Alþýðublaðið - 09.06.1944, Side 6
Föstudagur 9. júní: 1944«
; ú' n u i j>;h % .n r I rra t j ú <r. j -1-
T i Iky n nin g
Að gefnu tilefni vill þjóðhátíðamefndin láta þess
getið, að aðgangur að þjóðhátíðarsvæðinu á Þing-
völlum 17. júní, er ókeypis og öllum heimill.
Tjaldstæði á Þingvöllum, sem pöntuð eru hjá nefnd-
inn eru einnig ókeypis. Eftirlitsmenn nefndarinnar
munu vera á Þingvöllum frá og með 15. júní með
lista yfir þá sem gert háfa pantanir á tjaldstæðum
hjá nefndinni. Ber mönnum, er þeir koma til Þing-
valla að snúa sér til þeirra viðvíkjandi tjaldstæð-
unum.
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARNEFNDIN
w
Við snúum ekki aflur
lil hluiiéysisslefnunn-
ar, - segir Hákon
Horegskonungur.
7 TYRRADAG, 7. júní, var
*■ haldinn fundur £ Félagi
erlendra blaðamanna í London
Var samkoma þessi haldin til
heiðurs Noregi og Noregskon-
ungi. Fundurinn var haldinn á
Savoygistihúsinu í London og
var þar margt stórmenna sam-
ankomið. Formaður félagsins,
Rússinn Rothstein flutti þar
snjalla ræðu og hyllti Noreg
og norsku þjóðina. Hákon
Noregskonungur flutti síðan
ræðu og fer hér á eftir megin-
efni hennar:
Þessi fundur, mælti konung-
ur er haldinn á þeim degi er
Noregur fékk fullt sjálfstæði.
.Að vísu er stjórnarskráin frá
17. maí 1814, en fullt sjálf-
stæði fengu Norðmenn, er þeir
skildu við Svía 7. maí 1907.
— Konungur lagði áherzlu á,
að skilnaðurinn hefði skeð með
vinsemd og sambúð þessara
þjóða hefði verið með ágætum
æ síðan.
Þá lagði konungur ennfrem-
ur áherzlu á, að brátt væri
þessi ófriður á enda og menn
ættu að minnast þess, að þeir
hefðu skyldum að gegna gagn-
vart næstu kynslóð. Stórveld- i
in hefðu þegar lagt drög áð I
framtíðarskipulagi og framtíð-
arsambúð þjóðanna. Að sjálf-
sögðu munu stórveldin haM
mest að segja í þessari sam-
vinnu, en á hinn bóginn geta
smáþjóðirnar geta lagt fram
drjúgan skerf í þessum málum,
bæði í menningarlegum og
tæknilegum atriðum.
Konungur ræddi nokkuð
þátt Noregs á þessári styrjöld
og í bétati > á ummæli/- <brekka j
þingmannsins Noel Bakers,
er hann sagði, að norski flot-
inn hefði haft svipaða þýðingu
í orrustunni um Atlantshaf og
brezku Spitfireflugvélarnar í
orrustunni um England 1940.
Það væri altalað, að norski
kaupskipaflotinn væri banda
mönnum Ineira virði en ein
milljón hermanna.
Hákon konungur Iauk mikia
lofsorði á Norðmenn heima fyr
ir, sem hefðu heidur kosið'að
láta lífið eri að beýgja sig í duft-
ið fyrir innrásarhernum. Síðan
sagði kónungur: Ég tel að mér
sé óhætt að fullyrða, að smá-
þjóðirnar hafi lagt mikið af
mörkum í baráttunni. Þetta
veitir þeim rétt til þess að hafa
áhrif á framtíðarskipulag heims
ins, sér í lagi það, sem varðar
þær sjálfar. Það erokkur ánægja
að vita, að því hefir verið lýst
yfir, að grundvöllur hinna nýju
alþjóðasamtaka verði jafnrétti
allra hlutaðeigandi þjóða. Þessi
styrjöld er fyrir okkur Norð-
menn barátta um frelsi og lýð-
æði og um það að fá að vera
húsbændur á okkar eigin heim-
ili og ráða sjálfir örlögum okkar.
Að lokum mælti konungur á
•þessa leið: Okkur Norðmönnum
er ljóst, að við getum ekki snú-
ið aftur til hlutleysisstefnurm-
ar. Hvorki Noregur, né önnur
lönd geta staðið ein sér. Við
þurfum alþjóðasamvinnu til
þess að tryggja okkur gegn nýju
ofbeldi og atvinnuleysi og neyð.
Að styrjöldinni - lokinni munu
Norðmenn fúsir til samvinnu
um alþjóðasamvinnu. -
Loks sagði konungur, að Norð
menn væru reiðubúnir til þess
að viðurkenna, að stórveldin
yrðu að hafa mest að segja um
alþjóðamál, en samtímis yrði
þess krafist, að smáríkin yrðu
ráða, þegar taka bæri ákvarð-
anir.
(Frá norska blaðafulltrúanum).
Ífalía.
Frh. af 3. síðu.
eftir brottför Þjóðverja.
Loftárásir 'hafa verið gerðar
á ýmsa staði á Riviera-strönd
Ítalíu og Frakklands, en ekki
var getið um staði þá, sem árás
irnar voru gerðar á.
Badoglio marskálkur og Um-
berto krónprins eru komnir til
Róm og hafa átt viðræður við
leiðtoga bandamanna.
Páfinn hefir veitt Mark Clark
yfirmanni 5. hersins, áheyrn,
svo og öðrun^ leiðtogum banda-
mannaher j anna. Ekkert hefir
verið upplýst um, hvað þeim fór
á milli.
Frh. af 3. síðu.
unga fallbyssum á strandvirk-
in, en síðan ruddust fótgöngu-
liðar á land.
Veður fór batnandi á Ermar-
undi í gær, en í gærkvöldi var
kominn krappur sjór. Engu að
síður var haldið áfram að senda
herlið og margháttaðar birgðir
yfir sundið.
Eisenhower skýrði svo frá í
gær, að traust það, sem hann
hefði á hersveitunum undir for
ystu Montgomerys væri full-
komlega á rökum reist, enda
hefðu þær sýnt frábæra frammi
stöðu í byrj unaraðgerðunum á
Frakklandsströndum.
í Þjóðverjar reyndu að trufla
herflutniriga bandamanna með
því að gera loftárásir á strönd-
ina, en þeim var öllum hrundið
og voru níu þeirra skotnar nið-
ur. Allan daginn í gær fluttu
svifflugur bandamanna smábif-
reiðar (Jeeps), loftvarnabyssur
og annan útbúnað yfir sundið
og var þessu haldið áfram þeg-
ar síðast fréttist.
í árásum sínum reyndu
Þjóðverjar að tefla fram flug-
vélum, sem voru merktar ein-
kennum bandamannaflugvéla,
en það mistókst. Hins vegar
sendu bandamenn mikinn
fjölda Mitchell-, Boston-,
Lightning-, Mustang- og Typ-
hoon-flugvélar, sem gerðu skæð
ar árásir á hermannaflokka,
birgðarlestir og stöðvar Þjóð-
verja að baki víglínunni.
Hvar er „Allanfs
bafneggurinn"!
Frh. af 3. síðu.
mikilvægum tíðindum frá
þeim löndurp nú á næstunni.
Fyrst í stað verður þó að gera
ráð fyrir, að bandamenn geri
sér allt far um að tryggja að-
stöðu sína sem bezt í Norður
Frakklandi, áður en frekar
verður að hafzt.
HITT VERÐUR AÐ TELJAST
ósennilegra, eins og sakir
standa, að innrás verði gerð
í Noreg. Þangað er langt og
erfitt að koma við innrásar-
prömmum, bæði vegna land-
fræðilegrar aðstöðu og eins
vegna vegalengdarinriar.
NÚ BÍÐA MILLJÓNIR manna
í Evrópu, Pólverjar, Tékkar,
Hollendingar, Belgar, Danir,
Frakkar og Norðmenn þess,
sem verða vill næstu daga.
Allir þeir, sem andstyggð
hafa á kúgun nazismans, vona
að bandamönnum takist það,
sem þeir hafa tekið sér fyrir
hendur: að losa Evrópu úr
viðjum kúgunar og villi-
mennsku.
Josef Beck láiinn.
OSEF BECK, ofursti, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Pól-
verj^, er látinn. Hann Iézt í bæ
einum, skammt frá Bukarest.
Hann hafði þjáðzt af berkla-
veiki undanfarin tvö ár. Hann
flýði land er Pólverjar urðu að
gefast upp fyrir Þjóðverjum í
september 1939 og mun hann
síðan hafa dvalizt í Rúmeníu.
Baráttan um ðidur
Ijósvakans
Frh. af 5. síöu.
því hin þyngstu viðurlög. Bret-
ar hafa iðulega sannað þetta
með því að leika á Þjóðverja
þannig, að ekki verður um
villzt. Og í sambándi við inn-
rásina, mun mikilvægi brezka
útvarpsins birtast betur en
nokkru sinni fyrr. Þá mun verða
útvarpað orðsendingum til fólks-
ins í héruðum þeim, sem um
verður barizt, og því fyrir lagt
hversu það skuli hegða sér.
Sumum verður boðið að flýja
brott, öðrum að efna til
skemmdaverka eða jafnvel að
grípa til vopna. Þannig mun
annars vegar reynast unnt að
bjarga mannslífum, sem ella
myndu óhjákvæmilega týnast,
og hins vegar að flýta fyrir loka-
sigri bandamanna í baráttunni
við hina rángjörnu uppivöðslu-
seggi, sem um skeið hafa fellt
hið 'harðasta ok á háls saklauss
fólks.
En eftir styrjöldina mun
koma í ljós, að þeir, sem hlust-
að hafa á brezka útvarpið þessi
síðustu þrautaár, munu halda
tryggð við það framvegis. —
Bretum hefir tekizt að stofna
útvarpsveldi, sem veldur því, að
málstaður Breta og hugsjónir á
nú hljómgrunn í hjörtum mill-
jóna manna, sem annars hefði
lítt komizt í kynni við áhrif
hinriar merku og mikilhæfu
þjóðar, er byggir eylandið hand-
ári Ermarsunds.
Ferðir fil Þingvalla
þjóðháfíðardagana
verða þannig:
Frá Reykjavík: 16. júní kl. 9, 13, 17 og 21.
— — 17. júní kl. 7,30 og 10,30.
Frá Þingvöllum: 17. júní kl. 18, 22 og kl. 1 (um nóttina)
— — 18. júní kl. 13, 17 og kl. 21.
Farseðlar verða seldir í Iðnskólanum frá. 10—14. júní
daglega kl. 10—12 og 13—19, á kr. 40,00 sætið báðar leiðir.
Lagt verður af stað frá Fríkirkjuvegi. Farseðlarnir gilda að-
eins fyrir þá ferð, sem þeir hljóða á.
Nauðsynlegt er, að almenningur sýni lipurð við ferm-
ingu bifreiðanna, að hópar, sem ekki komast í sömu bifreið-
ina skipti sér, og sömuleiðis, að fólk hafi farseðla sína við'
hendina og afhendi þá bifreiðarstjóra viðkomandi bifreiðar.
Þjóðhátíðarnefndin
*&*£*£$
* 'Mðreisn og
sjávarútvegsins.
u i, .<■ Frh. af 4. síðu.
tryggt það að rekstur þeirra fari
fram méð heill þjóðarheildar-
innar fyrir augum, og hvaða ráð
stafanir skuli gera í því skyni.
En fé það, sem verja þarf til
endurnýjunarinnar og aukning
ar vélbátaflotans, sýnir að end-
urriýjun togaranna kostar marga
tugi milljóna króna.
Jafnhliða því að auka skipa-
flotann og endurnýja hann, þarf
að nýta skipin þannig, að þau
liggi ekki í höfn, nema sem allra
skemmstan tíma úr árinu. Til
þess að svo megi verða, þarf að
bæta hafnarskilyrði mjög frá
því, sem nú er. Sérstakar lands-
hafnir þarf að byggja í grennd.
við hin auðugu fiskimið. Þang-
að safnast skipin síðan víðs veg-
ar að a£ landinu u:m vertíðar.
þetta mál er í undirbúningi hjá
milliþinganefnd í sjávarútvegs
málum og vitamálastjóra. Byggi
ríkið slíka höfn eða hafnir, verð
ur það að tryggja höfninni nægi
legt landrými. Það verður að
vera ódýr staður, þar sem fiski-
menn og þeir, sem að fiskinum
vinna, eiga köst á góðri aðstöðu
til þess að gera að aflanum og
notalegum híbýlum yfir vertíð-
ina, en geti síðar horfið heim til
sín að henni lökinni. Ríkið þarf
ekki eingöngu að reisa höfnina,
heldur einnig að eiga landið um
hverfis hana og nægar bygging-
ar til þess að tryggja nótendum
góða aðbúð og væga leigu.
Þrátt fyrir ýmsar framfarir
á sviði sjávarútvegsins og hið
mikla fiskimagn, sem okkar á-
gætu sjómenn draga á land, má
segja að hagnýting aflans sé að
mörgu leyti enn á byrjunar-
stigi. Sama gildir um fiskirann-
sóknirnar, sem þó ættu að vera
undirstaða fiskveiðanna ,og um
rekstur skipanna.
Rannsókn, sem milliþinga-
nefnd í sjávarútvegsmálum
gerði á árunum 1933—1935,
sýndi að furðu lítið fé var bund
ið í sjávarútvegi. Þetta hefir
ekki breytzt til muna. Reynslan
hefir sýnt, að það er mun álit-
legri atvinnuvegur að verzla
neð nauðþurftir sjávarútvegsins
heldur en að leggja fé í útgerð.
Fyrirtæki, sem slíkt stunda,
græða stórfé og gefa eigendum
sínum arð, ár eftir ár, þó að út-
gerðin tapi. Fé þessara fyrir-
tækja.er tekið beint frá útgerð-
inni á bæði góðum árum og
vondum og verður til þess að
kippa fótum undan rienni í erf-
iðu árferði.
Þetta verður að breytast.
Það þarf með löggjöf að
hvetja útgerðarmenn til þess að
tryggja útgerðinni allan verzl-
unarhagnað, hvort heldur er af
innflutningi eða útflutningi sín
um, og þetta fé á að vera vara-
sjóður útvegsins á erfiðu árun-
um. Eins þarf- útgerðin sjálf að
eiga harðfrystihús, niðursuðu-
verksmið j ur, vélsmið j ur,lifrar-
bræðslur og önnur fyrirtæki í
sambandi við útgerðina.
Ég hefi hér að framan dregið
upp í stórum dráttum, hvaða
ráðstafanir-ég tel nauðsynlegar
til þess að byggja upp sjávarút-
veginn á heilbrigðum grund-
velli, eftir því sem unnt er með
núverandi þjóðskipulagi. Engin
ein ráðstöfun mun duga til þess,
heldur verða margar að fara
saman, og eru þær í stuttu máli
þessar:
Endurnýjun og aukning skipa
stólsins.
Nýtízku hagnýting aflans með
vísindalegum aðferðum.
4uknar hafnarbætur.
Fiskirannsóknir.
Athugun nýrra veiðiaðferða
og veiðarfæra.
Olbreiðið Álþýðublaðið.