Alþýðublaðið - 12.11.1944, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 12.11.1944, Blaðsíða 7
Sunnudagur 12. nóv. 1944. Bœrinn í dag. Næturlseknir er í nótt og aðra nótt í Læknavarðstofunni, sími 5030.' Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki. Helgidagslæknir er Snorri Hall grímsson. Næturakstur annast B. S. í., sími 1540. ÚTVARPIÐ: 11.00 Morguntónleikar (plötur): Tónverk eftir Johann Sebastian Bach og syni hans, Johann Christ oph og Philip Emanuel: a) Svítur í G-dúr og D-dúr eftir J. S. Bach. b) Konsert fyrir hljómsveit eftir Ph. E. Bach. c) Symfónía eftir J. Chr. Baeh. 12.10—13.00 Hádegis útvarp. 14.00 Meksa í Hallgríms- sókn (séra Ragnar Benediktsson). 15.15 Miðdegisútvarp (plötur): a) Söngvar eftir Richard Strauss. b) Rapsodiur eftir Liszt. c) Valsar. 18.30 Barnatími: a) Leikrit: „Þor steinn Þumall“ (Leikstjóri: Ævar R. Kvaran). b) Upplestur (Stefán Jónsson rithöfundur). 19.25 Hljóm plötur: „Kije liðsforingi“ eftir Prokoffieff. 20.20 Einleikur á fiðlu <Þótrir Jónsson): a) „Ástarsorg“ eftír Kreisler. b) Chanson Polon- aise eftir Wieniawsky. c) Valse lente eftir Merikanto. d) Kuija- viak eftir Wieniawsky. 20.35 Er- indi: Um Oscar Wilde og skáldrit hans (Sigurður Einarsson slkrif- stofustjóri). 21.00 Minningartón- leikar um Sigfús Einarsson tón- skáld (Dómkirkjukórinn syngur. — Einsöngur: Guðrún Ágústsdótt ir, Kristín Einarsdóttir, Hermann Guðmundsson. — Einleikur: Páll ísólfsson, Þórarinn Guðmundsson). 21.20 Fréttir. 21.25 Danslög. 22.00 Fréttir. 23.00 Dagskrárlok. Á MÁNUDAG' Næturakstur annast Aðalstöðin, sími 1383. ÚTVARPIÐ: 8.30 Morgunfréttir. 12.10—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Mið- degisútvarp. 18.30 íslenzkukennsla 2. flokkur. 19.00 Þýzkukennsla, 1. flokkur. 19.25 Þingfréttir. 19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: „Lönd og lýðir,“: Svip- myndir úr sögu Póllands (Knútur Arngrímsson skólastjóri). 20.55 Hljómplötur: Lög leikin á bala- laika. 21.00 Um daginn og veginn (Sigurður Bjarnason alþingismað ur). 21.20 Útvarpshljómsveitin: ís- lenzk þjóðlög í raddsetningu Svein bjarnar Sveinbjörnssönar. — Ein söngur (séra Marinó Helgason): a) Largo eftir Handel. b) „Friður á jöröu“ eftir Árna Thorsteinsson. c) Vögguljóð eftir Sigurð Þórðar- son. d) „Hátt ég kalla“ eftir Sig- valda Kaldalóns'. e) „The lost chord“ eftir A. Sullivan. 22.00 Fréttir. Dagskrárlok. Hverfisstjórafundur svo og annarra trúnaðarmanna Alþýðuflokksins verður haldinn annað kvöld kl. 8.30 í Iðnó (uppi). Dagskrá furidarins hefir verið send, ásamt fundarboði, í pósti. Stúlka eða eldri kona óskast til þess að sitja hjá börnum þrjú kvöld í viku. Upplýsingar Bjárgarstíg 15, 1. hæð. ALÞYÐUBLAÐIP Goðafcss skofinn í kaf 7 Jarðarför konunnar minnnar, Þórdísar Guðjónsdóttur, fer fram 14. þ. m. Hefst kl. 1 e. h. með bæn að heimili okkar Suðurgötu 49, Hafnarfirði. Guðmundur Erlendssox. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát og.jarðarför Stefáns lunólfssonar frá Eskihlió. Aðstandendur. Móðir mín, Signý BárSardóttir, frá Skálmarbæjarhraunum verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 14. nóv. n. k. og hefst athöfnin með húskveðju að heimili hinnar látnu, Baldursgötu 29 kl. 1,30 e. h. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Fyrir hönd aðstandenda Arinbjöm ÞorkeLsson. Frh. af 2. síðu. vélaviðgerðanám í Bandaríkj- unum. Skipverjarnir, sem hjöguóust Nöfn skipverjanna, sem bjarg að var, fara hér á eftir. Sigurður Gíslason, skipstjóri, Vesturgötu 16. Eymundur Magnússon, 1. stýrimaður, Bárugötu 5. Stefán Dagfinnsson, 2. stýri- maður, Hringbraut 132. Hermann Bæringsson, 2 vél- stjóri, Hringbraut 32. Aðalsteinn Guðnason, 2 loft- skeytamaður, Dagverðareyri. Sigurður Guðmundsson, há- seti, Vesturgötu 16. < Gunnar Jóhannsson, háseti, Ránargötu 10. Baldur Jónsson, háseti, Báru- götu 31. Ingólfur Ingvarsson, háseti, Öldugötu 4. Árni Jóhannsson, kyndari, Tjarnargötu 10 B. Stefán Olsen, kyndari, Sól- vallagötR 27. Guðmundur Finnbogason, matsveinn, Aðalstræti 8, Arnar Jónsson, búrmaðUr, Laugavegi 44. Guðmundur Árnason, þjónn, Laugavegi 11. Frímann Guðjónsson, bryti, Kaplaskjólsvegi 1. Jóhann Guðbjörnsson, háseti, Skeggjagötu 14. Stefán Skúlason, þjónn yfir manna, Flókagötu 27. Þess skal getið að einn há- setanna, Loftur Jóhannsson frá Eyrarbakka, varð eftir í New York, vegna sjúkleika. Farþegarnir, sem bjöguöust Farþegarnir, sem björguðust hétu: Áslaug Sigurðardóttir, Ás- vallagötu 28. Agnar Kristjánsson, Hring- braut 132. Þegar skiphrots- mennirnir komu aö landi Þegar sú fregn barst um bæ- inn síðari hluta föstudagsins, að Goðafoss mundi hafa orðið fyrir tundurskeyti og sokkið, og að óttast væri um að mikið af áhöfn skipsins og farþegum hefðu faarizt, var sem skugga drægi yfir bæinn. Fólk varð hljótt og alvörugefið, og hvar sem menn mættust, var spurt um Goðafoss og afdrif fólks þess, sem með honum var. En fregnir voru óljósar. Allt kvöldið og fram á nótt lifði fólk í hræðilegri óvissu og kvíða, enginn vissi neitt um það hve margir hefðu komizt lífs af, en fréttir höfðu þó borizt urn, að tvö erlend skip væru á leið til Reykjavíkur með skip- brotsmenn. En skip þessi komu ekki til Reykjavíkur fyrr en um og eftir miðnætti aðÞ”" nótt laugardags. Um klukkan 7 á föstudags- kvöldið, eftir að frétzt hafði um að tvö skip væru á leiðinni til lands með fólk af Goðafossi, fór fjöldi manns að safnast ni ur að höfn, til þess að taka á móti þeim, sem með skipunum kynnu að koma. Bifreiðar voru í þéttum byrp ingum meðfram Hafnarib”<^*'m og vestur imdir verbúðabrvíjg-; ur, og fólkið hnappaði sig í s'kjóli við húsin. Allir störðu út á jsióinn, út í éndalaust myrkrið. í hvert sinn ,sem skipsljós sást úti á sjónum kom hreifing á alLa' alltaf var búist við því að skipin færu að koma. Hin kvíðablandna eftirvænt- ing, sem skein svo að segja úr aiugum hvers manns, er þarna var, verður ógleymanleg ölluro | þeim, sem þarna voru staddir. Loks, þegar klukkan var að ganga tólf um kvöldið. fyrir utan hafnargarðinn, það líður hægt áfram inn undir hafn armynnið, og nú er ekki um að villast. Það er björsunarskip ,°ð koma, því lögreglan biður alla að færa sig upp af bryp”l’in’"' upp undir húsin fyrir ofan. Á bryggjunni er allur við'bú1- -' til þess að taka á móti sk.rob”'^- Ifólkinu, sjúkrbifrcYÍ^''" börur o. fl. En fólkið- má ekki koma fram á brypcr-5’— það torveldi ekki landgönguna. Ljósið líður inn höfnina, og loks mótar fyrir gráleitu skipi í myrkrinu; það leggst að vest- an verðu við Sprengisand og um le:ð :renrr’’r herra, Ólafur Thors, u-m borð. En óvissan er ekki búin enn þá. Aðeins tveir af skipbrots- mönnunum hafa komið með þessu skipi, og þeim er ekið í burtu. í sjúkrabifreið inn að Laugarnesi. Ennþá veit enginn hve marg ir hafa komizt lífs af. Það er búizt við að nokkur stund líði þar til siðara skipið komi og margrr hverfa í burtu frá höfn inni, í bili. . Klukkan var að byrja að ganga þrjú. Þá sést aftur skips ljós líða inn sundin, það tekur beygju og skríður inn hafnar- mynnið. Nú er aftur orðið mannmargt við höfnina, og þegar skipið er lagst upp að, hefir lögreglan nóg að gera við að gæta þess að fólkið þyrpist ekki fram á hafnargarðinn. En það fer á sömu leið og þegar fyrra skipið kom, skip- brotsmennirnir eru látnir fara upp í bdfreiðar og þeir fluttir í sjúkrahúsið að Laugarnesi. Þrír piltar, sem af komust, fá þó að fara heim með feðrum sínum, sem faðma þá að sér, og leiða þá í burtu upp bryggjuna. En fljótt berast þó fréttir manna á meðal, hverjir komið hafa upp úr skipinu. Þessi sá þennan, og þessi sá hinn o. s. frv. En á sama tíma og aðstand endur hinna nítján, sem kom- ust lífs af, fengu þau gleðitíð- indi1, að þeir væru heimtir úr helju, slokknaði siðasti vonar- neisti aðstandenda þeitnra, sem legurúm höfðu hlotið í hinni votu gröf, við strendur ættjarð arinna,- þennan úrsvala og dimma vetrardag. Þegar Reykvíkingar komu á fætur í gærmorgun blöktu fán- ar í hálfa stöng um allan bæinn. Viðfal við fyrsla sffri- mannbin frá því að tundurskeytið hitti skipið og þar til það var alger- lega horfið.“ •— Hvað komust margix á flekann með yður? „Við vorum sex saman á fleka. Einn þeirra' var Eyjólf- ur Edvaldsson loftskeytamað- ur, sem lézt um borð í björgun- arskipinu á leiðinni í land. Á meðan hann var á flekanum virtist hann hinn hraustasti og bar sig mjög karlmannlega.“ — Hvað voruð þið lengi á flekanum áður en skipin komu ykkur til hjálpar? „Það munu hafa ver'* -’™ tvær klukkustundir.“ — Voruð þið ekki orðnir mjög þjakaðir eftir svona lang an tíma? „Okkur var náttúrlega orðið kalt, þív við sátum upp að mitti í sjónum á flekanum. En svo fengum við strax þurr föt, þeg ar við komum mn borð í björg unarskipið, og aðbúð öll var hiin bezta.“ — Sáuð þið nokkuð til fólks ins, sem fórst með skipinu? „Þetta gerðist allt á svip- stundu. Ég ímynda mér, að all- ir þeir sem fórust, hafi strax sogast niður með skipinu um leið og það sökk. Þeir sem á flekana komust, hafa verið bún ir að synda það langt frá skip- inu, þegar það sökk, að sog það sem myndaðist í krinsnmr um leið og það 'seVk”-' ekki náð til peirra.“ — Hvenær komuð þið svo til Reykjavíkur? „Fyrra skipið kom rétt fyr- ir kl. 12 á miðnætti, en með V--' skipi voru aðeins tveir menn af Goðafossi. Hitt skipið kom ekki til Reykjavíkur fyrr en klukkan að byrja að ganga 3 um nóttina.“ — Þið hafið verið lengi í land af árásarstaðnum? „Björgunarskipin voru lengi kringum hann eftir að okkur var bjargað um borð. Ennfrem ur var flugvél á þessum slóð- um fram í myrkur.“ — Og svo var farið með ykk ur í sjúkrahúsið á Laugarnesi. „Já, við fengum ekki að fara heim til okkar, fyrr en við vorum búin að fá þá hjúkr- un og að'hlynningu, sem talið var að við þyrftum. Þ' föt okkar þúrrkuð og allt var gert til þess að okkur gæti lið- ið sem bezt, og svo fórum við heim urn morguninn.“ Wilfal við annaa far- þegann, er bjargaðisi Frh. af 2. siðu. arbeltið á Sverri litla, en síðan gerðist allt með svo skjótum hætti, að erfitt er að segjg frá því, sem á eftir fór, í réttri at- burðaröð. Manni gafst einhvern veginn ekki tími til að hugsa. Þó var ekki óðagot á neinum. allir virtust æðrulausir og ró- legir, enginn hróp eða köll.“ —- Þér komust á fleka, var ekki svo? „Fyrst fór ég upp í björgunar bát á bátaþilfarinu. Frímann bryti tók í mig og við komumst upp í bátinn, sem enn hékk í davíðunum, en svo renndum við okkur niður á flekann fyrir neð an. Þá var skipið mjög djúpt í sjó. Allt gerðist með svo skjótri svipan, að ég á erfitt með að átta mig á því öllu, er ég hugsa til þess. Svo sökk skipið, skutur inn fyrst, en stefnið stóð síðast upp úr sjónum. Sogið var mik- ið, er skipið fór niður og við gripum það, sem hendi var næst til þess að koma okkur sem lengst frá því. Svo komum við að öðrum fleka og bundum hann við okkar fleka. Ekki get ég sagt, að neinn hafi verið hrædd ur á flekanum, við vissum, að okkur myndi verða bjargað, en okkur var mjög kalt. Raunar var mér ekki svo kalt, ég blotn aði ekkert fyrr en á flekanum sjálfum, því við vorum mörg á honum og hann var svo djúpt í sjó, Þegar við höfðum bundið saman flekana leið öllum bet- ur.“ — Hverjir voru á flekunum tveim? Áslaug hugsar sig um, en seg ir svo: „Mig minnir, að þar hafi ver ið Arnar búrmaður, Guðmund- ur Árnason, Guðmundur Finn- bogason, Baldur háseti, Sigurð- ur háseti, Ingólfur háseti, Frí- mann bryti, Agnar Kristjáns- son, Stefán Skúlason og Árni Jóhannsson. Sumum var afskaplega kalt, einkum þeim, sem höfðu lept í sjónum, en við hristum hvert annað og börðum til þess að koma blóðinu á hreyfingu. Svo fundum við skjólföt í flekanum og breiddum segl í kringum okk ur og fór strax að líða betur. Við vorum tvo tíma á flekan- um, þar til okkur var bjargað um borð í togara og fengum þar hina beztu aðhlynningu. Svo komum við til Reykjavíkur milli kl. 2 og 3 um nóttina. Flest ir munu hafa verið fluttir í sjúkrahhús, en ég fékk að fara heim strax, enda leið mér vel þá“. — Hvernig var yður innan- brjósts meðan gekk á öllu þessu? „Ég fann ekkert til verulegs æsings eða ofboðs, allt skeði svo fljótt. Maður hafði ekki tíma til þess að hugsa eða veita því eft- irtekt, sem fram fór í kringum manna. En viðbrigðin komu á eftir. Þegar ég kom um borð í björgunarskipið, riðaði ég á fót unum af þreytu. En það vildi ég segja, að allir, sem með mér voru á flekanum voru hinir vösk ustu, þeir stóðu sig eins og hetj- ur.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.