Alþýðublaðið - 09.11.1944, Blaðsíða 7
ÍFÍHamtudagur 9. nóv. 1944
AL^YÐUBLABBÐ___
c
7
Þýðingarmikill dómur
Bœrinn í dag.
Næturlæknir er í Læknavarð-
atofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugarvegs-
apóteki.
Næturakstur annast Bifröst,
sími 1508. 4
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 2. flokkur.
19.25 Hliómplötur: Söngdansar.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
80.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórn-
ar):
a) Lagaflokkur eftir Moz-
art.
b) ,,Fedora“ vals úr „Zirk
usprinsessunni“ eftir Kal-
man.
,30.50 Lestur íslendingasagna:
Laxdæla, III. (dr. Einar Ól.
Sveinssson háskólabóka-
vörður).
21.50 Hljómplötur.
,21.30 ,Frá útlöndum (Jón Magnús
son).
21.50 Hljómplötur: Paul Robeson
syngur negrasöngva.
Nýkomið
Flugnaeitur
Flugnaeiturssprautur
Kakalakkaeitur
Storm-vax
Nugget-skóáburður
Cut Rite pappír
Vaxpappír (ódýr)
lánwiíru¥erz|n
Jes Zinuen h.f.
.
Burstavörur
allskonar
Trésleifar
Kökuform
Búrhnífar
Ausur
Emalje Pottar
Matskeiðar
Borðhnífar
Gafflar
og margt fleira nýkomið
Járavöruverzlun
Jes Zimsen h.f.
jl
Tvöfaidar kápur
/
nýjar, fallegar gerðir
H. TofS.
skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Frh. af 2. síðu.
1. að dæmt verði að téð sam-
úðarverkfall Verkamannafélags
ins Dags'brúnar hafi verið ólög
'legt.
2. að stefndi verði dæmd.ur
til að greiða sekt vegna hins
ólöglega verkfalls.
3. að stefndi verði dæmdur
til að greiða stefnanda skaða-
bætur eftir mati dómsins.
Loks krefst hann máiskostr
aðar úr hend; stefnda eftir mati
dómsins.
Stefndi hefur krafizt sýknu
af öllum kröfum stefnanda og
málskostnaðar úr hendi hans,
eftir mati dómsins.
Stefndi byggir sýknukröfur
s'ínar á 'því, að ákvörðun Dags-
hrúnar um framannefnt af-
greiðslubann sé að öllu leyti
lögleg. Bann það, sem hér var
um að ræða lúti ekki ákvæðum
II. kafla laga nr. 80/1938, því
það sé annars eðlis en verkföll
þau og vinnustöð,'r:’v’h-. sem um
;ræðir í nefndum lögum.
Hafi því hvorki þurft að taka
ákvörðun um það sarokv
15. gr. né tilkynna það sainkv.
16. gr. laganna. Og hvað sér-
staklega snerti Finn'boga Guð-
mundsson, þá- 'hafi honum
hvorki verið neitað um af-
greiðslu á olíu, né heldur hafi
verkamenn skipaútgerðarinnar
lagt niður vinnu og þannig beitt
verlrfalli gegn honum, því þeir
hafi aldrei verið heðnir um að
afgreiða korkið til har>'' '
ur bann mótmælt þvd að stefn-
andi hafi beðið nokkuð tjón
vegna afgreiðslubannsins.
Ekki verður talið að hin al-
menna tilkynning Yerkamanna
félagsins Dagsbrúnar til vinnu-
veitenda í Reýkjavík geti út af
fyrir sig leitt til refsingar og
skaðabótaáhyrgðar fyrir félagið
gagnvart stefnanda, enda þótt
bátar hans væru meðal farar-
tækja þeirra, sem talin voru í
tilkynningunni. Ek*ki er heldur
sannað gegn mótmælum stefnda
að synjað hafi verið um af-
greiðslu á olíu til vélbáta stefn
anda, Ægis, hjá H. f. „Shell“ á
íslandi 'hér í bæ. Hins vegar
liggur það fyrir, að stefndi hef
ur auk hins álmenna hanns sér
staklega lagt bann við því, að
‘tiltekin vara (korkið) yrði af-
hent stefnanda frá Skipaútgerð
ríkisins og lýst því, að félags-
mönnum Dagshrúnar hefði ver
ið bannað að láta afgreiða hana
til stefnanda, eða visa á hana
ef stefnandi vildi láta sína eig-
in menn sækja hana. Það er enn
fremuir uppkomið í málinu að
það sé venjulegt verk starfs-
manna í afgreiðslusal skipaút-
gerðarinnar að láta vörur þær,
sem þaðan eru afhentar á flutn
ingstæki þau, sem þær eru flutt
ar burt á.
Tetlja verður að nfs rök hafi
að því leidd verið, að ákvörðun
foxðáramanna Daowhrúnar um
afgreiðslubann á hendur stefn-
anda, tilkynning þeirra til skipa
útgerðarinnar og hann Dags-
brúnar til félaésrn.ov,— að
afgreiða ekki á neinn hátt Finn
boga Guðmundssvni eða menn
hans, hafi orðið þess valdandi,
að hann ekki fékk afbent oft-
nefnt kork frá afgreiðslu skipa
útgerðarinnar. Hér var því í
raun og veru um vinnn^^""
af hálfu Dagsbrúnar að ræða
gegn stefnanda.
Kemur þá til athugunar,
hvort hún falli undir ákvæði II.
kafla laga nr. 80/1938. í beim
iögum er ekki skilgreint i.vað
felist í hugtökunum verkfal1 og
vinnustöðvun. En samikvamt
almennri málvenju og venjuieg
um skilningi verður að gera ráð
fyrir að undir verkfall, — sem
eftir lögunum er ekki eins víð-
tækt og vinnustöðvun, — heyri
það, er verkalýðsfélag ákveður
og veldur því, að félagsmenn
þess framkvæmi ek'ki venjuleg
störf sín, :í þeim tilgangli að
knýja fram lausn í kaupdeilu
milli verkamanna og vinnuveit
enda. Með tilvísun til þess, sem
að framan er rakið um mála-
vöxtu verður að télja, að hér
hafi verið um þess konar vinnu
stöðvun að ræða, er falli undir
nefnda Skilgreiningu og har þá
að taka ákvörðun um hana og
tilkynna han*a samkvæmt á-
kvæðum 15. og 16. gr. laga nr,
80/1938, þar sem þess háttar
vinnustöðvun og hér er um að
ræða eru ekki í lögunurrf sér-
staklega undanskildar ákvæð-
um neknd'ra laga*greina og ékki
verður talið að liér sé um tilvik
að ræða, er falli undir ákvæði
18. gr. •sömu laga. Viður'kennt
er af stefnda, að þetta hafi ekki
verið gert og hefur hann því
gerzt brotlegur við nefndar
greinar. Fyrir þetta þykir verða
að dæma stefnda til að greiða\
sekt, >í ríkissjóð, sem eftir at-
vikum þykir rétt að sé lágmárks
sekt samkvæmt 70. gr. oft-
nefndra laga, kr. 50,00.
Ekki verður talið upplýst, að
bann stefnda gegn afhendingu
umrædd korks hafi sérstaklega
verið ætlað til stuðnings hinu
ólöglega hlutarmanna verkfalli
og verður stefndur því ekki
dæmdur fyrir brot á 3. lið 17.
gr. framangreindra laga.
Stefnandi hefur ekki fært
fram nein gild rök fyrir skaða-
bótakröfu sinni og verður hún
því ekki gegn . andmælum
stefnda tekin ti'l greina.
Samkvæmt þessum málalok-
um þykir rétt að stefndi greiði
stefnanda 250. kr. í málskostn-
að.
Dráttur sá sem orðið hefiu’ á
því, að munnleffur flutningur
má'ls þessa færi fram og dómur
uppkveðinn stafar af því, að
■rétt þótti að bíða eftir dóms-
úrslitum í málunum nr. 5—7-
1943, en með þeim var skorið
úr um lögmæti verkfaills þess,
sem athafnir þær, er um ræðir
í þessu máli, voru stuðningur
við.
Því dæmist rétt vera:
1. Stefndi, Alþýðusamiband ís
land f. 'h. Verkamannafélao'sins
Dagshrúnar, skal vera sýkn af
skaðabótakröfustefnanda,Vinnu
veitendafélags íslands f h. Finn
boga Guðmundssonar 1 máli
þessu.
2. Stefndi, Verkamannafélag
ið Dagsbrún greiði 50 kr. sekt
til rlíkissjóðs.
3. 'Stefndi greiði stefnanda
kr. 250,00 í málskostnað.
Dóminum ber að fullnægja
innan 15 daga frá birtinsm hans,
að viðlagðri aðför að lögum.
Sératkvæði Sigurjóns Á. Ól-
afssonar:
„Ég tel að her hafi ekki verið
um verkfall að ræða heldur af-
greiðslubann (boycott) og með
því að lög nr. 80/1938 fjalla
um verkföll *en ekki boycott þá
heyrir mál þetta ekki undir Fé
lagsdóm og ber því að vlsa mál
inu frá dómi.“
Frá Kveimaskélanun í Reykjavík
INNIýjEGAR ÞAKKIR til allra þeirra, er auðsýndu
Kvennaskólanum í Reykjavík vináttu og ræktarsemi á sjö-
tugsafmæli hans, 1. október s. 1. Enfremur kærar þakkir til
nemendasambands skólans, er gekkst fyrir veglegu afmælis-
hófi að Hótel Borg, 4. þ. m. og þeirra, sem sátu það
Ragnheiður Jónsdóttir.
HJARTANS ÞAKKIR fyrir alla þá miklu vináttu og
sæmd er, okkur var sýnd á 25 ára hjúskaparafmæli okkar.
Ingibjörg Gissurardóttir og Símon Símonarson
Hringbraut 70.
t
Sunnudaginn 12. nóv. í Skólavörðustíg 19 kl. 3 e. h. Fé- jj
lagskonur og aðrar, sem vilja styrkja félagið með því að gefa
muni á bazarinn, geri svo vel að koma þeim til undirritaðra
í síðasta iagi laugardaginn 11. nóv.
Eriet Ölafsdóttir Lindarg. 63 Valgerður Jónsd. Flringb. 171
Súsanna Guðjónsd. Grettg. 23 Halla Loftsdóttir Barónsst. 27
Helga Bjarnad. Fálkag. 10 Jóhanna A. Jónsd. Brávg. 14
Hallfríður Jónasdóttir Brekkustíg 14 B.
I e -
átédyra&krár,
með handföngum og smekklás
Y a
I e -
skápaskrár
Y a I e
skrifborðaskrár
A. Einarsson & Funk.
Kirkjuhljémleikaritir
til minningar um
Sigfús Einarsson
endurteknir
■jTfe ÓMKIRKJUKÓRINN end-
*** urtekur kirkjutónleika sína
ti'l minningar um Sigfús Ein-
arsson, tónskáld og stjórnanda
kórsins um margra ára skeið,
næstkomandi sunnudag kl. 9.
■síðd. Auk þess, sem kórinn
syngur, leikur Þórarinn Guð-
mundsson einleik á fiðlu, með
undirleik Sigurðar ísólfssonar.
Páll ísólfsson stjórnar kómum
og leikur auk þess á orgel.
Einsöngvarar ■ fcórsins eru:
Guðrún Ágústsdóttir, sópran,
Kristín Einarsdóttir, alt og Her
mann Guðmundsson, tenór.
Allt það, sem flutt verður á
tónleikum þessum er eftir Sig-
fús Einarsson, alls 9 verk.
Inngangseyri öllum, er inn
kemur, verður varið til þess að
reisa legstein á gröf tónskálds
ins, <xg þarf án efa ekki að
hvetja fólk til þess að sækja
tónleika þessa, þar sem flutt
verða aðeins ágæt verk eins
fremsta tónskálds ofckar og það
af beztu listamönnum okkar,
en auk þess gefst hér tækifæri
til þess að heiðra minningu
mannsins og tónskáldsins, Sig-
fúsar Einarssonar.
G. St.
Félagslíf.
Ungmennafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund með kaffi-
drykkju annað kvöld kl. 9. Dr.
Björn Sigfússon les félagsblaðið
Umræður um félagsmál.
Stjómin.