvaða hætti ætti að koma í veg fyrir það. Við ókum bara niður bratta brekku með hemlana í ólagi og þrástörðum á ,cfð” beygjuna, þar sem lokaslysið myndi henda. Og meðan þetta allt henti veröldina, tók ég að festa ást á pilti, sem var fimmtán árum yngri en ég sjálf. Ef það er nokkuð eins ákaft eins og fyrsta ástin, þá er það síðasta ástin. Þegar maður er ástfangin í fyrsta sinn, er allt einstætt og án samanburðar. Það er ekki við að styðjast neina revnslu, sem geti gefið hugmynd um það, hve ástin er brothætt. Það er ekki skuggi af tortryggni í fyrstu ástinni. Ekki gagnvart okkur sjálfum, ekki gagnvart elskhuganum og allra sízt gagn- vart ástinni. En Iþað er beisk ánægja að vera ástfangin í sáðajsta sinn. Ég þekkti upphafið, hámarkið og endinn, og ég óskaði ekki eftir neinu af því. Ástríður eru alltaf til óþæginda, en hálfu meira, þeg- ar maður er komin yfir fertugs- aldurinn. Ég vissi þetta. Ég tjáði sjálfri mér það á hverj- um morgni, um miðjan daginn og á kvöldin. En það var áleitin löngun, sem hvíslaði og söng: Aðeins einu sinni enn, í síðasta skiptið, alsíðasta skiptið, að gefa sig þessu á vald. Ég hafði aldrei verið vön að fara heim I fyrr en buið var að skjóta öll- ’ um flugeldunum og síðasti flugeldurinn hafði sundrazt í ótal stjörnur uppi í loítinu. Ég (hafði verið ástfangin eins lengi og ég mundi eftir rnér, allt aftur tij þess tíma, þegar ég var fjögurra ára og sat á hnjám hins myndarlega Ágústs, her- mannsins úr Jífverðinum. Þegar því að ég varð ástfangin í síð- asta sinn, var ég næstum því þakklát, af því að það var í samræmi við hætti mína og gaf mér til kynna, að ég væri þó enn á lífi, og auk þess þurfti enginn að vita þetta. Ég hefi séð dansmeyjar frá Kúba, sem þrátt fyrir ofsafengnar hreyí- ingar sínar 'báru glas fullt af vatni á bcfðinu meðan þær dönsuðu, án þess að nokkur dropi skvettist út yfir barma glassins. Þannig þóttist ég hafa varðveitt ihina heimskulegu ást mina þessa mánuði, mjög örugg lega, þannig að ekkert hefði gusazt út úr. — Ég kynntist ihinum unga bróður yðar á gærkveldi, sagði Mikael, þegar thann hitti mig hjá myllunni og ég var að svip- ast utm eftir húsnæði. — Við skiptum á grammófónplötun- um okkar og héldum ágæta hljómleika ó svölunum. — Já, Mikael sagði mér frá því. Ég er yður þakklát fyrír að hafa verið honum til skemmt unar. Hann var mjög glaður ytfir þtví. — Það er mjög skemmtileg- ur piltur, bróðir yðar. Ég roðnaði, reiddist við sjálfa mig og roðnaði enn meira. — Hann er ekki bróðir minn, hann er sonur minn. Yngri sonur minn, sagði ég. — Oh--------sagði Kristófer. — Ég skil. Mér datt það ekki í hug. Þér hljótið að hafa verið mjög ung, þegar þér giftust. — Ég get nú ekki beinlínis fullyrt að mér hafi verið nauðg- að, þegar ég var þrettán ára, sagði ég. Kiistófer lét sér ekki bregða, svo var hamingjunni fyr ir að þakka, heldur kímdi. Við litum hvort á annað og hlógum. Þetta var á fyrsta skipti, sem ég hitti hann í dagsljósi. Allt í einu virtist sólin óþægi- •lega björt, og mér tfannst sér- j hver hrukka í andliti mínu eins i og djúp gjó. Mér fannst ég vera ■ eins og svolítil ögn af einhverju undir smásjá. Eg vildi | óska, að hann hefði ekki gler- augu, hugsaði ég. — Mikael sagði mér, að þér væruð að svipast um eftir húsi. Funduð þér nokkuð? Ég er hnæddur um, að það sé ekki mik il völ ó slíku á Staufen. — Ég er einmitt,að fara upp á hæðina til að líta á húsið, sem ítalirnir tveir fluttu úr. Fólkið í myllunni lét mér lykilinn í té. n NYJ* BfO C j B fiAMU BfO S& f„Bros geptn tári (Smilin’ Through) 1 Ráðkæns sláiican I j ! Metro Goldwyn Mayer i f(Thie Anmzing Mrs Holliday)) jsöngvamynd, tekin í eðlileg 1 1 um iitum. 1 Skemmtileg söng\'amynd f AÖalhlutverk leika Jeanette MacDonald með Brian Aheme G«ne líaymímd Deanna Dtirbin Sýnd kl. 7 ©g 9 Barry Fitzgerald Kl. 5: Arthur Treacher Hfðurrifsmennirnir I I 1 Wrecking Crew 1 Sýnd kl. ö, 7 og B. Rickard Arlen Chester Morriss jBönnuð bömum innan 12 ára| — Er yður sama, iþó að ég labbi með? sagði Kristófer. Vissulega var mér það ekki á móti skapi, að hann yrði mér samíerða upp hæðina. Okkur lét alltaf svo vel að ganga saman, var það ekki, Kxis, vinur minn? Við töluðum ekki mikið saman á þessari fyrstu, stuttu gönguferð okkar. Við bara gengum og genguan, og okkur leið vel. Eftir nokkra stund leizt þú niður til mín og brostir með pípuna milli tann- anna, og þú sagðir: — Eruð þér þjálfaðar i göngu? — Nei, engan veginn, sagði ég. —«Hvers vegna spyrjið þér? — Venjulega er ég alltof skref langur, þegar ég geng með kon- um; en þess gætir ekki, þegar ég geng með yður. Þér gangið eins og karlmaður. — Já, ég veit það. Það olli móð ur minni þungbærum óhyggjum, þegar ég var barn, sagði ég. MEÐAL BLAMANNA EFTIE PEDERSEN-SEJERBO enn. Seinna máttu svo fara að vinna. Annars ertu ágætasta bogskytta. Hann roðnar af stolti. — Jæja. Hver hefir sagt það? — Wilsoh vinur þinn. Og fyrst þú ert svona góð skytta, þá vildi ég fá nokkrar svansúíur. Svansúlnasteik er kjör- fæða. Fuglarnir eru við litla fjallavatnið. Þú getur látið bræður mína vísa þér á vatnið. — Þú skalt fá þær strax á morgun. — Það verða þá ekki svansúlur, sem þú hefir skotið. Hann ætlar að sýna henni, hvernig hann geti hreyft höndina og fingurna að vild sinni, og hann reynir að’ taka upp grein, sem liggur á jörðinni, en gerist náfölur og skelf- ur um allan líkamann. — Nei, ég verð víst að bíða eitthvað enn, segir hann dapur í bragði. — En Alísa, þú lofaðir að segja mér eitthvað um þig sjálfa. Hún grípur hann þegar á orðinu til þess að reyna að drepa hinum dapurlegu hugsunum hans á dreif. — Já, það er nú í rauninni lítið að segja umfram það, sem þú veizt þegar. Við komum hingað sem sagt, þegar ég var bam að aldri. Ég man óljóst eftir hinni skemmtilegu ferð okkar og komu til villimannanna, sem annars reyndust okkur beztu vinir frá þeirri stundu, er þeir sáu okkur fyrsta sinni. Pabbi vildi fara sem lengst upp í land til þess að hitta fyrir fólk, sem ekki hefði spillzt af kynningunni við hvíta menn. Hann þreyttist aldrei né lét bugast, ekki einu sinni, þegar móðir mín dó. Ég held meira að segja, að harmurinn hafi aukið krafta hans, en sjálf ætlaði ég að örvinglast af YNDA SAQA í FLUTNINGAFLUGVÉUNNI ,,Við eruim tilbúrxir til að leggja af stað. KATA: „Öm minn, etf ég bar* viissi! Ó, ef ég fengi aðeins að sjá þig í svip!“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.