Alþýðublaðið - 21.07.1945, Síða 6
ALÞVPUBLAÐIÐ
Laus úr íangabúðum.
Myndin sýnir séra Martin Niemöller, hinn heimsfræga
þýzka prest, sem í stríðslok var leystur úr fangabúðum Hitl-
ers af Bandaríkjamönnum, eftir tíu ára dvöl þar. Niemöller
sést á myndinni vera að tala við amerískan blaðamann.
Framh. af. 5. síðu
sjóinn af Grikklandsströndum,
— og hrekja ykkur í sjóinn við
Krít. — Alltaf er verið að
hrekja ykkur í sjóinn.
En ég hefi gerzl heimavarn- ,
arliðsmaður til þess að fyrir-
byggja það, að þið verðið hrakt-
ir í sjóinn hérna við strendur
Englands. karlinn minn!“
•
En sögur sem þessar sýna þó
frekar einhliða svip af brezkri
kímni. Kímni Bretans er eins og
hið græskulausa gaman skóla-
stráks, sem gefur kennaranum
lángt nef, begar hann snýr sér
úndam, — en meinar ekkert
með því. Hann er jafnvís til að
gera grín að sjálfum sér eins
og kennaranum. í þessu ljósi
sést höfuðeinkenni brezkrar
fyndni, —- hæfiíeikinn til þess
að gera grín að sjálfum sér.
Einmitt þessi tegund af skopi
er óskiljanleg Þjóðverjum. —
Þeim er einlegi að taka sjálfa
sig fjarska alvarlega. Þeir búa
aldrei til skítlur um sjálfa sig,
og skilja þess vegna ekki fólk,
sem gerir sllkt.
En hér er sagan ekki öll. Bret
ar geta nefnilega gert grín að
öðrum I'ika, — enda -yæri und
arlegt, ef svo væri ekki. Náz-
istaleiðtogarnir þýzku hafa
fengið að kenna á því. Skop-
teiknararnir brezku l'.aía ekki
legið á liði sínu í því efni! Bg
hugsa, að þeirra á moö-.I hafi
Giles, hinum iþekkta -kopteikn
ara brezka blaðsins ,.Daily E»
press,“ orðið einna mest á-
gengt. Hinar séúksnnitegu
„apa“-myndir hans af Þjóðvei'j-
um virðast hafa fallið Englend
ingum einkar vel í geð og verið
viðeigandi hugmyndum þeirra
um nazistana.
En samkvæmt minni skoðun
er Nathaniel Gubbins einhver
slyngasti skopsagnahöíundur
Englendinga nú á tímum, —
einkum í sambandi við það sem
stríðið hefir gefið tilefni til að
spinna sögur út af. Kímni. hans
er kimni hins „úrilla smámenn
is“, sem ekki getur sætt sig
við hátt verð á varningi, skyld
ur Heimavarnarliðsmanna,
myrkvun, óbragðið af stríðsöl-
i.nu, fæðis- og fataskömmtun-
ina og hundrað annarrn hluta,
- sem stríðinu fylgja. Á þessum
vettvangi tekst Gubbins lang
bezt upp. Hugmyndaflug hans
er mikið, stundum býr hann til
sögu<r, sem hann lætur ske í
framtiðinni. Hann heíir samið
heil þingtíðindi frá brezka
parlamenntinu árið 1960. —- og
það er sannarlega ekki leiðin-
leg skrudda. Það yrði of langt
máí að segja nánar frá þvi hér.
Fyndni Englendinga á und-
anföimum styrjaldarárum hef-
ir verið svo margþætt, að ég
ihugsa, að Þjóðverjar myndu
ekki komast að neinni „sanmi“
niðurstöðu, þótt þeir færu að
grufla- út í sálfræðilegar orsak
ir ensku fyndninnar og draga
ályktanir úl frá sínum eigin
skoðunum og tilfinningum. En
ef þeir gætu ei.tthvað lært af
brezku lundarfari, þó ekki væri
nema á sviði kímnisagna,
myndu þeir að minnsta kosti
engu tapa á tilrauninni.
HÓSIÆDI
vantar mig í HAFNAR-
FÍRÐI frá 1. okí. í haust.
i
Mánaðargamli r
r
til sölu.
Upplýsingar í hænsnabúinu
í Vatnagörðum.
............ .
Bréf til Ólafs Jóhanns Sigurðssonar.
frh. af 4. síðu.
mál vissi enginn nema þau
Penelopa og Odysseifur.
Er þetta ekki fögur líking
þeirrar ástar, sem engin getur
gefið nema guð einn, og aldrei
verður ötuð sauri kláms eða
kjaftæðis óhlutvándra skraf-
finna? Þetta fagra siðgæði og
trú var það, sem skáldið vildi
■ gefa þjóð sinni í ódauðlegum
óði. Aftur á móti fá hinir ófyr
irleitnu biðlar, sem lifað höfðu
í svalli og óhófi, á annarra eign
um, illan dauða að launum.
Þá langar mig að benda þér á
málsgrein í ritgerð þinni, sem
ég tel mjög hæpið að standist
i'rá vísindalegu sjónarmiði:
„Eldur hinnar blóðugu styrjald
ar. sem nú er senn á enda liðin,
hefir brennt sundur síðustu leif
ar þeirrar kenningar, að kon-
um sé fyrirmunað sökum áskap
aðra líffræðilegra tálmana, að
geta í einu og öðru gjörzt jafn
okar karla!!
Þótt þetta kunúi að þykja
fagur gullhamrasláttur í aug-
um lítt reyndra og lítt hugs-
andi stúlkna, — einkanlega
þeirra, sem hvorki hafa þurft
að ofreyna líkama sinn við
erfiðisvinnu eða hafa orðið
snortnar af hinni. ódauðltegu
ást, sem knýr lífið til þess að
streyma fram í fljóti kynslóð-
anna — hvað skyldu þær verða
margar úr hópi vinkvenna
þinna, sem biðu sig fram, til
þess að leika hlutverk föðurins
og eiginmannsins? Ætli að þær
hikuðu ekki við, þótt þær ann-
ars kynnu að vera all djarfar
til sóknar á orrastuvelli lifs-
ins?
Skyldi læknisfræðin geta
undirstrikað þessi vísindi þín?
Ykkur prófessor Dungal virðist
geta komið nokkuð vel saman
urn biblíuna: Hvernig skyldi
ykkur semja um kvenfólkið?
Seinna stendur aftur skrifað:
„Sérhver nútímarithöfundur,
sem vill vera starfi sínu trúr,
hlýtur að gjöra sér Ijóst að sögu
persónur hans, bæði karlar og
konur, eru ekki aðeins skynver
ur, heldur líka kynverur. Ef
hann lokaði augunum fýrir því,
myndi hann afneita lífinu, eðli
þess og löggjöfum, það er að
segja: gera sig að fifli!“
Það er víst satt, að það sé
hægara að að kenna heilræðið,
en að halda það. Ég held að hér
hafir þú sjálfur leikið fíflið,
eftir þinni eigin umsögn.
•
Þar sem bú nefnir stjórnar-
byltinguna frönsku og telur
hana megin orsök fyrir aukn-
um skilningi á rétti konunnar í
þjóðfélaginu get ég ekki skilið,
hvernig þú í bókmenntalegri
greinargerð getur gengið fram
hjá að minnast á þá ri.lhöfunda
sem drýgstan þáttinn áttu í því
að vekja frönsku þjóðina, og
hvetja hana til átaka við ein-
veldi og kúgun. Mundirðu ekki
eftir Voltaire?
Hann réðist þó á kiúkjuna,
ekki þurftir þú að sniðganga
hann fyrir það. En samt bvggði
hann kirkju á garði sínum og
vfir dyrum hennar stóð: ..Þetta
hús byggði Voltaire guði 1761.“
Voltaire fyrirlfeit guðlevsi jafn
nnkið og hjátrúarkreddur sam-
tíðar sinnar. Hann var það sem
kallað er ,,deist“ (eða á okkar
rnálí guðstrúarmaður).
Hann gat sagt þessi stóru og
stoltu orð: „Ég á ekki veldis-
sprota, en ég á penna.“ Hver
vildi ekki geta sagt það sama?
Svo er það Rousseau með all
ar sínar fögru kenningar um
fresi, jafnrétti og bræðralag. —
Þessi maður, sem átti einkenni
þess skáldaanda, sem Schiller
lýsir svo fagurlega í kvæðinu
„Die Teilúng der Erde“ (Skipt
ing jarðarinnar). Hann átti lít-
ið af heimsins auðnuláni. En
guð gaf honum náðargjöf anda
síns, svo að hann gat. hrært ;
streng í hvers manns hjarta.
Það' voru raunar prestar, sem
uppgötvuðu, hvað bjó í sál
þessa auðnulitla flækings, og
hjálpuðu honum til þess, að
verða það, sem hann varð. -—
Prestar hafa jafnan reynzt fund
vísir á góða eiginleika mann-
legrar sálar, enda er það ekki
neitt óeðlilegt, þar sem þáð er
beint hlutverk. þeirra, að leita
að guðsbarninu í manninum.
Hin stjórnmálalega barátta
Frakka kafnaði aftur í einveldi
Napoleons og styrjöldum. Valt
siðan á ýmsu, en var þó oftast
einveldi allt til 187Q. En sá andi
sem komið hafði hinni blóðugu
byltingu á stað 1789 varð al-
drei deyddur, því að andinn get
ur alltaf svifið yfir allar hörm
ungar „npp á hærri sjónartind.“
Þar bíður hann þeirrar kynslóð
ar, sem vogar sér upp til hans.
En heimurinn á í dag langt í
land að komast upp á þann
tind jafnréttis og bræðralags,
sem Rousseau benti samtíð
sinni á. Mér sýnist réttur lítils
magnans fremur smár í þess-
um friðvana heimi. Samt munu
áhrif þess ‘ anda, sem sá dýr-
mæti hvers einstaklings frammi
fyrir föðurauga almáttugs guðs, !
hafa náð því valdi, sem aldrei
verður brotið á bak aftur, jafn
vel þótt bað sé hulið þorra
manna, hvað það er í raun og
veru, sem skapað hefir tilfinn-
inguna fyrir persónufrelsi og
rétt allra manna. En þessi andi
er sjálfur Drottinn Kristur, upp
til hans verðum við að sækja
með Rousseau, og öðrum unn
endum fegurðar og siðgæðis,
ef við eigum að öðlast sælu hér
í heimi. Guð lætur ekki að sér
hæða. Mannsálin getur aldrei
orðið sæl í þjónunstu þess illa,
sem nær hámarki sínu í bróður
vígum og yfirgangi hins sterk
ari á hinum veikari.
*
Ég ætla ekki að benda þér á
fleiri rithöfunda en ég hef nefnt
því ég á enga skrá yfir rithöf-
unda eða skáld. Gerir heldur
ekki neitt til. Það er betra að
lesa minna og lesa ekki alveg
eins og páfagaukur.
Ég ætla mér ekki að gjörast
sá strákur, að svara persónu-
legu klámi og kjaftæði, sem þú
sveigir að minni fáskrúðugu
persónu. En eitt er víst, að ef
þú hefur ætlað að láta llíta svo
út,- að_ég væri einskonar for-
mælandi málaðra hirspurs-
kvenna, þá mætti segja mér, að
einhver, sem þekkti mig
persónulega, þótt ekki væri
nema þeir, sem ég hef róið með
til fiskjar, brostu í kampinn og
hugsuðu að eitthvað færi nú
fleira eftir því. Það hefur
sannazt á mér gagnvart fegurð
armeðulunum að heilir þurfa
ekki læknis. Ég hef aldrei alið
þá vanmáttarkend, sem hlýtur
að leynast bak við þykka húð
af allskonar gerfilitum. — Ég
hef láfið mér nægja með mitt
Hollywood hár og „heilsu
roöa á kinn“, þó allt eigi nú
íyrir sér að grána.
Þú gortar af trúleika þínum
við hina íslenzku alþýðukonu,
i baráttu hennar við erfið lífs-
kjör. En ég skal segja þér í
sinlægni, að þegar þú lætur
Þórdísi á Rauðalæk setjast bak
ám sínum, krossa sig og slkera ;
þær síðan þá ert-þú að búa til i
ámóta trúar þjóðarfarslýsingar
og Kiljan, þegar hann lætur
brjósmylking hins íslenzka
landnema sjúga lúsuga tík.
Ég þori að taka að mér að
svara fyrir munn látinna og lif-
andi húsmæðra .þessa lands, —
að þótt þær hafi ekki talið eft-
ir sér að gegna hvaða störfum,
. sem nauðsyn hefur hvatt þær .
LaugardagurLon 21. júlí 1945
til, þá eru þær svo fáar, — ef
þær finnast annars nokkrar,
sem fargað hafa sjálfar hús-
dýrum sínum, að það getur
varla talizt leyfilegt að slík
dæmi lifi í bókmenntum, og
gefur alranga hugmynd um
hjartalag húsmóður tuttugustu
aldarinnar.
Ef þú ætlar þér að gjöra bar
áttu allþýðukonunnar íslenzku
á liðnum tímum, að yrkisefni
þínu, og ætlar þér að vera því
efni trúr, þá verður þú að læra
að líta öðrum augum á íífið en
ég hygg að þú gerir nú, eftir
því hvar andi þinn á skjól í
hinum pólitíska heimi. Annars
getur enginn orðið sannarlegt
skáld, sem bindur sig við að
hugsa í flokkum.
Mér þykir vænt um, að þú
þykist allt í einu búinn að fá
skömm á klámi. — Því saft að
segja ertu enginn fagurfræðing
ur í þeirri. grein. Minnsta kosti
ekki frá kvenlegu sjónarmiði.
Með ósk um, að þú nái.r meira
valdi yfir hugsunum þínum, og
getir framsett þær í heldur
færri orðum til tímasparnaðar
fyrir mig og aðra lesenaur
þíoa.
Anna frá Moldnúpi.
eftir PEARL S, RUCK
er sumarbókin.
til notkunar í bifreið
Buick eða
einhverrar annarrar
tegundar.
Upplýsingar í síma
4906.
Mbtningarspjðld
Barnaspítalasjóðs Hrings
ins fást í verzlun frú
Ágústu Svendsen, Aðal
stræti 12