Alþýðublaðið - 12.05.1945, Blaðsíða 2
ALPYÐUBLAÐIP
Laugaráaginn 12. maí 1945,
Sumarfagnaður áffifiufEokks-
félags
AlþýSuflokksfólk fagnar stasnri 03 friði
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR efnir til
mikils sumarfagnaðar í Iðnó í kvöld — og má gera ráð
fyrir að aðsókn verði mikil að honum. Hefur verið vandað
mjög til skemmtiatriðanna. Meðal skemmtiatriðanna er:
Ræða, er Helgi Hannesson, framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins flytur, tvísöngur með gítarundiirleik (tveir ungir
þekktir söngvarar), Stefán Jóh. Stefánsson segir frá því,
sem fyrir augu hans bar í nýafstaðinni Svíþjóðarför og loks
verður fluttur gamanleikur í 3 þáttum Hann flytur leik-
hópur félagsins og er leikurinn talinn bráðskemmtilegur, en
þó mun hann hafa félögum Alþýðuflolcksins sitthvað að
flytja. Að lokum verður svo auðvitað stiginn dans. Aðgöngu-
miðar að skemmtun þessari, sem talin mun verða engu síðri
árshátíð félagsins, verða seldir í dag í skrifstofu Alþýðu-
flokksins, afgreiðslu Alþýðublaðsins og Alþýðubrauðgerð-
inni, Langavegi 61. Skemmtunin er eingöngu ætluð félögum
Alþýðuflokksfélagsins og gestum þeirra. Þetta verður síðasta
skemmtunin á þessu starfsári og er ekki að efa að hún verður
fjölsótt og ættu því félagar að tryggja sér aðgang í thna.
Fjölsækið þessa ágætu skemmtun Albýðuflokksfélagsins.
Hjálp til bágsladdra
sem dvelia í
■ * ||l
Söfnunln fil bágsfaddra Dana.
Safnail hafa
krónur.
Söfnunin heldur áfram til 15. júlí í sumar.
Rauöi Krossinn beitir sér fyrir hjálpinni, en
ekki er hægt að vita að svo sföddu hve
margir íslendingar dvelja á þessum stööúm
-----—■ 4»
r
RAUÐI REOSS ÍSLANDS hefur ákveðið að gangast fyr-
ir hjálparstarfsemi fyrir íslendinga, sem kunna að
dvelja í Mið- og Suður-Evrópu 'ög eru hjálparþurfi.
Með þetta fyrir augum hefur
rauði krosSinn tilkynnt opinber
lega, að hann taki á móti upp-
lýsingum um íslenzíkt fólk; sem
talið er að nú muni dvelja á
þessum slóðum og mun fólk þeg
ar i gær hafa leitað til skrif-
stofu rauða krossins í Mjólkur-
félagshúsinu og gefið upplýs-
ingar um fólk.
Ómögulegt er eins og nú er
ástatt í Mið- og Suðm-Evrópu
að vila, hve margir íslending-
ar dvelja þar eða hvort þeir
sem vitað var að voru til dæm-
is í Þýzkalandi, eru þar enn, eða
hvort þeir eru í sömu borgum
og þeir voru fyrir skömmu. En
gera má fyllilega ráð fyrir að
þeir, sem dvöldu í Þýzkalandi,
eigi við erfiðleika að striða,
eins og ásíandið er þar í landi
nú, borgirhar í rústum og mat-
| arskortur.
Verður því að þakka þessa
viðleitni rauða krossins, því að
gera má ráð fyrir að þeirri al-
þjóðastofnun, sem ‘hann er í,
geti tekizt betur en einstakling-
um að finna þetta fólk og geta
rétt þvi hjálparhönd.
17 RAMKVÆMDANEFND
söfnunarinnar til bág-
staddra Dana, en hana skipa
Sigurður Nordal, Lúðvíg
Guðmundsson og Kristján
Guðlaugsson, hefur ákveðið
að halda söfnuninni áfram
til 15. júlí n. k. Hefur nefnd-
in gefið út skýrslu og ávarp
um söfnunina og fer það hér
á eftir;
Fyrir ' rúmu ári var hafizt
handa að safna nokkru fé hér á
landi til hjálpar Dönum, sem
harðast hefðu orðið úti af her-
náminu og kúgun nazista. Var
hugsað um að liðsinna fyrst
landflótta fólki, sem unnt væri
að senda hjálp, en síðan öðrum
nauðstöddum, þegar samgöngur
við Danmörku leyfðu.
Undir ávarpið um þetta skrif-
aði fjöldi mætra manna, og
þessári málaleitun var yfirleitt
mjög vel tekið, þó að minna
hafi verið rætt og ritað um hana
en. flestar aðrar fjársafnanir.
Söfnunin nernur nú um 650 þús.
kr. — 300 þús. kr. af þeirri
upphæð hefur að langmestu
leyti safnazt í smágjöfum frá al
menningi, því að stórgjafir auð-
ugra manna hafa verið fáar, en
350 þús. kr. er framlag úr ríkis-
sióði. Auk þessa hafa ísl. skóla-
börn safnað rúml. 400 þús. kr.
til bágstaddra barna á Norður-
löndufn — og er því fé enn ó-
skipt.
Nefndin sendi í des. s.l. sam-;
kvæmt- beiðni frá Stokkhólmi
um 155 þús. ísl. kr. til hjálpar
dönsku flóttafólki í Svíþjóð, og
var það fé afhent danska sendi-
herranum þar af sendifulltrúa
íslands. , Ennfremur hefur
nefndin þegar keypt úrvals ull-
arvörur íslenzkar, sem verða
senda til Danmerkur með
fyrstu ferð, sem fellur. Af-
ganginum mun verða ráðstafað
í samráði við sendiherra Dana
hér’ á landi og donsk stjórnar-
völd, og má gera ráð fyrir, að
mestu af fénu verði varið til
kaupa á íslenzkum matvörum
og ullaryörum.
Fregnin um lausn nánustu
frændþjóða vorra úr ánauð
hefur vakið óskiptan fögnuð ís-
'lendinga. En neyðinni er ekki
þegar lokið með ánauðinni, örð-
ugir tímar eru enn fram undan
fyrir þessar þjökúðu og féfiettu
þjóðir. Það er trú nefndarinnar,
að fögn,uðurinn yfir giftusam-
Iegum lokum hinnar ægilegU
Norðurálfustyrjaldar og vitund-
m um, að nú muni bráðlega
verða kleift að koma hjálp beint
til Danmerkur, eigi eftir að
leggja smiðshöggið á þessa fjár-
söfnun, svo að hún verði eins
myndarleg og samboðið er
hjartaþeli og hagsæld íslenzku
þjóðarinnar. Því mun gjöfum
enn veitt viðtaka til 15. júíí n.k.
svo að allir, sem enn hafa aðeins
dregið að leggja sinn skerf
fram, fái tækifæri til þess.
Forsetahjónin á sýn-
ingu Handíðaskólans
Fengu að gjöf einn.
sýningarmun eftir
frjálsu vali
SVEÍNN BJÖRNSSON for-
seti íslands og frú hans
skoðuðu sýningu Handíðaskól-
ans síðast liðinn miðvikudag.
Dvöldu forsetahjónin þar all
lengi og skoðuðu ítarlega
hina mörgu og góðu sýningar-
gripi, teikningar og vatnslita-
myndir. Fór forsetinn miklum
viðurkenningarorðum um starf
semi Handíðaskólans og glæsi-
legan árangur, er hann hefur
Framhald á 7. síðu.
Verður Esja send tii
Danmerkur!
O RÐRÓMUE gengu um
það, að í ráði sé að
eimskipið Esja verði send til
Kaupmannahafnar til þess að
sækja íslendinga, sem híða
eftir heimferð.
Ekki hefur Alþýðublaðinu
tekizt að fá þessa fregn stað-
festa, en líkur munu þó til
þess að skipið fari eftir mán
uð eða svo.
Sýningin „Barátta
Dana" opnuð
Krisfjáns km-
I Hákonar konungs
------—.......
Bárust Sveiaii Björnssyeii ferseta í gær
FORSETA ÍSLANÐS bárust í gær eftirfarandi þakkar-
skeyti frá konungum Danmerkur og Noregs:
„Fyrir hönd dönsku þjóðarinnar og sjálfs min flyt ég
yður, herra forseti, alúðarfyllstu þakkir mínar fyrir kveðju
yðar vegna frelsunar Danmerkur. Sömuleiðis fyrir árnaðar-
óskir yðar og íslenzku þjóðarinnar, sem ég endurgeld af
einlægu hjarta. Christian R.“
„Ég flyt yður alúðarþakkir fyrir vinsamlegar kveðjur
og árnaðaróskir út af endurheimt frelsis Noregs. Haakon R.“
SÝNINGIN „barátta
DÁNA“ var opnuð í sýn-
ingarskála myndlistarmanna kl.
15 á miðvikudag. Ludvig Stbrr
aðalræðismaður ávarpaði sýn-
ingargesti fyrir hönd sýningar
nefndarinnar, en hann er for-
maður /hennar, og Svart blaða-
fulltrúi Dana flutti ávarp á
ensku. Sendiherra Dana, de
Fontenay, flutti þessu næst
setningarræðuna og lýsti bar-
áttu Dana gegn hinum þýzka
innrásarher. Gat hann þess, að
ráðgert hefði verið, að sýning
þessi yrði opnuð hinn 9. apríl
áíðastliðinn, þegar fimm ár
voru liðin frá árás Þjóðverja á
Danmörku, en af þessu hefði
ékki orðið ýmissa orsaka vegna
og nú'atvikaðist þannig, að sýn
ingin væri opnuð að Danmörku
frjiálsri. Minnti sendiherrann á
það í lok ræðu sinnar, að sýn-
ing þessi ætti að gera mönnum
grein fyrir hinu mikla endur-
reisnarstarfi, sem dönsku þjóð-
arinnar biði, eigi síður en bar-
áttu hennar gegn kúgurum sín'-
um.
Mikill fjöldi manna var við-
staddur setningu sýningarinnar
þar á meðal forseti íslands og
ríkisstjórn, sendifulltrúar er-
lendira rikja, borgarstjórinn í
Reykjavík og stjórn norræna
félagsins.
Kvennaskólinn í Reykjavík.
Sýning á handavinnu og teikn-
ignum námsmeyja verður í skól-
anum laugárdaginn 12. maí kl. 4
til 10; sunnudaginn kl. 1 til 10 og
mánudaginn kl. 2 til
Hringurinn
heldur skemmtun í Nýja Bíó á
morgun kl. 1.30 til ágóða fyrir
barnaspítalasjóðinn. Mörg , góð
skemmtiatriði verða á skemmtun-
inni.
Kvennadeild
Slyisavarnafélags íslands heldur
dansleik í Tjarnacafé annað kvöld
(13. maí) og hefst hann kl. 10 s.
d. Aðgöngumiðar verða seldir í
Tjarnareafé á sunnudaginn frá kl.
5 e. h.
söngvari lálinn
Kjartan Sigurjónsson
NÝLEGA barst sú fregn
hingað að Kjartan Sigur-
jónsson söngvari sé látinn í Eng
landi.
Kjartan hefur getið sér góð-
an orðstír hér á landi undan-
farin ár fyrir söng sinn. Meðal
annars hefur hann sungið oft í
útvarpið. Hann fór til Englands
á síðast liðnu hausti til söng-
náms og hefur dvalið þar síð-
an.
Banamein Kjartans var heila
himnu’bólga.
Ágúsl H. Bjarnason
préfessor lætur af
stðrfum rið
PEÓF. ÐR. ÁGÚST H.
BJARNASON verður sjö-
tugur í sumar og mmi þá láta
af' embætti sínu við Háskóla ís
lands, er hann hefur gegnt frá
stofnun hans, eða í 34 ár.
Á mánudaginn var flutti próf.
Ágúst kveðjufyrirlestur í há-
s'kólanum, að viðstöddum flest-
um kennurum og allmörgum
stúdentum. Ræddi hann um
friðinn og helztu friðarflytjend
ur vorra tíma, svissneska lækn
inn Henri Dunant, stofnanda
rauða krossins; og sérstaklega
Fridtiof Nansen og öll hans
miklu og farsælu störf fyrir
Þjóðabandalagið.
Að loknum fyrirlestrinum á-
varpaði Jón Hj. Sigurðsson há-
skólarektor próf. Ágúst og þakk
aði honum störf hans í háskól-
anum. Þá mælti próf. dr. Alex-
ander Jóhannesson nokkur orð
af hálfu heimspekideildarinnar
og stud mag. Thor Vilhjálms-
son af hálfu stúdenta.
Skoytasamband Tið
Noreg
r GÆR var hægt að opna
4 skeytasamband við Nor-
eg og stóð þá ekki á því að
skeyti færu að berast til rit-
símans.
Þá fáu daga, sem skeyta-
sambandið við Danmörku
hefur verið opið hafa þúsimd
ir skeyta farið milli land-
anna.