Alþýðublaðið - 16.08.1944, Qupperneq 7
Miðvikudagur 16. ágúst 1944.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Bœrinn í dar
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó
teki.
Næturakstur annast B. S. í.,
.sími 1540.
ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómpllötur: Óperulög.
20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan (Helgi Hjörv-
ar). •
21.10 Horft um öxl og fram á
leið, II. (Brynleifur Tobías-
son menntaskólakennari).
21.35 Hljómplötur: Symfóniskir
dansar eftir Grieg.
'21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Mæðrastyrksnefnd
býður konum eins og að undan-
förnu til vikudvalar á Laugarvatni
um mánaðarmótin ágúst—-septem-
- ber. — Konur, sem ekki hafa ver-
ið áður á vegum nefndarinnar
•verða látnar ganga fyrir. — Þær
konur, sem vilja sinna þessu boði,
snú! sér til skrifstofu Mæðra-
styrksnefndar, IÞingholtsstræti 18
frá 14,—20. þ. m. alla virka daga
milli kl. 3 og 5
Skátafélag Reykjavíkur
stofnar til útiæfinga fyrir félaga
sína, inn við Viðeyjarsund í kvöld
kl. 8. Æfð verður tjöldun, merkja-
bendingar, björgunarlínukast og
einnig lífgun drukknaðra og flutn
ingur á slösuðu fólki, með tilliti
til hjálparþjónustu skáta, ef skip
stranda hér í nágrenninu. Munu
flestir skátanna hjóla inneftir, en
'aðrir fara með strætisvagninum,
sem fer kl. 7.35 frá Lækjartorgi.
íþróttaráð Akraness
tekur þátt í fyrsta flokks knatt-
spyrnumótinu, sem nú fer fram
og eru keppendutr í flokki þess
bæði úr Knattspyrnufélaginu Kára
og Knattspyrnufélagi Alíraness.
Er þétta tekið fram vegna missagn
ar, sem staðið hafa í blöðunum
undanfarna daga.
Knattspyrnufélagið Fram
efnir til tveggja daga ferðalags
n. k. laugardag. að Múlakoti í
Fljótshlíð. Á heimleiðinni verður
komið. við á Selfossi og snæddur
hádegisverður. Síðan verður ekið
heim um Þingvelli.
Félagsmenp ættu að tryggja sér
miða í tíma og vísast um sölu
þeirra til augl. í blaðinu í dag um
þetta efni.
hverjir lagsbræður þeirra eru.
Hinir, sem lífið er bærilegt,
eru hinir öi’vílnuðu, þeir, sem
eru svo örvílnaðir, að guð gaf
‘þeim páskatrúna.“
í hópi þeirra síðartöldu var
Eaj Munk.
Ég hefi hér að framan viljað
sýna fram á með fám orðum,
hvílíkt tímabil það hefir verið,
sem alið hefir og mótað Kaj
Munk. Það er tímabil heims-
upplausnarinnar, þar sem varla
var nokkur sá múrveggur til,
sem ekki mundi til jarðar falla,
enginn sá sannleikur til, sem
ekki yrði svívirtur, enginn guð
til og enginn djöfull tií. Blóðið
drukkið, villuráfandi mannkyn,
ljóslaust í niðamyrkri sinnar
''eigin ,,siðmenningar“.
Og endalokin? — Þau hlutu
að verða enn stórkostlegri styrj
öld. en meiri lygi, svik og blekk
ingar, eix nokkru sinni hafði áð-
ur þekþzt í sögunni.
Oð það er í þessum síðasta
þætti, sem Kaj Munk hefir orð-
ið að píslarvotti og ógleyman-
legri hetju, bæði i sögu 'Dan-
merkur, sögu kirkjuhnar, en þó
umfram allt í sögu sannleikans,
þegar sú saga loksins verður
skrifuð.
Um sjátfstæðismál
íslands í sænska
útvarpinu
I Islendingar munu
! ávalt halda tryggS
viS Ncrcíurlönd
Eftix-farandi ræða var flutt á
etisku í sæns! a útvarpið 17.
júní síðastliðinn.
IGÆR var Gustav Svía-
konungur 86 ára gamall. I
Fánar voru dregnir að hún
eins og venja er til á afmæiis-
degi hans, og í Stokkhólmi var
skotið af fallbyssum til heið-
urs honum.
í dag blakta hér einnig
margir fánar í sumarblænum.
Síðan styrjöldin hófst, hefur
sá siður komist á í Svíþjóð, að
draga upp fána þjóðhátíöar-
daga allra Norðurlandaríkj-
anna. í dag er þjóðhátíðardag-
ur íslands. Þetta árið er hann
venju fremur merkilegur, því
að nú fagnar íslenzka þjóðin
endurheimtu frelsi og endur-
reisn hins forna lýðiúkis. Svíar
hefja fána að hún og árna ís-
lenzka ríkinu með því allra
heilla.
Ákvörðun sú, sem íslending-
ar hafa nú tekið, hefur jafnan
átt fullum skilningi að mæta í
Svíþjóð. Menn harma, að
skrefið skuli hafa verið stigið,
meðan Danir þola þrautir hins
þungbærasta hernáms, og þvert
ofan í mótmæli Danakonungs,
en mönnum er ljóst, að veg-
lyndi og réttlætistilfinning
dönsku þjóðarinnar hafa ekki
brugðizt, og allt bendir til, að
gremja þeirra muni verða
skammvinn.
Enginn lítur á sjálfstæðisyf-
irlýsingu íslands sem fjand-
skaparbragð eða merki um, að
íslendingar vilji fjarlægjast
hin Norðurlöndin. Ljóst er, að
þeir telja sig norræna þjóð, og
vér vonum, að þeir höggvi ekki
á þau bönd, er tengja þá öðr-
um norrænum þjóðum. Eins
og sænskt blað bendir á í dag,
geta Norðurlandaþjóðirnar með
réttmætu stolti litið á tvenn
sambandsslit, sem farið hafa
friðsamlega fram og orðið
þeim til hagsældar og gengis,
jxað er sambandsslit Svíþjöðar
og Noregs 1905 og skiínaður
Danmerkur og íslands nú.
Einnig er eftii'tektarvert,
eins og annað sænskt blað
minnist á í dag, að hinn óbug-
andi norræni frelsisandi skuli
fagna sigri á hinum dapurleg-
ustu tímum í norrænni sögu.
Svíar erxx hreyknir af þessum
aixda,'sem einnig bjó undir að-
gerðum Norðmanna, er þeir
sögðu skilið við Svia, segir
blaðið.
í Stokkhólmi er álitlegur
hópur íslendinga, aðallega
námsfólk. Þeir halda daginn
hátíðlegan í boði íslenzka
sendifuíltrúans. í dag munu
heimsækja hann mai'gir vinir
íslands. Sænsku blöðin hafa,
eins og gefur að skilja, ekki
setið sig úr færi að eiga viðtal
við sendifulltrúann, sem legg-
ur ríka áherzlu á það, að eng-
inn ábyrgur« íslendingur muni
hafa í hyggju að slíta tengslin
við norrænu þjóðirnar. Afstað-
an er mjög eðlileg: íslending-
um vex megin við að geta
mætt frændþjóðum sínum
jafnréttháir og þær. Að því
fengnu verður erfitt að rjúfa
frændsemisböndin.
Sendiherx'a íslands hafði
einnig fram að færa skýlausar
sannanir fyrir áframhaldandi
Kynningarmól Ung-
mennasambands
Snæiells- og
Við þökkum öllum fjær og nær fyrir sjmda samúð og hlut-
tekningu við fráfall og jarðarför
SÍÐASTLIÐINN sunnudag
hélt Ungmennasamband
Snæfells- og Hnappadalssýslu
kynningarmót í Grafarnesi við
Grundarfjörð. Veður var hið
bezta, en þó var mjög fámennt
á mótinu, og voru ekki meðlim-
ir frá nærri öllum ungmenna-
félögunum á nesinu þarna mætt
ir. Einkum var mótið illa sótt
af félögunum þarna i nágrenn-
inu að undanskildu Ungmenna-
félagi Gi’undfirðinga. Hins veg-
ar sóttu félögin sunnan fjalls
mótið miklu betur, þegar tekið
er tillit til hinnar löngu vega-
lengdar sem fara varð, og voru
þarna mættir félagar frá flest-
um ungmennafélögum sýsln-
anna sunnan fjalls. Urðu þeir
fyrir vonbrigðum þegar á
skemmtistaðinn kom yfir því,
hversu mótið vár lélega undir-
búið, því ekkert var til skemmt
unar, -nema dans, og fór hann
fram í' óviðunandi húsnæði.
Ættu ungmennafélögin ein-
mitt að vanda til slíkra kynn-
ingarmóta, en ekki að efna til
þeirra án nokkurs undirbún-
ings, því ekki er þess að vænta
að fólk nenni að ferðast langa
vegu til þess eins að eyða tím-
anurn og láta sér leiðáSt.
Viðstciddur.
Samræming á kaupi
og kjörum iðnaðar-
, manna
STJÓRN Fulltrúax'áðs verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík
hélt í síðastliðinni viku tvo
fundi með formönnum þeirra
iðnfélaga, sem í fulltrúaráðinu
eru.
' Rædd voi’u kaup- og kjara-
mál. og viðhorfið næstu mán-
uði.
Á fundinum var alger eining
um nauðsyn þess að iðnfélögin
hefðu samráð um kaup- og
kjaramál meðlima. sinna til
þess að komizt vexjði hjá ó-
þörfu misræmi á þessum svið-
um.
Strætisvagnamir
Frh. af 2. síöu
Þessar samningaumleitanir
hafa ístaðir yÆir undamfarna daga
og mun niðurstöður þeirra lagð
ar fyrir bæjarstjórnarfund 17.
ágúst n. k., en skrv. þeim á að
vera tryggt, að strætisvagna-
ferðirnar geti haldið óslitið á-
fram með þeim hætti, að bæjar
félagið taki við rekstrinum frá
20 ágúst n. k.“
Raimagnsbilun í nóH
RAFMAGNSBILUN varð í
nótt kl. 12,39 og var bær-
inn algerlega myrkivaður í 7
mínútur, eða til 12,46. Ekki er
blaðinu kunnugt af hverju raf-
magnsbilunin hefir stafað.
Ungmennadeild Síysavarnafélgsins
í Reykjavík fer skemmtiferð
um næstu helgi til Kaldársels, og
biöur meðlirfii sína að tilkynna
þátttöku í síma 4897, sem fyrst.
samskiptum íslands og Sví-
þjóðar: Sænskar skipasmíða-
stöðvar eig^ að smíða 50 fiski-
bata fyrir íslendinga,1 og mikl-
ar birgðir af símavorum bíða
flutnings frá Svíþjóð til ís-
'lands.“
Jóhanns B. Ágústs Jónssonar.
Fanný Fi-iðriksdóttir. Edda Ágústsdóttir.
Ragnhildur Jónsdóttir.
Jarðarför móður okkar, systur og tengdamóður,
Guðríóar Lðlju Grímsdóttur,
fer fram föstudaginn 18. þ. m. kl. 1 Vá e. h. og hefst með bæn- á
heimili hennar, Freyjugötu 32. Jarðað vei'ður frá Fríkirkjunni.\
Gúðriin Halldórsdóttir. Ágxista Gunnlaugsdóttir.
Guðmundur Halldórsson. Sveinbjörn Sæmundsson.
Loftsóknin;
Skæðar árásir á flug-
velli í Vestur-Evrópu
Q TORAR sprengjuflugvélar
^ frá Bretlandi, 4000 að
tölu, gerðu í gær stórkostlegar
loftárásir á flugvelli og flug-
vélar, sem á þeim sátu, í Belg-
íu, Hollandi og Þýzkalandi.
Var varpað niður um 8000
smálestum sprengna og hlauzt
óskaplegt tjón af. 1100 La^-
casterflugvélar Breta réðust á
stöðvar orustuflugvéla í Niður-
löndum og Þýzkalandi. Þær
nutu verndar orustuflugvéla.
Þá fóru um 1000 flugvirki
og Liberatorflugvélar varðar
álíka mörgum orustuflugvélum
til árása á stöðvar Þjóðverja í
Rínarbyggðum, Hollandi og
Belgíu. Þær skutu niður 27
þýzkar flugvélar í árásum
þessum. 16 sprengjuflugvélar
og 12 orustuflugvélar týndust
í ái'ásunum.
Innrásin í S.Frakkiand
Frh. af 3. sáðu.
hafi verið unnið sleitulaust að
undirbúningi hennar. Síðan
hafa bandamenn gerf hverja
loftárásina af annarri á stöðv-
ar Þjóðverja á strönd Suður-
Frakklands og samgönguleiðir.
Síðustu dagana fyrir innrásina
var varpað niður samtals 60,00
smálestum sprengna þarna og
hefur óskaplegt tjón lxlotizt af.
Winston Churchill kvaddi
nokkurn hluta innrásarhersins,
er hann steig á skipsfjöl í einni
bækistöð bandamanna á Ítalíu-
strönd.
Loftárás á Formosa
O ANiDARÍKJAMENN til-
kynna, að aillomargar stór-
ar sprengj uflugvélar hafi ráðizt
á ýms mannvirki á eyjurxni
Formosa, sem er eign Japana,
undan strönducm Suður-Kína.
Mikið manntjón varð á verk-
smiðjum og haf narmannvirkjum
Þrem kaupförum var sökkt á
sundinu milli eyjarinnar o.gmeg
inlandsins.
Menniamálaráð
úthlutar styrkjum lil
nokkurra stúdenta
SAMKVÆMT LÖGUM nr.
35 frá 27. janúar 1925 og
fjárlögurp 1944, 14. gr. II a, hef
ir Menntamálaráð Islands ný-
lega úthlutað eftirtöldum stú-
dentum styrk að upphæð kr.
3600.00 hverjum:
Ásmundi Sigurjónssyni til
náms í hagfræði í Englandi.
Gu'ðlaúgi Þorvaldssyni til náms
í landafræði. Hafsteini Bjarg-
mundssyni til náms í ensku og
frönsku í Englandi. Ólafi Helga
syni til náms í efnafræði í Bret-
landi. Þórdísi Ingibergsdóttur
til náms í ensku og frönsku í
Bretlandi. Þóri Kr. Þórðarsyni
til náms í semetiskum málum í
Bretlandi.
EITT stærsta og frægasta
orrustuskip Breta, „Rodney“,
sem er 33.000 smál. að stærð,
skaut í gær af fallbyssum sín-
um á varnarvirki Þjóðverja á
Aldnerey, sem er ein af Erm-
arsundseyjum, ákammt undan
Cherboui'gskaga. Stóð skothríð-
in í 2V-z klukkustund. Talið er,
að tjón hafi orðið geypilegt.
Sklpakaupin í Svíþjóð
!
Frh. af 2. síðu.
í þessu sambandi vill ráðu-
neytið láta þess getið, að
gerðar hafa verið ýtarlegar
tilraunir til þess að fá togara
smíðaða í Englandi og Svíþjóð.
Enn sem komið er hafa þessar
tilraunir ekki borið árangur,
en þeim verður haldið áfram.
Með auglýsingu ráðuneytis-
ins, dags. í dag, er þeim, sem
áður hafa óskað eftir að fá
fiskibáta keypta frá Svíþjóð,
bent á að leita nánari upplýs-
ixiga um bátakaupin hjá Fiski-
félagi íslands.
TILKYNNT er í London, að
í júlímánuði hafi 2441 maður
farizt af völdum svifsprengj u-
árása Þjóðverja, en 7107 voru
fluttir í sjúkrahús.
Vikureinangrun
ávallt fyrirliggjandi.
Vikursieypan,
«••
Lárus Ingimarsson
Sími 3763.