Alþýðublaðið - 09.11.1944, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.11.1944, Blaðsíða 3
FÍHurntudagiir 9. nóv. 1944 ALfrÝBUBLAÐIÐ 3 hmíAlmi i Bandaríkjunum: .Hér sést Franklin D. Roosevelt, sem nú hefir verið kjörinn forseti Bandaríkjanna í fjórða sinn. Hann sést hér með tveim aða,;lsamstarfsmönnum sínum um hermál, þeim Douglas Mac Arthur hershöfðingj a og Leahy flotaforingja, sem er aðalhermálaráðunautur forsetans. Þeir eru í eru í efti'rlitsferð á Hawaii og var myndin tkein í júlí í sumar. . VesturvfigstöSvarnar s Bandam@nn liófu mikfa séln í Horgaysfur-Frakklandi 1 gær Hersveitir Paftons hófu sóknina miiii IViefz ©g Hasicy eftir mikia stórsketahríó HP ILKYNNT var 1 London í gser, að !her Pattons hershöfð- ingja hefði hafið mikla sókn á hendur Þjóðverjum á svæðinu milli Metz og Nancy. Fyrst var hafin ógurleg stór- skotahríð en siðan gerðu steypiflugvélar hverja árásina af annarri. Þjqðverjar láta undan síga og í gærkveldi ’höfðu menn Pattons brotizt yfir á eina og'náð á sitt vald fjórum þorpum. Þjóðverjar viðurkenna, að bandamenn hafi byrjað miklar árásir á þessum slóðum. í Suðvestur-Hollandi halda pólskar hersveitir áfram að upp- ræta dreifða hermannahópá og nokkrir flokkar þýzkra hermanna verjast enn í Moerdijk, hinir síðustu fyrir sunnan Maas. VirSuleg móffaka norsku ráSherranna I MosSna T FYLGD með norsku ráð- herrunum Trygve Lie og Terje Wold við komuna til Moskva, voru þeir Karl Evang, landlæknir í Noregi, Andvord, sendiherra Norðmanna í Moskva og Schive ritstjóri, blaðafull- trúi Norðmanna í Stokkhólmi, auk annarra. Þeir komu frá Stokkhólmi í rússneskri flugvél. Maiski, varautanríkisráðherra Rússa, tók á móti þeim á flug- vellinum. Mikill viðhafnarblær var á móttökunni, herflokkur stóð þar heMursvörð og norsk og rússnesk flögg blöktu hvar- vetna. Þjóðsöngvar beggja landanna voru leiknir. Lie utanríkisráðherra flutti stutta útvarpsræðu og lagði á- herzlu á hina góðu samvinnu, sem jafnan hefði ríkt milli land anna. Þá lýsti hann ánægju sinni yfir því, að nú væru rúss neskar og norskar sveitir í þann veginn að hrekja Þjóðóverja frá Norður-Noregi, Að lokum lofaði hann nússnesku þjóðina og her hennar og leiðtoga hennar Stalin marskálk. (Frá norska blaðafulltrúanum). ERLÍNARÚTVARPIÐ skýrði frá því í gær, sem- kvæmt fregn frá Helsinki, að finnska stjórnin hefði látið af störfum. Ekki var þess getið, hvort ný stjórn hefði verið mynduð. , \ Ekkert hefir fréttzt um þetta annars staðar að og Lundúna- útvarpið hefir, ekki minnzt á það, enn semkomið er að minsta kosti. Undanfarið hefur verið held ur hljótt um 3. ameríska her- inn undir stjótrn Pattons, sem 'hefur verið að undirbúa víðtæk ar hernaðaraðgerðir í Norðaust ur-Frakklandi. Vitað var þó, að bandamenn hafa verið að skipu leggja samgöngukerfi sitt á þess um slóðum og draga að sér her- lið og gögn. Her Pattons er sagður mjög vel útbúinn að fallbyssum og steypiflugvélum. Mótspyrna Þjóðverja i Suð- vestur-Frakklandi hefur verið brotin á bak aftur, nema hvað einstaka hermannahópar verj- ast enn í Moerdijk og á Wal- cheren. Hafa bandamenn beitt orrustuflugvélum í árásum sín um á hópa þessa, sem ekki eiga sér undankomu auðið. Bandamenn gerðu í gær feiki harða loftárás á olíuvinnslu- stöðina lí Leuna við Leipzig. Um 350 flugvirki gerðu árás- ina og nutu þau fylgdar 850 orrustuflugvéla. Voru þau svo vel varin vegna þess, að í vik- unni sem leið kom þarna til mestu loftbardaga, sem enn hafa verið háðir í styrjöldinná. 42 flugvélair bandamanna eru ó- komnar úr leiðangri þessum. Auk þess var ráðizt á járn- brautarmannvirki í Múnster í Vestur-Þýzkalandi og olíustöðv ar i Iiomberg í Rulir. Nýif lepivopn ÞJóð- verja! ÓÐVERJAR tilkynntu í út- varpi sínu í gær, að þeir hefðu um nokkurra vlkna skeið beitt nýju „hefndarvopni“ gegn Lundúnaborg, er þeir nefna V 2. Segja þeir vopn þetta miklu skæðara en flugsprengjan var, en hún var nefnd V 1. Segir þýzka útvarpið, að þegar hafi vopn þetta valdið geysilegu tjóni í London, en Bretar hafa ekkert minnzt á það. Var í gærkveldi búinn aðfá 413 Iprnenn, af samfals 531 Flokkur bans hefir einnig sfóraukið fúlifrúa- tölu sína á þingi Þrir þekktir einangrunarsiinnar féiiu viS kosningarifiar fii giingsins "P RANKLIN DELANO ROOSEVELT var kjörinn Banda A ríkjaforseti í fjórða sinn í fyrradag og sigraði glæsi- yfir andstæðing sínum, Tliomas E. Dewey, í’ylkisstjóra í New York. Endanlegar tölur lágu ekki fyrir á miðnætti, en af um eða yfir 50 milljón greiddum atkvæðum höfðu um 42 milljón verið talin. Af þeim hafði Roosevelt fengið um 22% milljón en Dewey 19%;. Roosevelt hafði fengið 413 kjörmenn úr 36 fylkjum, en Dewey 118, úr 12 fylkjum. Samtímis fóru fram kosningar til beggja deilda Banda ríkjaþings. í fulltrúadeild þingsins stóðu 'sakir þannig, að demokratar höfðu fengið 223 þingmenn kjörna, en republi- kanar 142. Var þá enn óvíst um 87 þingsæti ,en öruggt er að demokratar halda meirihluta í deildinni og bætg við sig þingsætum frá síðustu kosningum. Demokratar höfðu feng- ið 17 öldungadeildarþingmenn kjörna en republikanar 10. Mikla athygli vekur, að margir þeirra, sem mest hafa haldið fram einangrunarstefnunni, náðu ekki kosningu, meðal þeirra Nye, þingmaður frá Norður Dakota, Hamilton Fish frá New York og Davis frá Pennsylvaníu. Roosevelt forseti flutti ræðu í gær þar sem hann sagði meðal annars, að Bandaríkjaþjóðin hefði enn sýnt, að hún setur lýðræðið ofar öllu og kvað hann þjóðina háfa óbilandi trú á því. Hvatti hann þjóðina til að standa saman ti'l þess að vihna sigur í þessari styrjöld eins fljótt og auðið væri. Roosevelt forseti fékk meiri •hluta í stærstu fylkjum lands- ins, sem flestan kjörmaima- fjölda hafa, svo sem New York, Pennsylvanfu, Kaliforriíu, Ulin- ois og New Jersey. Hins vegar mun Dewey hafa fengið meiri- hluta í Ohio, þar sem demo- kratar áttu meiribluta við síð- ustu kosningar, Michigan, IndiL ana og Wisconsin. Roosevelt forseti, sem nú hefir hlotið kosningu í fjórða sinn, er 32. Bandaríkjaforsetinn í röðinni', og sá eini, sem verið ið hefur forseti meira en tvö kjörtímahil. Hann er 62 ára að aldri, fæddur að óðali Roosevelt ættarinnar, Iiyde Park" í New York fylki * 30. janúar árið 1882. Hann er, eins og nafnið bendir til, af Ihollenzku hergi brotinn. Hann er komirm 1 bein an karllegg af Hollendingnum Claes Martenszan van Roose- velt, sem ko mtil Nýju Amst- erdam árið 1649, en svo hét New York þá. Af sömu ætt var Theodore Roosevelt, er var for- seti Bandaríkjanna í byrjun þessarar aldar. Kona Roose- velts, Eleanor er einnig af sömu ætt. Roosevelt forseti stundaði nám við Harvardháskóla og síð ar 'lög við Columbia. Hann lét brátt stjórnmál mjög til sín taka og studdi Willson við for- setakosningarnar 1912. Árið eftir varð hann varaflotamála- ráðherra í stjórn Wilsons og þótti athafnasamur og skelegg- ur ráðherra. Árið 1918 kom hann ti'l vígvallanna í Evrópu til herkönnunar. Síðan stundaði Roosevelt lög fræðistörf, en var kjörinn fylk isstjóri í New York árið 1928 og gengdi því embætti unz hann. var kjörinn forseti í fyrsta skipti 7. nóvember 1932. Hann var endurkjörinn árin 1936 og 1940 og nú í fjórða sinn, sem fyrr getur. Hann tók við embætti á verstu krepputímum, sém yfir Ameríku og heiminn yfirleitt hafa gengið. Atvinnuleysingjar í Bandarí'kjunum skiptu tugum milljóna, bankastarfsemi lá niðri og mikil ringulreið ríkti í landinu á sviði fjármála al- mennt. Roosevelt hófst þegar handa og beitti sér fyrir ýms- um aðgerðum, sem miðuðu að því að skapa atvinnu í landinu og koma fjármálalífinu í eð'li- legt 'horf. Einkum vöktu ráðstaf anir hans, sem nefndar voru „New Deal“ mikla athygli og jafnframt gagnrýni af andstæð ingum hans, en flestum kemur saman um, að í stjórnartíð hans hafi afkoma og öryggi alþýðunn ar í Bandaríkjunum batnað að miklum mun. í Bandaríkjunum mun al- mennt litið svo á, að Roosevelt sé einn snjallasti mælskumaður núlifandi stjórnmálamanna og þekkingu hans á alheimsstjórn málum er viðhrugðið.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.