Alþýðublaðið - 20.05.1947, Síða 5
Þriðjudagur 20. maí 1947.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Minningarorð:
SIGRÍÐUR HALLDÓRS-
DÓTTIR lézt í Landakots-
spítala 6. þ. m. Hún var
fædd 30. september 1880 í
Stokkseyrarseli í Stokkseyr-
arhreppi. Árið 1907 giftist
hún eftirlifandi manni sín-
um, Jóhanni Ögmundi Odds
syni, ritara Stórstúku ís-
lands. Þeim varð sjö barna
auðið, og eru fjögur þeirra á
lífi.
Það mun hafa verið fyrir
um það bil 15 árum síðan, að
fundurn okkar Sigríðar bar
fyrst saman. Ég var þá ný-
genginn í góðtemplarastúku.
Hún sótti að staðaldri fundi
í þeirri stúku, þótt hún væri
ekki meðlimur hennar. Um
þær mundir og reyndar síð-
ar, sótti hún iðulega fundi
hinna ýmsu stúkna hér í bæn
um og var alls staðar aufúsu
gestur. Hún varð templari
5. janúar 1912 og meðlimur
st. Víkings nr. 104 frá því ári
til dauðadags.
Ég minnist þess, að Sigríð
ur lét oft orð falla á þá leið,
að sér fyndist góðtemplara-
reglan vera sitt annað heim-
ili. í fyrstu skildi ég ekki
fyllilega, hvað hún meinti,
en eftir að mér auðnaðist að
kynnast Sigríði nánar, skildi
ég betur viðhorf hennar.
Störf sín fyrir regluna vann
hún með sömu alúðinni og
góðviljanum og störfin heima
milli fjögurra veggja, og því
fannst henni hún vera heima
hjá sér, er hún sat fundi í
reglunni. Hún var að eðlis-
fari hlédræg og bar það ei
á torg, er hún afrekaði, en
vegna óvenjulegra mann-
kosta báru allir traust til
hennar, hvort sem þeir höfðu
þekkt hana um skemmri eða
lengri tíma. Og þess vegna
var hún kjörin til mikillar
ábyrgðar innan vébanda regl
unnar, og því trausti brást
hún aldrei.
Hugsjón reglunnar var
Sigríði svo mikils verð, að
hún mátti aldrei vita henni
fært neitt minna en það
bezta — heilan hug og
hjarta. Og ég veit heldur eng
an, sem verðskuldar með lík
um rétti og hún að vera kall
aður góðtemplari. En það
heiti geta fáir borið, eins og
þeir vita, er hafa eitthvað
kynnzt reglunni og tnumið
kenningar hennar.
Sigríður Halldórsdóttir.
Um eitt skeið var ég tíður
gestur á heimili þeirra hjóna,
Sigríðar og Jóhanns, og naut
þar vinsemdar í ríkum mæli.
Þær stundir voru ætíð á
þann veg, að mér er Ijúft að
minnast þeirra. Og þá gafst
mér kostur á að kynnast
þessum hjónum, heimili
þeirra og hugsjónum, og sú
kynning varð mér til góðs.
Hin síðari ár átti Sigríður
við vanheilsu að stríða, en
þá raun bar hún með þeirri
hugprý'ði og stillingu, er
henni var lagin. Henni höfðu
áður mætt sorgir, er tóku
til hjartans og þungt var að
bera. Hún varð að horfa á
eftir efnilegum uppkomnum
börnum þann veg er hún
hefur nú gengið sjálf. En þeg
ar syrti að í lífi hennar, vissi
hún ætíð bjart framundan,
þar sem trú hennar eygði
nýjan himin og nýja jörð.
Margir eru þeir, sem á-
samt ástvinum Sigríðar,
munu sakna hennar, og
vita, að nú er skarð fyrir
skildi. Og jafnframt munum
við bakka henni allt, sem hún
var okkur, hverjum einum
og fyrir það, er hún vann
þeirri hugsjón, sem við átt-
um sameiginlega.
Sigríði reyndi ég að þeim
Ikostum, sem hverja konu
j prýða. Heiðríkja og fegurð
| bjó í svip hennar og fram-
komu. Og í heiðríkju vors-
ins hvarf hún til nýrra
heimkynna.
Guðjón Halldórsson.
í Reykjavík.
Nemendur vitji einkunnabóka og prófskírteina
sem hér segir:
1. .belckur,. miðvikudaginn 21. maí kl. 10 árd.
2. bekkur. sama dag kl. 11 árd.
3. bekkur, sama dag.
Skólauppsögn fer fram í Iðnó sama dag kl. 8,30
síðdegis.
Innritun nýrra nemenda fer fram í skólanum við
Lindargötu 31. maí og 1. júní. Fullnaðarprófs-
skírteini frá barnaskóla verður að sýna um leið
og sótt er.
Ingimar Jónsson.
Iðr.neminn,
blað Iðnnemasambands ís-
lands er nýkomið út,- Er ritið
fjölbreytt að efni.
Unglinga
vantar til að bera Alþýðublaðið til áskrifenda í
eftirtöldum hverfum.
Grettisgöíu,
Austurstræti,
Lindargötu,
Laugavegur neðri.
Talið við afgreiðsluna.
Alþýðublaðsð, sími 4900
ORÐIÐ HNEFALEIKA-
MEISTARAMÓT hljómar
vel í eyrum. Að keppa um
meistaratign eitt út af fyrir
sig, er ekki svo lítið. Og að
vera hnefaleikameistari fær-
ir einhvern dulinn mátt í
blóðið. Eða svo finnst mér
að það muni vera, þó að ég
sjálfur geti hvorki státað
með þá tign eða aðrar.
Sjöunda hnefaleikameist-
aramóti íslands er nýlokið.
íþróttahúsið við Hálogaland
var þéttskipað áhorfendum,
og sýniir það vel, að Reyk-
víkingar fylgjast með hnefa
leikamönnum okkar af á-
huga. Er þetta vel, því að
aldrei verður sá flokkur
ungs fólks of stór, sem lærir
að skilja gildi íþróttanna.
Að þessu sinni var keppt
í átta þyngdarflokkum, eða
ölllum þeim, sem íþrótta-
bandalagið hefur ákveðið.
Fluguvigt: í þessum þyngd
arflokki kepptu tveir ung-
herrar varla eldri en 13—14
ára, Rósmundur Guðmunds-
son og Ægir Egilsson. Þeir
byrjuðu rólega, eins og þeir
hefðu ekki áttað sig á því, að
þeir væru ekki komnir þarna
til að æfa, heldur til að
keppa. En þegar á leið hörn
uðu þeir, sérstaklega þó Æg-
ir, sem virtist una hið versta
við að fá ómild högg frá Rós
mundi beint í andlitið. Ægir
sótt stöðugt fastar að and-
stæðing sínum, sem verst
vel. Keppninni ilauk þannig,
að Ægi var dæmdur sigur-
inn, sem mér virðist hafa
verið mjög réttlátur dómur,
þax sem hann sýndi óneitan
lega meiri röskleik heldur en
hinn.
Bantamvigt: Keppendur
voru Ériðrik Guðnason og
Björn Eyþórsson. Sérstak-
lega var eftirtektarvert, hve
mjúkar líkamshreyfingar-
þessir keppendur höfðu.
Friðrik gaf stærri högg,
enda var athyglisvert, hvern
ig hann lék með lausum og
óþvinguðum handleggjum.
En Björn var aðgætinn og
brá sér undan höggunum;
hann gaf líka lagleg högg,
þegar hann komst í færi.
Sóttu þeir sig eftir því, sem
á_leið og mátti sjá, hvernig
skapið rann út í hnúana. Var
Friðrik stöðugt harðari í
sókn og réði það vafalaust
mestu um að hann hlaut sig
urvegaranafnbót.
Fjaðurvigt: í þessum flokki
kepptu þeir Hallur Sigur-
björnsson og Árni Ásmunds
son. Það, sem áhorfandi veit
ir athygli strax í upphafi
leiksins, er hve Hallur fylg-
ist nákvæmalega með hverri
hreyfingu andstæðingsins. í
annarri lotu sótti Árni leik-
inn fastar og hélt Halli lengi
út við strenginn. Hallur
gerði ölu betri íeiki, en Árni
sækir keppnina fastar. Árni
hefur það lag, að hann beitir
vinstri öxl og þar af leið-
andi gefur hann sín beztu
högg með vinstri hnefa.
Geta má þess til, að Hallur
sé ekki nægilega skapharður
og að hann leifi af þeim
kröftum, sem hann augsýni-
lega á til. Leikar fóru þann-
ig að Árni vann keppnina,
sem ég get fúslega viður-
kennt að væri réttlátur dóm
ur.
Léttvigt: Þar kepptu Mar-
teinn Björgvinsson og Hreið
ar Hólm. í fyrstu lotunni
mátti ekki á milli sjá. Hreið
ar var opnari fyrir höggum,
en hefur meiri líkamsþunga.
Gáfu báðir stór högg og tíð,
en Marteinn lék betur, enda
voru honum dæmd sigur-
launin.
Veltivigt: Keppendur voru
Arnkell Guðmundsson og
Jón Guðmundsson. Það var
fljótt augljóst, að Arnkell
var vissari og öruggari, enda
mun bann hafa meiri þjálfun
að baki. Jón gaf þó oft all
stór högg. Var þetta harður
leikur, enda hrópaði fólkið
ákaft. Leiknum lauk með
því, að Arnkatli voru dæmd
sigurlaunin og mun þar um
ráðið hafa leikni hans fram
yfir Jón.
Millivigt: Keppendur voru
Svavar Árnason og Geir
Einarsson. Var mjög jafnt
á komið með þessum tveim
keppendum og sóttu þeir
báðir allfast, sérstaklega þeg
ar á leikinn leið. Ekki kem-
ur mér á óvart, þó að stiga-
tala þessara keppenda hafi:
verið Jdk. En Svavari var
dæmdur sigurinn og má
segja, að hann hafi sýnt öllu
þróttmeiri leik.
Léttþungavigt: Keppendur
voru Þorkell Magnússon og
Alfons Guðmundsson. Þor-
kell var sérlega rólegur og
stöðugur, en Álfons hljóp í
kring, líkt og hann vær.i
hræddur við ímúa Þorkels,
en vildi gjarnan komast að
baki hans. í öðrum leik sló
Þorkell svo til Alfons að.
hann féll, en reis þó fljótt
upp aftur. Greinilegt var, að
Þorkell var betur þjálfaður,
enda mun þetta vera fyrsta
meistaramót, sem Aifons tek
ur þátt í. Þorkatli var dæmd
ur sigurinn og virðist mér
hann vera vel að honum
kominn, þó að Alfons hafi
að mörgu leyti sýnt hreysti
og dugnað, en Þorkell lék sér
lega vel.
Þungavigt: Margir áhorf-
enda mættu hafa haldið að
þessi leikur milii Jens Þórð
arsonar og Kristjáns Júlíus-
sonar mundi enda fljótlega
með „knock out“, þvi að
svo geyst byrjaði leikurinn.
Strax í upphafi tókst Jens
að slá Kristján niður, en
Kristján rétti sig fljótt við
aftu.r og sótti leikinn fastar
eftr því sem á leið. Segja
má, að Jens Jrafi sótt fastar
að andstæðing sínum, en
heldur dró af honum eftir
sem á leikinn leið. Virtist
það svo að Kristján mundi
líklegur 'til að komast upp
fyrir Jens i stigatölu ef fleiri
lotur hefðu verið kepptar.
En úrslitin urðu þau, að eft-
ir brjár lotur voru Jens
dæmd verðlaunin, og má
með sanni segja, að hann
hafi verið vel að þeim kom-
inn, eins og þá stóð á.
Þó að mótið hafi farið að
öillu leyti vel fram og marg-
ir leikirnir væru gerðir af
mestu snilld, fer ekki hjá
þvi, að við hljótum að sakna
þessv að fleiri íþróttafélög
en /.rmann sæju sér ekki
fært að senda menn til
keppni. Má segja, að hver
leikur hafi borið þess merki,
að keppendurnir voru sam-
æfðir. Má vera að þetta hafi
aukið á fegurð íþróttarinn-
ar, en hitt er jafn vsít, að
keppnin mundi hafa orðið
mun harðari og valdið meiri
spenningi fyrir áhorfend-
urna, ef keppendurnir hefðu
verið úr andstæðum félög-
um.
Andrés Guðnason.
^ÆfNDIK^JIlKYmUGM
IÞAKA.
Fundur í kvöld
kl. 8,30. Kosnir fulltrúar
til umdæmisþings.
iarðsláttuvé
Stunguskóflur.
Stungugaflar.
Garðhrífur.
Á. Einarsson & Funk.