Alþýðublaðið - 10.06.1947, Side 4
4
ALÞÝÐjJBLAÐIP
Þriðjudagur 10. júní 1M7
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Fr.kv.stj.: Þorvarður Ólafsson.
Auglýsingar: Emiiia Möller.
Framkvæmdastjórasími: 6467.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Á hætlulegri braui
ÚRSLIT ALLSHERJAR-
ATKVÆÐAGREIÐSLUNN-
AR um tillögu sáttanefndar-
innar til lausnar á Dagsbrún
ardeilunni urðu þau, að
meirihluti verkamannanna,
sem til atkvæðagreiðslunn-
ar mættu, vísaði tillögunni
á bug. Dagsbrúnarverkfallið,
sem hófst á laugardaginn,
heldur því áfram, og virð-
ast allar líkur á, að það verði
langvinnt.
Því er ekki að neita, að
úrslit allsher j ar atk væð a-
greiðslunnar komu mjög á ó-
vart. Þess var vissulega að
vænta, að reykvískir verka-
menn skildu það, að nauð-
syn ber til þess að koma í
veg fyrir hvers konar aukn-
ingu dýrtíðarinnar og verð-
bólgunnar, ef hægt á að vera
að halda atvinnuvegum þjóð
arinnar gangandi. Ný kaup-
skrúfa leiðir af sér nýja flóð
öldu dýrtíðarinnar. Verði
ekki nú stungið við fótum í
dýrtíðarmálunum, mun þess
skammt að bíða, að fram-
leiðslukostnaðurinn verði
það mikill, að ekki takist að
selja afurðir okkar á erlend-
um markaði, og gefur þá að
skilja, hvernig komið sé hag
lands og þjóðar.
Mdirihluíii Dagsbrúnar-
manna virðist því miður ekki
vilja átta sig á þessum stað-
reyndum, þótt þær liggi í
augum uppi, ef á annað
borð er að þeim gætt. Hann
virðist vilja lifa í þeirri
blekkingu, að vaxandi dýrtíð
sé þjóðinni hættulaus. Verka
mennirnir, sem greiddu at-
kvæði á móti tillögu sátta-
nefndarinnar, hafa að sjálf-
sögðu gert það í þeirri trú,
að þeir gætu knúið fram
launahækkun. En þeir hafa
ekki viljað hugleiða, hverj-
ar yxðu afleiðingarnar af
nýrri kaupsbrúfu. Það sann
ast á þeim sem öðrum, að sá
er eldurinn heitastur, sem á
manni sjálfuim brennur. En
áframhald kaupskrúfunnar
er áreiðanlega skammgóður
vermir. Verkamönnum er ó-
hætt að gera sér þess fulla
grein, að viðleitni núverandi
rikisstjórnar til að koma í veg
fyrir kauphækkun og nýja
flóðbylgju verðbólgunnar
stafar ekki af því, að hún
unni þeim ekki kjarabóta.
En það eru takmöirk fyrir
öllu, einnig því, hvað hver
og einn þegn þjóðfélagsins
getur borið úr býtum. Fari
svo, að verðbólgan og dýrtíð
Smekklegir náungar. — Sorphaugar við þjóð-
vegi. — Vegurinn í Hvalfirði. — Of mjóar brýr.
— A O.A. — Valið ranft.
EINHVERJIR smekklegir ná
ungar eru farnir að búa til sorp
hauga meðfram þjóðvegum.
Milli Ölfusrétta og Kamba er
að myndast stór sorphaugur
rétt við veginn og ægir þar
mörgu saman. Ekki veit ég
hver hefur staðið fyrir þessu
mannvirki, en mér er sagt að
íbúar Hveragerðis standi fyrir
því, að vísu ekki allir, heldur
einhver þeirra. Eins er á Hellis-
heiði. Þar er kominn allálitleg-
ur sórphaugur svo að segja nýr,
sem er þarna til augnagamans
og smekkbætis fyrir vegfar-
endur.
JÁ, SMEKKUR MANNA er
misjafn og tiltektir þeirra
margvíslegar. Ég vil mælast til
þess að nú þegar verði þeim,
sem hafa komið upp -þessum
haugum, gert að skyldu að fara
með þá á einhvern afvikinn
stað á eigin kostnað og undir
eftirliti. Verstur er haugurinn
við Ölfusréttir og væri vel ef
yfirvöldin í Hveragerði reyndu
að kippa þessu í lag án frekari
aðgerða.
VEGURNN í HVALFIRÐI er
vondur, svo að segja ófær á
köflum. Virðist sem ekkert hafi
verið gert við hann hérna meg-
in fjarðarins eftir veturinn og
skil ég ekki í öðru en ófærðin
geti valdið slysum, ef ekki er
bætt úr þessu. Vegurinn hinum
megin Hvalfjarðar er miklu
betri, enda virðist hafa verið
unnið í honum. Ný brú er nú
að koma á Hvalfjarðarveginum
og er hún hin myndarlegasta.
Enn hefur hún þó ekki verið
tekin í notkun.
OFT HEFUR VERIÐ talað
um brýrnar á vegunum og þá
sérstaklega fundið að því, hvað
mjóar þær eru. Enn eru brýr
hafðar miklu mjórri en vegirn-
ir og er það undarleg aðferð.
Almennir vegfarendur skilja
ekki hvers vegna brýrnar eru
hafðar svona, því að varla
munar það svo miklu í kostn-
aði. Annars er þetta heldur að
batna, en þó ekki nóg.
AMERÍSKA FLUGFÉLAG-
IÐ, sem heldur uppi flugferð-
um um Keflavíkurflugvöllinn,
hefur sætt allmikilli gagnrýni
undanfarið og meðal annars
hér í dálkunum. Ástæðan hefur
verið sú, að mjög erfiðlega hef-
ur gengið fyrir íslendinga að fá
flugfar héðan til Norðurlanda.
Nú tilkynnir félagið að bót
verði ráðin á þessu. Aukaf'erð
verður farin á morgun og tekur
flugvélin 25 farþega, en fram-
vegis verða íslendingum ætiuð
6 sæti, en áður aðeins 2. Það er
að segja, að 6 sæti verða alltaf
til fyrir menn héðan, en bau fá
meðal annars útlendingar, sem
hér dvelja og þar á meðal
starfsmenn erlendra ríkja, en
þeir munu oft hafa verið látnir
ganga fyrir um far.
EN HVAÐ, SEM ÞVÍ LÍÐUR
þá er þetta mikil bót í máli, og
er vel, þegar fyrirtæki bregðast
svona fljótt og vel við til að
bæta úr misfellum. Þetta mun
og hafa stafað af einhverjum
misfellum á rekstri félagsins og
sambandi þess við skrifstofu
þess hér. Að líkindum verða
þessi 6 sæti alltaf skipuð fólki
héðgn, svo mjög hefur verið
kvartað undanfarið um vöntun
á fari.
VERKAMENNIRNIR í Dags
brún hafa nú valið. Að líkind-
um verður verkfallið langt og
erfitt. Með taumlausum tylli-
boðum og blekkingum um hið
raunverulega ástand hefur
kommúnistum tekizt að fá
meirihluta að sínum vilja. Og
verkamennirnir hafa ekki bor-
ið gæfu til að sjá rétt.
Guðmundur Gíslason Hagalín
hefur óskað þess g-etið, að
Stefán Einarsson prófessor í
Baltimore telji sig sjálfur
fæddan 7. júlí 1897, en ekki 9.
júlí.
Islendingasögurnar
127 sögur og þættir, 13 bindi í góðu skinn-
bandi fyrir aðeins kr. 423,50.
Þar af 33 sögur og þættir, sem ekki eru í
fyrri heildarútgáfum og 8, sem aldrei hafa
verið prentaðar áður.
Því aðeins eignist þér allar íslendingasög-
umar, að þér kaupið þessa útgáfu.
Gerist áskrifendur. Vitjið bóka yðar í bóka
verzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1
A
Isíendingasagnaúfgáfan
Pósthólf 73. Reykjavík.
Tennis
Þið, sem ætlið að iðka tennis á vegum fé-
lagsins í sumar, talið við skrifstofuna í Í.R.-hús-
inu þriðjudag og miðvikudag kl. 7—9 e. h.
NEFNDIN
Aðalfundur
Vélstjórafélags íslands
verður haldlim miðvikudaginn 11. júní 1947 í
Tjarnarkaffi. — Fundarefni: Aðalfundarstörf.
Mætið stundvíslega og skilið atkvæðaseðmm.
Stjórnin.
V E VI
U M ■
GODAOO
I Jð:l «I
Tökum fram
á þriðjudag.
in sligi atvinnulíf þjóðarinn-
ar, verður hækkað kaup
verkamönnum og launþegum
til handa aðeins Pyrrhusar-
sigur. Eins og framleiðslu-
kostnaði okkar og sölumögu-
leikum er nú háttað virðist
full ástæða til þess að ætla,
að með slíku væri verið að
spenna bogann of hátt. Því
miður er ekki hægt að loka
augunum fyrir því, að reyk-
vískir verkamenn ganga til
deilunnar, sem Dagsbrún á
nú í, fremur af kappi en for-
sjá. Þeir munu komast að
raun um þetta síðar, en ekki
er ráð nema í tíma só tekið.
*
Vinnudeila Dagsbrúnar er
hafin að fyrirmælum Komm
únistaflokksins og á að verða
vatn á myllu hans. Komm-
únistum hefur tekizt að telja
verkamönnum trú um þá
blekkingu, að hið pólitíska
verkfall Dagsbrúnar sé kjara-
deila, hem hafi verið hafin
með hagsmuni þeirra fyrir
augum. Verkamenn eiga á-
reiðanlega eftir að sannfær-
ast um, að svo er ekki. Verk
fall Dagsbrúnar verður áfall
fyrir þjóðfélagið í heild. En
það verður sér í lagi áfall
fyrir verkamennina sjálfa.
Ef reykvískir verkamenn
berjast í bökkum með þeim
launum og þeirri atvinnu,
sem þeir njóta nú, þá gefur
að skiija, hverjar verði af-
leiðingarnar af langvinnu
verkfalli fyrir þá. Slíkt æv-
intýri getur orðið til stund-
arhags fyrir Kommúnista-
flokkinn. En það er ævintýri,
sem getur kostað þjóðina
fjárhagslega afkomu sína og
verkalýðinn atvinnu sína um
ófyrirsjáanlega langan tíma.
Og það eru þung gjöld.
*
Auðsöfnun íslenzku þjóð-
arinnar og velmegun þégn-
anna á styrjaldarárunum
kom til vegna óvenjulegs og
óheilbrigðs ástands í heimin-
um. Þessi viðhorf gerbreyttu
högum íslendinga, en færðu
okkur að höndum ógæfu dýr
tíðarinnar og verðbólgunn-
ar. Nú er íslendingum hollt
að hyggja að því, að svo
kann að fara, að flóðbylgja
dýrtíðarinnar og verðbólg-
unnar skoli burtu á skömm-
um tíma auði þjóðarinnar og
velmegun þegnanna. íslend-
ingar geta ekki í framtíðinni
dansað kringum gullkálf og
tilbeðið hann eins og ísraels
menn forðum. Þeir verða að
vinna og framleiða og miða
kröfur sínar á hverjum tíma
við afkomu þjóðarinnar. En
beri þjóðin ekki gæfu til
þess að sameinast um lausn
þeirra vandamála, sem nú
steðja að, er hún að grýta á
glæ því, sem unnizt hefur.
Og afleiðingarnar af slíkri
ráðsmennsku yrðu þungbær-
astar fyrir alþýðustéttirnar.
Þetta þurfa reykvískir verka
menn að gera sér ljóst, áður
en svo langt er komið á ó-
heillabrautinni, að ekki
verði við snúið.