Alþýðublaðið - 19.04.1947, Síða 1
Umtalsefnið
Blekkingar kommún-
ista um olíustöðina á
Hvalfirði.
. /
Forystugrein
blaðsins í dag: Alþýð- *
an og hinar nýju álög-
ur.
Þessi mynd af hrauninu, sem runnið hefur austur frá
Heklu, var tekin úr flgvél í fyrradag. Til vinstri sést
gosið i suðvesturöxl fjallsins. (Ljósm. Páll M. Jónasson.)
Öskofalis varð og vart víðs vegar i ná-
grenni fjallsins, og gránaði snjór af þvi.
---------♦---------
GOSIN í HEKLU halda enn áfram, en voru þó
með minnsta móti í gærdag. Hins vegar teíja menn
fyrir ausan, að mikið öskugos hafi verið úr fjallinu í
fyrrinótt og fyrripartinn í gær var fjallið algerlega
hulið reykjarmekki. í fyrrakvöld og í gærmorgun
varð v’íða vart öskufalls, en það var ekki rneira en
svo, að snjór gránaði. .
Siiii var ekki rifin heldur seid alísienik
um félépm vegna tilfinnaniegs skorfs
á olíugeymum.
----------«----------
MILKAR UMRÆÐUR urðu utan dagskrár í neðri deild
alþingis í gær út af sölunni á olíugeymunum í Hvalfirði.
Hóf Biami Benediktsson utanríkismálaráðherra umræð-
urnar og hrakti blekkingar Þjóðvilians í gær, þar sem því
var haldið fram, að Hvalfjörður hefði verið seldur ame-
rískum Ieppiun og hefði embættismaður Bandaríkjanna
komið hingað til þess að hafa hönd í bagga með þessari
sölu.
Rakti utanríkismálaráðherrami gang þessa máls frá
upphafi og vísaði ósannindum Þjóðvilians á hug. Einar OI-
geirsson reyndi að analda í móinn og bera hlak af flokl^s-
blaði sínu, en tókst óhöndulega. Áki Jakobsson reyndi að
koma til liðs við Einar í raunum hans, en tókst sízt betur.
Hitaveitan:
Hitasfig vatnsins auk-
ið um lógráður með
raímagni
ÞEGAR RAFMÁGNSÞÖRF
BÆJARINS hefur verið full-
nségt með hinni nýju virkjun
við Sogið, er í ráði' að nota
afl varastöðvarinnar, sem nú
ér í byggingu við Elliðaárn-
ar, til að auka afköst hita-
veitunnar. Talið er að auka
megi 'hitastig vatnsins, sem
rennur til bæjarins um 16
gráður á þennan hátt.
Ekki mun þetta þó geta
komið til framkvæmda næstu
3—4 árin, þar eð rafmagns-
þörf bæjarins er nú svo mikil
að ekki mun veita af þeirri
viðbót sem fæst með þessari
stöð, þar til nýja virkjunin
við Sogið hefur verið gerð.
Sagði borgarstjóri í ræðu
sinni um raforkumálin á
bæjarstjórarfundi í fyrradag,
að stöðin við Eliliðaárnar
myndi framleiða 7500 — og í
allra mesta lagi' 8 500 kiló-
wött, þegar hún yrði í fuilri
notkun. En samt sem áður
imyndi þessi aukning á raf-
orkunni verða fullnotuð á
næstu 2—3 árum, vegna út-
þenslu bæjarins cg hinnar
vaxandi rafmagnsnotkunna.
Steinsteypuvél til
gatnagerðar.
BÆRINN HEFUR ákveðið
að kaupa frá Englandi stein-
steypuvél til gatnagerðar, óg
verður vélin tilbúin til af-
greiðslu á næsta vori.
Sagði borgarstjóri á bæjar
stjórnarfundi í fyrradag, að
ákveðið væri að steypa ýmsar
fjölförnustu göturnar í bæn-
um, til dæmis Skúlagötuna
og Hringbrautina, en ekki
myndi verða ,byrjað á þeim
framkvæmdum fyrr en stein
steypuvélin kæmi. ,
Waliace komltin tii
stokkhoims
HENRY WALLACE er nú
kominn til Stokkhólms á Ev-
rópuferð sinni. Sagði hann
þar í ræðu í gær, að Norð-
urlöndin gætu af landfræði-
legum og siðfræðilegum á-
stæðum unnið mikið miðlun
arstarf, og hvatti hann mjög
til þess. Hann kallaði þá
menn afbrotamenn, sem telja
stríð óhjákvæmilegt.
í London hefur Winston
Churhill minnzt á Wallace í
ræðu, og sagt að hann ynni
að því að eyðileggja samhug
og bandalag Breta og Banda-
ríkjamanna.
Á Fellsmúla heyrðust éng-
;ar drunur frá Heklu 5 gær-
dag, enda var hvassviðri af
suðaustan og má vera, að
það hafi dregið úr drunun-
um. Hins vegar heyrðust
snarpar drunur áð Ásólfsstöð
um síðdegis í gær, svo að
hrikti í húsum þar. Ösku-
fallsins varð fyrst vart á
Fellsmúla um klukkan 6 í
fyrrakvöld og stóð það þar
til í gærmorgun. Einnig varð
þess vart á Ásum í gærmorg-
un, en á Ásófsstöðum var
öskufalið aðeins í fyrrakvöld
oig ekki meira en svo, að
snjór gránaði.
Fyrri partinn í gasrdag
sást ekki til Heklu frá Ásum
eða Ásólfsstöðum vegna mist
urs og gufu, en síðdegis sást
|í fjallsöxlina frá Ásólfs-
stöðum, og virtist fólki þar,
sem töluverð gos væru í mið-
gígnum og fremsta -gígnum.
Frá Fellsmúla sáust eld-
arnir greinilega í fyrrakvöld
og einnig sáust nýju hraun-
straumarnir þaðan, en ekki
sáu menn þar, hvort hraun-
ið hefur breiðst mikið út
siðustu daga.
Töuverð umferð var fyrir
austan í fyrradalg, en minni
í gær, enda er illfært á bif-
reiðum nú eins og er.
Afli Reykjavíkurbátanna
í gær, talið í„ smálestum: Dag
ur 10, Jakob 8, Friðrik Jónsson
7, Hagbarður 7, Svanur 7.
Heimaklettur 6, Ásgeir 6, Skíði
6, Skeggi 6, Elda 6, Þorsteinn
6, Garðar 6, Eiríkur 5, Jón Þor-
láksson 7, Suðri 4.
Utanríkismálaráðherra
kvað ummæli Þjóðviljans í
gær þýða rniklar og geigvæn
legar árásir á sig og raunar
ríkisstjórnina í heild, ef
sannar væru, en því færi alls
fjarrii, þar sem segja mætti,
að ekki væri orð satt í um-
ræddri grein hans. Árásar-
efnið er það, að ríkisstjórnin
hefur samþykkt sölu á olíu-
stöðinni í Hvalfirði, sem hún
keypti af Bandaríkjunum, og
er Olíufélagið h/f og Hvál-
veiðifélagið kaupandinn.
Kvaðst utanríkismálaráð-
herra telja rétt að gefa
skýrslu um málið í heild
fyrst það hefði verið gert
opinberlega að umræðuefni
og á þann hátt, að engan
veginn yrði við unað.
Kaiipin og saian
á oSíustöðiniiL
Ríkisstjórnin bauðst á síð-
ast liðnu hausti til kaups
olíustöðin í Hvalfirði, en hún
var þá eign Bandaríkjastjórn
ar. Náðist samkomulag um
kaupin og voru samningar
undirritaðir 30. janúar síð-
ast liðinn. Kaupverð stöðv-
ar.innar var 2 milljónir króna,
og náðist samkomulag um
svo lágt verð vegna þess, að
Bandaríkin féllust á þá skoð-
un . íslendinga, að stöðin
væri mjög óhentug til rekst-
urs í framtíðinni og yrði að
rífast og flytjast burt, ef
fullt gagn ætti að verða að
olíugeymunum, sem þar eru.
Voru það einkum þrír aðilar,
sem áhuga höfðu fyrir að fá
stöðina í Hvalfirði eftir að
hún var komin í eigu ís-
lenzka ríkisins: Hvalveiði-
félagið, Olíufélagið og Sam-
band íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda eða félagsmenn
í því.
Hvalveiðifélagið var stofn
að fyrir skömmu og var vant
samastaðar fyrir bækistöð
starfsemi sinnar. Olíufélagið
er hlutafélag, sem Samband
íslenzkra samvinnufélaga,
sambandskaupfélög og olíu-
samlög útvegsmanna víða um
land standa að. Var félag
þetta stofnað fyrir skömmu
síðan og hyggst að hefja sam
keppni við hina erlendu olíu
hringi. Er það í engum tengsl
um við erlend félög að öðru
leyti en því, að það hlýtur
að kaupa olíuna erlendis frá
eins og hin olíufélögin, sem
hér starfa. Mun félag þetta
hafa meginviðskipti sín við
olíusamsölu alþjóðasambands
samvinnumanna, þegar starf
ræksla hennar er hafin fyrir
alvöru, en þangað til mun
það hafa viðskipti sín við
Standard Oil. Hvalveiðifé-
lagið er alíslenzkt félag á
sama hátt og Olíufélagið, og
Framh. á 2. síðu.
Sfefán Rafnar skrif-
stofustjóri látinn.
STEFÁN RAFNAR, skrif-
stofustjóri Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga, varð
bráðkvaddur. að heimili sinu,
Báldursgötu 11, i fyrrakvöld.
Var hann 51 árs gamall,
fæddur að Hrafnagili í Eyja-
firði. Var hann í nokkur ár
hjá KEA á Akureyri, en réð-
ist árið 1917 til SÍS og hefur
því starfað við þáö fyrirtæki
í 30 ár, lengstaf sem aðalbók-
ari og skrifstofustjóri.
Stefán lætur eftir sig ekkju
og börn. Var hann mætasti
maður og vinsæll mjög. Veirð
ur hans nánar getið hér í
blaðinu síðar.