Alþýðublaðið - 10.11.1944, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 10.11.1944, Blaðsíða 3
10. nóv«mb«t 1944 HSawWjwa^'HWlii ■trmiwwwg •y <ÍM»ýai'iBvgwpri*píf^ý ammsy 'jifrl rmvy IM1'lll'att*'W«f.lC: srsi=-1'- fa.nrer.m.~«rnST^.-^xv^ | loose velf og Dewey Jf OSNINGAHNAR í Banda- ' ríkjuntun fóru eíns og ! • fkstir munu hafa buizt við: Roosevelt hélt velli og meira má segja, að sigur hans hafi verið glæsilegri en fylgjend ur hans munu hafa gert sér voniír um. Vitað er, að stuðn ingsmenn Deweys, aðjöfrarn ir, þeir, sem eiga járnbraut- irnar, bílaverksmiðjurnar, námurnar og stjórna bönkun úm, höfðu varið milljónum dollára til þess að fella Roose velt og koma Dewey að. Mán uðum saman höfðu kosninga- smalar, skoðanakönnunarsér- fræðingar og þauæfðir ,,sölu menn' unnið að því nót og nýtan dag að undirbúa jarð- veginn undir kosningarnar, en allt var unnið fyrir gýg. BANDARÍKJAMENN leggja mikið upp úr klæðaburði og . fasi áhrifamanna, jafn vel meira en flestar aðrar þjóðir. Sagt er, að sérstakir menn hafi haft það starf með hönd um í undirbúningsnefnd republikana að ráðleggja Dewey, í hvernig litum föt- um hann ætti að vera dags daglega, hvernig flibba hann ætti að hafa, á hvað hann ætti að leggja áherzlu í ræðum sínum og hver mistök hon- um bæri að forðast. Að sjálf- sögðu er það mikils um vert, að frambjóðendur við forseta kosningar í mesta stórveldi heimsins séu vel og smekk- lega til fara, en það er tæp- lega einhlítt sem vegamesti, þegar um slíkt virðingarem- bætti er að ræða. Aðrar og meiri kröfur hljóta menn að gera til forsetans, þekkingu á utan- og innanríkismálum, rökvísi og röggsemi og ótal margt annað. Abraham Lin- coln þótti ekki sérlega glæsi- legur í klæðaburði, en aldrei mun það hafa háð honum, hann hafði aðra og betri kosti til að bera, sem gerðu hann að einhverjum glæsilegasta forseta í sögu Bandaríkjanna og einu mesta stórmenni 19. aldarinnar. SAGT ER, að það hafi vakið nokkra kátínu og þótt rétt mælt, er hinn fr^egi rithöf- undur, Sinclair Lewis flutti kosningaræðu í Madison Square garði í New York fyr ir 20 þúsund áheyrendum, og sagði: „Enda þótt mér líki vel útvaxpsrödd Deweys, vel sniðin föt hans og gullfallegt yfirvararskegg hans, kysi ég heldur að sjá gamla, klóka refinn hann Roosevelt setjast niður hjá Winston frænda og Jóa Stalin en að sjá Tomma, þennan glögga pilt, setjast hjá þeim.“ ROOSEVELT forseti hefir vafa laust ekki unnið kosningarn- ar enn einu sinni, bara vegna þess, að almenningur í Banda ríkjunum hefir fundið, að hann er þeirra styrkasta vörn gegn auðhringum og atvinnu leysi, heldur ekki hvað sízt vegna óvenjulegs glæsileiks sem stjórnmálamanns og vegna mannkosta hans. Roose velt forseti er óvenju sköru- urchillSr Roose. L ChurchiH segfr, að styrjöldinni muni ekki Ijúka fyrren á næsta ári WINSTON CHURCHILL flutti ræðu í gær í London og ræddi meðal annars styrjaldarhorfumar og forsetakosning- una í Bandaríkjunum. Það vakti mikla athygli, er hann boðaði, að menn mættu búast við því að þurfa enn að leggja mikið að sér, ef styrjöldinni ætti að verða lokið á næsta ári. Hann kvað mikil tíðindi framundan, enda væru bandamenn nú tilbúnir til stór- sóknar úr vestri, suðri og austri. Hann fagnaði mjög kosningu Roosevelts og kvaðst vænta þess, að brátt yrði haldin ný þrívelda ráðstefna Bretlands, Bandaríkjanna og Rússlands. Fá sænskir sjálfboða- lilar að berjasf með Norðmöniuun! STOKKHÓLMSBLAÐIÐ „Aftontidningen“ hefir birt athyglisverða grein, þar sem rætt er um, hvort sænskum sjálfboðaliðum verði Ieyft að fara til Noregs og berjast með Norðmönnum. Blaðið skrifar meðal annars: „Það' er engum vafa undirorpið, að bæði stjómin og þjóðin er jafn fús til þess að hjálpa Norð mönnum eins og Finnum hefir verið hjálpað. En skilyrðið er að sjálfsögðu að það brjóti ekki í bág við hlutleysi Svíþjóðar. Hins vegar er það ekkert hlut- leysisbrot að leyfa ungum Sví- um, sem þess óska að berjast sem sjálfboðaliðar í Noregi.“ Sænska Noregshjálpin hefir nýlega móttekið 45.000 krónur frá skipasmíðastöðinni Göta- verken og verkamönnum þar. Um leið fékk Danmerkurhjálp- in 15.000 krónur. Sama dag gaf' Landbúnaðarsambandið Noregs hjálpinni 10.000 krónur. í des- ember mun Noregshjálpin senda 75 þús. pör af barnaskóm til Noregs. (Frá norska blaðafulltrúanum). Norðmem ánægðir með sænska lánið 'O RÁ London er símað, að norskir ráðamenn í Lon- don láti í ljós mikla ánægju út af 100 milljón króna láninu, sem sænska stjórhin hefir veitt Norðmönnum, til þess að stand- ast straum af útgjöldum vegna starfsemi Norðmanna í Svíþjóð. Til þessa hefir norska stjórn in haft mikil útgjöld í Svíþjóð vegna flóttafólksins þar, sem legur og glæsilegur forystu- maður einnar þjóðar. Hann virðist vera laus við alla hreppapólitík og smásálar- ' hátt. Hann sér meira en hags muni síns eigin lands, hann sér líka hið hrjáða og stríð- andi mannkyn. Honum er ljóst, áð friðnum verður ekki borgið, nema með samstillt- um átökum sem flestra þjóða, og þá einkum stórveldanna. EN ROOSEVELT er ekki bara Churchill flutti ræðu sína í hófi, er borgarstjóri Lundúna- borgar hélt. Meðal viðstaddra voru Koenig hershöfðingi og borgarstjóri Brússel. Hann hóf máls á því að lýsa því, hvernig erfiðar samgöngur hefði valdið því, að nokkurt hlé hefði orðið á sókninni í Hollandi en sagði, að nú, er siglingaleiðin til Antwerpen væri á valdi bandamanna, væri unnt að stefna norðurfylkingararmi bandamanna til árása inn í Þýzkaland. Það sem nú væri að gerast, væri aðeins forleikur að miklum tíðindum. Churchill sagði, að nú væru miklir og öflugir herir banda- manna reiðubúnir til allsherjar innrásar á Þýzkaland úr vestri, suðri og austri, en þá yrði her- veldi nazista endanlega brotið á bak aftur. Nú væru miklir at- burðir framundan og hver ein- asti maður og hver einasta kona yrði að gera skyldu sína, þá myndi takast að ljúka styrjöld- inni á næsta ári. Churchill minntist og á Teher anráðstefnuna og kvað tími til þess kominn að ’halda aðra slíka ráðstefnu, sem gæti orðið til þess að binda enda á styrj- öldina og stytta þjáningartím- ana, sem nú ríktu. Hann fagnaði sigri Roosevelts, en tók það fram, að það væri gleðilegt, að ekkert hefði komið fram í kosn ingabaráttunni, sem gæti dregið úr sigurvilja Bandaríkjanna. Ræðu Churchills var mjög vel tekið, einkum'þegar hann minntist á kosningarnar í Bandaríkjunum og að í vænd- um væri nýr fundur hans, Roosevelts og Stalins. nemur um 30 þúsund manns. Hefir þetta verið greitt af doll- arainnstæðum norska ríkisins, en vegna sænska lánsins verður framvegis hægt að komast hjá því að ganga á dollarainneign- ina.y idealisti eða hugsjónamaður. Hann er líka raunsær stjórn- málamaður. Honum er ljóst, að afskipti Bandaríkjanna af alheimsst j órnmálum hlj óta að vera meiri eftir þessa styrj öld. Bandaríkin eru ekki sjálf um sér nóg, þau verða að eiga viðskipti við-önnur ríki, Vafa laust hefir forsetinn það í huga, jafnframt, þegar hann kveður niður innilokunar- stefnuna. Sfjórna á vesfurvígstöðvunum Á myndinni sjást, frá vinstri til hægri, George S. Patton, er stjórnar sókninni við Metz, Omar N. Bradley, yfirmaður Bandaríkjasveitanna á vesturvígstöðvunum og Sir Bernhard L. Montgomery marskálkur, yfirmaður brezka hersins á vesturvígstöðvunum Vesturvígstöðvarnar: Bandamenn sækja á í A.-Frakk- landi norðan og sunnan Metz 2000 flugvélar réðust á stöðvar Þjóðverja áöur en fótgönguliðssveitir sóttu fram «*- I-J ERSVEITIR Pattons héldu áfram sókninni í gær milli Metz og Nancy og hafa nú náð 24 þorpum og bæjum á sitt vald. Um það 'bil 2000 flugvélar gerðu fyrst hrikalegar loftárásir á stöðvar Þjóðverja áður en fótgöngulið banda- manna og skriðdrekar sóttu fram. Sækja Bandaríkjamenn fram bæði norðan og sunnan Metz og láta Þjóðverjar und- an síga. Þeir hafa farið yfir Mosel á fleiri stöðum og er mik- ill þungi í sókninni. Einhver mesti loftfloti, sem beitt hefur verið í sambandi við aðgerðir landhers í þessari styrjöld gerði fyrst ægiiegar á- rásir á stöðvar Þjóðverja og á samgöngumiðstöðvar að baki þeirra. Um það bil 1300 flug- virki, varin um 500 Mustang- orrustuflugvélum réðust á Saar brúcken og fleiri! stöðvar en sið ar komu 200 Thunderboltflug- vélar til frekari árása. Mót- spyrna Þjóðverja virðist frek- ar lítil og þeir hafa enn sem komið er, e'kki geirt nein gagn- áhlaup svo teljandi sé. Patton hefir * enn dregið að sér 3 fót- gönguliðsherfylki og sækir fram með móístæðilegum þunga þótt ekki sé farið hratt yfir. Á Suðvestur-Hollandi hafa pólskar sveitir lokið við að eyða herflokkunum þýzku í Moerdijk og engir þýzkir her- menn eru nú á Walcheren. Fyrsti ameríski herinn, sem sækir á við Aachen á enn sem fyrr í hörðum bardögum við Þjóðverja, sem verjast mjög harðfengilega og hefur honum ekkert orðið ágengt undanfar- inn sólarbring svo teljandi sé. Brezkar Lancasterflugvélar fóru til árása á ýmsar stöðvar í Ruhr. Tvær þeirra týndust í leiðangrinum. Mosquitoflugvél- ar réðust á Hannover og komu allar aftur til stöðva sinna. Hollendingar gera til- kall lil þýiks lands IXOLLENZKA stjórnin hefur lýst yfir því, að hún muni gera tilkall til þýzks landssvæð is sem skaðabætur fyrir spjöll, er Þjóðverjar hafi gert í Holl- landi. Bretar hafa tilkynnt, að þeir muni styðja þessar kröfur* Hollendinga ef sanngjarnar reynast.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.