Alþýðublaðið - 04.02.1945, Síða 5

Alþýðublaðið - 04.02.1945, Síða 5
Suxmadagur 24. febrúar 1949 AU.YÐUBLAÐIP Áfengisneysla •— Tölur, sem tala sínu máli — Ummæli aldraðs útlendings — Framkvæm dastj óri mæðiveiki- vama svarar fyrirspura. B|L<ÖÐIN hafa skýrt frá því a® rík isjóður hafi fenjriff áriff 1944 hvorki meira né minna en 27 millj- ónir króna fyrir áfengissölu. Eitt Iblaff hefnr skýrt frá því, aff þaff hafi aflaff sér áreiðanlegra nplýsinga um Iþað, aff íslendingar hafi drukkiff síff ast liðiff ár að meffaltali einn og Ibálfan lítra af 100% áfengi á ein stakling — og eru þar börn og gamalmenni talin meff. ÞETTA ERU HROÐAUEGAR TÖLCR. Það mun ekki aðeins finn ast þeim er ekki neyta áfengis held exr og ölum þeim mörgu, sem þykir eitthvað varið í það að fá sér í ataupinu. Upplýsingar eins og þess ar mega sín meira til að gera menn að bindindismönnum en 100 stúk nr og þúsund bindindisræður. Mönnum hlýtur að hrjósa hugur við tölum eins og þessum. FYRIK NOKKRCM DÖGCM tal aði ég við Daniel Kiein, sjómann frá Færeyjum. Hann er á sjötugs- aldri og hefur stundað sjó í upp und «lr þrjá áratugi. Oft höfum við ís- Sendingar heyrt talað um að Færey ingar drykkju mikið. Daniel Klein á heima í Gjögv á Austurey. Sú byggð hefur um 300 fbúa Ég spurði hann hvort alþýða manna í þorpi hans drykki mikið. Hann svaraði: „,Ég held að það sé meira en ár siðan ég hef séð nokkurn mann tfullan heima í Gjögv. Bn sums stað ar á stærri stöðunum er drukkið meira, enda er léttara að ná þar í áfengi." SVO SPCRÐI hann mig hvort að satt væri að áfengiskaup hinna 130 þúsunda íslendinga hefðu num ið tugum milljóna króna s. 1. ár. Ég kvað já við og þá sagði hann: „Já, það er ægilegt fé, en ægilegra verður hugsunin við það er maður athugar að önnur eins upphseð tap- ast við áfengisneyzluna í viiyiu- tapi, minnkandi afköstum og öðru »em af áfengisneyzlunni leiðir.“ Þetta eru athyglisverð orð. Það er rétt, að hver króna, sem eyðist í áfengi, dregur aðra með sér úr vasa þess sem kaupir. SÆMUNDCR FRIÐRIKSSON framkvæmdastjóri mæðiveikisvam anna hefur svarað fyrirspum þeirri, sem ég birti í pistli mínum fyrir fáum dögum. Vil ég geta þess að svar framkvæmdastjórans hef- ur beðið hjá mér í tvo daga svo að það er ekki hans sök hversu lengi hefur staðið á svarinu. Hér er svar framkvæmdastj órans og vona ég að ,,Bóndinn“ hafi fengið nægilegt svar við fyrirspum sinni: „ÉG VIL verða við tilmælum um að svara fyrirspum frá „bónda í nágrenni Reykjavikur“ oig yður um það, hvort sauðfjársjúkdóma- nefnd beri kostnað af framleiðslu á lyfi Sigurjóns á Álafossi. Myndi ég hafa gefið svar við fyrirspum inni, þó ósk um það hefði ekki verið þrítekin í dálkum yðar.“ „AFSTAÐA Sauðfjársjúkdóma- nefndar mun skýra sig bezt með því, að taka hér upp orðrétta bók un frá fimdl nefndarinnar þann 28. ágúst 1944. Þar segir svo: „Út af lækningatilraunum á mæði veiki, sem Sigurjón Pétursson á Álafossi hefir haft með höndum, saimþykkti nefndin að fara fram á það við hann, að hann léti nú í haust og vetur meðal af hendi við greinagóða bændur, sem mæðu- veiki hafa í fé sínu, og þess kynnu að óska, svo að þeir geti haldið á- fram lækningatilraununum. Nefnd in mun sjá um greiðslu fyrir lyf í þesssu skyni, enda fái hún skýrslu um tilraunimar.“ .. „AF SAMÞYKKT ÞESSARI má sjó, að sauðfjórsjúkdómadefnd taldi rétt að fylgjast með þessum til' raunum. Ástæðan til þess var eink um sú, að fyrir lágu vottorð frá tveim dýralæknum og nokkrum bændum, er gáfu til kynna að greinileg bataeinkenni hefðu kom ið fram á mæðiveikum kindum eftir læknmgatilraunir með lyfi Sigurrjóns, er gerðar voru s. 1. vetur og vor.“ „NEFNDIN VILDI því reyna að i fá sem fyrst úr þvi skorið, hvort i lyfið kæmi að gagni, eða ekki, með því að láta greinagóða bænd- ur fá það til reynslu og skila skýrsl um um árangurinn. Um aðra leið, til að fá vitoeskju um þetta, var naumast að ræða, þar sem sérfróð ir menn, er vinna á þessu sviði, hafa færst undan að fylgjast með tilraununum." „EINS OG KUNNUGT ER, hefir vísindamönnum enn ekki tekist að finna ráð gegn mæðiveikinni, þó nokkrar vonir séu nú bundnar við tilraunir, er einn þeinra hefir unn- S'rft. A 7. Mím. Bezt að auglýsa í Alþýðublaðinu. Tilkynning Að tilhlutun Verkstjórasambands íslands, verður nám- skeið fyrir verkstjóra haldið í Reykjavík dagana 22. febrúar til 24. marz n. k. # Rétt til þátttöku í námskeiði þepsu hafa allir verk- stjórar er þess æskja, svo og flokksstjórar og aðrir þeir, er ráðnir eru til þess að takast verkstjórn á hendur. ' S. Allar upplýsingar um kennslu og tilhögun námskeiðs- ins gefur Jóhann Hjörleifsson, verkst. Símar 2588 eða 2808. Forstöðunefndin. Hafa þeir barizt til einskis ? Myndiin sýnir notkkra unjga pólska hermenn mað mótor hjódin siin á vesturvígstöðvumim. Þar ihaifa þeir veardlð að ‘barjast fyrdir freibsi lands siínis; en nú er svto að siá, að það sé hvergi mærxi tryggt, þótt (þýzflci nazisomrm verði lagðutr að vedli, ef koanmíúnistísk leppstjórn fyrir Rúisisa kemur í hana stað. Hafa þessár hraustu pólisku henmesnn og þúsiundir og miljónir ann arra landa jþeiiTa vixkilega barizt til einkis? IJm það sipyr heimuriran í dag. Hvað er Mf5NN hafa deilt mest um Ar gentínu af öllum Suð- Amerikuríkjunum sdðustu fimm árin. Afstaða þessa lands gagnvart öðrum löndiun hefur fætt af sér alls konar gagnrýni Fyrir mann sem hefur lifað í því landi í meira en 13 ár, er það augljóst, að hin tvíræða afstaða þess var ekki vilji lýðræðisafl- anna í landinu. Almenningsá- litið hefur ekki ráðið kosning- um þar í landi í mörg ár. Stjórn in, sem hélt þessu landi hlut- lausu, komst til vailda með hin um svívirðilegustu kosningum, sem sögur fara af þar í landi. Stjórn sú, sem síðar sleit stjóm málasambandi við möndulveld in var afleiðing byltingarinnar, sem gerðizt 4. júní 1943. Bylting þessi var eins og mik ill léttir. Lýðræðisflokkarnir héldu, að sá tími hefði komið, að Argentína myndi ganga í röð hinna sameinuðu þjóða. Sann- leikurinn var sá, að sumir þing mennirnir höfðu meiri áhuga á erlendum stjórnmálum, en inn lendum. Þegar hin nýja stjórn tók við völdum, fór hun strax að víkja sér meira að innanlahdsmáleín um, heldur en áður hafði verið gert. Og verkefnin voru nóg, sem leysa þurfti. Einokun á matvöruverzilun var mjög al- geng. í hinu frjósama og af- urðaríka landi var fólkið svo fátækt sumstaðar, að það hafði ekki efni á, iþð borga uppsett verð á fæðutegundum. Á borð- ,um verkamanna sáust ekki kartöflur. Á sama tíma sigldu skip, hlaðin alls konar afurð- um til annarra landa frá höfn um Argentínu. Launagreiðslur voru yfirleitt af skornum skammti. Fasistískur og nazist- iskur áróður kepptist við stefn ur vinstrimanna og kommún- ista. Herinn, sem fram að þessu hafði ekkert komið við stjórn- málin, ákvað nú að láta til skar ar skríða. Hann gerði tvær al- I gerast í GREIN ÞESSI er eftir Englendmginn Thomas Aincough, sem um skeið dvaldi í Argentíníu. Birtist hún fyrst í „Contemparary Review“ í London, en síðar víða annars staðar. Segir hún frá lífi og starfi Argentínu- búa nú á tímum. varlegar tilraunir til þess að bæla niður kommúnismann. Það fyrsta var að endurnýja kristindómsfræðsluna í skólum landsins. Eðlilega munu þau börn, sem eru af rómv.kaþólsk- um foreldrum imdantekin sam kvæmt umsókn. En meira held ur en 99 % af foreldxunum hafa ,þó verið með þessu. Nú á dögum er Argentína eitt af þeim löndum sem á við bezt lífsviðurværi að búa; jafn vel þeir fátækustu geta náð sér í lífsviðurværi Hlutleysi þess lands hefði getað orðið háska- legt, því það lá einna bezt við höggi af öllum löndum þessa meginlands. Þrákelkni ráða- manna Argentínu gerði það að verkum, að Banidaríkin neituðu að senda þangað vopn sam- ikvæmt láns- og leigulaga-samn ingunum. Þessi afstaða Argen- tínu varð til þess, að stefra landsins varð ákveðin gagnvart nágrannanum í norðri Banda- ríkjunum. Þetta viðhorf stjórnarinnar olli því, að þjóðin varð ákveðn ari en nokkru sinni áður í því að útrýma erlendu fjármagni úr dandinu. Samt hefur neitun Bandaríkj anna á þvi að flytja Argentínu búum vopn, verið sem eins kon ar dulbúin blessun. Þessi gæfa bjargaði landinu frá því að víg búast fyrir margar milljónir, sem hún annars hefði ekki not að, sparað milljónir dollara, Argentfnul sem nú er verið að nota í bar- áttu fyrir fjárhagslegu sjálf- stæði. Straumhvörfin í styrjöldinni, bandamönnum í vil, og samn- ingurinn um nána samvinnu 1 stríðinu hefur því fjarlægt stríðshættuna Plata-fljótimi. í dag ræktar Argentína hveiti pg framleiðir smjör, egg, kjöt ,og aðrar fæðutegundir, sem síð an eru sendar til hinna mörgu sameinuðu þjóða, utan Rússa. Jöfnum höndum er herinn út- búinn betri tækjum en áður og er nú mikLu sterkari heldur en nokkru sinni fyrr. Stjómin hef- ur í hendi sér yfirrekstur fjöl- paargra fyrirtækja og sér um ýmis konar viðskiptalega samn- inga millum seljenda annars veg ar og neytenda hins vegar. Und anfarin ár hefur verið unmð að því með fullum árangri að þjóðin sjálf eignaðist raforku- verin, gasstöðvarnar og ýmsar námur í landinu, en áður fyrr var þetta mest allt í eigu ým- issa erlendra fyrirtækja og ríkja sem þannig áttu óbeinlínis í- ,tölk í stjórn landsins. Og ekki mun líða á löngu, unz járn- .brautir allar og samgöngur eru í höndum stjórnarinnar, eða inn lendra fyrirtækja, enda þótt enn sé skammt á veg komið í þeim efnum. Nú skyldi enginn halda, að Argentína geti algjörlega stað ið óháð öðru ríki á allan hátt. Til dæmis þarfnast landið kola fná Stóra-Bretlandi og ennþa ,er olíuvinnslan ekki það mikii að hún nægi landsmönnum fylli lega. Járnbrautirnar eyða ekki svo ýkja miklum kolum, en því meira af timbri. Kolin eru feng in frá Brasilíu og sunnar úr Ameríku, og þau eru frekar slæm, megnið af þeim. Kol þau, sem Argentína þarfnast mest, eru kolin frá Wales og Yorks- hire, — og með auknum iðnaði í landinu munu verða auknar kröfur og nauðsyn á kolum til Framh. á 6. siðu. i

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.