Alþýðublaðið - 06.08.1944, Síða 2
2
ALfaYÐUBLAPIP
Sima«4ae«jr S. á«iúst 1944.
J^xíjðttbUiúÍ*
Qtgefandi: Alþýðufiokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pétursson.
Ritstjórn og afgreiðsla í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar ritstjórnar: 4T1 og 4902.
Símar afc,’'_iðslu: 4900 og 4906.
Verð í lausasölu 40 aura.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Siminn.
EINS og ‘áður hefur verið
vakin athygli á hér í blað-
inu, ríkir hið mesta vandræða-
ástand í talsímamálum okkar.
Einkum er þetta tilfinnanlegt
hvað snertir talsímasambandið
milli Norðurlands og Suður-
lands, eða nánar tiltekið milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Eru
þessi vandræði talsímanotend-
um svo kunn, að óþarft er að
fjölyrða um þau.
*
Póst- og símamálastjóri,
Guðmundur Hlíðdak birti hér í
blaðinu í gær greinargerð um
þetta mál. Lýsir hann því með
sterkum orðum, hve gersamlega
þetta ástand sé óviðunandi. Af
þessu hefur leitt, að fólk hylL-
ist til að biðja um hraðsamtöl
á þessari leið, til þess að þurfa
ekki að bíða eftir afgreiðslu
venjulegra samtala. Er svo
komið, að í júlímánuði var til
jafnaðar helmingur símtala á
þessari leið hraðsímtöl.
Póst- og símamálastjóri tel-
ur, að fyrir Landsímann sé síð-
ur en svo fengur að þessum
miklu hraðsímtölum. Þau séu
til þess fallin að trufla og tefja
afgreiðsluna, og hinar auknu
tekjur símans af þeim séu að-
eins óeðlileg tékjubólga en
ekki tekjugrundvöllur, sem
hægt sé að byggja á til fram-
búðar.
Höfuðatriðið er, samkvæmt
greinargerð póst- og símamála-
stjóra, að fjölga stórlega tal-
símasamböndunum. Og rétt-
asta og öruggasta leiðin í þeim
efnum er lagning jarðsíma með
nægilega mörgum línum um
allar helztu símaleiðir landgins.
*
Síminn er hið mesta nauð-
synjatæki og hefur mikilsverðu
ætlunarverki að gegna. Hin sí-
váxandi notkun hans sýnir
líka ljóslega, hve þörfin er
mikil á þessu sviði. Það er
mikið undir því komið fyrir
atvinnu- og viðskiptalíf lands-
ins, að símaiþjónustan sé greið
og örugg. Gegnir í því tilliti
sama máli um símann og sam-
göngur og póstþjónustu. Auk
þess er síminn svo til ómetan-
legs 'hagræðis fyrir almenning
En ástandið í símamálum
okkar er orðið ákaflega baga-
legt. í höfuðstað landsins er
þess enginn kostur að fá tal-
síma. Er það til tilfinnanlegs
óhagræðis, ekki aðeins fyrir al-
menning, heldur einnig fyrir
ýmsan atvinnurekstur, sem
líður mjög við það, að ekki er
hægt að fá nýja síma. Og á
langleiðunum er ástandið eins-
og lýst hefur verið hér í blað-
inu.
Að öllum aðstæðum athug-
uðum er því þess að vænta, að
ekki verði látið dragast degi
lengur en óhjákvæmilegt er að
ráða bót á þessum vandræðum.
Það er ekki auðið eins og er.
en þegar úr rætist í þeim efn-
um, verður tafarlaust að hefj-
ast handa ung varanlega aukn-
ingu og endurbætur símakerf-
isins í landinu.
Kommúnislar sfofna til „fyrir-
myndar útgerðar"
Kveija frá íslendiug-
un og NorSmöm-
um í Oslo.
Kaupa úrelt skip af Fultonsgerð, sem ekki
fullnægir íslenzkum siglingalögum.
f _ ^
Og láta Færeyinga sigla inn á því þúsundir
í flokkssjóðinn.
17' OMMÚNISTAFLOKKURINN hefir keypt erlent skip
og hafið útgerð á því. Skipið er svo ófullkomið og
úrelt að það myndi ekki komaBt undir íslenskan fána. Hef-
ir flokkurinn ráðið Færeyinga á það en Færeyingar gera
miklu minni kröfur til hæfni skipa en við og gera minni
kaupkröfur. Skipið tekur fisk til útflutnings og er nú í ut-
anlandssiglingu.
Kommúnistaflokkurinn lætur nokkra af höfuðpaurum sín-
um standa fyrir útgerð þessari og bera ábyrgð á henni. Meðal
þeirra eru tveir þingmenn þeirra og tveir bæjarfulltrúar þeirra
hér í Reykjavík. Þessir menn eru: Áki Jakobsson alþingismaður,
Sigurður Thoroddsen alþingismaður, Steinþór Guðmundsson bæj-
arfultrúi, Björn Bjarnason, bæjarfulltrúi og auk þeirra: ísleifur
Högnason forstjóri KRON og Erling Ellingssen, verkfræðingur.
Þessir menn skipa nokkurs
konar fjármálastjórn flokksins,
enda á , ,f yrirmy ndarútgerð1'
þeirra að sigla inn nokkur
hundruð þús., semt eiga síðan
að standa straum af áróðri
flokksins, ferðalögum erind-
reka og undirróðursmanna um
landið og blaða- og' bæklings-
útgáfu hans.
upp af freðnum
þeir brjóta skrifstofuhurðina
og kyrkja kúluvambann.“
Þetta er ekki birt hér vegria
þess að það sé svo fallegt. — En
það var birt í skráutramma í
Þjóðviljanum.
Nú er kommúnistablaðið
hætt að birta slík ljóð.
F.RÁ Guðna Benediktssyni,
formanni íslendingafélags
ins í Osló, hefir þessi kveðja
borizt, dagsett í Osló 17. júní.
„íslendingar og Norðmenn,
sem mættir eru til að hylla 17.
júní og hið nýja sjálfstæði ís-
lands, senda landi og þjóð kær-
ar kveðjux og heillaóskir.
Lifi ísland — lifi frelsið.“
Verður hús Þjóðminja-
safnsins byggl á Há-
skólalóðinni!
A FUNDI sínum í fyrra-
dag samþykkti bæjar-
ráð fyrir sitt leyti að bygg-
ing þjóðminjasafnsins verði
reist á háskólalóðinni.
Hefir háskólaráð boðið lóð
undir byggingu þjóðminjasafns
á svæðinu fyrir vestan gamla
stúdentagarðinn, og telur bygg-
ingarnefnd þjóðminjasafnsins að
lóð þessi sé margan hátt ák;->s-
anleg, þó ekki sé að fullu búið
að taka ákvörðun ryn, bvort
bygging þjóðminjasafnsins verði
reist þar.
Þetta björgunarskip komm-
únistaflokksins heitir „Falkur“
—Nafnið minnir svqlítið á ís-
lenzkuna í Þjóðviljanum stund
um. Það er byggt í Noregi fyrir
32 árum, úr járni, er 151 smá-
lest með 500 hestafla gufuvél.
Kommúnistar keyptu skipið af
Færeyingum. Sjómaður, sem
skoðaði skipið, þegar það kom
hingað til Reykjavíkur fyrir
nokkru sagðist kannast við það
frá því að það var í eigu Fær-
eyinga, það væri mjög úr sér
gengið og allt að því eins dæmi
í íslenzka flotanum fyrir léleg-
an útbúnað. Skipið myndi held
ur ekki nándar nærri fullnægja
íslenzkum siglingalögum, hinni
svokölluðu „Sigurjónsku". ís-
lenzkir sjómenn myndu neita
að sigla á því. í þessari útgerð
sinni virðist eins og komrnún-
istamir hafi farið eftir ráðleeg
ingum Magnúsar Jónssonar guð-
fræðiprófessors, því að „Falk-
ur“ er alveg eins og „Fulton“
gamli, sem Magnús sigldi á, þeg
ar hann ritaði hina frægu grein
sína um Sigurjónskuna. Skip-
inu er og fyrst og fremst ætlað
það hlutverk að sigla inn pen-
inga handa Kommúnistaflokkn-
um. Annað skiptir þa heldur
ekki svo miklu málií!!)
Kommúnistar telja að þeir
hafi keypt skipið fyrir 215 þús-
undir króna — og trúi þeir því
sem vilja.
Tillgangurinn helgar meðal-
ið. Það er trúarjátning komm-
únisja. Flokkinn vantar -pen-
inga! —
Fyrir nokkru birtist í Þjóð-
viljanum kvæðisómynd eftir
kommúnista. Eitt erindið er
svona:
„Og árin líða
við nvrsta haf.
Þeir lögðu frá ströndinni
30 ungir menn
á hripleku skipi,
og 30 unnustur
og 14 mæður
stóðu í frostinu
og horfðu á eftir.
hinu hripleka skipi.
Og síðasta erindi í þessum
kommúnistiska sálmi hljóðar
þannig:
„Lörtgu síðar
rísa 30 ungir merui
>Stórathyglisverð kosningaúrslit:
Jafnaðarmenn vinna yfirgnæf-
andi meirihluta í einu fylki
Kanada.
Fengu 43 sæti í fylkisþinginu af 51; stjórnar-
flokkurinn hrapaöi úr 33 sætum niður í 5!
T AFNAÐARMENN unnu í
“ nýlega afstöðnum kosning
um til fylkisiþingsins í Sas-
katchewan í Kanada, fylk-
inu næst fyrir vestan Mani-
toba, hreinan og yfirgnæf-
andi meirihluta allra þing-
sæta. Þeir fengu 43 af 51 full
trúa, sem kjörnir voru, en
frjálslyndi flokkurinn, sem
stendur að baki núverandi
•sambandsstjóm í Kanada,
stjórn MacKenzie King, ekki
nema 5, og íhaldsflokkurinn
ekki einn einasta. Ókunnugt
er enn um 3. ______
Þessi kosningaúrslit hafa vak
ið stórkostlega athygli langt út
fyrir endimörk Kanada og Ame
ríku yfirleitt, enda éinstæður
kosningaviðburður vestan hafs.
Fyrir kosnignamar var frjáls-
lyndfi flokkuriinn í hreinum
meiriluta á fylkisþinginu eða
með 33 fulltrúa, jafnaðarmenn
höfðu 10 og 4 skiptust á tvo
smá flokka.
Hefir miklum ótta slegið á
frjálslynda flokkinn við þenn-
an ósigur; hafði fyrir kosning-
arnar í Saskatchewan ve”:iy ’
við orð, að MacKenzie King
myndi rjúfa sambandsþingið í
Ottawa og láta fara fram al-
mennar kosningax innanskamms,
ef flokkur hans bæri sigur úr
býtum í Saskatchewan; en eft-
ir úrslitin þar þykja litlar lík-
ur til ,að hann kæri sig um al-
mennar kosningar fyrr en kjör-
tímabil núverandi sambands-
þings er útrunnið.
Flokkur jafnaðarmanna í Kan
ada nefnist Canadas Coopera-
tive Commonwealth Federation
og var stofnaður í Saskatche-
wan fyrir rúmum áratug. Hefir
hann átt vaxandi fylgi að fagna,
en þó verið langt frá því að
vinna meirihluta á nokkru fylk-
isþingi dandsins fyrr en nú.
Þykja kosningaúrslitin ákaflega
athyglisverður vottur þess, hve
mjög hugsjónir manna í Ame-
ríku, sem og raunar um allan
heim, mótast nú af kröfum
jafnaðarstefnunnar um þjóðfé-
lagslegar umbætur og félagslegt
öryggi fyrir alla.
Búizt er við, að forystumað-
ur jafnaðarmannaflokksins í
Saskatchewan, Clement Dougl-
as, taki við forsæti fylki§stjórn
arinnar. Hann er aðeins 39 ára
og var áður fyrr vélsetjari í
prentsmiðju.
Nýtt kvennablað,
júní-heftið hefir nýlega borizt
blaðinu. Efni m. a.: Forseti íslands
og þjóðhátíðin að ‘Þingvöllum
(myndir). Þeir, sem lýðveldið erfa,
(Þórunn Magnúsdóttir rith.), Skóla
stjóri Kvennaskólans í Hveragerði
(Hugrún), Vorhugur, (Jónassína
Sveinsdóttir), Gvendarbrunnur í
Reykjavík, kvæði eftir Huldu,
Fimmtíu ára minning hins ísl.
Kvenfélags. Kvæði o. II.
»
Bœrinn í Aav
Næturlæknír er í Læknavarð-
stofunni í nótt og aðra nótt.
Næturvörður er í nótt og aðra
nótt í íngólfsapóteki.
Helgidagslæknir er Eyþór Gunn
arsson, Miðtúni 5, sími 2111.
Næturakstur annast B. S. í.,
sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
11.00 Messa í Hallgrímssókn
(sér Sigurbjörn Einarsson). 12.10-
13.00 Hádegisútvarp. 14.00 Miðdeg
istónleikar (plötur): a) Tríó eftir
Bach-Casella. b) Tríó í G-dúr eftir
Haydn. c) Kvartett nr. 21 í G-dúr
eftir Mozart. d) Kvartett, Op. 95, í
f-moll, eftir Beethoven. e) 15.00
Sönglög eftir Richard Strauss.
19.25 Hljómplötur: a) „Galdra-
neminn“ eftir Dukas. b) „Bolero“
eftir Ravel. 20.00 Fréttir. 20.00
Einleikur á cello (Þórhallur
Árnason): Sónata í g-moll eftir
Marcello. 20.35 Erindi: Horft um
öxl og fram á leið I. (Brynleifur
Tobíasson menntaskólakennari).
21.00 Hljómplötur: Norðurlanda-
söngvarar. 21.1,5 Upplestur: Úr
kvæðum Guðmundar Friðjónsson-
ar (Jón Norðfjörð leikari). 21.35
Hljómplötur: „Ameríkumaður í
París“ eftir Gershwin. 21.50 Frétt-
ir. 22.00 Danslög. 23.00 Dagskrár-
lok.
Á MORGUN
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380.
ÚTVARPIÐ: ‘
12.10—13.00 Hádegisútvarp. 15.30-
16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljóm
plötur. 20.00 Fréttir. 20.30 Ðag-
skrá Verzlunarmannafélags Reykja
víkur: Ávörp og ræður: (Hjörtur
Hanson, kaupmaður, Baldur Pálma
son, verzlunarmaður, Konráð Gísla
son, kaupmaður). Einsöngur (Frú
Elísabet Einarsdóttir). — Útvarps-
hljómsveitin. 21.50 Fréttir. Dag-
skrárlok.
Alþýðublaðið
kemur næst út á miðvikudag. Á
mánudaginn verður ekki unnið í
prentsmiðjunum vegna frídags
verzlunarmanna, sem einnig er frí
dagur prentara, og kemur því ekk
ert blað út á þriðjudag.
Jón Norðfjörð
leikari frá Akureyri er staddur
hé í bænum og mun lesa upp í út-
vapið í kvöld eftir Guðmund Frið-
jónsson frá Sandi.
Nýlega
rak búrhval á Þykkvabæjarfjör-
ur í Álftaveri. Er hvalur þessi 25
m. langur og virðist lítt skemmd-
ur. En það mun koma betur í ljós,
er farið verður að slægja hvalinn.
fyrradag
varð maður nokkur var við mink
á Laugaveginum á móti verzlun-
nni Málning og járnvörur. Maður-
inn veitti minknum eftirför, en
hann forðaði sér og hvarf í stóra
•uslahrúgu að húsabaki.
Viggó Hólm Sigurjónsson,
bókbandsmeistari, Laugavegi 56 B,
verður 40 ára 8. ágúst.
Þórarinn. Ó. Vilhjálmsson,
verkamaður, Lokastíg 28 A, varð
fertugur í gær.
Kona hrasar á bifreið.
T FYRRADAG varð það slys
*■ á Hringbraut, að gömul
•kona féll fyrir bifreið og
meiddist nokkuð á höfði.
Kona þessi heitir María Jóns-
dóttir og á heima á Karlagötu
16.
Mun María hafa staðið utar-
lega á gangstéttinni og hrasað
um leið og bifreiðin ók framh'A
og lenti hún með höfuðið á aft-
urhurð bifreiðarinnar og meidd
ist nokkuð. Var hún flutt á
Landsspítalann og líður nú eft-
ir vonum.