Alþýðublaðið - 27.06.1947, Blaðsíða 7
Föstudagur 27. júní 1947
ALfc&ÝÐUBILAÐIÐ
Næturlæknir er í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavík-
urapóteki.
Næturakstur féllur niður.
Leiðrétting-.
Sú meinlega prentvilla var í
auglýsingunni um fyrirlestur
A. Waerlands að þar stóð kl.
2,30, en átti að vera kl. 20.30.
Farþegar með TF—RVH Heklu
til Noregs og Svíþjóðar þ.
26/6. Til Sola, Stavanger: Ing-
rid Markan, Sigurður Markan.
Til Stokkhólms: Jón Þorsteins-
son, Auður Jónsdóttir, Erla
Guðmundsdóttir, Gerður Sig-
fúsdóttir, Guðbjörg Guðjóns-
dóttir, Guðrún Nielsen, Guðrún
H. Norðdahl, Jón Björnsson,
Grete Björnsson, Jensína Guð-
mundsdóttir, Katrín Ármann,
Málfríður Jónsdóttir, Sigríður
Bjarnadóttir, Sigurveig Jóns-
dóttir, Soffía Stefánsdóttir,
Svanfríður Eiríksdóttir, Þóra
Stefánsódttir, Jón Guðmundss.,
Baldvin Árnason, Anna Jóns-
dóttir, Sigríður Jónsdóttir, Jón-
as Jónsson, Hjörleifur Bald-
vinsson, Borgþór Jónsson, Ósk-
ar Halldórsson, Grétar Sigurðs-
son, Guðmundur Guðmundsson,
GunnlaugUr J. Briem, Ingólfur
Guðnason, Kjartan B. Guðjóns
son, Sigurður Hallbjörnsson,
Sigurjón Guðmundss., Tryggvi
Haraldsson, Sveinn Þorvaldss.,
Selma Kristiansen, Fríða Ey-
kjörð, Sigurður Ingason, Martin
Bartels.
Fyrstu sumarleyfis-
ferðir Ferðafélags-
ins
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
efnir 'til fyrstu sumarleyfis-
ferðarinnar á þessu sumri á
laugardaginn kemur. Farið
verður norður í land. Komið
verður meðal annars að Mý-
vatni, Dettifossi, og Ásbyrgi.
Farið verður í Axarfjörð og
víðar.
Þá efnir ferðafélagið til
tveggja helgarferða um
þessa helgi. Verður önnur
ferðin til Heklu, en hin á
Botnssúlur.
Eisenhower verður
forsefi Columbia-
háskolans
/
!
Tímarii með menn-
ingarbrag
Allar sfærðir
af bleyjubuxum.
Gammosíubuxur
r i
iOÍAOG
1 :i
Lætur af herfor-
ingjaembætti
á næsta ári.
Alþýðublaðið
Úfbreiðið
EISENHOWER, hinn frægi
yfirhershöfðingi Bandaríkja-
manna og Breta í Evrópu á
ófriðarárunum, sem nú er
forseti herforingjaráðs Banda
ríkjamanna, hefur þekkzt
boð Columbiaháskólans í
New York ríki, að taka við
forsæti hans, sennilega á
næsta ári.
Eisehhov/er hefur í sam-
bandi vð þetta skýrt frá því,
að hann hafi tekið ákvörðun
sína með vitund og sam-
þykki Trumans Bandaríkja-
forséta og Pattersons her-
málaráðherra, en það er enn
undir þeim komið, hvenær
Eisenhower verður leystur
frá störfum í herforingjaráði
Bandaríkjanna og hvenær
hann þar af leiðandi getur
tekið við hinu nýja embætti,
SÍÐAST LIÐINN VETUR
hóf nýtt tímarit göngu sína
hér í bæ. Ritið er mánaðar-
rit, sem nefnist Syrpa, og er
ritstjóri þess ungfrú Jó-
hanna TCnudsen hjúkrunar-
kona. Af Syrpu eru nú kom-
in út þrjú hefti, og leikur
ekki á tveim tungum, að hér
er á ferðinni rit, sem að efn-
isvali, fjölbreytni og smekk-
legum og vönduðum frá-
gangi tekur fram öllu því,
sem hér er á boðstólum af
sliku tagi.
Sem dæmi um efnisval
Syrpu má nefna, að hún
birtir í hverju hefti greinar
um íslenzkt mál, um bygg-
ingarmál og húsakost og um
manneldi, sem ritaðar eru af
færustu mönnum. Þá eru í
ritinu greinar um uppeldis-
mál, um heimilismenningu,
um samtök kvenna í áfeng-
ismálum, þjóðlegur fróðleik-
ur, bréfadálkur, þýddar sög-
ur, ritdómar um bækur,
karladálkur og dægradvöl.
Auk þessa er ritið prýtt
fjölda mynda og teikninga.
Frágangur Syrpu er alíur
svo sem bezt verður á kosið
og ekkert til sparað að gera
hana sem bezt úr garði.
Ég tel það íslenzkri kven-
þjóð til sóma, að svo mynd- 1
arlega er farið af stað um
útgáfu þessa kvennarits. Og
ég vil með bessum línum
vekja athygli kvenna á rit-
inu og benda þeim á, að með
því að gerast kaupendur að
Syrpu styrkja þær gott og
þarflegt rit, sem vafalaust
mun stuðla að aukinni menn
ingu og verða þeim til gagns
og ánægju, ef því endist ald-
ur. Íslenzkar konur mega
ekki láta það ásannast, að
Syrpa muni ekki eiga langt
líf fyrir höndum, vegna
þess að of mikill menmingar-
bragur sé á henni, eins og
greindum manni varð að
orði, er ritið bar á góma.
Kristín Ólafsdóttir.
Jarðarför föður okkar og afa,
Jóns Gnnnarssonar,
fer fram frá dómkirkiunni laugardaginn 28. juní og
hefst með bæn kl. 1 á heimiii okkar, Kjartansgötu 4.
Rósmunda, Gunnjóna og börn.
'Œu.
Öllum vinum okkar og kunningjum, nær og fjær,
vottum við okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
vináttu og hluttekningu við andlát og jarðarför
Sigríðar Magnúsdóttur
frá Haukadal.
F. h. aðstandenda.
Marsibal Ólafsdóttir. Magnús Richardson.
Truman neilar að
slaðfesia lögln um
hækkaðan ullar-
loll.
sem
þó að líklegt þyki, að það
■ ■Jtt* ■ n ■ ■ ■
Þrióju iogin,
hann neitar aÓ
staófesta.
TRUMÁN BANDARIKJA-
FORSETI neitaði í dag að
staðfesta lög Bandaríkja-
þingsins um hækkaðan inn-
flutningstoll á ull. Eru þetta
þriðju lögin, sem hann neit-
ar að staðfesta.
verði einhvern tíma snemma
á næsta ári.
- Skemrntánir dagsim -
Kvikmyndir:
Forsetinn færði það fyrir
meitun sinni, að hækkun inn-
flutningstolla á ull myndi
spilla fyrir viðskiptum
Bandaríkjanna við aðrar
þjóðir og þýða skref í ein-
angrunarátt á efnahagslegu
sviði. Hafði og Marshall, ut-
anríkismálaráðherra hans áð-
ur bent á það, að hækkaður
ullartollur myndi spilla mjög
fyrir viðskiþtum Bandaríkj-
anna við þrjú samveldislönd
Breta, Ástralíu, Nýjá Sjá-
land og Suður-Afríku, sem
öll flytja út ull í stórum stíl.
Frá 9. þingi Lands-
sambands iðnað-
armanna.
GAMLA BÍÓ: ,,Heimkoman“.
Dorothy Mc Cuire, Cuy
Madison, Robert Mitchum,
Bill Williams. — Sýnd kl.
5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Glæpur og Jazz“
— Noah Beery jr., Claudia
Drake, Coleman Hawkins og
Oscar Pettíford. — Kl. 5, 7
‘ og 9.
TJARNARBÍÓ: ,Ævintýradrós‘
— Miriam Hopkins, Francis
Dee. — Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: „Friðland ræn-
ingjanna", Randolph Scott
Ann Richards'. Sýnd kl. 7 og
9.
HAFN ARF J ARÐ ARBÍÓ: „síð-
asta vonin“, Jolin Hoy, Ray
Reagan, Louisa Rossi, sýnd
- kl. 7 og 9.
Söfn og sýningar:
SÝNING Nínu Sæmundsson í
Listamannaskálanum.
Opið kl. 10 árd. til 10 síðd.
Skemmfislaðir:
DÝRASÝNINGIN í Örfirisey
opin frá kl. 8 árdegis.
Dansleikur eftir kl. 10 síðd.
SKEMMTISTAÐURINN Tivoli
opinn kl. 2—11.30.
Samkomuhúsin:
HÓTEL BORG: Dansað frá kl.
9—11.30. Hljómsveitarstjóri:
Karl Billicli.
BREIÐFIRÐ'INGABÚÐ: Verzl-
unarskólaselið: Dansleikur
kl. 10 síðd.
TJARNARCAFÉ: Dansað frá
kl. 9—11.30.
INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl. 9
árdegis. Hljómsveit frá kl.
10 síðd.
Útvarpið:
20.30 Útvarpssagan: „Grafinn
lifandi", eftir Arnold
Bennett, VIII (Magnús
Jónsson prófessor).
21.00 Strókkvartett útvarps-
ins: Sígild smálög.
21.15 Erindi: Landbúnaðarsýn
ingin , (Steingr. Stein-
þórss. búnaðarmálastj.).
21.40 íþróttaþáttur (Brynjólf-
ur Ingólfsson cand. jur.).
22.05 Kórsöngur og orgeltón-
leikar í Dómkirkjunni.
— Lög eftir Kristin
Ingvarsson: a) Dóm-
kirkjukórinn syng'ur. b)
Einleikur á orgél (Krist-
inn Ingvarsson).
22.35 Tónleikar: Lög
Mozart (plötur).
eftir
Verzlunarjöfnuður-
inn í maí óhagstæð-
um nálega 7 millj.
I MAÍMÁNUÐI nam and-
virði útfluttra íslenzkra vara
samtals 27 663 380 krónum,
en verðmæti innfluttra vara
33 566 680 krónum. Hefur
verzlunarjöfnuðurinn í þess-
um mánuði því orðið óhag-
stæður um nálega 7 milljónir
króna.
Helztu vörutegundirnar
voru óverkaður saltfiskur
fyrir rúmar 7 milljónir
króna, ísfiskur fyrir nálega 4
milljónir króna, freðfiskur
fyrir nálega 7 milljónir, lýsi
Yestmannaeyjum, 22/6 1947.
IÐNÞING íslendinga, hið
9., var sett í Vestmannaeyj-
um laugardaginn 21. júní kl.
4 sd. Forseti Landssambands
iðnaðarmanna, Helgi H. Ei-
ríksson, setti þingið með
ræðu, þar sem hann rakti
störf Landssambands iðnað-
armanna á undanförnum ár-
um, en þennan dag fyrir 15
árum síðan var Landssam-
bandið stofnað.
Um 40 fulltrúar frá iðnað-
arstéttum víðs vegar af land-
inu voru mættir á þinginu.
Um kvöldið minntist
stjórn Landssambandsins 15
ára afmælis þess mieð sam-
eiginlegri kaffidrykkju í
hinum vistlega salarkynnum
Sámkomuhússins, þar sem
margar snjallar ræður voru
fluttar, og menn skemmtu
sér við söng og rabb.
í samsætinu afhenti for-
maður Iðnaðarmannafélags-
ins í Vestmannaeyjum, fyrir
hönd félagsins, Landssam-
bandinu að gjöf stóra og
veglega innrammaða lit-
mynd af eyjunum. Á nm-
gjörðinni er silfurplata, þar
sem grafið er nafn gefandans
og Landssambandsins.
Á sunnudaginn gengu
þingfulltrúar allir í kirkju
og hlýddu messu sóknar-
prestsins, síra Halldórs Kol-
beins, er minntist þinghalds-
ins og iðnaðarmanna á mjög
viðfslldinn og skörulegan
hátt, svo þingfulltrúum
hlýnaði um hjartaræturnar.
Mörg heillaóskaskeyti bár
ust þinginu frá velunnurum
iðnaðarmanna, m. a. frá iðn-
aðarmálaráðherra, Emil Jóns
syni.
fyrir rúmar 2 mlljónir, síld-
arolía fyrir rúrnar 2 milljón-
ir, fiskimjöl fyrir rúma 1
milljón og sildarmjöl fyrir
rúmar 2 milljónir króna.