Alþýðublaðið - 15.04.1947, Side 3
Þriðjudagur, 15. apríl 1947.
ALÞÝÐUBLABIÐ
3
Heyrt og lesið
Fróðleg bók og skemmtileg
LARS AHLIN er af ýmsum
talinn snjallastur hinna yngri
rithöfunda í Svíþjóð, en hann
fæddist 1915 og gaf út.fyrstu
bók sína 1943, svo að hann hef-
ur unnið sér skjótan frama.
Hann hefur alls sent frá sér
þrjár skáldsögur, Tább med
manifestet, Min död ar min og
Om, svo og smásagnasafnið Inga
ögon vántar mig. Ahlin var fyr
ir skömmu sæmdur bókmennta
verðlaunum Tidens, útgáfufyr-
irtækis sænska Alþýðuflokksins,
ásamt Gustaf Hedenvind-Eriks-
son. Ahlin hefur nýlokið við
nýja skáldsögu og vinnur að
smásagnasafni.
KARL ÍSFELD mun senda
frá sér- nýja ljóðabók á þessu
ári. Hann hefur einnig smá-
sagnasafn í smíðum, en til þessa
hafa aðeins birzt eftir hann
tvær smásögur á prenti.
KOMIN ER ÚT í New York
Ijóðabók eftir þýzka skáldið
Franz Werfel, höfund skáldsög-
unnar Óður Bernadettu, en
.Werfel lézt landflótta vestra
1945. Bókin heitir Gedichte aus
den Jahren 1908—1945 og flyt-
ur 118 kvæði frá þessu áraskeiði.
iWerfel hafði sjálfur valið
kvæðin í safnið skömmu áður
en hann lézt. Magnús Ásgeirs-
son hefur þýtt nokkur kvæði
eftir Werfel á íslenzku.
SVERRIR KRISTJÁNSSON
sagnfræðingur vinnur að þýð-
ingu á sagnabálkinum Den
lange Rejse eftir Johannes V.
Jensen, en hann er höfuðrit
hins danska nóbelsverðlauna-
höfundar og skiptist í 6 bindi á
frummálinu: Det tabte Land,
Bræen, Norne-Gæst, Cimbrernes
Tog, Skibet og Christoffer Col-
umbus. Sagnabálkurinn á að
heita Löng er leiðin í íslenzku
þýðingunni.
*
KOMIÐ ER ÚT í Svíþjóð safn
af bréfum Augusts Strindbergs,
og nær það yfir tímabilið 1870
■—1912. Safnið, sem nefnist
Frán fjárdingen till hlá tornet,
er tekið saman af Torsten
Eldund.
•'fi
ÖNNUR BÓKIN í Listamanna
þingi II er nýkomin út. Er það
Sagan af Manon Lescaut og ridd
aranum Des Grieux, hin fræga
skáldsaga eftir franska höfund-
inn Prévost d’Éxiles ábóta, í ís-
leifzkri þýðingu Guðbrandar
Jónssonar. Sendiherra Frakka í
Reykjavík, Henri Voillery, rit-
ar formála að bókinni.
tjt
NORSKI RITHÖFUNDUR-
INN Sigurd Christiansen, höf-
undur skáldsögunnar Tveir lífs
og einn liðinn, hefur nýlega
sent frá sér leikrit, sem heitir
Aleksander Paulovitsj og fjáli-
ar um Alexander fyrsta Rússa-
keisara.
BÆKUR, sem fjalla um
merka menn, líf þeirra og
störf, hafa verið vel þegnar
af íslenzkum lesndum, og
má því merkilegt heita, að
ekki skuli hafa verið gefnar
hér út fleiri bækur um þau
efni en raun ber vitni. Okkur
er vant ævisagna afburða-
manna annarra þjóða, og
fræðimenn okkar og rithöf-
undar hafa gert ótrúiega
lítið að því að rita ýtarlega
um íslenzka brautryðjendur
og afreksmenn á ýmsum svið
um. Er þó vissulega af miklu
að taka, ef efni þetta er
kannað, óg fyrirfram vitað,
að áhugi íslenzkra lesenda
fyrir því er mikill.
Forráðamenn Draupnisút-
gáfunnar virðast, góðu heilla,
hafa hug á því að bæta nokk
uð úr þe'ssu. Útgáfa þessi
hefur nýlega sent á markað-
inn bók, er nefnist Vísinda-
menn allra alda og er fyrsta
bókin í nýjum bókaflokki,
sem ber samheitið Drýgðar
dáðir og ætlaður er æsku
landsins. Mun bókaflokkur
þessi fjalla um hvers konar
afrek, íþróttir og ævintýri
og lýsa mönnum, er skarað
hafa fram úr á ýmsum svið-
um og unnið afreksverk,
sem til heilla horfa. Verði
áfram haldið eins ög af stað
er farið með þennan bóka-
flokk, er viðburður að útgáfu
hans.
Vísindamenn allra alda
fliytur frásagiyir um líf og
störf tuttugu og eins vísinda-
manns, sem starfað hafa á
meira en tvö þúsund ára tíma
bili og unnið á sviði stærð-
fræði- náttúruvísinda, af-
rek, sem löngu hafa aflað
þeim frægðar um allan hinn
siðmenntaða heim. Þeir hafa
með störfum sínum valdið
aldahvörfum og gerbreytt
högum manna um víða ver-
öld. Bókin er fyrst og frémst
ævisagnasafn og rnjög stikl-
að þar á stóru, en hún er rit-
uð í þeim tilgangi að vera
við alþýðuhæfi og er hin
skemmtilegasta aflestrar, og
því fer fróðleikur hennar
engan veginn fyrir ofan garð
og neðan hjá venjulegum les
anda. Hins vegar fer því auð-
vitað fjarri, að efni þessu séu
gerð full skil í bókinni, enda
ekki til þess ætlazt, en efa-
laust verður lestur hennar til
þess, að ýmsitr fróðleiksfús-
ir lesendur afli sér frekari
fróðleiks u'm ævi og afrek
sumra þeirra manna, sem þar
koma við sögu.
Bókin er rituð af þrem-
ur ungum menntamönnum,
Geir Hallgrímssyni, Gunnari
Helgasyni og Jóni P. Emils.
Heiztu heimildarrit þeirra
eru fimm bækur á enskri
tungu, sem greina á alþýð-
legan hátt frá frægustU upp-
finningamönnum, hugsuðum
og vísindamönnum heimsins;
bók Sverre Amundsens um
Edison, sem þýdd hefur
verið á íslenzku, og rit
Ágústs H. Bjarnasonar pró-
fessors um heimsmynd vís-
indanna. Bókin er því í senn
þýðing og endursögn, og
safnendurnir hafa tvímæla-
laust lagt allmikla vinnu í
að rita hana. Hver ævisögu-
þátturinn um sig flytur geysi
mikinn fróðleik og gefur
glögga heildarmynd af lífi; og
starfi hlutaðeigandi vísinda-
manns, og þeir eiru allir
skemmtilegir og prýðilega
læsilegir. Málið á bókinni er
gott, og mun þó vandskrifað
um þetta efni á íslenzku
vegna þess, að hér er um að
ræða svo til óplægðan akur
í bókmepntum okkar, og
prófarkalesturinn er óað-
finnanlegur, en það mega
teljast tíðindi um þessar
mundir. Útgefandi og prent-
smiðja hafa vandað vel til
ytra útlits og frágangs bók-
arinnar, svo að hún ber að
allri gerð af welflestum bók-
um, sem hér hafa verið gefn-
ar út að undanförnu.
Vísindamenn allra alda er
bók, sem beinir huga les-
andans að góðum örlagavöld-
um og opnaæ honum heim
þróunar, sem miðar til far-
sældar og hamingju. Bókin
er því hollur lestur öllum
þeim, sem hafa þá trú, að
mannkynið sé ekki dæmt tdl
að úrkynjast og tortímast,
héldur eigi sér von aukins
þroska og farsælli framtíðar.
En sér í lagi hefði ég haldið,
að þetta væri bók, sem unga
fólkið tæki tveim höndum.
Helgi Sæmundsson.
en
heima setið
SÍÐASTA LJÓÐABÓKIN í
bókaflokknum ,,Nýir þennar“
heitir Söngvar frá Sælundi og
flytur 28 kvæði á 69 blaðsíðum.
Höfundur hennar er ungur
menntamaður, Hörður Þórhalls
son að nafni, og er þetta fyrsta
bók hans. Hins vegar hefur
hann verið ritstjóri að póli-
tísku tímariti og fengizt eitt-
livyo við ritstörf, sem slíku
starfi fylgja.
Kvæði þessi eru ort á heldur
góðu máli, og prófarkalestur
þeirra er skammlaus. Fyrir-
sagnir kvæðanna gætu bent til
þess, að þau væru sæmilega
fjölbreytt að efni, en vjð lestur
bókarinnar kemur í Ijós, að
yrkisefnin bera mjög svip hvert
af öðru, og tilbrigðum í efnis-
meðferð er ekki fyrir að fara.
Góðfúsum lesanda dylst ekki,
að höfundur kvæðanna er
menntaður maður og hefur les-
ið sitthvað í bókmenntum. En
ímyndunarafl hans virðist svo
sem ekki auðugt, og honum
lætur illa að búa hugsunum sín
um þann húning, sem krefjast
verður af ljóðskáldi.
Hörður Þórhallson hefði
varla orðið vinsæll af því, að
birta þess kvæði sín í skrifuðu
blaði fámenns ungmennafélags
í afskekktri sveit. Það væri ekki
ástæða til þess að skipta skapi,
þótt maður milli tektar og tví-
tugs gerði sér það til dundurs,
að yrkja ljóð á borð við þessi og
léti góðvini sína heyra þau. En
hefði hann einhvern hug á því
að verða skáld mætti hann ekki
falla í þá freistni að gefa þau
ut, þótt hann væri svo hund-
heppinn að honum byðist ú'tgef-
andi og jafnvel nokkrar krónur
í ritlaun.
Helgi Sæmundsson.
SÍÐASTA HEFTI tímaritsins
Jarðar af árganginum 1946 er
fyrir nokkru komið út, og er
það helmingur árgángsins. Flyt
ur það margar athyglisverðar
greinar, auk margvíslegs ann-
ars efnis, en Jörð er í fremstu
röð tímarita okkar að fjöl-
breytni.
Merkasta grein þessa heftis
er ritgerð Guðmundar Gísla-
sonar Hagalíns um bókmennt-
irnar og vandamálin. Sá hluti
hennar, sem ritið flytur að
þessu sinni, er aðeins þriðjung-
ur greinarinnar, og mun fram-
haldið birtast í heftum Jarðar
af árgangi þessa árs. Ritgerð
þessi fjallar um heimsbók-
menntirnar, viðhorf rithöfund-
anna og menningarleg vanda-
mál þjóðanna á tímabilinu frá
1914. Bókmenntayfirlitið í þess-
um fyrsta hluta greinarinnar er
um Frakkland, Bretland, Þýzka
land og Rússland, og er það
hið fróðlegasta sem vænta
■mátti, ‘því að Hagalín er áður
kunnur að því að-vita mikil og
glögg skil á erlendum rithöf-
undum og bókmenntum og héf-
ur gert mikið að því að veita
íslenzkum lesendum fræðslu
um þau efni. Nú sem endranær
tekst honum prýðisvel að gera
þennan fróðleik sinn alþýð-
legan, því að grein hans er hin
skemmtilegasta aflestrar. Þrótt-
mikill og blæbrigðaríkur stíll
höfundarins veldur því, að frá-
sögn hans og könnun verður
lifandi og eftirminnileg. Á Jörð
skildar þakkir hugsandi lesenda
fyrir að flytja þennan grei.na-
flokk, sem er tvímælalaust í
tölu merkustu ritgerða, er hér-
lend blöð og tímarit hafa lengi
flutt.
Hagalín á einnig - í heftinu
nýja smásögu, er hann nefnir
Öllu breyta þeir. Hún ber hin
gömlu og góðu einkenni höf-
undarins, er skýr þjóðlífsmynd
og speglun á sálarlífi sögu-
fólksins og sérstæð og mark-
viss að gerð og efnismeðferð.
%
Ljoðin í heftinu eru eftir sera
Jakob Kristinsson og Hallgrím
heitinn Hallgrímsson. Af öðru
efni ritsins ber að nefna grein-
arnar Að gleðjast, eftir Krist-
mann Guðmundsson, Fyrsta
Frakklandsför mín, eftir Thoru
Framhald á 7. • síCtL
URVALS
ermingargjafir
Passíusálmar
'iý sérstaklega falleg vasa
utgáfa, búin til prentunar
eftir handriti höfundar af
éra Sigurbirni Einarssyni
iósent.
Passíusálmana þurfa
allir að eiga.
I. - III.
Þessi heimsfræga skáld-
saga er alltaf vegleg o"g
cærkomin gjöf. KYRT-
ILLINN er ein af þéim
skáldsögum, sem allir hafa
unun af að lesa.
Úrvals barnabækur:
SMIÐ JUDREN GURINN
eftir Carl Sundby.
UNGAR HETJUR
eftir Carl Sundby.
FLEMMING í HEIMA-
YISTARSKÓLA
eftir Gunnar Jörgen-
sen.
JESSIKA
eftir Hesbo Stretton
JESÚS FRÁ NA^ARET
biblíumyndabók.
Bókagerðin Lilja.
ilWriiiiMlliiuuuniuoiiMiioi