Alþýðublaðið - 11.01.1947, Side 4

Alþýðublaðið - 11.01.1947, Side 4
ALÞtÐUBLABIÐ La?ip;2rdagur, 11. jan. 1947. ^íj^Dábla&ið Útgefandi: Alþýðuflokkurinn Ritstjóri: Stefán Pjetursson. ! Símar: Ritstjórn: símar 4901, 4902. Afgreiðsla og auglýsingar: 4900 og 4906. Aðsetur í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. ! Verð í lausasölu: 50 aurar. Sett í Alþýðuprcntsmiðjunni Prentað í Félagsprentsm. Hljáð úr horni. ÞEIM, sem fylgzt hafa með íslenzkum stjórnmál- um undanfarin ár, kemur það áreiðanlega ekki neitt á ávart, þótt hljóð heyrist úr vissu horni, þegar Stefáni Jóhanni Stefánssyni, for- manni Alþýðuflokksins, er :Mið að gera tilraun tll stjórn armyndunar í landinu; svo alkunnugt er hið óráðs- kennda hatur, sem komm- únistar hafa frá upphafi vega sinna hér sýnt í hans garð. En á hinu hafa menn máske ekki átt von, að þeir misstu svo gersamlega alla stjórn á sér við slík tíðindi, sem blað þeirra, Þjóðviljinn, ber vott um í gær. Þjóðvilj’inn ræðst m-eð al- gerlega ósæmilegum brígzl- yrðum á forseta landsins fyr ir að hafa ekki heldur falið formanni Framsóknarflokks- ins eða formanni Sósíalista- flokksins að reyna stjórnar- myndun, og segir, að hann hafi með því „brotið þing- ræðisvenjiur". Er það ekkert annað en ábyrgðirlaust fleip-. ur af hálfu blaðsins; því að það er forsetans að hafa.frum kvæði um stjómarmyndun, ■og honum algerlega í sjálfs- vald sett, til hvaða manns hann snýr sér í því skyni; en það fer að sjálfsögðu eftir mati hans á því, hver líkleg- astur sé í hvert sinn til þess, að geta myndað stjórn. Hitt er vissulega að brjóta allar velsæmisreglur, að fara með brígzlyrði og blekk ingar um embættisstörf for- .setans ein^ og Þjóðviljinn gerir, og draga persónu hans á þann hátt niður í svað hins pólitíska rógs, sem Sósíalista flokkurinn elur á í landinu; og mun þjóðin ekki kunna neinum þakkir fyrir slíka ný breytni um pólitísk vinnu- 'brögð. » Það er annað mál, þótt for ustumenn kommúnista beri sig' illa yfir því, að svo ske- leggum talsmanni lýðræðis- ins og jafnaðarstefnunnar í iandinu sem Stefáni Jóhanni Stefánssyni, formanni Al- þýðuflokksins, skuli hafa veríð falið að revna að mynda stjórn og ráða fram úr því öngþvéiti, sem þriggja mánaða stjórnleysi, framkall að og við haldið af vélráðum þeirra, hefur skapað. Vissu- Iega hafa kommúnistar vænzt þess, að geta lengi enn haldið áfram að fiska í því grugguga vatni og halda uppþoð á sjálfum sér hjá Þegar einingin stóð íil boða jórnarkjörið í Dagsbrún ALÞÝÐUFLOKKSMENN í Verkamannafélaginu Dags- brún hafa ávallt barizt fyrir því, að sem fyllst eining gæti tekizt á hverjum tíma um málefni félagsins, og að allir aðilar innan félagsins nytu fyllsta lýðræðis. Vegna þessarar margyfir- lýstu stefnu Alþýðuflokks- mannanna í Dagsbrún var það, að þeir á síðastliðnu hausti' kusu tvo menn úr sínum hópi til þess að eiga tal við sjórn félagsins, sem að meirihluta er sk'ipuð kommúnistum, um sameigin legan lista við fulltrúakjör tit Alþýðusambandsþings og áframhaldandi samstarf um málefni félagsins. Sannarlega var ástæða til þess að ætla, að þessir menn, sem ávallt hafa talað hæst um einingu, og talið sig hina éinu kjörnu fulltrúa einingarinnar, myndu glaðir taka í framrétta hönd At- þýðuflokksmannanna og fagna því, ef raunveruleg éining gæti tekizt um mál- efni félagsins. Eftir allt þeirra skrif um einingu mátti búast við, að hægt væri að taka þá alvarlega, og því ekki nema eðlilegt, að reynt væri áð ná einingu innan félagsins. Áður en Alþýðuflokks- mönnunum tækist að bera fram erindá sitt við Dags- brúnarstjórnina, neituðu kommúnistar allri samvinnu og töldu engan grundvöll til samstarfs fyrir hendi. Þann- ig var eining þessara manna á borði. „Nei, góðir hálsar, við meinum ekki svona ein- ingu. Þið vitið ekkii, hvað eining er; við erum eining- in.“ Á þessa lund voru svör kommúnistanna. Það er fyllsta eining, ef kommún- istar eru ailsráðandi í verka lýðsfélagi, þó svo að þau völd séu fengin með vafa- sömum meirihluta. Eftir þessu að dæma virð- ist túlkun þeirra á orðinu „eining“ vera svipuð og lýð- ræðiistúlkun þeirra. Þá fyrst er fyllsta lýðræði, ef aðeins einn flokkur fær að starfa, þ. e. a. s. ef ílokkurinn heitir kommúnistaflokkur, annars er það íúlasta einræði! í byrjun desember s. 1. áttu kommúnistar í stjórn Dagsbrúnar tal við mig og Árna Kristjánsson, og létu í það skína, að nú væru þeir fúsari til samstarfs við Al-' þýðuflokksmenn heldur en í haúst. Ef um einhverja stefnu- breytingu hjá kommúnistum væri að ræða, þá skyldi ekki standa á Alþýðuflokksmönn- um til samstarfs. Því var það, að við Árni ásamt Hall- grími Guðmundssyni vorum kosnir af Dagsbrúnarmönn- um til þess að eiga viðræður við Dagsbrúnarstjórnina og vita, hver samvinnutilboð þeir hefðu að bjóða. Áttum við síðan nokkra viðræðufundi við fulltra stjórnarinnar, sem því mið- ur ekki sýndu neina veru- lega stefnubreytingu hjá kommúnistum frá því í haust. Að vísu buðu þeir okkur að eiga fuiltrúa í stjórn félagsins og vissa, tak markaða tölu manna í trún- aðarráði; en ekki kom til mála, að þeir menn, sem í stjórnina færu, yrðu þar fullgildir fulltrúar félagsins 'inn á við og út á við, m. a. sem fulltrúar félagsins á þingum Alþýðusambandsins. Samt sem áður töldu sum- ir stjórnarmenn af þeim, sem við áttum tal við, það ekki óeðlilegt, að stjórnar- meðlimir félagsins ættu sæti á Alþýðusambandsþinguna, en slíkar skoðanir voru bann færðar af réttlínumönnum stjórnarinnar; og þegar svo ber undir, verða hagsmunir félagsins að víkja fyrir stefnu kommúnista. Hjá þeim er það flokkurinn, sem er nr. 1, en félagið nr. 2. Hefur það þráfaldlega kom- ið fyrir, að hagsmunir verka manna hafa verið fyrir borð ibornir, þegar póMtískt valda íbrölt kommúnista hefur lent I í hættu, og má í því sam- bandi minna á síðasta verk- fall Dagsbrúnar, þegar því var skyndilega hætt eftir fyrirskipun ráðherra komm- únista vegna þess, að þeir I óttuðust um sæti sín, ef verk jfallinu héldi áfram. { Fremstur í flokki þeirra I manna, sem ákveðnast neit- juðu þessu hógværa skilyrði l okkar um setu á Alþýðusam- j bandsþinginu, var Eðvarð j Sigurðsson, og er þessi grein Frh. á 7. síðu. báðum borgaraflokkunum, eins og þeir hafa gert und- anfanið. En nú óttast þeir, að endi verði bundinn á slíka svikamyllu og heilbrigt stjórnarfar afíur rétt við í landinu uftdir forustu Al- j þýðuflokksins, þess flokks, j sem aldrei hefur léð neins ! máls á því að vera með í i hinum ábyrgðarlausa leik jþeirra um framtíð þjóðarinn j ar. ' Hvaða furða þess vegna, þótt ! forsprakkar og blað kommúri jista velji Stefáni Jóhanni ' nú hin verstu orð og stimpli !stjórn hans, ef mynduð yrði, j íyrirfram sem „afturhalds- stjórn, hversu róttækri ; stefnuskrá, sém hún kynni ’ að veifa framan í almenn- : ing“, eins, og Þjóðviljlnn kemst að orði í gær? Hitt er | svo annað mál, hvort það j.er tíklegt til ávinftings fyrir j kommúnista meðal hins jvinnandi og hugsandi fólks jí landinu, að auglýsa svo jfíflslega þann ásetning sinn, j að vera á móti stjórn, sem j Stefán Jóhann Stefánsson j myndaði, hvað svo sem j stefnumálurn hennar liði og framkvæmdum. Hingað til hefir það aldrei þótt sigur stranglegt að bera góð mál- efni fyrir borð af sturluðu pólitísku hatri til andstæð- ings. Og sízt mun þjóðin vera þeirrar skoðunar í dag, eins og komið er póli-' tískum högum hennar eftir þriggja mánaða stjórnleysi og. ‘ áðgerðafeýai- um aökall- andi vandamál, að nokkur ís lenzkur stjórnmálaflokkur geti leyft sér slíkt. ÞORS-CAFÉ Sunnudaginn 12. jan. klukkan 10 síðd. — Að- göngumiðar í síma 6497 og 4727. — Miðar afhentir frá kl. 4—7. Ölvuðum möntium bannaður aðgangur. ELDRI DANSARNIS í G.T.-húsinu í kvöld kl. 10. — Aðgöngumiðar kl. 5 e. h. í dag. Sími 3355. í Alþýðu'húsinu við Hverfisgötu í kvöld hefjast kl. 10. Aðgönigumiðar frá kl. 5 í dag. Sími 2826. HARMONÍKUHLJÓMSVEIT leikur. Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur. ámskcið Kenni að sníða og taka mál, kven- og barna- fatnað. Tízkuteikningar og kjólaskreytingar. Herdís Maja Brynjólfs. Laugavegi 68. Sími 2460. - Suðurnesjamenn Áætlunarferðir á leiðinni Reykjavík—Sandgerði verða framvegis: Fr^Reykjavík kl. 10 árd. og kl. 1 s. d. Frá Sandgerði kl. 1 og kl. 5 s. d. Farþegum skal sérstaklega bent á hina hentugu ferð frá Reykjavík kl. 10 árd. BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS. áyglýsið í álþýðuhlaðínu vantar til að bera Alþýðublaðið til áskrifenda í eftirtöldum hverfum. Njálsgötu Auðarstræti Norðurmýri Ilvcrfisgötu Grettisgötu Bræðráhorgarstíg Lindargötu Talið vi.ð afgreiðsluna.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.