Alþýðublaðið - 09.11.1946, Side 4

Alþýðublaðið - 09.11.1946, Side 4
4 ALÞYDUBLAÐIÐ Laugardagúr, 9. nóv. 1946. tJtgefandi: Alþýðuflokkurinn ' Ritstjóri: Stefán Pjetursson. ;j Símar: Ritstjórn: 4901 og 4902. Afgreiðsla og auglýsingar: I 4900 og 4906. Í Aðsetur | í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. Verð í lausasölu: 50 aurar. Sett í Alþýðuprentsmiðjunni. Prentað í Félagsprentsm. ifislegar árásir á té- agsmálaráðherrann FINNUR JÖNSSON, fé- lagsmálaráðherra virðist vera hommúnistum óþægilegur Ijár i þúfu um þessar mund- ir. Þeir telja, að hann sé að eyðileggja sölu íslenzkra af- urða til Sovétríkjanna og kenna honum öllum öðrum fremur það mótlæti sitt, að þeir fengu ekki neitunarvald itil handa Einari Olgeirssyni í hópi fulltrúa íslands á alls- herjarþingi hinna sameinuðu þjóða. Það er þvi ,sizt að undra, þótt Þjóðviljanum verði tíðrætt um Finn Jóns- son þessa dagana og 'spari ekki illyrðin í hans garð. * Þjóðviljinn segir, að helzta áhugamál Finns Jónssonar sé áð.koma á hruni og eyðilegg- ingu íslenzks sjávarútvegs. Það er eins og kommúnistar íelji atvinnulíf íslendinga komið í kaldakol, ef við verðum ekki innlimaðir i verzlunarkerfi Rússa og gerð- ir háðir þeim stjórnmálalega og viðskiptalega., Annars eru -orðalengingar kommúnista um blessunina af viðskiptun- um við Rússland í meira lagi furðulegar, þar eð vitað er, -að Rússar hafa ekki gert hag- ielldari boð í islenzkar afurð- ir en aðrar þjóðir og aðeins tekið upp boð Breta. Og til þessa hefur íslenzkt atvinnu- líf orðið að komast af án fulltingis Rússa, þar eð einu viðskipti okkar við riki Sta- lins hafa fram á þetta ár ver- ið fólgin ,í aðstoð Rússa til .handa íslenzkum kommúnist- um við að stofna og reka hið .austræna útibú hér á landi. Finnur Jónsson viðhafði þau umæli i útvarpsræðu sinni, sem komið hefur kom- múnistum svo eftirminnilega úr andlegu jafnvægi, að við ættum að selja afurðir okkar þar, sem við fáum bezt og hagkvæmast verð hverju sinni og hverjum, sem er. liins vegar mælti hann ein- dregið á móti kröfu málsvara kommúnista við útvarpsum- ræðurnar um, að ísland yrði innlimað i verzlunarkerfi Sovétríkjanna, og taldi að við ættum að vera frjálsir rneð okkar verzlun og ekki innlima okkur i verzlunar- kerfi neins stórveldis, því að undir því væri frelsi og sjálf- stæði landsins komið. Þessum rökum treysta kom múnistíír sér ekki til að svara. Þess í stað æpa þeir um hrun og eyðileggingu íslenzks sjáv- arútvegs og um fjandskap við Sovétríkin. Þeir telja með öðrum orðum, að það sé Neftóbaksmenn í sjöunda h'imni. — Danska rjól- ið er komið. — En er bað noklcuð betra? — Kjöt- uppbætur og þeir, sem gleymdust. — Bréf um listaverkasýningu. SMÁTT OG SMÁTT kemur ylmur gamalla daga, daganna fyrir stríð og læti. í fyrradag kom á markaðinn danska rjólið, neftóbakið, sem Danir höfðu framleitt sérstaklega handa ís- lendingum í 110 ár, þegar stríð ið braust út og allt lokaðist. Ég hitti broshýra neftóbaksmenn með baukana fulla og rjólbita í handarkrikanum. Það var eins og þeim hefði verið gefin mill- jón. Þeir léku viff hvern sinn fingur og þeim fannst sem nú væru allir vegir færir, engin dýrtíff, engin stjórnarkreppa, allt væri í himna lagi. VIÐ IIÖFUM SJÁFIR fram- leitt allt okkar neftóbak síðan 'stríðið hófst og við vorum orðn- ir ánægðlr með það. Þannig tókum við í nefið hjá sjálfum okkur. Það var Iþví alveg óþarfi að fara að freista okkur með döinsku neftóbaki. Það .fylgir nefnilega rómantík neftóbak- inu. (Þegar við sjáum danska tó- bakið finnst okkur sem við sé- um aftur að fá gamla iíð, sem okkur þótti að viissu l-eyti vænt um. En ég efast stórlega um að danska tóbakið sé nofckru betra en það íslenzka. Ég held að Dan- ir megi eiga sitt neftóbak og við neyta okkar. — Og rnega menn nú ekki halda að ég sé að fjand- skapast. við Dani, þó að ég sé heldur á móti neftóbakinu þeirra. f BRÉFI TIL MÍN segir „Gamli“ á þessa leið. „Ekki lýst mér á reglugerðina um niður- g'reiðslu á kjöti. R-eynslan hef- ur n-efnilega kennt mér það, að sumir af þeim, sem helzt þyrftu á henni að halda fara á mis við hana. Ég hef orðið var við það, -að fátækar ekkjur, sem hafa fyrir heimili að sjá, hafa gleymst á skránni, standa þar ekki, og fá því engar niður- greislur. Þeim hefur mistekist að fylgjast með þessu fargani og því fallið út.“ ÞAÐ HEFUR komið fyrir að þegar þessar konur hafa farið í skrifstofu tollstjóra og ætlað að greiða gjöld sín með kjöt- upþbóíinni, þá er þeim engin ætluð og þær því orðið fyrir sár- um vonbrigðum.. Mér finnst, að þegar svona er ástatt ætti að ingum. Öll sanngirni mælir að minnsta kosti með því að það sé ger.t, annars verður'úr þessu hróplegt misrétti. Ég vænti þess að þetta verði tekið til athugun- ar.“ GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR skrifar: „Ég mátti til að setjast niður og hripa þér nokkrar lín- ur. Ég var nefnilega að koma af málverkasýningu Ásgríms Jó.nssonar í Listamannaskálan- um, og var ég þar lengi, því margt faliegt og merkilegt var þar að sjá, sem heillaði mig.“ „Ég VISSI EKKI að Ásgrím- ur væri svona fjölhæfur málari. Ég bélt að hann málaði ein- göngu landslagsmyndir, en það er nú eitthvað annað. Myndin af eldgosinu hreif mig mjög, mér fannst ég sjá í anda flýj- andi menn og hesta — flótti upp á líf og dauða. Svo við hliðina- á þessari mynd blasir við manni íslenzka sumarið í alíri sinni dýrð, -þegar það er blíðast og kyrrast. Maður finnur ilm af gróðri jarðar úr myndum Ás- gríms — þær heilla mann. Ég hugsaði með mér, að við ís- lendingar mséttum vera stoltir af að ei-ga svo góðan málara sem Ásgrím. En ég fór að 'hugsa um annað um leið. Mér finnst blöðin hafa verið furðu hljóð um þessa m,erkilegu sýningu.“ „AF ÞVÍ ÉG VEIT að þú ert ■listeliskur maður og margir lesa dálka þína, sný ég mér til þín. Mig langar til að sem flestir isjái sýninguna, og e'fcfei sízt unga fólkið, því finnst áreiðanlega vænna um landið sitt eftir að hafa séð þessi merkilegu lista- verk. Blöðin geta haft svo mik- il á'hrif á fólkið, — að beina því á réttar ibrautir, hvort sem ,er í listum eða öðru, og því ekki að vekja athygli fólks á því sem bezt er, og þroskar smekk þess. Ekki fylla dálkana með auglýs- ingarskrumi um komu erlendra jazzhljómsveita og hinu og þessu vafasömu, heldur eggja fólk á að sjá og hlusta á það, sem gölfgar það og þroskar.“ Konur í hlutaveltunefnd kvenna- deildar Slysavarnafélag íslands eru -beðnar að mæta í skrif- istofu félag-sins, mánuda-ginn 11. vera hægt að koma við leiðrétt nóvember kl. 8,30 síðdegis. fjandskapur við Sovétríkin, ef við veitum þeim ekki ein- okunaraðstöðu til kaúpa á af- urðum okkar, og að hrun og eyðilegging vofi yfir íslenzku atvinnulifi, ef við fátum ekki innlima okkur þegjandi og hljóðalaust í verzlunarkerfi Rússa. Þá hefur Finnur Jónsson ekki síður unnið :sér til ó- helgi að dómi Þjóðviljans méð því að vera á móti þeirri fáránlegu kröfu kommúnista, að fulltrúi úr þeirra hópi fengi neitunarvald meðal fulltrúa íslands á aflsherjar- þingi hinna sameinuðu þjóða. Þetta telja kommúnistar til stórglæpa, því að með þvi var komi.ð í veg fyrir, að fulltrú- ar Islands yrðu að viðundri á alisherjarþinginu, m'eð því að sitja hjá við atkvæða- greiðslu um öll stærstu mál þingsins, eða gerast lítilmóc- leg peð Rússa og leppa þeirra á skákborði heimsstjórnmál- anna. Þjóðviljinn telur Finn Jónsson valdan að margvís- legu mótlæti kommúnista um þessar mundir. Skapofsi rit- stjóranna þarf víst ekki að aukast mikið úr þessu til þess að þeir ilýsi félagsmálaráð- herrann sálsjúkan og í yfir- lýstri styrjöld við Rússa! vantar til að bera Alþýðublaðið til áskrifenda í eftirtöldum hverfum. Vesturgötu Skólavörðustíg Grettisgötu Sólvallagötu Lindárgötu Bræðraborgarstíg Talið við afgreiðsluna. MORGUNBLAÐIÐ gerir horfurnar á myndun nýrrar ríkisstjórnar að umæðuefni í forustugrein í fyrradag og segir: „Það ætti að mega gera sér vonir um, að úr þessu dragist það ekki mjög lengi að ein- 'hvérra tíðinda megi vænt.a frá alþingi varðandi stjór.narmynd- un. Svo sem kunnugt er lét for- seti íslands hinn 1. þ. m. þau boð ganga til tólf-mannanefndar innar, að æskilegt væri að nefnd in reyndi að Ijúka störfum fyrir föstudag, 8. þ. m. Með deginum í ,dag er þessi frestur því Iið- inn. Ætti því eitthvað að liggja fyrir frá nefndinni eftir daginn í dag. iÞað mun hafa verið ákveðið í tólf-manna nefndinni, að full- itrúar flokkanna ksému fram með frumdrög að þeim málum, sem flokkarnir hver um sig teldu að leggja bæri til grundvallar við væntanlega stjórnarmynd- un. Þessi frumdrög áttu að leggj a.st fram í fyrradag, en ekki er iblaðinu kunnu-gt hvort það hef- ur orðið. En það fór ekki dult bak við tjöldin í þingsölunum í gær, að taeðið var með talsverðri eftir væntingu vitneskju um, hvað maddama Framsókn hefði nú til málanna að leggja. Þessi for- vitni manna stafar af því, að Framsókn beitti sér harkalega gegn þeirri ríkisstjórn, sem mynduð var haustið 1944 og hinir flokkarnir þrír stóðu að.“ Og enn segir Morgunblað- ið: „Það er hverjum manni ljóst, að hin stórfelda nýsköpun í at- vinnulífi þjóðarinnar var höfuð, verkefni þeirrar ríkisstjórnar, sem mynduð var haustið 1944. Gegn þessu aðalstefnumáli stjórnarinnar reis Framsóknar- flokkurinn af öllum mætti. taldi nýstoöpunina hreina vit- ■leysu, og hið mesta glapræði að ráða.st í hana, án þess fyrst yrði ráðin niðurlög þeirra dýrtíðar, sem rík'ti í landinu. Um aðgerð ■ir í dýrtíðarmáiunum var ekki hægt að ná neinu samkomulagi haustið 1944, og það vissi Fram sókn vel. En aðrir flokkar töldu nýsköpunina svo aðkallandi, að þetta einstæða tækifæri sem þjóðin hafði til þess að afla nýrra og fullkominna fram- leiðslutækja, glataðist með öllu. Þess vegna tóku þrír flokkar höndum saman haustið 1944 og mynduðu stjórn um nýsköpun- ■ina. Síðan eru liðih tvö ár. Dýr- tíðarmálin eru í sama farvegi og þau voru haustið 1944. Efck- ert sam'komulag hefur náðst um lausn þeirra ennþá. En á þessum sama tíma hef- ur' verið að gerast bylting í at- vinnulífi þjóðarinnar. Megin- hluta þeirrar erlendu innstæðu rem þjóðinni áskotnaðist í stríð árunum hefur verið varið til kaupa á nýjum og fullkomnum framleiðslutækjum, til lands og sjávar. Þetta mikla átak er tryggasti varásjóðurinn, sem þjóðin gat eignast á þessum árum. En Framsókn hefur aldrei kómið auga á þetta. í tvö ár hef ur hún spáð óförum fyrir ný- sköpuninni. í tvö ár hefur hún flutt hrunstefnuboðskap sinn. IÞar hefur aldrei lát á verið. Seinast nú við fjárlagaumræð- urnar var Eysteinn Jónsson að boða yfirvofandi ríkisgjald- þrot.“ Morgunblaðið segir svo að lokum: „Með þessa forsögu fyrir aug um er ekfei að undra að menn fýsi að sjá og hayra, hvað Fram sókn hefur nú til málanna að leggja. Vill hún siiöðva nýsköp- unina og hverfa 'að þessu gamla bjargráði, að lögbjóða lækkun kaups og afurðaverðs? Og ■hverja fær hún í lið með sér til slíkra aðgerða? Hinir flokkarnir þrír, sem stóðu að nýsköpuninni, ættu ekki að þurfa langan umihugsun artíma. Þeir hafa enn ó'bifandi trú á nýsköpuninni. Það hlýt- ur að vera keppikefli þeirra, að nýsköpunin fái að sýna sig í framkvæmd. Þannig hórfir málið við séð frá sjónarmiði málefnanna." Andstaða Framsóknar- flokkins við nýsköpunina heí'ur frá upphafi legið í aug- um uppi, og hún kostaði flokkinn fylgishrun við síð- ustu kosningar. En ,komniún- istar bera ósómann af því að hafa svikið nýsköpunina með brötthlaupi sínu úr rík- isstjórninni., sem áreiðanlega var ek.ki gert af áhuga fyrir því, að nýskÖpunin fengi að sýna sig í framkvæmd.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.