Alþýðublaðið - 10.11.1944, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 10.11.1944, Blaðsíða 5
Föstudagur 10. nóvember 1944. ALÞYÐUBLAÐIÐ Byggingamálin og menning þjóðanna — Húsnæðisvand- ræðin og frámtíðin — Tveir vinir ræðast við og deila — Byggingamálaráðstefnan og sýning hennar. EINHVER sagði það í sambandi við byggingamálaráðstefnnna, að byggingar þjóðanna væru mæli kvarði á menningu þeirra, og ef þetta ætti við um okkur íslend- inga, þá stæðum við ekki vel að vígi í samanburðinum. Þetta mun vera rétt, en stórstígar hafa þó framfarirnar á þessu sviði verið á síðustu árum. f>að eru ekki ýkja mörg ár síðan að mikill meirihluti þjóðarinnar bjó í híbýlum sem í raun og veru voru ekki mannabú- staðir. ÞETTA HEFIR smátt og sxnátt verið að breytast, þó að enn sé óralangt frá því að ástandið sé við- unandi, og á það er rétt að bénda í þessu sambandi, að eini tilfinn- anlegi skorturinn, eina neyðin í þessum bæ síðast liðin 5 ár, síðan styrjöldin hófst og hin mikla at- vinna, hefir verið húsnæðisneyðin, en hún hefir verið beinlínis hræði- leg. ÞAÐ KANN að vera að til séu einhver kauptún á landinu, þar sem byggingar eru viðunandi fyr ir íbýana, en ég hugsa að þegar allt sé athugað, þá séu þau ekki mörg, og mjög víða er þetta í hin- um mesta ólestri. Ekki eru sveit- irnar betri hvað iþetta snertir en Reykjavík og kaupstaðir og kaup- tún. í sumum sveiturti eru manna bústaðir svo lélegir að engu tali tekur og til stórkostlegra lýta er bæði fyrir sveitirnar sjálfar og menningu íbúanna. UNDARLEGT ER ÞAÐ að þetta fer ekki eingöngu eftir afkomu- möguleikum í sveitunum. Talað er oft um eitt hérað, þar sem margir héraðshöfðingjar hafa ríkt lengi og afkoma almennings hefir lengi ver ið talin mjög sæmileg, en hvergi sér byggingar eins langt á eftir tímanum, hvergi eins hryggilega lélegar og bókstaflega óhæfar. Ég J hef farið um þessa sveit og ég var J alveg undrandi á því hversu lé- ' legir mannabústaðir voru þar. HIÐ SAMA MÁ raunar segja um Reykjavík. Enn má segja að fólk neyðist til að hafast við í á- líka húsnæði og búpingsklefarnir á íþróttavellinum eru. Þó að menn búi þar líkast til ekki nú, þá bjó fólk þar fyrir nokkrum árum — og ber þess aldrei bætur. — Við íslendingar stöndum illa að vígi í byggingarmálurm Næstum allt, sem til bygginga þarf verðum við að kaupa inn í landið og bygginar eru hér ægilega dýrar, eins og dæmin sanna. Þetta er þó nokkuð að breytast eins og sýningin ber með sér. EINU SINNI vorrnn við saman fjórir vinir eina kvöldstund og við ræddum um menningu þjóðarinnar og þar á meðal byggingamálin. Einn okkar hélt því fram að fólk myndi ekki bæta byggingar sínar fyrr en það öðlaðist meiri menn ingu. Hann er mikið fyrir listir og hann sagði, að það ýrði að kenna fólkinu fyrst að meta listina. Það ætti að fá það til þess að kaupa falleg málverk, hengja þau upp hjá sér og læra að meta þau. Ef þetta tækist þá myndi menning þess aukast á öllum sviðum. ANNAR SAGÐI að fyrst yrði að hjálpa fólki til að eignast sæmi- legt húsnæði og síðan myndi það fara að kunna að meta listaverk. Ég man að hann sagði: Það er mesta menningarmálið að byggja verkamannabústaði, svo að fólkið geti eignast hrein og góð og falleg heimili. Það þýðir ekki fyrir þig 'að fara með fallegt málverk eftir Kjarval í kjallaraíbúð, þar sem allt vellur út í slaga og hengja það þar upp. Eftir skamma stund er það orðið ónýtt og skapar hryggð á heimilinu. Nei. Fyrst að byggja góðar íbúðir og svo að flytja lista verkin, þægileg og falleg húsgögn, hljóðfæri og málverk inn í þær.“ ■*. ÞEIR RIFUST um þetta allanga stund og ég var ekki í vafa hvor- um ég fylgdi að málum. Undirstaða menningarinnar er þolanlegt hús- næði, því að ef að heimilin eru léleg, þá er ekki hægt að gera þau að þeim gróðurreit, sem þau eiga og þurfa ‘að vera. Við íslendingar skiljum þetta og á þennan veg, þó að seint hafi gengið að beina þró- iminni inn á hinar heppilegustu brautir í þessu efni. En við höfum hafið viðreisnarstarfið. Það er erf- itt, mjög erfitt, en við vinnum það samt og við munum sigrast á því. ■ ÞAÐ BER að þakka það að efnt hefir verið til þessarar bygginga- málaráðstefnu og sýningarinnar í sambandi við hana. Vel má vera að þessi ráðstefna geti orðið til þess að skapa nýjan áhuga fyrir uppbyggingastarfinu og hrinda af stað nýjum framkvæmdum, svo að við þurfum ekki lengur að bera kinnroða vegna húsnæðisvandræða þjóðarinnar. Hannes á horninu. Sendiminn óskast nú þegar. — Upplýsingar í afgreiðslunni. — Bezt að auglýsa í Alþýðublaðlnu. Þannig hafa þeir flestir endað. •Myndin sýnir síðustu augnablik þýzks káfbáts á Atlantshafi Sp-nerigjuna amerískra flug- véla rignir í krin.gum hann og álhölfnin heldur sér dauðahalii í turninn. En það er aðeins augnabliksspursmál, hvenær ein spnenigjan bindur enda á stríð þeirra og sendir. kafbát- inn til bdtns. Þannig hafa þeir flestir endað. Þáttur Jan Mayen í slríðinu HP IL ÞESSA hefur því verið haldið vandlega leyndu, að frá því í ársbyrjun 1941 hafa nokkrir harðgerðir menn haft aðsetur á smáeyju nyrzt í norð- urhöfum. Eyja þesSi hefur ver- ið nefnd „Eyja X“ og er álíka stór og eyjan Wight við Bret- land. En Eyja X er að því leyti gerólík Wight, að hún er hrjóstrug mjög og hulin snjó og klaka. Þar gnæfir sjö þúsund feta hátt eldfjall við himin. Hið rétta nafn hennar er Jan May- en, og eyja þessi Iiggur norðan heimskautabaugs, langt norður af íslandi. Eyjan liggur nær miðrai; leiðar milli Grænlands oig Spitzbiergen, óraledð frá öðrum löndum. Jan Mayen er eign Norð- manna, og þar var mfVi'ÍT.^CT veðurathuganastöð á friðartím- um. Þegar Þjóðverjar naöu Noregi á vald sitt árið' 1940, skipti það mjög miklu máli, að óvinirnir næðu ekki Jan May- en á vald sitt. Skip var því sent þangað norður eftir með nýtízku vísindatæki, er fengin skyldu í hendur veðurfræðing- anna, sem þar störfuðu, og nokkra norska hermenn, sem hertaka skyldu eyjuna. Því miður strandaði skipið á hraun- rifi úti fyrir ströndum Jan Mayen. Mannbjörg varð að sönnu, en öll vísindatækin fóru forgörðum. Annað skiþ var þá sent á vettvang til þess að sækja veðurfræðingana tfjóra og skipbrotsmennina. Áhöfn þess var og falið að sprengja út- varpsstöðina í loft upp, til þess að koma í veg fyrir, að óvin- irnir hefðu hennar not, ef þeir skýldu leggja leið sína til eyjar- innar. Þannig var allt fólk flutt brott frá Jan Mayen, en brezk- ur tundurspillir var látinn vera á verði við strendur hennar, og skyldi hann koma í veg fyrir sérhverja landgöngutilraun Þjóðverja. Þannig var ráðizt á fyrsta þýzka skipið, sem til eyj- arinnar kom. Það var hrakið upp að klettaströndinni, þar sem þar brotnaði í spón • Um þessar mundir var liðið f^REIN ÞESSI, sem er eftir A. H. Rasmussen og var upphaflega flutt sem erindi í brezka útvarpið en er hér þýdd úr útvarpstíma- ritinu The Listener,, fjallar um veðurathuganastöð bandamanna á eyjunni Jan Mayen í norðurhöfum og þátt hennar í stríðinu. Langt tfram á hauist, og bæði Bretar og Þjóðverjar gerðu sér grein fyrir því, að kapphlaup myndi háð um eyjuna strax og ísa leysti næsta ár og unnt yrði að senda skip þarigað norður eftir. Bretar töldu sig miklu skipta að verða fyrri til en óvinirnir. Þeir réðu því tólf Norðmenn, sem dvalizt höfðu langdvölum í norðurhöfum að vetrarlagi, til þess að fara til eyj arirmap strax og áuðið væri og verja hana gegn hverj- um þeim, er freistaði þess að ná henni á vald sitt. Tólfmenning- arnir stigu á land á Jan Mayen í marzmánuði árið 1941, og voru það einsdæmi, að leiðangur Væri gerður út til norðurhafa svo snemma árs. Þeir hrepptu hagstætt veður á leiðinni og komust heilu og höldnu gegnum ísinn á skipi því, sem flutti þá norður eftir. Þegár til eyjarinn- ar kom, reyndist sjórinn kring- um eyjuna íslaus á stóru svæði. Leiðangursmennirnir stigu á land og skipuðu upp farangri sínum. Snjórinn var svo mik- ill, að hundarnir gátu ekki dregið sleðana með farangrin- um, svo að þeir félagar urðu að flytja hann til samastaðar síns á skíðum. , Leiðangursmennirnir hófust þegar handa, en það var vissulega enginn hægðarleikur að athafna sig þarna norður frá. Þeir sprengdu úr klaka og hrauni undirstöðuefni í grunn kofa sinna og útvarpsstöðvar- innar. Oft skullu á fárviðri, sem eyðilögðu á nokkrum klukkustundum það, sem hafði koistað þá' margra daga vinnu Kuldinn var svo óskaplegur, að þeir gátu aðeins haldið á verk- færunum nokkur andartök í einu. Auk þess tóku þýzkar sprengjuflugvélar að herja eyjuna, og þær héldu uppi vél- byssuskothríð og sprengjuregni á þá, er þeir voru við vinnu sína. Allan þennan tíma voru veðurskeyti send til Bretlands átta sinnum á dag. En veður- skeyti þessi skiptu mjög miklu máli fyrir hernaðaraðgerðir bandamanna í lofti og á legi þetta örlagaríka ár. Að mínum dómi var ekki megindáð þessara manna sú að reisa útvarpsstöð við þessar aðstæður. Mest finnst mér till um það, að þeim skyldi reyriast auðið að koma þarna upp veðurathug- anastöð uppi á háum kletti, en upp á hana varð ekki komizt nema klífa eftir löngum kaðli. Hér var um'varúðarráðstöfun að ræða. Uppi á kletti þessum reistu þeir varaútvarpsstöð. Því næst fluttu þeir þangað birgðir af vistum til þess að geta var- izt þa>r, etf til (þeiss skyldi koma, að óvinirnir gengju á land á eyj unni. Með þessu móti hugðust þeir geta varizt fjölmennum her, með því að draga kaðalinn til sín, og senda veðurskeyti til Bretlands, meðan vistir þeirra entust. Tveim mánuðum eftir að þeir komu til eyjarinnar, bætt- ist þeim liðskostur átján manna. Þeir höfðu loftvarnabyssur meðferðis og styrktu þannig varnir eyjarinnar að miklum mun. Síðar um sumarið var annað skip sent þangað norður eftir með hergögn, matvæli og annan útbúnað undir veturinn. Þegar skip þetta lét í haf, veif- uðu þeir, sem eftir urðu, til skipverjanna. Hlutverk þeirra var að una öllu því öryggisleysi, sem steðjar að fámennum setu- liðum, og vera einangraðír frá umheiminum árlangt. Það má með sanni segja, að Framh. á 6. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.