Alþýðublaðið - 14.06.1944, Blaðsíða 7
7
MiSvikudagur 14. júní 1944.
’1 - *
iBœrinn í dag.j
Næturlæknir er í Læknavarð-
atofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
tekí.
Næturakstur annast, Hreyfill,
*ími 1633.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Þingfréttir.
20.00 Fréttir.
20.15 Endurvarp frá Ameríku og
Englandi (Dagur hinna sam-
einuðu bjóða).
21.00 Hljómplötur: íslenzkir ein-
söngvarar og kórar.
21.15 Ávarp frá þj óðhátíðarnefnd
Ásgeir Ásgeirsson banka-
stjóri, varaformaður nefnd-
arinnar).
2135. Fréttir.
Dagskrárlok.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir „Paul Lange og Thora
Parsberg“ kl. 8 í kvöld í síðasta
sinn.’ Aðgöngumiðasalan er opin
frá kl. 2 í dag.
Blóðgjafarsveit skáta
hélt aðalfund sinn í fyrrakvöld.
40 skátar höfðu á starfsárinu gefið
17 lítra af blóði, en tilgangur
sveitarinnar er að gefa blóð nauð-
stöddum sjúklingum í sjúkrahús-
um bæjarins. Sveitin fær 25 kr.
fyrir hverja blóðgjöf og rennur féð
í sérstakan sjóð til styrktar sjúkum
skátum. í stjórn sveitarinnar voru
kosnir: Jón Oddgeir Jónsson, for-
maður, Þorsteinn Bergmann, gjald-
keri og Eyjólfur Jónsson ritari.
„Einingin“,
5.—6. blað annars árgangs, er
komin út. í blaðinu eru fjölda
greinar og kvæði um bindindismál
og fleira.
Frh. af 2. síðu.
2. gr. Eionseti hefir ókeypis bú-
. stað, Ijóis og bita og er lundan-
þeginn ölluim opinberúm gjöld-
um io,g isköttum.
3. gr. Allan útlagðan kostnað
forseta rvegna rekstrar embætt-
isins ber að greiða úr níkissjóði
sénstaklega.
4. gr. ;Þeir, er fara með forseta
vald um stunidarsakr, sbr. 8. gr.
Btjórnarisknárinnar, skulu saman
lagt, meðan Iþeir gegna starfan
um, njóta jafnra launa, miðað
við miánaðarstarfstíma, og mán-
aðarlaun forsetans eru að við-
bættri verðlagsuppbót. Skulu
launin skiptast að j'öfnu mi'lli
'þeirra.
Aiúk þess skulu þeir fiá greidd
an útlagðan kostnað vegna starf
ans.
5. gr. Lög þessi öðlast gildi
samtlíimis stjórnarskrá lýðveldds
inis íslandis.
Athugasemdir við lagafrumvarp
þetta:
Samkvæmt 9. gr. stjórnar-
skuárinnar skal áfcveða með iög-
ium greiðslur af ríkisfé til for-
setans og þeirra, er fara með
iiorsetavalid.
Um II- gr. Stofnlaunin þykja
' Ibæf ilega sett eins og d greininni
segir, og sökum óvissu peninga-
gildisins þykir rétt, að ,greidd
skiuli verð'lagsupbót á launin
með sama hætti og til annarra
emibættismanna ríkisins.
Um 2. og 3. gr. Ákvæði þess-
arar greina eru Ihin sömu og nú
gilda fyrir ríkisstjóra íislands.
Um 4. gr. 'Þóknun ti'l þeirra
man-na, sem fara aneð forseta-
vald um stundarsakir, þykir
•réttilegast ákveðin eirís og í
greininni segir og að launin
dreifist a/ð jöfnu milli þeirra.“
ALÞYPUBLAÐIB
lin 17. júní
Frh. af 2. síðu.
i
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
SigurBaugar Fanneyjar Björnsdóttur.
Aðstandendur.
Ílf
Hérmeð er fastlega skorað á alla húseigendur að
hreinsa nú þegar lóðir sínar og lendur og verði því
lokið fyrir 17. júní n.k. — Jafnframt er stranglega
bannað að fleygja rusli eða öðrum óþverra í læk-
inn eða óbyggðar lóðir og varðar sektum, ef út af
er brugðið.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 13. júní 1944.
Bergur Jénsson.
íuvélarnar
eru kemnar. 3 stærölr.
Landsmót stúdenta á
Þingvðllum og í
Reykjavík 18. og
19. júní
Jk NNAÐ landsmót ís-
lenzkra stúdenta verður
haldið hér í bænum 18. og
19. júní næstkomandi.
Dagskrá mótsins verður þann-
ig: Forseti setur mótið í Tjarn-
arbíó kl. 10 fyrir hádegi. Þá
flytur Ólafur Lárusson, prófess-
or, ræðu, og mun hann ræða
um þátt íslenzkra mennta-
manna í frelsisbaráttu íslend-
inga.
Því næst talar Páll S. Páls-
son, formaður stúdentaráðs há-
skólans, um stofnun bandalags
islenzkra stúdenta.
Enn fremur verða svo um-
ræður um sjálfstæði íslendinga
og afstöðu þess til annarra
landa. Málshefjandi verður Ás-
geir Ásgeirsson, alþingismaður.
Þá verður fundarhlé til þátt-
töku í skrúðgöngunni.
Kl. 4 síðdegis, verður mótinu
svo haldið áfram. Verður þá
rætt um viðnám við erlendum
áhrifum. Málshefjandi verður
Gylfi Þ. Gíslason, dócent. Enn
fremur verður svo ræt um skóla
mál og menntun stúdenta. Máls-
hefjandi í þeim umræðum verð-
ur Ágúst H. Bjarnason.
Þann 19. júní verða svo fram-
haldsumræður, ef þörf gerist.
Mótinu mun ljúka með sam-
kvæmi að kvöldinu.
Ötvatrpi® frá L©eicl©ns
Sendiherra íslands
lalar á sunnudag. ■
SENDIHERRA ÍSLANDS í
London, Stefán Þorvarðar-
son, talar í íslenzka útvarpið í
London, næstkomandi sunnu-
dag kl. 2.15, og mun þá bera
fram hamingjuóskir sínar og
íslendinga í London af tilefni
lýðveldisstofnunarinnar. 25. þ.
m. verður síðast útvarpað viku-
lega frá London á íslenzku,
hins vegar er ætlað að við og
við verði útvarpað.
BÆJARSTJÓRN AKRANES
KAUPSTAÐAR gengst
fyrir hátíðahöldum á Akranesi
sunnud.18. júni n.k. Tilefnið er
fullveldistakan, og að hinn 16.
júní 1944 eru liðin 80 ár frá því
er Akranes fékk verzlunarrétt-
indi.
KI. 10 um morguninn, hefst
guðsþjónusta í Akrane=kirkju.
Kl. 1 hefst skrúðganga bæjar-
búa á 'hátíðastaðinn. Lúðrasveit-
in Svanur, frá Reykjavík, geng-
ur í fararbroddi og spilar ætt-
jarðarlög. Á hátiðastaðnum fara
fram ræður og íþróttasýningar.
Kl. 9 um kvöldið hefst sam-
koma í Bíóhöllinni, með söng og
ræðuhöldum. Þar flytur Kjart-
an Ólafsson kvæðaflokk í til-
efni afmælisins. Þar kemur og
Fjallkonan fram.
Hátíðablaðið „Akranes“ kem-
ur út í tilefni af þessum hátíða-
höldum.
Síðasti söludagur farseðlanna.
í dag eru síðustu forvöð fyrir
fólk að kaupa farseðla að Þing-
velli á þjóðhátíðina. í kvöld verður
sölunni hætt, enda trúlegt að þá
verði uppselt það farrými, sém
þjóðhátíðarnefnd hefir umráð yfir.
boðnir eru sérstaklega, að vera
viðstaddir minningaraflhöfn við
styttu Jóns Sigurðssonar, til
Þingvalla kl. 9.3Ó. Bílarnir
verða á Kirkjutorgi. bak við
Dómkirkjuna og stjórriar lög-
reglan brottferðinni. Allir þeir
bílar verða auðkenndir með
hátíðarmerkj.um og fara þeir
niður að Valhöll. Þar verður
herbergjum úthlutað handa
sendiherrum, biskupi, forseta
alþingis o. fl. og væntanlega
konum þingmanna. í Valhöll
verður skrifstofa hátíðarnefnd-
ar og blaðamanna.
Athöfnih á Lögbergi.
Að loknum morgunverði kl.
1, stundvíslega, ganga þing-
menn frá Valhöll upp brekk-
una, niður stigann i Hestagjá
og eftir Almannagjá að Lög-
bergi. Þegar komið er upp í
Hestagjá, verður liði fylkt og
gangi fremstur ríkisstjóri, rík-
isstjórn og biskup, síðan þing-
mannafylking með forseta sam-
einaðs þings í broddi. Lögreglu-
stjóri hátíðarinnar fylgir fylk-
ingpnni. Á sama tíma og þing-
menn ganga upp Hestagjá, fara
sendiherrar, konur þeirra og
konur bingmanna og aðrir
gestir, í fylgd þjóðhátíðarnefnd-
ar, beina leið fram með brekk-
unni, eða 'í bílum til þingpálls,
og hafa tekið sæti á gestapalli,
er þingfylkingin kemur. Þegar
þingmannafylkingin fer af stað
verður blásið í lúður á barmi
Almannagjár, fyrir ofan þing-
pall, sem merki þess, að hing-
menn séu væntanlegir á Lög-
berg. (Lúðurþeytari er Karl O.
Runólfsson). Um leið og fylk-
ingin gengur inn á þingpall,
leikur lúðrasveit „Öxar við
ána“. Þingmenn taka sæti á
pöllunum. Sendiherrar og aðrir
gestir, svo og konur bing-
manna fá sæti á gestapalli.
Á mínútunni kl. 1,30 flytur
forsætisráðherra ávarp í 5 mín-
útur, guðsþjónustan tekur 20
mínútur og nákvæmlega kl. 1,55
setur forseti sameinaðs þings
fund. Þingmenn rísa úr sætum,
er gildistöku stjórnarskrárinn-
ar er lýst, en þá er fáni dreginn
að hún, og standa þingmenn, á
meðan klukknahringing og mín-
útuþögn varir og þjóðsöngur-
inn er sunginn. Eftir þineslit er
sungið „ísland ögrum skorið.“
Kveðjur erlendra fulltrúa- At-
höfnin fer fram á þann hátt, að
tilkynnt verður, að tilhlutun
utanríkisráðherra, í hvert sinn,
hver tekur til máls. Þegar fyrsti
fulltrúinn gengur í ræðupall,
verður fáni þjóðar hans dreg-
inn að hún, og er hann hefir
lokið máli sínu, verður þjóð-
söngur þjóðar hans leikinn. For-
seti íslands mun þakka sendi-
'herrunum, og er hann hefir
lokið því og gengið til sætis, er
leikinn íslenzki þjóðsöngurinn.
Fcmahylling fer þar næst
fram á þann hátt, að „Fjallkon-
an“ (stúlka í skáutbúningi eða
upphlut) gengur fram fyrir
stóru fánastöngina og á eftir
henni koma tólf stúdentar með
hvítar stúdentshúfur og stú-
dentsborða um brjóst. Mynda
þeir heiðursfylking, á meðan
„F,jallkonan“ flytur stutt ávarp.
A meðan þetta fer fram, halda
þingmenn kyrru fyrir á Lög-
bergi, en að þessari athöfn lok-
inni, ganga þeir brott, upp í Al-
mannagjá í fylkingu yfir brúna
og síðan heim til Valhallar
(eftir veginum).
Slys á ísafirði.
Það hörmulega slys vildi til á
ísafirði, fyrir skömmu, að drengur
féll þar í liöfnina og drukknaði.
Drengurinn, sem var 6 ára: að aldri,
hét Reynir, og var sonur Jóhanns
Gunnars Ólafssonar, bæjarfógeta
á ísafirði.
Leopold konungur
fluttur lil Þfika-
lands.
ILKYNNT hefir verið í
stöðvum belgísku stjórn-
arinnar í London, að Þjóðverj-
ar hafi flutt Leopold Belgíu-
konung til Þýzkalands. Mun
þetta hafa átt sér stað á fyrsta
degi innrásarinnar. Eru Þjóð-
verjar hræddir um, að hann
kynni að falla í hendur banda-
mönnum. Leopold konungur hef
ir verið í hálfgerðu varðhaldi
Þjóðverja í kastala einum í
grennd við Bruxelles síðan
belgiski herinn gafst upp í maí
1940.
Sókn Rússa.
Framh. af 3. síðu.
Sarny til Brest-Litovsk og
þaðan til Varsjár og gætu
þannig truflað með öllu sam-
göngukerfi Þjóðverja, sem
þá yrðu að senda liðsauka að
vestan til* þess að stemma
stigu við framsókn Rússa.
RÚSSAR HAFA GETIÐ SÉR
mikinn orðstír í þessari
styrjöld. Ef til vill hefir
þáttur þeirra orðið til þess,
að bandamenn muni vinna
sigur. Þeir urðu fyrst að
hopa á hæli, en hófu síðan
sókn, sem lengi mun í minn-
um höíð. Þegs vegna spyrja
menn: Hvað dvelur Orminn
langa? Nú virðist tími kom-
inn til samstilltra átaka úr
austri og vestri.
í SUMUM FREGNUM hefir
verið greint frá þvi, að sókn
Rússa á Kyrjálaeiði sé að-
eins upphafið að nýjum hern-
aðaraðgerðum. Það má að
sjálfsögðu vel vera. En ein-
hvern veginn finnst manni
undarlegt, að sóknin skuli
hafin á þessum stað, þar sem
vitað er, að hún getur raun-
verulega engu hreytt um úr-
slitin í þeim Ragnarökum,
sem nú eiga sér stað.
Frh. af 3. síðu.
sprengingu. Fullvíst er, að hér
voru Þjóð'verjar sjálfir að verki.
Tvær sprengjur sprungu inni í
byggingunni og húsakynni Fé-
lags skemmtisiglingamanna á
fyrstu hæð, svo og skrifstofur
eru gereyðilagðar. Veitingasal-
irnir hafa orðið fyrir miklum
skeanmdum og er þatta mikil
raun öllum Kaupmannahatfnar-
ibúuim, sem mátu stað þennan
mikils, enda var hann heims-
kunnur tfyrir fegurð sdna.
(Frá dansk-a blaðatfulltnúanum).