Alþýðublaðið - 25.11.1945, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 25.11.1945, Blaðsíða 5
Simnudagur 25. nóv. 1945 ) . ALÞYÐUBLAÐIÐ Kristmann Guðmundsson um heiðursfélagakjör norska rithöfundasambandsins. — Danir kaupa vefnaðarvöru hér í stórum stíl. — 92 smálestir áttu að fara með Drottningunni, en ekki nema 60 smá- lestir komust með henni. Aftur í Port Arthur. Þeir, sem muna stríðið milli lússa c.g Japana 1904—1905 kannast vel við Port Arthur, hína rammlegia víggírtu flotastöð við G-uia haf, semi svo lengi var barizt, en Japanir tóku að lokum og hafa síðan haldið ,ar til í sumar. Nú eru Rússar kominir þanga'ð aftuir og sýn ir myndin rússneska sjóliðsmenn vera að draga rússneska fánann að hún yfir borginni. Endaiok einræðisherranna, Kristmajvn guðmonds- SON rithöfundur hringdi til mín af tilefni ummæla minna nýlega um heiðursfélagana í norska rithöfundasambandinu. Kristmann, sem er félagi í sam- bandinu, sagffi: „Hjá þeim, sem hafa verið aff ræffa þetta mál und anfariff — og ég hef orffiff var viff gremju út af því aff enginn fs- lendingur var gerffur aff heiffurs- félaga á þessu merkisafmæli sam bandsins, — gætir allmikils mis- skilnings og mér sem félaga í sam- handinu er skylt aff leiffrétta hann. ÞAÐ MUNU nær en'gin dæmi til þess að norska rithöfundaisam- bandið, hafi kjörið 'beiðursfélaga, menn sem væru undir 65 ára aldri. Ég held að sjaldan, eða aldrei hafi Norðmenn kjöri'ð skáld að heiðurs félögum, fyrr en Iþau væru í raun og veru hætt að skrifa. Þetta er að vissu leyti eðlilegt. Við vitum báðir hve ofsalega er deilt um skáld og rithöfunda, svo heiðurs- félaigakjiör er ákaflega viðkvæmt. ÉG SÉ EKKI hvaða íslenzkt skáld, yfir 65 ára að aldri, Norð- mennirnir gátu gert að heiðurs- félaga sínum. Ég efast alls ekki um að Norðmennirnir hafi leitað sér upplýsinga um þetta atriði. Allir helstu rithöfundar okkar eru nú miðaldra, nokkrir fyrir ofan þann aldur, og allmargir fyrir neðan. Ég get ekki ásakað Norðmennina. Það er sjálfsagt að vera stoltur en það stolt má ekki byggjast á mis- skilningi." MEÐ DRONNING ALEXANDR- INE á fimmtudag fór meiri pakka- ppstur en nok'kur dæmi eru til áð ur. Alls fóru 450 pokar af slítoum pósti. Sýnir það að Reykvíking- ar hafa sent vinum sínum í Dan- mörku og Noregi' myndarlegar gjafir að þessu sinni. — En það er líka annað í sambandi við þetta sem allmikið er nú rætt í bænum, og hefur valdið nokkrum kvíða. Með skipiruu áttu að fara 92 smé- lestir af ýmiiskonar vefnaðarvöru, en með því komust ekki nema 60 smélestir. Hitt verður að bíða. HÉR ER UM vefnaðarvöru að l ræða, sem Danir, sem hér hafa dvalið nndanfarið, hafa keypt hér. Er til dæmis sagt að þessir menn hafi keypt upp heilar byrgðir af vefnaðarvöru hjá 'heildsölum sem ekki hafi gengið ut hjá þeim. En auk þess munu þeir hafa keypt all inikið í búðum af nærfötum, sokk- um skyrtum, kjólaefni og jafnvel fataefni, auk . tvi'nna og ýmislegs smiávegis. Margir óttast að ef þessu heldur áfram þá verði. fljótlega þurrð á vefnaðarvöru hjá o'kkur. Það verðuæ að sjálfsögðu að hafa gætur á 'þessu. Við fáum skamm-t- aðan kvóta í Bandaríkju-num fyr ir vefnaðarvörur og við eyðum dollurum okkar til að greiða þær. Við getum ekki síðan selt öðrum þjóðum af þessum kvóta okkar. ÞAÐ SJÁ ÞAÐ líka allir, að þó að danskir m-en-n kaupi hér upp vefnaðarvönu þá rruun það hrökkva skammt til þess áð fylla upp þarfir diötnsku þjóðarinnar. Þó að Magasin du Nord til dæmis hafi sent hin-gað mann og bann hafi keypt um 50 smiá’lestir af vefnaðarvöru, þá er ekki -gott að sjá hvernig danskur alm-enningur á að verða aðnjótan-di þessara vara. Það er barizt um hverja flík í Danmörku og þó að dálítill slatti komi, mun ekki hægt annað en að miðla því bakdyramegin til 'kunninigja. Það er því, 'hvernig sem á málið er litið, alveg þýðing- arlaust að leyfa útflutning á vefn aðarvör-u hér. Auk þess, sem við getum ekki -undir neinum kring- umstæðum misst þessa vöru. HIN takmarkalausa bjart- sýni og sjálfstraust eru ein höfuðeinkenni hvers einræðis- herra. Hann trúir því, að hægt sé að bæta úr öllu, hversu ó- viðráðanlegt sem ástandið kann að vera. Trú Hitlers á sigur ha-ns virtist aukast eftir því, sem herir bandamanna nálguð- ust Berlín meira. Þetta er þó ekki séreinkenni á einræðis- herrum nútímans. Napóleon, hinn mikli lærifaðir Hitlers, átti til að bera sams konar ó- takmarkaða sjálfstraustið. T. d. skrifaði hann bréf til Maríu Lovísu keisarafrúar, þ. 11. nóv. 1812, á tímum rússnesku gagn- sóknarinnar, og í því standa þessi orð: „Eg hveilf nú til Póllands til þess að setjast að 1 vetrar- bækistöðvum mínum. Veðrið er fyrirtaks gott, heilsan góð og allt gengur samkvæmt áætl- un.“ Raunveruleikinn var samt allur annar. Hinn geysistóri her Napóleons var ekki einung- is á flótta, heldur allur tvístr- aður. Meðan keisarinn sat í tjaldi sínu og skrifaði frúnni um það, hversu allt gengi vel, féllu hermennirnir ýmist af hungri og kulda og alls konar öðrum vesaldómi, eða þeir voru drepnir af kósökkunum og líkin ótin af úlfuim. Bart- sýnin, sem kemur fram í bréf- inu, er sönnun fyrir oflátungs- æði hans, sem gjörði honum ó- fært að horfast í augu við staðreyndir. Það, sem einræð- isherrann óskaði sér, sat ofar í huga hans en sjálfur veruleik- inn. „Minningar Goulancours“ innihalda einnig athyglisverða hluti um þetta mál. Goulan- cour, sem var einn af hirð- mönnum Napóleons, var stadd- ur á -fundi einum, sem Napó- leon hélt með herforingjum sinum, eftir að hann hætti að geta veitt Rússum mótspyrnu. — Þér skuluð, sagði keisarinn við einn herforingjann, — fara norður á bóginn með her yðar, bækistöðvar og liðsforingjaráð. — Herra, svaraði hershöfð- inginn. Her minn er ekki til lengur. Bækistöðvar mínar eru tveir eldhússtólar, og ungi liðsforinginn, sem stendur hér á bak við mig, er sá eini, sem eftir er af yfirmönnurn úr her mínum. 1 FTIRFARANDI gtrein 1 um nokkra af frægustu einræðisherrum veraldarsög unnar er skrifuð af G. F. Lilbenthal, og er þýdd úr sænska tímaritinu „Allt í fivkfarmat“. Napóleon svaraði afundinn: — Hvers vegna segið þér þetta, þegar þér vitið, að þetta fer í taugarnar á mér? Ekki einu sinni fullkominn ó- sigur Napóleons og handtakan gátu komið honum til að hætta að trúa á dagdraumana. Eftir orustuna við Waterloo, þegar hann var fluttur um borð í B-elleplhoron, sem átti að flytja hann til St. Helenu, skrifaði vingjarnlegt bréf til hrezku stjórnarinnar og mæltist til þess, að það yrði tekið á móti sér sem háttvirtum gesti í Englandi.' — Lengra gat sjálfs- blekking hans tæplega leitt hann. * Rennum nú augunum ennþá lengra aftur í tímann. Júlíus Cæsar reyndi án efa allt hvað hann gat til þess að verða keis- ari yfir Rómaveldi, enda þótt Shakespeare láti hann í leikrit- inu afneita konungsdæminu þrisvar sinnum. Cæsar vissi, að efnt hafði verið til mótspyrnu gegn honum, en lét það samt ekki á sig fá, heldur fór í guð- anna nafni á hina merkilegu samkomu þ. 15. marz árið 44 f. Kr. — Enginn skyldi þora að berjast gegn honum sjálfum, — Cæsari! En örlaganornirnar klipptu á lífsþráð hans, rétt sem þeim sýndist, þrátt fyrir allt. Undrandi yfir því, að sjá bezta vin sinn í hópi andstæðinganna, hrópaði hann upp þessi frægu orð: „Jafnvel þú, Brútus minn“ og hné siðan niður við Pompei- minnismerkið með djúpa hnifs- stungu. Aldrei hafði honum komið til hugar, að nokkur hinna nánustu vina hans kynnu að vera annarrar skoðunar en hann eð-a vildu ráðia hann af dögum. Sjálfselskan og innhverfan í sálarlífi einræðisherrans eru oft mjög áberandi þættir í því. Þegar fór að sjá fyrir end- ann á fyrri heimsstyrjöldinni, var það ýmsum mönnum ráð- gáta, hvað Vilhjálmur keisari myndi taka til bragðs. AUa sína tíð hafði sá maður verið eins og toppfígúra á leiksviði. Hann hafði jafnan álitið sig „hinn mikla keisara,“ frelsara heimsins og þann, er bezt kæmi fram við mennina samkvæmt vilja guðs. Hann var æðsta persóna Þýzkalands þess tíma, er var gegnsýrt af hetjuóperum Wagners og ofurmenniskenn- ingum Nietzsches. Að minnsta kosti eftir eigin hyggju, var keisarinn mjög skarpvitur maður, —- tilvalinn herforingi, hugmyndaauðugur og diplómatiskur stjórnmála- maður, smekkmaður á listir, hljómlist, leikmenningu og bókmenntir, — og þess vegna einkar tilvalinn sem einræðis- herra yfir þessu öllu saman. Að þessu leyti minnir hann mjög á Hitler. Einhver skyldi ætla, að maður með svo háar hug- myndir um sjálfan sig hefði svo staðið sig eins og hetja, þegar keisararíkið hrundi í rústir. Aðdáendur hans gerðu ráð fyrir þvi, að á síðasta augna- bliki myndi hann klæðast hvítum einkennisbúningi, setja hjálminn með gyllta arnar- merkinu á höfuð sér, draga sverðið úr slíðrum í fremstu viglínu og falla eins og hetja í W agnersóperu. Eftir uppgjöfina þ. 11. nóv. 1918, biðu menn árangurslaust eftir hetjudáðum keisarans. En þegar hann sá, að allt var kom- ið í kalda kol, brá hann sér í einka-járnbrautarlest til Hol- lands og keypti þar myndarlegt sveitasetur, Doorn, aff greifa einuim Bentinch að nafni. Þar bjó hann til dauðadags, dró sig í hlé og eyddi tímanum með því að kljúfa spýtur í eldinn. Að lokum kvæntist hann ekkju einni, sem hann hafði þekkt vel árum saman. ❖ Hver eru svo endalok ern- ræðisherranna? Til að svara þeirri spurningu, þarf ekki að fara ýkja langt aftur í tímann. Mússólíni og Hitler eru báðir ágæt dæmi þess. Segja má, að sögu Mússólínis hafi lokið er hann var hand- Frh. á 6. síðu. Hannes á horninu. Sendisveinn óskast í ritstjórn Alþýðublaðsins. — Vinnutími kl. 1—7. — Gott kaup. Upplýsingar í ritstjórnarskrifstofunni í dag frá kl. 1. vantar nú þegar til að bera blaðið til áskrif- enda í eftirtalin hverfi: Austurstræti Hverfisgata, Bræðraborgarstígur, Tjarnargata, TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA. — SÍMI 4900. _________________Alþýgublagig._________

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.