Alþýðublaðið - 10.11.1946, Side 8

Alþýðublaðið - 10.11.1946, Side 8
Veðisrhorfur í Reykjavík: Hæg vest- anátt. Þoka og sóld. Sunnudagur 10. nóv. 1946. Úfvarpið 20.35 Ferðaminningar frá Englandi (sr. Friðrik Hall- grímsson). 21.15 Uppl. (Bjarni M. Gíslason). Sænskur @g norikur gestur á Alþýðu$amt>andsþing segja: Kommúnislar mega sín mjög iíiíis. --------o--------- „SAMSTARFIÐ VIÐ ALÞÝÐUFLOKKANA í barátt- unni fyrir bættum þjóðfélagsháttum er lífsnauðsyn fyrir verkalýðssamtökin. — Við kref jumst ekki kauphækkana og viljum með því forðast dýrtíð og lággengistíma. Við vinn- um að því að halda öllu niðri til þess að forðasí dýrtíð, því að hún fer verst með verkalýðinn. — Við vinnum mark- víst að því með hinum sósíal-demokratisku alþýðuflokkum, að koma á þjóðarbúskan, sem byggður sé á traustum grunni, en sjáum svo um, að allar endurbætur á kjörunum komi fyrst til þeirra, sem við erfiðust kjör eiga að búa. — Verka- lýðssamtökin sjá um sinn hlut, en alþýðuflokkarnir gæta þess, að þeir, sem breiðust hafa bökin, fórni mestu, þegar þjóðarheill krefst þess, að allir þjóðfélagsborgarar færi fórnir.“ Þetta er aðalinntakið í Hummælum tveggja erlendra verkamannaleiðtoga, sem hingað eru komnir sem gest- ir Alþýðusambands íslands og ætla að sitja þing þess, sem hefst í dag, Albin Linds, ritstjóra tímarits sænsku verkalýðsfélaganna, og Ai- freds Skars rithöfundar, en ihann er forstöðumaður frétta og upplýsingaskrifstofu norska Alþýðusambandsins ins og ritstjóri tímarits þess, Fri fagbevegelse. En ég átti viðtöl við þá báða í gær að Hótel Borg. Tveir aðrir verkalýðsleiðtogar eru vænt anlegir hingað sem gestir Al- þýðusambandsins, Garl P. Jensen, ritari danska Alþýðu sambandsins, og Magnús Thorsheim, formaður fær- eyska Alþýðusambandsins. milli okkar og Sósíaldemó- krataflokksins, enda margir starfsmenn verkalýðsfélag- anna þingmenn. Þetta sam- starf hefur haft mikla biess- un í för með sér fyrir al- þýðuna. Árið 1909 fé'kk sænskur verkalýður dýrkeypta en góða reynslu. Fyrir þann tíma vorii mjög uppi raddir um það, að beita óþingræð- islegum aðferðum í verka- lýðshreyfingunni og breyta þjóðfélaginu á þann hátt. Þá efndum við til allsherjar- verkfalls og töpuðum því. Allsherjarverkföll hafa ætíð reynst hættulegri fyrir al- þýðuna en andstæðinga henn ar. Við misstúm félaga í tug- þúsundatali og atvinnurek- endur. hrósuðu sigri. En upp úr þessu óx sú verkalýðs- hreyfing, isem nú starfar í samstarfi við Alþýðuflokk- inn, og allir þekkja árangur- irm af því starfi. — Það ber nokkuð á sundrung í hreyf- ingunni, en ekki þó svo, að til mikils skaða sé. Koinmún- istar hafa lítil áhrif. í sept- Alfred Skar frá Noregi. ember hö'fðum við þing. Hörð kosningabarátta geisaði um val fulltrúanna. Komm- úni&tar settu fram lista und- ir sakleysisnöfnum. Á þing- ið komu 265 sósíaldemókrat- ar og 35 kommúnistar. — Við leggjum rnjög mikla á- herzlu á fræðslustarfið með- al verkalýðsins cg höfum mörg mámskeið. Við rekum skólann í Brunnsvík og ný- lega keyptum við stórt land, rétt fyrir utan Stokkhólm og þar á að rísa upp mikill skóli. Það gleður mig mjög, seg- ir Albin Lind iað lokum, að vera kominn hingað. Ég hlakka til að sækja fundi ís- lenzkrar alþýðu. Mig hefur lengi langað til að koma til íslands.“ Y siai ¥ið Albin Lind, Ég talaði fyrst við Albin Lind. Hann er lágur maður, grannur og ör i hreyfingum, með hátt enni og kvik augu. .Hann er 44 ára að aldri og járnsmiður að iðn. Hann hef- lur verið ritstjóri tímarits isænska Alþýðusambandsins isíðan 1936, en á auk þess isæti sem fulltrúi sambands- áns í verðlagseftirlitsnefnd iríkisins. Ég spurði hann ýmsr.a spurninga c-g hann œvaraði þeim greiðlega. Sænska Alþýðusamibandið var sfcofnað 1898. Nú eru fé- ílagar þess 1 milljón og 200 IJmsund, þar á'f eru 190 þús- (und konur. Sambandíð er myndað af 42 dagsamböndum, en alls eru '•verkalýðsfélögin 1 Svíþjóð 'ium 15 þúsund að- tölu. Fag- » ambcndin geía út biöð r'yrir rsig cg íá ailir féiagar eitt ■eintak, eða þó öilu hsldur íhvert heimili eitt eirstak. Eru iþessi blöð gefin út i 1,1 millj. nipplagi. Auk laess á Alþýðu- í-ambandið dagblaöið „Aft- iontidningen“, en það hefur onikla útbreiðslu. Alþýðusam íbandið er mjög vaxandi, þó er ekki hægt að segja, að all- ár þeir, sem ættu að vera fé- lagsbundnir, séu það, Verst gengur með verzlunarfólk og skrifstofufólk. Helztu verkefni okkar nú, segir Albin Lind, eru í fyrsta lagi, að koma í veg fyrir dýr- tíð og lággengi. Árið 1940 gerðum við samninga á þá lund, að kaup ,skyldi hækka og lækka samkvæmt vísi- tölu. Við skildum það, að allir urðu að færa fórnir til þess að 'hæg't væri að auka landvarnirnar. Við gerðum kröfur um að byrðarnar kæmu fyrst og fremst niður á þeim bezt stæðu, en neit- uðum hins vegar ekki að íæra einnig íórnir. Fyrst fengum við 75 '/< af dýrtíð- inni vn.sö kauphækkunum. En 1942 var ákveðið að ntöðva dýrtiðina. Við kölluð- um það „Prisstop". Frá beim tíma máttí enginn hækka vözuverð eða annað nema með sérstöku leyfi. Nú er vísiíalan 243 stig, en var, þegar stríðið braust út 170 stig, svo að dýrtíðin hefur aukiat um 73 stig. Síðan 1943 hafa laun verkalýðsins held- ur batnað og þó mest fyrir þá, sem verst launin höfðu. Það er mjög náið samband Viðtal við Áífred Skar. Alfred Skar er fimmtug- ur að aldri, sterklegur og traustur og ljós yfirlitum. Hann var sjómaður í Norð- ur-Noregi, en hefur í tæp 30 ár starfað við blöð norska Alþýðuflokksins. Hann er rit höfundur og hefur skrifað fjórar skáldsögur. Hann isat í fangelsum nazista, en var sleppt og gerðist þá ritstióri leyniblaðs verkalýðshreyfing arinnar. Síðar varð hann að flýja land, fcil Svíþjóðar. Hann sagði m. a.: „Norska Alþýðusamband- ið er stofnað 1899 og í því eru nú tæp 400 þúsund fé- lagar. Er taiið að 85% allra þeirra, sem til greina geti komið, séu komnir í alþýðu- sarr.fcökin. í Alþýðusamband- inu eru 38 fagsambönd, en alls munu verkalýðsfélögin vera um 5000 að tölu. Með- an Noregur var hersetinn, tóku nazistarnir völdin i Al- þýðuíambandinu og tveir j kcmmúrkitar voru settir yfir I ba.ð, Jens Tangen cg Brend- berg. Þetta var meðan vin- áttusamningurinn var milli Rússa cg Þjóðverja. Þá neit- uðu kommúnistar að taka upp virka andstöðu gegn nazistum og margir þeirra vildu hafa við bá samvinnu. Síðar breyttist betta, eftir að Þjóðverjar höfðu ráðist á Rússa, og inazistarnir gengu enn harðar fram. Þá drápu þeir marga liðsmenn okkar, en handitóku aðra, og marg- ir þeirra dóu síðar í fanga- búðum. Á þessum tíma hrap- aði félagatala okkar, sem von legt var, næstum því um helming. Stjórnin starfaði þó áfram leynilega og sambandi var haldið milli þeirra, sem störfuðu erlendis, og okkar, sem störfuðum heima. Þetta bar mikinn árangur og verka lýðssamfcökin voru snar þátt ur af leynihreyfingunni, andstaðan óx og harðnaði. Þegar við urðum frjálsir, risum við upp öflugri en mokkru sinni áður, margir a'f hinum eldri starfsbræðrum höfðu hnigið, en nú komu nýir kraftar fram, hertir í baráttu jámaldar, og nú stjórna þeir. Það ber nokkuð á sundrungu, en ekki svo að til skaða sé. Það eru komm- únistar, sem halda uppi gagn rýninni, en hún nær ekki út •til fólksins. Þeir ráða aðeins einu fagsambandi. Ég skal sesja þér. að við i Alþýðu- ílokkum prentum blað þeirra. Það er illa statt fjár- hagslega og við getum láfcið bað hætta að koma út, þeg- við viljam. En við sjáum enn enga ástæð.a fcil þess. Þeir | mega svo sem hafa málfrelsi. Dýrtíð er ekki mikil hjá ckkur, segir Alfred Skar. Vísitalan er 160 stig, miðað við 100 fyrir strið. Við í verkalýðshreyfingunni höf- um komið Alþýðuflokknum fcil valda og milli okkar er fullkomið samstarf. Við gæt um hækkað kaup verkalýðs- ins upp úr öllu valdi, ef við Albiíi Lind frá Svíþjóð. vildum, en við viljum það ekki af því við viljum ekki kalla yfir okkur dýrtíð og lággengi. Við þekkjum nefni lega af reynslunni, hvaða á- hrif það hefur. 1921 var búið að spenna þcg.ann svo háft með uppsprengdu vöruverði og kauphækkunum, að hrun- ið hlauit að koma og það dundi yfir. Þá var verkalýð- urinn leiddur út í allsherjar- verkfallsæfintýri, sem næst- um því eyðilagði samtök hans. Þá hrapaði félagatala okkar út 170 þúsundum nið- ur í 90 þúsund. Nú förum við að öllu gæfcilega. Alþýðuflokkurinn og verka lýðshreyfingin vinna saman að iuppbyggingunni eftir stríðið, allir verða að færa 'fórnir. Við höfum sett okk- ur það márk að lífskjiör allra skuli hafa náð sama sfcigi eft- ir 5 ár og þau voru fyrir stríðið. Lífskjör verkalýðsins eiga þó að ganga fyrir. Þau eiga að iná hámarki næsta haust. Þá á norskur verkalýð ur að hafa náð sömu lífskjör- um og hann hafði 1939. En sva verður áfram haldið að bæta kjör alþýðunnar og allnar jDjóðarinnar. Og nú vinnur Álþýðuflokksstjórnin að gjörbreytingum á alþýðu- tryggingum, eykur atvinnu- öryggið, byggir upp héruð- in. Og verkalýðurinn styður hana af ráðum og dáð, og skilur fullkomlega viðleitni hennar og hlutverk sitt. Já, árið 1921 og æfintýri okkar Jþá reyndust dýr, seg- ,ir Alfred Skar enn. Við bjuggum við afjeiðingarnar til ársins 1933. Ég skai getá þess að sú stefna, sem verka- lýðsrambandið heíur nú, var samþykkt í einu hlióði á síð- asta þingi okkar. Umbæturn ar á kjörum verkalýðsins hafa ætíð verið samfara vax- indi afli Alþýðusambandsins og auknurq viðgangi Alþýðu- flokksins í kosningum. Jú, ég er ánægður, segir Alfred Skar að lokum, að vera kominn til íslands. Ég hef lesið allmikið um land- ið. Ég kem hingað fyrst og í'remst sem gestur Álþýðu- sambandsins. en þeir, sem sendu mig, líta ekki sízt á för mína sem þakkarheim- sókn fyrir frábæra vináttu, sem þið íslendingar sýnduð okkur Norðmönnum á stríðs árunum. VSV.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.