Alþýðublaðið - 03.03.1945, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 03.03.1945, Blaðsíða 7
X&ttgardagnr 3. marz 1345 ALÞÝÐVBLAOiP > r, Bœrinh í dag. .'Oírí.ö ■■■;- :;;.-Uv;.”V:- ÁjKýtó Nœturlæknir er í Læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki. Næturakstur annast Bifröst, sími 1508. ÚTVARPIÐ: 8.30 Morgunfréttir. 12.10—13.00 Hédegisútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur. 19.00 . Enskukennsla, 2. flokkur- 19.25 Hljómplötur: Samsöngur. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpstríóið: Tríó, í Es- dúr, eftir Hummel. 20.30 Útvarpstríóið: Einleikur og tríó. 20.45 Leikrit: ,Um sjöttu stundu' eftir Wilfrid Grantham. — Leikstjóri Valur Gíslason. 21.15 Upplestur og tónleikar: a) Lárus Fálsson les úr Pétri Gaut, síðari hlutanum. b) Lög úr Pétri Gaut eftir Grieg, o. fl. 22.00 Fréttir. 22.05 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. „Álfhóll“ verður sýndur í Iðnó í 23. sinn annað kvöld. — Bráðum verður Lárus Páisson og Svava Einars- dóttir. næsta viðfangsefni félagsins aug- lýst og verður þess þá nánar get- ið hér í blaðinu. Fríkirkjan Messað ó morgun kl. 2. Séra Árni Sigurðsson. Unglingafélags- fundur í kirkjunni kl. 11. Fram- haldssagan o. fl. 25 ára hjúskaparafmæli. H. Rydelsborg, klæðskeri og kona hans, Guðrún Rydelsborg, Skóluvörðustíg 19, eiga í dag 25 ára hjúskaparafmæli. Goðinunda iíaraldsdóttir, ,kona Þorsteins Þ. Þorsteinsson ar skálds í Winnipeg, er nýlátin vestra. x Laugarnesprestakall Messað kl. 2 e. h. á morgun. Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. Séra Garðar Svavarsson. Frjálslyndi söfnuðurinn Messað á morgun kl. 5 s. d. Sr. Jón Auðuns. Fríkirkjan í Hafnarfirði Messað á morgun kl. 2 e. h. Sr. Jón Auðuns. Hallgrímssókn Bíirnaguðsþjónusta í Austurbæj arskólanum á morgun kl. 11 f. h. Séra Sigurjón Árnason. Messað verður á sama stað kl. 2 e. h. Séra Jakob Jónsson. Klukkan 10 f. h. verður sunnudagaskóli í Gagn- fræðaskólanum við Lindargötu. Nesprestakall Messað verður 1 kapellu háskól ans kl. 2 á morgun. Séra Jón Thorarensen. Hver verða laun opin- berra slarfsmanna! Prh. af 6. síðu. manna skuli fá ókeypis ein- kennisfatnað. 35. gr. Við samning reglu- gerða samkv. lögum þessum svo og við endurskoðun þeirra skal jafnan gefa Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja kost á að fylgjast með og fjalla íyrir hönd félaga sinna um á- greiningsatriði þau, sem upp kunna að korna. 36. gr. Við skipun í starfs- fiokka og flutning milli launa- fiokka skulu konur að öðru jöfnu hafa sama rétt og karlar. 37. gr. Um leið og lög þessi taka gildi, skulu niður falla hvers konar greiðslur fyrir aukastörf, sem rétt er að telja til aðalstarfsins, svo og greiðsla skrifstofufjár embættismanna, sem ætlað hefur verið til launa starfsfólks, er lög þessi taka til. Rfkisstjórnin, Bandalag starfs manna ríkis og bæja og hæsti- réttur tilnefna einn mann hvert í nefnd, sem skal úrskurða um, hver aukastörf rétt sé að telja til aðalstarfs og hver beri að launa sérstaklega. Lögmælt innheimtulaun af verðtolli, stimpilgjaldi, skipa- gjöldum og lífeyrissjóðsgjöld- um skulu hér eftir renna í ríkissjóð. Endurgreiða skal starfsmanni útlagðan kostnað vegna starfs hans eftir reikningi, er ráð- berra samþykkir. Bæjarfógetar, sýslumenn og tollstjórinn í Reykjavík fá gjald af innheimtum ríkis- sjóðstekjum sem hér segir: Af 100 þús. kr. eða minna greiðist 1%. Af 100—500 þús. kr. greiðist li%. Af 500—1000 þús. kr. greiðist 14%. Af 1—5 millj. kr. greiðist 1%«. Af 5— 10 millj. kr. greiðist V2%o. Aí 10 millj. og þar yfir greiðist %o. Héraðslæknar og prestar taka greiðslur fyrir embættis- verk samkvæmt gjaldskrám, *r hlutaðeigandi ráðherrar setja. Um leið og gjaldskrá er sett fyrir héraðslækna, skal semja við Læknafélag íslands um af- slátt, þegar sjúkrasamlag ann- ast greiðslu. Gjaldskrár þessar skal endurskoða, þegar ástæða þykir til, í fyrsta sinn þegar eftir gildistöku laga þessara. 38. gr. Með lögum þessum er úr gildi numinn II. kafli laga nr. 71 28. nóv. 1919, um laun embættismanna, launaákvæði Lga nr. 75 28. nóv. 1919, um skipun barnakennara og laun þeirra, svo og öll önnur laga- ákvæði, er fara í bága við lög þessi. 39. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 1945. 40. gr. Bráðabirgðaákvæði. Þar til sett hafa verið lög um réttindi og skyldur embættis- manna og starfsmanna hins opinbera, skal ríkisstjórnin setja með reglugerð ákvæði um vikulegan vinnutíma starfs manna ríkisins í sem fyllstu samræmi við það, sem gildir í hverri starfsgrein í árslok 1944. Ráðningu starfsmanna skal einnig þennan tíma hagað á sama hátt og verið hefur hjá hlutaðeigandi stofnunum. Launauppbætur greiddar ár- ið 1944 skulu einnig greiðast á árinu 1945, þar til lög þessi öðlast gildi. fjarðar 15 ára Fimleikafél^g hafn- ARFJARÐAR er fimmtán ára um þessar mundir, og af því tilefni neldur félagið hóf að Hótel Birninum í kvöld. Einn aðalhvatamaður að stofn un félagsin var Hallsteinn Hin- riksson iþróttakennari, en stofn endur voru alls um 40. Fyrstu árin lögðu meðlimir fé lagsins eingöngu stund á fim- leika, en frá því 1934 tók félag ið einnig frjálsar íþróttir á stefnuskrá sina og sendi þá strax á sama árinu þrjá menn í meistaramótskeppni í. S. í. Voru það þeir Hallsteinn Hin- riksson. Sigurður Gíslason og Gísli Sigurðsson. Upp frá þvl heíur fexagið alltaf sent menn í meistaramótskeppni í. S. 1. Svo sem kunnugl er, á félag ið nú ýmsa þekkta iþróttamenn, og má þar til nefna t. d. Oliver Stein, sem nú er islenzkur met hafi í langstökki (7.08) og Þor- kel Jóhannesson, sem er drengja methafi í stangarstökki og lang stökki. Auk þeirra á félagið marga efnilega íþróttamenn, er getið hafa sér góðan orðstír. Árið 1939 byrjaði félagið að æfa knattspyrnu og hefur nú háð um 80 knatfspyrnuleiki og unnið 40 þeirra, en gert 15 jafntefli. Þá hefur félagið einn ig æft upp handknattleiksflokk og keppt í honum en ekki ver- ið eins sigursælt í þeirri grein og mörgum öðrum. Nú á fimmtán ára afmæli Fimleikafélgas Hafnarfjarðar eru i því um 300 meðlimir. Fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð: Kristján Gamalí elsson formaður, Sigurður Gíslason og Böðvar Eggertsson. Núverandi stjórn skipa: Jón Magnússon formaður, Hall- steinn Hinriksson varaformað- ur, Guðmundur Árnason gjald keri, Árni Ágústsson ritari, Hrefna Árnadóttir bréfritari, Oliver Steinn fjármálaritari og Sveinn Magnússon áhaldavörð ur. Aðalkennari félagsins foefur Hallsteinn Hinriksson verið frá byrjun og hefur hann einkum kennt fimleika og frjálsar í- þróttir. Hefur hann jafnan starfað ókeypis fyrir félagið og er það þvi mikið starf og óeig- ingjarnt, sem hann hefur lagt til íþróttamála Hafnarfjarðar. Þá kenna þær Fríða Stefáns- dóttir, Sonja Karlsdóttir og Bára Sigurjónsdóttir fimleika kvenna. Aðrir kennarar félags ins eru Þorgerður Gísladóttir og Guðjón Sigurjónsson. 50 ára er í dag Pétur BjömSson, Hverf isgötu 10 í Hafnarfirði, starfs- maður hjá hinu nýja Bæjarbíói þar. I.S.Í Í.S.Í íþrótla- kviksnyndasýning í Nýja Bíó á sunnudag kl. 1,15 e. h. — Sýndar verða úrvals íþróttakvikmyndir, erlendar og íslenzkar. Þar á meðal sérstaklega góðar kennslumyndir í stökkum og hlaupum. Ennfremur: Sund (dýfingar). Skíða- og skautamyndir (amerískar). Skíðamynd Í.S.Í. 1943 (landsmótið o. fl., litmynd). — Aðgöngmniðar seldir í Bókaverzlun ísafoldar og Bókabúð Lárusar Blöndal. íþróttasamband íslands. Föðursystir mín Þurföur Jónsdáttlr frá LoftsstöÓum andaðist 1. marz að heimili mínu Ránargötu 9 A, Reykjavík. Bjamey Bjamadóttir. Okkar hjartkæra eiginkona og dóttir Guöbjörg Þórunn Eggertsdóttir (Didda)j andaðist í VJfilsstaðahæli, fimmtudaginn 1. marz. Jón Þorsteinsson, Halldóra Jónsdóttir og systkini. Viðta! við Dr. Sigurð Þórarinsson. Framhald af 2. síðu. síðan var þeim skipt. Það þótti heppilegra. Flóttamennirnir hafa skapað Svíum ýmsa erfið leika, en þeir hafa ekki talið þá eftir sér. Öllum hafa þeir tekið vel — nema nazistum. Sumum þeirra hefur verið vís- að heim. Fg skal geta þess, að íslenzkir flóttamenn frá Dan- mörku eru þeir einu sem strax hafa fengið að vera frjálsir ferða sinna i Svfþjóð." — Ástandið í Svíþjóð? „Dýrííðinni er haldið í skefj um og það hefur óvíða tekizt eins vel. Þar er og nóg vinna og kyrrð í þjóðfélaginu. Rólegt hefur ætíð verið á vinnumark- aðinum síðan stríðið hófst, þar til núna upp úr áramótunum, að bera tók á verkföllum og nokkurri ókyrrð. Sviar standa eins og veggur um þá stefnu ríkisstjórnarinnar, að halda þjóðinni utan stríðsins. Hlut- leysistefna hennar á óskoruðu fylgi að fagna. Að vísu eru til menn, sem heimta að Svlþjóð gerist virkur styrjaldaraðili, en þeir eru tiltölulega fáir. All ir flokkar standa að ríkisstjórn inni nema kommúnistar.“ — Græða þeir ekki á því? „O-jú. Ég hygg að svo muni reynast.“ — Og nú tekur þú til starfa hér heima? „Já, vonandi fæ ég verkefni við jarðfræðirannsóknir. Ég er búinn að vera úti síðan 1939. Eg tók þannig próf, að ég sótti um dósentsembætti og fékk það, en ég hef ekki snúið mér að því. Eg yil starfa hér — og vona að geta fengið konu mína og barn heim þegar líða tekur á sumarið. Það er gott að koma heim eftir öll þessi ái* og alla þessa atburði. Þrátt fyrir allt hernám, er hér lítið breytt. Það er mikill munur að tala við fólk hér eða erlenda flótta menn í Svíþjóð. Danir og Norð menn eru merktir menn, en hér gætir stríðsins ekki.“ Kjarvalssafn. Frh. af 2. síðu. vík sýningarsal og íbúð. Skal ríkisstjórnin á 60 ára afmæli Jóhannesar Kjarvals næsta haust bjóða honum að búa og starfa í þessu húsi og gera jafnframt ráðstafanir til þess að þar verði komið upp til varð veizlu og sýnis sem fullkommn ustu safni af málverkum eftir þennan listamann. ASalfundur Skákfé- lags Hafnarf jarðar SKÁKFÉLAG Ilafnarfjarð- ar og Taflfélag Hafnarfjarð ar hafa nýlega sameinað starf- semi sína og starfa nú fram vegis sem eitt félag. Síðastliðinn þriðjudag hélt félagið aðalfund sinn og voru eftirtaldir menn kosnir í stjóm þess: Eggert ísaksson formað- ur, Bergsteinn Björnsson ritarí, Frímann Eiríksson gjaldkeri, Kristinn Andrésson gjaldkeri, og áhaldavörður var kosinn Þórarinn Símonarson. Taflæfingar fara fram í ráð- húsinu öll þriðjudags- og föstu dagskvöld. Þeir sem ’hafa í hyggju að gerast félagar, geta snúið sér til ein’hvers í stjórn- inni fyrir næstkomandi þriðju dagskvöld. Happdrætti Hallgrímskirkju. Konur í Kvenfélagi Hallgríms kirkju eru vinsamlega toeðnar að gera skil fyrir seldum happdrætt ismiðum fyrir þriðjudagskvöld til frú Halldóru Ólafsdóttur, Grettis götu 29, frú Önnu Ágústsdóttur Bjarnarstíg 9 eða frú Jónínu Guð mundsdóttur Barónsstíg 80. Nefnd ina langar til að dráttur fari fram á afmæli félagsins 8. marz. Sunnudagaskólinn í háskólakapellunni hefst aftur á morgun kl. 10 f. h. cc a oÁciLUJcujean 3. Opón Áí. /0-/2 si 2-'/ c/ac%'ée^a- sitm 3/22 TIMINN Þeir, sem fylgjast vilja með almennum málum verða að lesa Tímann. Áskriftarverð í Reykjavík og Hafnarfirði er 4 kr. á mán- uði. Áskriftarsími. 2323. fitbreiðið Albíðobi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.