Alþýðublaðið - 27.02.1947, Page 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Fhnmtuðagxir, 27. fchr. 1947
Kápur og pelsar. Kjólar. Veski.
Undirföt. Hanzkar. Sloppar.
Barnakápur og ýmislegt fleira.
Og einnig taubútasala.
KÁPUBÚÐIN
Laugavegi 35.
Sigurður Guðmundsson.
U þátttakendur í flokkaglímu
Reykjavíkur annað kvöld.
Glfmt verður í fjórum þyngdarflokkum.
: 10 drengir glíma í drengjaflokki.
FLOKKAGLÍMA REYKJAVÍKUR fer fram í íþrótta-
Kúsinu við Háloga’land annað kvöld kl. .8,30. ARs verða
þátttakendur í glímunni 24, og er það meiri þátttaka en
verið hefur i opinberri kappglímu hér um langan tima.
Glímt verður i fjórum þyngdarflokkum, 1. f'lokki, 2. flokki,
3. flokki og drengjaflokki, en í þeim flokki glima 10 dreng-
ir á aldrinum 14—16 ára,
Eins og nafnið á glímu-
mótinu bendir ti'l', eru glímu-
mennirnir eingöngu úr
Reykjavikurfélögunum. Ár-
mann sendir til glímunnar 5
fullorðna glímumenn og 2
drengi, KR 8 fullorðna og 3
drengi og Ungmiennafélag
Reykjavikur 1 fulílorðinn og
5 drengi.
I 1. þyngdarflokki' glíma
þessir. menn: Einar Ingi-
mundarson Á, Friðrik Guð-
mundsson glímukappi KR og
Guðmundur Ágústsson Á,
glímukóngur. Má búast við
Kvenregnkápur
áður kr. 72, nú 45.
Kvenvetrarkápur
áður kr. 385, nú 290.
Kvenleðurveski
frá kr. 25.
Kjólablóm
kr. 5 pr. stk.
Barnaútiföt
áður kr. 104, nú 75.
Selskapsveski
frá kr. 50.
Bleyjubuxur, gúmmí,
áður kr. 5, nú 2.
Barnasloppar, dökkblá
ull, áður kr. 45, nú 28,
o. fl.
Vefnaðarvörubúðin
Vesturgötu 27.
mjög harðri keppni i þessum
flokki.
í 2t þyngdarflokki keppa
Ágúst Steindórsson KR,
Kristján Sigurðsson Á,
Rögnvaldur Gunnlaugsson
KR, Sigurður Sigurjónsson
KR og Sveinn Jónsson KR,
í þessum flokki er einnig
spáð harðri keppni. Kristján
Sigurðsson, sem er meðal
keppendanna í þessum flokki
hlaut önnur fegurðarverð-
laun á skjaldarglímu Ár-
manns um daginn, og er
mjög góður glímumaður, en
hann á i þessum flokki hættu
lega keppiríáuta.
í'3. þyngdarflokki eigast
við Aðalsteinn Eiríksson KR,
Andrés Sighvatsson UMFR,
Einar Markússon KR, Ólafur
Jónsson KR og bræðurnir
Sigurður Hallbjörnsson og
Sigurjón Hallbjörnsson, báð-
ir úr Ármanni. Sigurjón Háll-
björnsson er gamalkunnur
glimumaður, en hefur nú um
nokkur ár ekki tekið þátt í
opinberum kappglímum, en
kemur nú á ný fram á svið-
ið. Sigurð þekkja állir, sem
fylgzt hafa með glímunni, en
hann er sá af íslenzkum
'glimumönnum, sem mun
vera búinn að glima flestar
kappglímurnar.
í drengjaflokknum glíma
þessir drengir: Ármann J.
Lárusson UMFR, 14 ára. —
Hann er sonur hins góð-
'kunna glímukappa Lárusar
Sallómonssonar. — Bragi
Guðmundsson KR, 16 ára.
Gunnar Ólafsson UMFR, 15
ára. Haraldur SVeinbjarnar-
son KR, 16 ára. Hilmar Sig-
urðsson UMFR,^ 14 ára. Jón
Antoníusson, Ármann, 16
ára. Sigurður Magnússon
UMFR, 14 Tára. Sigurður
Sæmundsson UMFR, 16 ára.
Valdimar Eiriksson KR, 16
ára, og Þorsteinn Kristjáns-
son, Ármann, 16 ára.
- Það er UMFR og KR, sem
standa fyrir glimunni. Ferð-
ir verða frá B. S. f. og hefj-
ast þær kl. 7 annað kvþld.
, Mfnningarorð
Olafur Jónsson fyrrver. oddviti,
Hvalskeri í Rauðasandshreppi.
HINN 19. febrúar síðast
liðinn andaðist að heimili
sínu, Hvalskeri í Rauðasands
hreppi, Ólafur Jónsson fyrr-
verandi oddviti, rúmlega 93
ára að aldri. Hann var fædd-
ur í Króki á Rauðasandi 26.
des. 1853. Foreldrar hans
voru Jón Ólafsson, bóndi á
Sjöundá, Sigmundssonar
bónda í Króki, og kona hans
Guðbjörg Magnúsdóttir, Ein
arssonar bónda á Hvalskeri.
Hann ólst upp í foreldra-
húsum og stundaði í æsku
öll venjuleg störf á sjó og
landi. Á æskuárum mun
hann lítillar fræðslu hafa
notið ánnarrar en fermingar
undirbúnjings, svo sem títt
var um alþýðumenn á þeim
árum. En fróðleikslöngurí
hans var afar mikil og með
þyí að nota hvert tækifæri
til að auka þekkingu sína
hafði honum tekizt að afla
sér méiri og staðbetri mennt
unar en almennt er um al-
þýðumenn, enda var hann
ágætum gáfum gæddur.
Hinn 10. okt. 1879 kvongað-
ist hann Guðbjörgu Árna-
dóttur Thoroddsen bónda áð‘
Hvallátrum og vorið 1885
reistu þau bú að Króki á
Rauðasandi. Búnaðist þeim
vel og var hann talinn með
betri bændum sveitar.innar.
Þau kjón eignuðust 9 börn,
4 náðu fullorðinsaldri: Sigur
jón Árni, alþingismaður og
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, Ölavía, gift
Stefáni hreppstjóra Baldvins
syni í Stakkahlíð í Loðmund
arfirði, Sigríður Sæbjörg,
gift Stefáni Magnússyni tré-
smíðameistara í Reykjavík,
og Stefán bóndi á Hvalskeri1,
giftur Valborgu Pétursdótt-
ur Jónssonar fræðimanns frá
Stökkum. Stefán dó 3. maí
1942.
Ólafur heitinn missti konu
sína 31. júlí 1892. Næstu tvö
árin hélt hann áfram bú-
skap, en brá búi í fardögum
1894. Éftir að hann hætti bú
! skap starfaði hann á sumr-
'Um að ýmsum störfum, ým-
Jíst á sjó eða landi, en á vetr-
!um stundaði hann um langt
Attlee boðar
Framhald af 1. síðu
flokksins í þessum efnum.
Ásakaði Eden stjórnina
fyrir að hafa gefið þjóðinni
rangar upplýsingar um hið
iraunverúlega ástand í elds-
neytismálunum. Var Eden
stórorður i þessum efnum og
skoraði nú á brezku stjórn-
ina ,að gefa réttar upplýsing
■ar um ástandið í kolamálun-
um.
Áður höfðu 'talsmenn stjórn
arinnar greint frá þvi, hvers
vegna skortur hefði verið á
kolum.
Aðgöngumiðar eru seldir í
Bókavorzlun ísafoldar og hjá
Éymundsen.
Ólafur Jónsson.
Þessi mynd var tekin af hon-
um miðaldra.
skeið umferðarbarnakennslu.
En auk þess voru honum af
sveitungum sínum oftast fal-
in þau trúnaðarstörf, sem
mest reið á, að vél væru af
hendi leyst. Þeir vissu, að
réttsýni, drerígskapur og
sanngilrni mundi halda velli,
þar sem hann fékk að ráða.
Hann sat þannig um fjölda
ára í hreppsnefnd, og nokkru
eftir aldamótin voru honum
falin oddvitastörf, sem hann
gegndi um langt skeið.
Forð'agæslumaður sveitar
sinnar var hann í mörg ár
og í fasteignamatsnefnd Vest
ur-Barðastrandasýslu var
hann skipaður 1930.
Ólafur heitinn var afburða
vinsæll maður. Ég, sem þetta
rita, ferðaðist einu sinni með
honum bæ frá bæ um
Rauðasandshrepp og hvar
sem við komum var honum
fagnað með svo miklum
innileik, að ég þekkii þéss
vart önnur dæmi. Hann var
hreinn og heill og velviljað-
ur í garð allra og það skap-
aði honum vinsældirnar, en
jafnframt gat hann haldið
fast á málstað_sínum þegar
því var að skiþta. Hann var
hár maður vexti, þrekinn. og
gjörfulegur, svipurinn hreinn
og góðlegur. Vakti hann al- ’
menna athygli, hvar sem
hann fór.
Síðustu æfiár sín dvaldi
Ólafur heitinn á heimili
Stefáns sonar síns að Hval-
skeri. Eitt einkenni hans var
órjúfandi átthagatryggð.
Hann hafði alla æfi átt
heima í Rauðasandhreppi og
hefði áreiðanlega hvergi get
að unað sér annars staðar, og
var það því sérstakt gleði-
efni að hann fékk þar ör-
uggt athvarf á elliárunum.
Fyrir allmörgum árum missti
hanrí sjónina og varð honum
þá erfitt um fótaferð og síð-
ustu 3 árin lá hann alveg
rúmfastur. En allan þann
tíma anríaðist tengdadóttir
hans, Valborg Pétursdóttir,
hann með frábærri um-
hyggju og fórnfýsi.
Jarðarför hans fer fram í
dag að Saurbæ á Rauðasandi,
þar sem eiginkona hans og
flest börn hans hvíla.
M.
GÓÐ, O'DYR ;
drengja ;
w •
Jakka- og blússuföl!
á 5—12 ára. :
■ •
m -
m
V E R Z L U N I
EGILL JAKOBSEN}
Laugavegi 23. ■
KlllllfffCliHilllll.
Nýkomnir
■
Skautar !
■
skrúfaðir fastir undir skó. ■
■ '
Stærðir: 25, 25 y2, 26, 27, [
28, 29 og 30 cm. ■
■• .-
Skrúfum skauta undir skó :
Austurstræti 4. Sími 6538. :
Enskir barnavagnar
nýkomnir, 3 litir.
VERZLUNIN RÍN
Njálsgötu 23. Sími 7692.
Ullar karlm. nærföt. |
— Barnabolir. «
— Sokkar. j
— Peysur. :
■.
*
■
Verzlun 1
■ •
■
' *
Ben. S. Þórarinsson I
Sími 3285. — Laugavegi 7 ;
stofuskápur, hentug- ;
' ■
■
ur í herraherbergi, og :
sængurfataskápur. ■;
■ -
u-
Upplýsingar á Reykjavík ■
■>.
urvegi 4 B,
Hafnarfirði, :
sími 9096.
Fokheld hús i
■
Efri hæð og rishæð í :
fokheldu húsi í Máfa ■
hlíð og fokhelt hús :
við Sörlaskjól, er til ■
■ -
sölu. :
B-
*-•
BALDVIN JÓNSSON hdl. [
Vesturgötu 17, sími 5545.