Alþýðublaðið - 14.06.1944, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.06.1944, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 14. júní 1S44. ra SóknRússa. U M SVIPAÐ LEYTI og Bret- ar og Bandaríkjamenn ganga á land í Normandie og hefja þar með það, sem virð- ist ætla að verða úrslitaþátt- ur í styrjöldinni, berast þær fregnir, að Rússar hafi byrj- að skæða sókn á hendur Finn um á Kyrjálaeiði. Þessar fregnir hafa, að vonum, vakið mikla athygli um heim allan, ekki hvað sízt á Norðurlöndum. Nú er það að vísu svo, að mönnum getur ekki komið hún á óvart. Það var viðbúið, að Rússar myndu hefjast 'handa og byrja mikla sókn á hendur Finnum eftir að þeir höfðu hafnað vopnáhlésskilmálum þeim, sem Rússar lögðu fyrir þá. En það er ýmislegt í sam- bandi við sókn þessa, sem gefur tilefni til frekari hug- leiðinga, sem menn í fljótu bragði koma ef til vill ekki auga á. MÖNNUM VERÐUR Á AÐ hugleiða með sjálfum sér, hvers vegna Rússar hafi ekki byrjað sókn á einhverjum öðrum vígstöðvum, nú þegar bandamenn hafa ráðizt á land á ströndum Vestur- Evrópu. Er ekki eðlilegt, að menn spyrji sjálfa sig, hvers vegna hernaðaraðgerðir Rússa hafi ekki byrjað þar, sem bandamönnum mætti að mestu gagni koma? Það hef- ir vafalaust mikla 'hernaðar- þýðingu, að hrekja þýzka herinn á brott úr Finnlandi, en þó virðist, í fljótu bragði, að minnsta kosti, að það geti tæplega borið þann á- rangur, sem sókn inn í Pól- land eða Rúmeníu myndi hafa i för með sér. Okkur, sem lítið skynbragð berum á hernaðarvísindi, kemur til dæmis til hugar, að stytzti vegurinn frá Rússlandi til Berlínar muni tæpast liggja um Kyrjálaeiði. EN AÐ SJÁLFSÖGÐU dæma þeir betur um þessi mál, sem sérmenntun 'hafa hlotið í hernaði. Ekki skal hér full- yrt, hvað fyrir Rússum vakir í þesum efnum, hvort þeir hyggja á að hertaka Finnland eða halda enn lengra í vest- urátt. Tíminn sker úr því og menn bíða átekta. Þó hefir það verið undrunarefni mörgum þeim, sem fylgjast með fréttum, að Rússar hafa nú um margra mánaða skeið verið svo til aðgerðalausir við Jassy í Rúmeníu, svo og í Póllandi. Er það vegna þess, að þeir telja það ekki borga sig að halda lengra áfram, að samgönguleiðir þeirra séu orðnar of langar, eða býr eitthvað annað undir? MAÐUR SKYLDI ÆTLA, að það væri hinum sameinuðu þjóðum mikill ávinningur í því, ef Rússar sæktu fram t. d. frá Tamopol í Póllandi til Lwow (Lemberg), eða frá Frh. á 7. síðu. Bandaríbjamenn fóku Hontebourg í gær. ----.......... Harðar Ioftárásir á samgönguleiðir Þjóðverja Eisenhower gaf í gær út ávarp til innrásar- hersins. "O KKIHAFA orðið mikilvægar breytingar á bardagasvæð- •*-“ inu í Normandie undangengið dægur. Bandaríkjaher- sveitir hafa tekið borgina Montebourg. Yfirleitt er talið, að bandamenn ihafi nú komið sér vel fyrir á skaganum og sé mesta hættan um garð gengin. í gær létu flugmenn banda- rnanna mikið til sín taka og gerðu f jölmargar árásir á stöðv- ar Þjóðverja að baki víglínunni. Um það bil 1400 stórar, am- erískar flugvélar fóru til árásanna og ollu miklu tjóni á sam- göngukerfi Þjóðverja. Eisenhower gaf í gær út ávarp, sem stílað var til Montgomerys hers'höfðingja og Harris flug- marskálks, Spaatz hershöfðingja og Harris flugmarskálks og allra hermanna, sem til þessa hafa tekið þátt í innrásinni og þakkað þeim unnin afrek eftir fyrstu 7 daga innrásarinn- ar. Stalin hefir látið í ljós hrifningu sína yfir frammistöðu og undirbúningi bandamanna við innrásina. Bandamönnum verður vel á- gengt á landgöngusvæðinu í Normandie, enda þótt þeir hafi ekki, en sem komið er, tekið neina mikilvæga hafnarborg. Þó halda þeir áfram að flytja lið og birgðir yfir sundið, bæði með : skipum og í flugvélum. Banda- ríkjahersveitir, sem berjast mjög vasklega, hafa tekið bæinn Montebourg og nálgast Oher- toourg hægt og toítandi. Talið er, að Þjóðverjar muni verja þá toorg til hinnsta manns enda eru þar góð hafnarmannvirki og skil yrði íágæt til þess að skipa þar á land Iþungum hergögnum og ýmsu því, sem ekki er unnt að flytja í innrásarprömmum upp að söndunum. Öflugar varnir Rommels við Caen. Talið er, að Rommel tefli fram þremur úrvals hersveit- um Þjóðverja í og við Caen og muni hann freista þess að verja þorgina meðan þess er nokkur kostur. Þá iþykir sýnt, að mót- spyrna Þjóðverja á iþessum slóð- um muni harðna til muna, enda hafa þeir dregið að sér mikið varalið. Þarna toerst meðal ann- ars 6. torezka herfylkið, sem flutt hefir verið loft;leiðis og hef ir það getið sér góðan orðstír á toardlögum undanfarinna daga. Hefir gengið á ýmsu, hafa bandamenn misst ýmsa staði, en siíðan náð þeim aftur eftir tolóð- uga toardagá. í London var til- kynnt á gærkveldi, að aðstaða toandamanna þarna væri nú tryggð. Bandamenn gernst öruggir í Nor mandie. Það er bersýnilegt, að toanda- jnenn reyna að ráðast þvert yfir skagann og útiloka hafnartoorg- ina Normandie frá allri hjálp, sem Þjóðverjar annars gætu í té látið. Rommel hefir komið fyrir vel æfðum hersveitum, sem munu eiga að verja Chertoourg- höfn. Þar sækja hermenn úr 2. amerlíska herfylkinu og hafa sýnt mikinn baráttukjark og yfir þurði yfir fjandmennina. Bæði (þrezk og ameriísk herskip halda áfram að veita hersveitunum vernd, sem streyma á land úr iníirlásarprömmum við sandana í Normandie. Miklir yfirburðir toandamaima í lofti. í gær fóru flugvélar toanda- manna í um 7000 árásarferðir. Þeim var einkuim toeint gegn flugvöllum Þjóðverja, járn- torautum og öðrum samgongu- æðum. Meðal annars fóru * um 1400 amerískar sprengjuflugvél ar áf stærstu tegund til árása samtímis. Um 70 þeirra komu ekki aftur til ibækistöðva sinna. Flugvélarnar ollu miklu tjóni, en urðu ekki fyrir teljandi mót- spyrnu. Einnig var ráðizt á þýzka hraðtoáta sem reyndu að trufla flutninga toandamanna. Einum hraðtoáti var sökkt, nokkr um stökkt í toál en þrír skemmd- ust mjög mikið. Ummæli Stalins. Samkvæmt fregnum frá Moskva hefir Stalin látið svo um rnælt, að landganga banda- manna sé hið mesta þrekvirki og einsidæmi á hemaðarsögunni. Hún hefir verið prýðilega skipu lögð og framkvæmd. Aldrei áð ur hefir neinn reynt svo stór- feldar hernaðaraðgerðir. Stalin .minntizt á, að N^poleon hefði á sánum tiíma mistekizt að ráð- ast ytfir sundið. Þá hefði Hitler gumað af því í tvö ár, að hann skyldd gera það. En nú hefði toandamönnum tekizt þetta með sæmd og prýði. Hafa uimmæli Stalins vakið mikla athygli víða í löndum bandmanna. Guernsey á valdi bandamanna? Þýzka (?) útvarpsstöðin „At- lantik“ skýrði frtá því í gær- kveldi, að Guernsey, sem er ein aif Ermarsundseyjunum svo- nefndu, væri nú á valdi banda- manna. Þetta hefir ekki verið staðfest í London. Guernsey og Jersey og fleiri Ermarsundseyj- ar, sem eru úti fyrir vestur- ströndum' Nórmandie, en éru brezkar, hafa verið á valdi Þjóð verja síðan Frakkland var sigr- að fyrir réttum f jónum árum sið- an. • Hér sjást fyrstu myndimar, sem hingað hafa toorizt af innrás : toandamanna á norðurströnd Frakklands 6. þ. m. Efri myndin sýn- ] ir landgöngupramma úti fyrir Frakklandsiströnduim og sjást fall- j toyssukúlur herskipa handamanna springa á ströndinni. Neðri mynd , in sýnir ameríska fótgöngliða vaða í land, er irinrásin var gerð, en i úti fyrir sjást mörg innrásarskip, sem bíða frekari fyrirskipana. Rússar sækja áfram RÚSSAR halda áfram sókn- inni á hendur Finnum og eiga nú eitthvað 55 km. ófarna til Víborgar, en þangað virðast þeir stefna sókninni. Finnar berjast af miklu harðfengi og hafa komið sér upp öflugum varnarvirkjum í samvinnu við Þjóðverja. Þarna eru miklar aurbleytur og erfitt að koma við þungum hergögnum. Undanfarin þrjú ár, segir í útvarpi frá London, hafa Þjóð- verjar og Finnar komið sér upp mjög öflugu virkjabelti með gaddavírsgirðingum, vélbyssu- hreiðrum og margvíslegum hindrunum. Þó hafa Rússar getað sótt fram, enda ‘hafa þeir mikla yfirburði í lofti og gnægð fallbyssna, sem Finnum skortir mjög. Rússar hafa tekið bæinn Terioki efti rnokkra bardaga. Rússnesk herskip eru með ströndum fram og skjóta á strandvirki Finna. Terioki er smábær á strönd Finnlandsflóa. Hann mun eink- um kunnur fyrir það, að það var þar, sem Kuusinenstjórnin hafði bækistöð sína í ófriðnum milli Finna og Rússa 1939—40. Mfe@rnaiurinn í al- D ANDAMENN halda áfram lofthernaðinum á hendur Þjóðverjum. Fjölmargar hinna stóru Lancastersprengjuflugvéla Rreta, hafa ráðizt á iðnaðarborg ina Gelsenkirchen í Ruhrhéraði í Þýzkalandi. Samtímis var ráð- izt á Köln. Flugvélar þessar komu frá Bretlandi. Mikill fjöldi stórra sprengju- flugvéla, sem bækistöðvar hafa á Ítalíu, réðust á „Evrópu- virkið“ úr suðri, meðal annars á | stöðvar í grennd við Munchen í Suður-Þýzkalandi og Innsbruck í Austúrríki. Tjón er talið mikið. IFYRRAKVÖLD barst sú fregn frá Kaupmannahöfn, að einn af fegurstu og vinsæl- ■ustu skemmtlstöðum borgar- innar., veitingaskálinn á Lange- linie-bryggju hefði skemmzt í Frh. á 7. síðu V

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.