Alþýðublaðið - 04.05.1945, Page 3
i'östudasux- 4. Éiai
5
Montgomery og menn bans
Á mynd þessari sést Montgomery marskálkur (í miðju), ásamt nokkrum kunnustu herforingjum
bandamanna á vesturvígstöðvunum, en þeir eru, taldir frá vinstri: Crerar, yfirmaður 1 hers
Kanadamanna, sem sækir að Émden, Dempsey, yfirmaður 2. brezka hersins, sem tók Hamborg,
Simpson, yfirmaður 9. hers Bandaríkjamanna og Coningham flugmarskálkur.
Rússar og Bretar hafa mætzt á breiðu
svæði miili Wismar og Witferiberge
Bandamenn tóku 500 þúsund fanga í Norður-
Þýzkalandi í gær
/
O REZKÁR sveitir úr 2. her Dempseys heldu inn í Ham
borg mótspymulaust í gær,* höfðu Þjóðverjar tilkynnt
að þeir myndu ekki verja hana. Er Bretar héldu inn í borg-
ina, laust fyrir hádegi í gær, gekk yfirmaður þýzka setuliðs
ins fyrstur, en hann hafði boðið hermönnum sínum að halda
kyrru fyrir og veita ekki viðnám. Fór hertaka borgarinnar
fram á skipulagðan hátt. Nokkru síðar var tilkynnt, að
Kandamenn hefðu tekð Oldenburg, norðvestur af Bremen.
Stalin tilkynnti í gær, að hersveir Rokossovskys, sem
tóku Rostock, ihefðu náð saman við brezku hersveitimar
á um 100 km. svæði miíll Wismar og Wittenberge við Elbe
og þar fyrir sunnan hafa hersveitir Z'hukovs einnig náð sam
an við hermenn vesturveldanna.
Þýzkur ráðherra segir:
Þýzkalands. ekki lengur á
, heldur vesfurveldanna"
„En Dönifz verður að bejas! áfram fil þess að
bjarga þjóðiaai undan Rússum"
... • *U,
Hvetur til endurreisnarstarfs í Þýzkalandi
BREZKA útvarpið í gærkveldi sagði frá því, að allt benti
tiil, að allsherjaruppgjöf Þjóðverja stæði alveg fyrir
dyrum og vitnaði í því sambandi í ræðu, er Spéer, hergagna
málaráðherra Þjóðverja flutti í danska útvarpið í gærkveldi.
Speer sagði þá meðal annars, að nú væri framtíð Þýzka-
lands ekki lengur á valdi Þjóðverja sjáilfra, þeir réðu ekki
lengur örlögum sínum, heldui væri þau undir vesturveld-
unum komin.
Hins vegar sagði Speer, iað Dönitz yrði að berjast áfram til
þess að bjarga flýjandi Þjóðverjum frá því að falla í hendur Rúss
um og að það væri vesturveldanna að ákveða, hvort Þjóðverjar
gætu tekið þátt í viðreisnarstarfinu, sem fyrir höndum væri sem
hraust menningarþjóð.
Bretar hafa tekið ógrynni fanga í Norður Þýzkalandi og
talið er, að á 39 klukkustxmdum hafi þeir tekið um eða yfir hálfa
milljón þýzkra hermanna höndum. í Lundúnafregnum í gær
kveldi var sagt frá því, að heil herfylki gæfust upp skilyrðis
laust og væri því fyrirsjáanlegt, að allsherjaruppgjöf yrði þá og
þegar.
Hvar er Dönifz!
‘E1 NGAR áreiðanlegar fregnir
hafa borizt um það, hvar
Dönitz, eftirmaður Hitlers,
muni vera niðurkominn. í einni
fregn segir, að hann hafi verið
á fundi í Kaupmannahöfn með
þeim Terboven, landsstjóra
Þjóðverja í Noregi og dr. Bes.t.
Þetta hefir þó ekki fengizt stað
fest, enda bannaðar fréttasend-
ingar frá Danmörku.
Þá hefir Dönitz gefið út til-
kynningu, þar sem hann lýsir
Prag „spítalaþorgV en menn
greinir á, við hvað hann eigi
með þessu, Frank, hinn ill-
ræmdi. landsstjóri Þjóðverja í
Tékkóslóvakíu, hefir lýst yfir
hollustu sinni og SS-sveitanna
þar við Dönitz.
í Tékkóslóvakíu munu Þjóð-
verjar hafa 8 heri SS-manns,
þar af 4 vélaheri.
Fró Stokkhólmi berast þær
fregnir, að Thomsen sendiherra
Þjóðverja þar hafi ekki fengið
neina opinbera tilkýnningu um
dauða Hitlers. Svíar hafa til-
kynnt, að þeir muni svípta
sendisveitina diplomatískum
réttindum um leið og Þjóðverj
ar gefast upp hekna fyrir eða
bandamenn segja vörn Þjóð-
verja lokið.
T GÆR var tilkynnt í London,
að 14. herinn hrezki hefði
tekið Rangoon, mestu hafnar-
Iborg Burma, svo og Prome í
Irawaddi-dalnum.
Speer sagði, að nú yrðu Þjóð
verjar að snúa sér að því að
koma járnbrautarkerfi Þýzka-
lands á lag. ef bandamenn veittu
leyfi til þess og að brýna nauð-
syn bæri til, að bændur hæfust
handa til þess að framleiða hin
nauðsynlegustu matvæli handa
þýzku þjúðinni, sem nú æfti við
skort að búa.
Ráðherra þessi sagði ennfrem
ur, að mikið erfiði væri fyrir
höndum, en Þjóðverjar mættu
aldrei hætta að trúa á fram-
tiðina. Þeir yrðu að vera hóg-
látir en þó upplitsdjarfir. Yfir
leitt var greinileguir uppgjafar
tónn í ræðu. ráðherrans og var
eins og hann væri þar með að
undiribúa þjóð sína undir hina
ólhjákvæmilegu uppgjöf og
jafnframt að reyna að gefa ein
hverja frambærilega skýringu
á þvi, að Þjóðverjar berðust
enn.
Vitað er, að Þjóðverjar kjósa
fremur að láta Breta og Banda
ríkjamenn taka sig höndum en
Rússa og daglega streyma þús-
undir þýzkra hermanna vestur
á bóginn, undan herjum Rússa
itil þses að láta (hermenn vestur
veldanna taka sig höndum. Virð
ist því eiga að skilja baráttu
Dönitz á þá leið, að hann sé að
vinna að því, að sem fæstir
lendi í höndum Rússa. ;
Brezka útvarpið segir um
þessa ræðu Speer, að gergreini
legt sé af henni að Þjóðverjar
hljóti að gefast upp Iheima fyr-
ir á hverri stundu.
Áður en Bretar héldu inn i
Hamborg kom yfirmaður þýzka
setuliðsins í borginni að máli
við Dempsey yfirmann 2.
brezka hersins og gafst upp á-
samt mönnum sínum. Varð það
síðan að ráði, að Bretar sendu
ei'tt vélaherfylki inn 1 borgina
og fór þýzki hershöfðinginn fyr
ir hersveitunum. Hafði hann áð
ur bannað alla umferð í borg
inni og skipað mönnum sínum
að halda kyrru fyrir í stöðvum
sinum, únz þeir yrðu afvopnað
ir.
Svo margir fangar berast nú
daglega til stöðva Breta, að ekki
hefir verið unnt að kasta tölu
á þá, en þeir eru nú þegar yfir
hálf milljón. Fréttaritarar segja
að á öllum vegum í grennd við
Hamlborg og við Eystrasalt sé
stöðugur straumur þýzkra her
manna, sem eru á leið til fanga
búða Breta. Fjölmargar hersveit
ir hörfa vestur á bóginn undan
Rússum og gefa sig Bretum á
vald.
Þó eru margir, sem hörfa
undan norður á bóginn til Dan-
merkur. Meðal annars var þess
getið í gær, að í mörgum höfn
um a Norður-Þýzkalandi noti
Þjóðverjar hverja fleytu, sem
þeir ná í til þess að komasí und
an til Danmerkur eða Noregs.
Meðal annars nota þeir hafskip
fiskiskip, tundurspilla, kafbáta
og smá.vélbáta til þessara flutn
inga, en flugvélar bandamanna
eru hvarvetna á sveimi og tor- ^
velda þessa flutninga með sí-'
felldum árásum.
TILKYNNT er í Washington
að amerískir kafbátar hafi
sökkt 1119 skipum Japana, þar
á meðal 4 flugvélaskipum síð-
an stríðið hófst.
Breíar á leið inn
í Danmörku
UNDÚNAÚTVARPIÐ
skýrði frá því kl. 1 í nótt,
að þýzka herstjórnin hefði lýst
flotahöfnina Kiel og Flensborg
opnar og óvíggirtar borgir og
fyrirskipað setuliðinu í þessum
borgum að verjast ekki.
Stokkhólmsfregnir hermdu,
að Bretar væru komnir yfir Kiel
arskurðinn og myndu komast
að landamærum Danmerkur í
nótt.
Nýsjáleitzkar her-
sveitir taka Trieste
Þó var her Titos þar
fyrir
AÐ hefír verið tilkynnt í
aðalbækistöðvum Alexand
ers marskálks, að nýsjálenzkar
hersveitir úr 8. hernum hafi far
flotahöfn ítala fyrir hotni Adria
ið inn í Trieste, hina miklu
hafs. Vekur fregn þessi mikla
athygli, þar sem hersveifír Tit-
os liöfðu áður tekið borgina.
Á Ítalíu er allt með kyrrum
kjörum eftir uppgjöf Þjóðverja
og hafa þeir í hvívetna farið
samkvæmt uppgjafarákvæðun-
um. Var vörn Þjóðverja hvar-
vetna hætt á Norður-Ítalíu í
gær, nema á stöku afskekktum
stað, þar sem fregnin um upp-
gjöfina hafði enn ekki komið
fram.
(Frh. á 7. síðu.)