Alþýðublaðið - 23.07.1944, Side 2
z
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Sunnudagur 23. júlí 1944.
flijHjðtiblaMíi
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pétursson.
Ritstjórn og afgreiðsla í Al-
þýðuhúsinu við Hverflsgötu
Símar ritstjórnar: 4901 og 4902.
Símar afgreiðslu: 4900 eg 4906.
Verð í lausasölu 40 aura.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
íþróftirnar og
sfarfsskilyrði íþróita
manna
ÞAU TVÖ MÓT, sem háð
hafa verið í frjálsum í-
þróttum 'hér í toæ á þessu sumri,
hafa fært mönnum heim sann-
inn um það, að íþróttamenn
okkar eru líklegir til mikilla
afreka í framtíðinni. Á hinu
fyrra þeirra voru sett tvö ný ís-
landsmet, en á hinu 'síðara
fjögur ný íslandsmet og tvö
drengjamet. Tala metanna er
þó ekki aðalatriðið. Hitt er
meira um vert, að hér er um
góð afrek að ræða, og við höf-
um nú að minnsta kosti eign-
azt tvo frjálsíþróttamenn, sem
væru hlutgengir á kappleiki
meðal íþróttamanna annarra
þjóða.
íþróttaáhugi hefir um langa
hríð verið mikill hér í bæ, og i-
þróttamennirnir hafa sett mik-
inn og góðan svip á toæinn. En
allt til þessa hefir aðstaða þeirra
til æfinga og kappleikja verið
mjög erfið. A liðnu ári var þó
efnt til nokkurra viðgerða á í-
þróttavellinum, svo að dável
mun mega ,við una um sinn.
Mun það margra manna mál,
að þær viðgerðir eigi sinn þátt
í þeim bætta árangri, sem náðst
hefir á þessu sumri. Hin tvö
frjálsíþróttamót sumarsins hafa
og sannað það að áhugi
alls almennings í bænum fyrir
vexti íþróttanna og viðgangi fer
mjög vaxandi. íþróttamenn
bæjarins geta því vissulega ver
ið þess fullvissir, að bæjarbúar
munu fúsir til þess að taka und
ir sérhver tilmæli og sérhverj-
ar sanngjarnar kröfur íþrótta-
manna um toættar aðstæður til
iðkunar menntar sinnar. Bær
og ríki hefir að sönnu lagt i-
þróttamálunum nokkurt lið
með fjárveitingum til heildar-
samtaka íþróttamannanna á
liðnum árum og nú með því að
efna til nokkurra breytinga á
starfsskilyrðum iþróttamanna.
Þessar breytingar hafa þó kom
ið vonum síðar, og þær hljóta
aðeins ,að verða * upphaf þess
sem koma skal. Iþróttafélög
bæjarins hafa iðulega lagt fram
tillögur, er þau hafa talið horfa
til eflingar íþróttastarfseminni
í bænum. Nú hlýtur að því að
koma, að hlutaðeigandi ráða-
menn hefjist handa um raun-
hæfar aðgerðir í samstarfi og
samráðum við hin fjölmennu og
starfsömu íþróttafélög.
Nú er um það rætt og ritað
af ýmsum, að strax eftir stríð
muni íslenzkir íþróttamenn
taka þátt i kappleikjum meðal
íþróttamanna annarra þjóða og
efna til millilandakeppna. Og
vissulega ber að vinna að slíku.
Við höfum þegar eignazt í-
þróttamenn, sem eru líklegir
til þess að verða þjóð okkar til
sæmdar og fremdar inn á við
og út á við. En til þess, að þjóð
in geti vænzt þess, að íþrótta-
menmrnir færi henni aukinn
Hér er mynd af hreiðri Hitlers Berqhtesgaden — en þar heldur hann allar helstu ráðstefnur
sínar. Það var í Berdhtesgaden, sem morðtilraunin við Hitler og herfioringja hans var framin
f¥8@rlciSegar lairadbúnallartiiauEiir:
Framieiðsia á heymjöli ocg þurrk-
un grænmetis
Undirbúningur hafinn við garðyrkjuskólann
að Beykjum í ÖSfusi
■jyj ERKILEGAR tilraun-
ir eru nú í undirbún-
ingi við Garðyrkjuskólann á
Reykjum í Ölfusi, eru það
tilraunir með framleiðslu á
heymjöli, og er það alger ný-
mæli hér á landi, jafnframt
er hafinn þar undirbúningur
um tilraunir með þurkun
grænmetis, sem eigi er síður
merkileg nýjung.
Skólastjóri Garðyrkjuskólans
á Reykjum, Unnsteinn Ólafs-
son, hefir góða trú á því, að
framleiðsla heymjöls eigi
mikla framtíð fyrir sér hér á
landi, og undir þá skoðun
munu margir fróðir menn
taka, og hafa nokkrir hreyft
því opinberlega.
Um þessar mundir er verið
að reisa stóran skála og verða
tilraunirnar með heyþurrkun-
ina gerðar í honum. Við þurrk-
unina verður notuð hveraorka
og er ætlazt til að “þurrkunin
fari fram með þeim hætti, að
heitu lofti verði dælt gegnum
heyið, og mun sú aðferð verða
mun ódýrari við þurrkun
heysis, heldur en ef nota ætti
rafmagn til þess.
í skála þeim, sem nú er
verið að reisa þarna, er gert
ráð fyrir að hægt verði að
þurrka um tvær smálestir af
heyi á sólarhring, og takist
þessar byrjunartilraunir vel,
verður efalaust bætt við fleiri
þurrkskálum.
Hér á landi ætti að verða
verulegur markaður fyrir hey-
mjöl, og því ekki gert ráð fyrir
því til útflutnings fyrst í stað
að minnsta kosti.
Eins og kunnugt er, þá eru
fluttar hirigað í stórum stíl er-
lendar fóðurvörur, en hins
vegar ætti að draga úr þeim
innflutningi, og hann jafnvel
að verða óþarfur með öllu, ef
heymjöl yrði hér framleitt,
sem nokkru næmi. Eirinig
ættu mjólkurframleiðendur að
geta aukið nautgripastofn
sinn með því að kaupa heymjöl
og þurrka hey frá innlendum
þurrkunarstöðvum.
Ef tilraunir þessar takast
vel, þyrfti að reisa þurrkstöðv-
ar á. helztu hveraorkusvæðum
landsins, þar sem jafnframt eru
góð ræktunarskilyrði í ná-
grenninu, enn fremur mætti
hugsa sér nýbýlahverfi í sam-
bandi við þurrkstöðvarnar.
Auknar jarðboranir munu
sennilega leiða í ljós, að hvera-
orkan er víðar og meiri en nú
er vitað um, og því ástæða til
að ætla, að hún muni nægja
til framleiðslu heymjöls í stór-
um stíl.
Jafnframt tilraunum þeim,
sem gerðar verða við Garð-
yrkjuskólann á Reykjum með
heyþurrkunina, verða enn
fremur, eins og áður er sagt,
gerðar tilraunir með þurrkun
grænmetis, og er þar eigi síð-
ur um merkilega tilraun að
ræða. Ef tilraunir þessar tak-
ast sæmilega, munu skapazt
hér stórauknir möguleikar til
aukinnar framleiðslu á græn-
meti.
Valgerður Kr. Gunnarsdóttir,
Þrastagötu 3 er fimmtug í dag.
Frú Sigríður Ingimundardóttir,
Haðarstíg 12, er sextug á morgun.
Laugarnesprestakall.
Messa í dag kl. 2 e. h. Sr. Garð-
ar Svavarsson. • ■S‘M\
orðstír, hlýtur hún að gera sér
þess glögga grein, að henni ber
að gera aðstæður íþróttamanna
sinna sem beztar, því að ella
getur hún ekki vænzt af þeirra
hálfu þess árangurs, sem ella
væri. Og um það verður ekki
efazt, hver er vilji þjóðarinnar
í þessum efnum. Hins vegar er
mjög tímabært orðið, að ráða-
menn ríkis og toæjar taki að
leggja mikla áherzlu á það að
tjá þann vilja umbjóðenda
sinna — í verki. En þess er
skylt að minnast, að til þess. að
þáttur íþróttamannanna verði
slikur, sem vonir standa til,
verður fulltingi margra til að
koma. íþróttamennirnir hafa
sýnt það og sarinað, að þeir eru
alls góðs verðugir. Þá ætti ekki
að þurfa að efast um það, að
vilji forráðamanna ríkis og bæj
ar væri fyrir hendi til þess að
hlúa sem bezt aé þessum
kjarnagróðri íslenzkrar þjóðar.
Bæjarráð ræðir um
valnsleysið.
A BÆJARRÁÐSFUNDI í
fyrradag, var samþykkt
að fela Helga Sigurðssyni
forstjóra vatns- og hitaveit-
unnar, að athuga möguleika
á því að auka vatnsveituna
úr Gvendarbrunnum.
Eins og kunnugt er, hefir
vatnsskorturinn verið mjög
mikill í bænum svo að til
vandræða hefir horft í sumum
hverfum hans. Og í fyrradag
samþykkti bæjarráð að banna
bæjarbúum að nota vatn úr
vatnsveitu bæjarins til glugga-
þvotta, bílaþvotta og slíks, og
einnig til að vökva með garða.
Ef bæjarbúar hlýðnast ekki
þessu boði, eiga þeir á hættu
að lokað verði fyrir vatnið að
húsum þeirra.
Þá voru samþykkt tilmæli til
bæjarbúa um að fara sparlega
með vatn við þvotta og annað,
og jafnframt að láta það ekki
koma fyrir að sírennsli úr
krönum eigi sér stað.
Er það ekki að ástæðulausu,
að stjórn bæjarins fari að 'láta
vatnsmálin til sín taka, og þá
ekki aðeins með eilífum á-
minningum til borgaranna um
sparnað vatnsins, heldur verk-
legum framkvæmdum til úr-
bóta.
x.
VIÐS KIPTAM/JLARÁÐU -
NEYTÍÐ hefir ákveðið, að
frá 'og með 26. þ. m. sé heimilt
að afhenda 2 stykki áf kaffi-
ihæti gegn afhendingu stofn-
auka nr. 5, af núgildandi mat-
vælaseðli.
Stafn.auki nr. 3, sem gilt hefir
frá 16. maí s. 1. fyrir einu stk.
aíf kaffibæti, fellur úr gildi 31.
þ. m. og er 'því óheimilt að aif-
greiða út. á hann eftir þann
táma. i
Helgidagslæknir er í dag María
Hallgrímsdóttir, Grundarstíg 17,
sími 4384.
Næturlæknir í Læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður í nótt og aðra nótt
í Reykjavíkur-Apóteki.
Næturakstur annast BSÍ, sími
1540.
Næturakstur annast
Aðalstöðin, sími 1383.
aðra nótt
Útvarpið: 11.00 Messa í dóm-
kirkjunni (sr. Jón Thorarensen).
12.10 Hádegisútvarp. 14.00 Miðdeg-
isútvarp: a) Symfónía nr. 2 eftir
Tschaikowsky. b) Píaríókonsert eft-
ir Prokofieff. c) Þættir úr óper-
unni „Keisari og smiður“ eftir Lort
zing. 19.25 Hljómlp.: a) Sjöslæðu-
dansins eftir Rich. Strauss. b) „Till
Eulenspiegel,“ eftir sama höfund*
20.00 Fréttir. 20.30 Hljómpl.: Bal-
lede eftir Grieg. 20.35 Erindi: Suð-
ur um England (Hallgr. Jónass.
kennari). 21.00, Hljómpl. Norður-
landasöngvarar. 21.15: „Mammon
og Amor“, smásaga eftir O’Henry
(Brynjólfur Jóhannesson). 21.35
Hljómpl.: Capriccio Italien eftir
eftir Tschaikowsky. 21.50 Fréttir.
22.00 Danslög. 23.00 Dagskrárlok.
Útvarpiff á morgun: Hádegisút-
varp. 15.30 Miðdegisútvarp. 20.00
20.30 Þýtt og endursagt: Heilbrigði
og næring (Snorri P. Snorrason
stud. med). 20.55 Hljómplötur: Lög
leikin á sítár. 21.00 Um daginn og
veginn (Vilhjálmur S. Vilhjálms-
son blaðaAiaður). 21.50 Fréttir. —
Dagskrárlok.
Síðasta tækifærið til að
sjá sögusýningusia.
DAG ER síðasta tækifærið
til þess að sjá söigusýning-
una í Menntaskólanum. Hún
'hefir nú staðið í rúman mánuð,
var opnuð 20. júní.
AUs hafa séð sýninguna rúm-
lega 9000 manns — og er það
ekki mikill fjöldi, þegar tekið
er tillit til þess hversu mikinn
fróðleik og hversu góða skemmt
un menn fiá með því að sækja
sýninguna.
iÞrátt fyrir það þió að menn
geti gagnrýnt ýmislegt í sam-
baridi við sýninguna oig þó sér-
stalklega suimar teikningarnar,
sem erfitt er að slkilja nema
með iskýringum starfsmanna
sýningarinnar, fá menn mjög
gott yfirlit yfir sögu íslenzku
þjóðarinnar — og það eru ein-
mitt svona sögusýningar, sem
festa betur fróðleiikinn í huga
manns en lestur bóka um sama
efni, jafnvel iþó að um góðar
bækur sé að ræða. Við það að
sækja þessa merku sýningu, fara
um stofurnar, skoða munina,
myndirnar, bækurnar o. s. frv.
hlusta á skýringav starfs-
mannanna og lesa skýringarn-
ar, fær maður fróðleik, sem ekki
gleymist.
Notið síðasta tækifærið í dag
— Ekki er vitað hvort 'hægt
verður að taka sýninguna upp
í haust.
Faðir okkar og tengdafaðir,
OíslS Jónsson, fyrrverandi hafnsögumaóur
1 Hafnarfirði, andaðist að kvöldi þess 21. júlí.
Börn og tengdabörn.