Alþýðublaðið - 27.06.1947, Síða 8

Alþýðublaðið - 27.06.1947, Síða 8
r Laugavegi 74. mD&F/SMJX" Smurt brauð og snyttur. Föstudagur 27. júní 1947 Adolf Busch sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar FORSETI ÍSLANDS sæmdi þann 25. þ. m. fiðlu- leikara Adolf Busch riddara- krossi Fálkaorðunnar. Adolf Busch hefur unnið íslenzku tónlistarlífi ómetan •legt gagn með komum sín- um hingað til lands. ------------♦--------- 170 þús, krónum jafnað niður á 150 gjaldendur í Hveragerði Frá fréttaritara Alþýðublaðs- ins, HVERAGERÐI. NÝLEGA er lokið niður- jöfnun útsvara í Hveragerð- ishreppi. Jafnað var niður 170 000 krónurm á 150 £jald endur. Hæsti útsvarsgreiðandinn í hreppnum er útibú Kaup- félags Árnesinga með 12 000 krónur. Aðrir hæstu útsvars greiðendur eru þessir: Verzlunin Skemman 10 000 kr., Ingmar Sigurðsson 6 000 kr., Halldór Gunn- laugsson 4 290 kr., Ólafur Jóhannsson 3 980 kr., Aðal- steinn Steindórsson 3 400 kr., Hallgrimur H. Egilson 2 940 kr., Gunnlaugur Schev .ing 2 800 kr., Stefán J. Guð- mundsson-2 620 kr., Gunnar Björnsson 2 510 kr. og Sig- iurður Elíasson 2 450 krónur. Maður bíður bana við mógrafarvinnu '--—• Á LAUGARDAGINN vildi það slys til, að mókvísl stakkst í auga manns og lézt maðurinn af þeim áverka á þriðjudagskvöldið. Maðurinn, sem fyrir kvísl- inni varð, hét .Pétur Guð- björnsson frá Sandi á Snæ- fellsnesi. Var hann að vinna að mógreftri, en annar mað- ur kastaði upp úr gröfinni. vSvo slysalega tókst til, er móhnaus klofnaði á kvísl- inni, að ein álman lenti í auga Péturs og mun hafa snert heilann. Var Pétur fluttur í flug- vél til Reykjavíkur, en þar Iézt hann á þriðjudagskvöld- ið eins og áður segir. ---------------------- Henrik 5v. Björnsson r sendiráðsrifari Is- lands í Oslo ÞANN 19. júní var Henrik Sv. Björnsson, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu, skipað ur fyrsti sendiráðsritari við sendiráð íslands í Osló frá 1. júlí að telja. Affur í Ameríkuferðum Sfefan Isfandi syngur hér mánudaginn Pólska farþegaskipið ,,Batory“, sem hélt uppi Ameríku- ferðum frá Gdynia fyrir stríð, með viðkomustað í Kaup- mannahöfn, hefur nú hafið þær á ný, og var þessi mynd tekin af því, þegar það kom til Kaupmannahafnar nýlega í fvrstu ferðinni vestur um haf. Afmælismót I.R. um helgina: Bezfu frjálsíþróffamenn okk- ar keppa við sænsku gesfina ------*----- ðslenzku þátitakendurnir í mótinu eru alls 55 frá 6 félögum. Hefur fengið tilbeð frá óperunni í París um að syngja þar í vetur. ---------1--------- STEFÁN ÍSLANDI er kominn heim í sumarleyfi sínu frá konunglegu óperunni í Kaupmannahfn, en þar hefur hann starfað frá því, er hann kom úr söng- för sinni með Karlakór Reykjavíkur um Vesturheim. Tíðindamaður Alþýðu- blaðsins hitti söngvarann að máli í gær og spurði hann frétta. „Ég er heldur fréttafár. Ég hef sungið við konung- legu óperuna í Höfn í vetur; „Hvað hafið þer alls sung- söng þar aðaltenórhlutverk- in í óperunum „Tosca“ og „Cavaleria Rusticana“. Og í vor söng ég í „TivoIi“, hinum fræga skemmtistað Kaup- mannahafnarbúa.“ ið mörg hlutverk við kon- unglegu óperuna?“ „Mig minnir, að þau séu níu talsins. Ég hef sungið aðáltenórhlutverkin í öllum helztu ítölsku óperunum, I sem þar hafa verið sýndar á AFMÆLISMÓT ÍR fer fram á sunnudag og mánudag, og keppa þar allir beztu frjálsíþróttamenn okkar við hina sænsku gesti, þá Lennart Atterwall, Anton Bolinder, Ro- land Nilsson, Roland Sundin og Curt Lundquist. Islenzku keppendurnir á mótinu eru alls 55 frá 6 íþróttafélögum og íþróttasamböndum. Alls verður keppt í 15 íþróttagrein- um á mótinu, á sunnudaginn í 200 metra hlauni, hástökki, kúluvarpi, 1000 metra hlaupi, kringlukasti, stangarstökki og 1000 metra boðhlaupi, en á mánudaginn í 100 metra hlaupi, hástökki, kúluvarpi, 2000 metra hlaupi, spjótkasti, 400 metra hlaupi, langstökki og 4x100 metra boðhlaupi. í 200 metra hlaupi keppir lenzka methafann Gunnar Curt Lundquist við íslenzka methafann Finnbjörn Þor- valdsson og bræðurna Hauk Clausen og Örn Clausen. í hástökki keppir Evrópumeist arinn Anton Bolinder við ís- lenzka methafann Skúla Guð mundsson og fjóra aðra unga og efnilega hástökkvara. í kúluvarpi keppir Evrópu- meistarinn Gunnar Huseby við Roland Nilsson og auk hans fimm íslendinga, þar á meðal Vilhjálm Vilmundar- son KR og Sigfús Sigurðs- son Selfossi. í 1000 mietra hlaupi keppir Roland Sundin við átta íslendinga, þar á meðal ÍR-ingana Kjartan Jó- hannsson og Óskar Jónsson, en Kjartan er íslenzki met- hafinn. í kringlukasti keppir Roland Nilsson við fimm ís- lendinga, þar á meðal ís- Huseby og fyrrverandi met- hafa, Ölaf Guðmundsson ÍR. í stangarstökki keppa sex íslendingar og í 1000 metra boðhlaupinu 5 sveitir, 2 frá KR, 2 frá ÍR og 1 frá Ár- manni. í 100 metra hlaupi keppir Curt Lundguist við sömu ís- lendinga og keppa á móti honum í 200 metra hlaupinu, þá Finnbjörn, Hauk og Örn. Keppendur í hástökki og kúluvarpi á mánudaginn verða hinir sömu og á sunnu daginn. í 2000 metra hlaup- inu keppir Roland Sundin við sjö íslendinga, þar á með al Óskar Jónsson ÍR, Þorð Þorgeirsson KR og Ármenn ingana Hörð Hafliðason og Sigurgeir Á.rsælsson. í spjót kasti keppir Evrópumeistar- inn Lennart Atterwall við þeim tíma, sem ég hef starf- að þar, og auk þess i óperunni „Carmen“ eftir Bizet. Fyrst í stað söng ég hlutverk mín á ítölsku, en eftir að ég varð fastráðinn við óperuna, varð ég að syngja á dönsku.“ „Og hvað er nú fram und- an næsta vetur?“ „Ég er fastráðinn við kon ungl. óperuna næsta leik- tímabil, en skömmu áður en ég fór frá Höfn, barst mér til boð frá óperunni í París um að syngja þar Tyrri hluta næsta vetrar. Af því mun þó ekki geta orðið, þar eð æf- ingar við óperuna í Höfn hefjast 10. ágúst. í fyrra fékk ég leyfi frá starfi þar um nokkurn tíma, vegna vesturfararinnar með Karla kór Reykjavíkur, og kann því ekki við að biðja um slíkt aftur í haust. Annars er til- boð þetta einstækt, því nú sem stendur er mikið um á- gæta söngvara og tónlista- menn, sem hafa við lítið að vera, þar eð flest söngleikhús Þýzkalands og víðar um Mið- Evrópu eru annaðhvort í rúst um, eða geta ekki boðið sex íslendinga, þar á meðal Jóel Sigurðsson ÍR og Hjálm ar Torfason HSÞ. í 400 metra hlaupinu keppir Curt Lund- quist við sjö íslendinga, þar á meðal íslenzka methafann Kjartan Jóhannsson. í lang- stökki keppa 10 íslendingar, þar á meðal methafinn Oli- ver Steinn. I 4x100 metra boðhlaupinu keppa fimm sveitir, 2 frá KR, 2 frá ÍR og 1 frá Ármanni. Mótið hefst klukkan 4 síð- degis á sunnudaginn og klukkan 8,15 síðdegis á mánu daginn. Stefan Islandi þeim viðunandi starfskjör.“ ,,Og nú eruð þér í sumar- leyfi.“ „Já. Raunar ætla ég að syngja hérna á mánudaginn, en svo fer ég norður á Skaga fjörð. Þar er ég fæddur og uppalinn og þar á ég alltaf heima. Ég dvel nokkrar vik ur um kyrrt á Sauðarkróki. Þar fæ ég lánaða skektu og ræ til þorskveiða, — ef veð- ur leyfir. Betri skemmtun þekki ég ekki. í fyrrasumar var ég þar nokkurn tíma, en þá gaf mér ekki á sjóinn nema einu sinni. Þá veiddi ég fjórtán þyrzklinga. En nú vona ég, að ég verði heppnari með gæftir.“ Sem sagt, — Stefan Islandi syngur hérna á mánudaginn. Fyrir fullu húsi, ef svipað verður og þegar hann hefuq áður látið til sín heyra hérna. t fyrrahaust jsöng hann í fimmtíu borgum Vestur- heims, sem einsöngvari Karlakórs Reykjavíkur og hlaut allstaðar hina lofsam- legustu blaðadóma, eins og flestum mun kunnugt, og eru þó' Vesturheimsbúar vanir því bezta á því sviði. Til marks um vinsældir hans hér, má geta þess, að síðan hann kom, hefur blaðinu bor ist fjöldi fyrirspurna um það, hvort hann mundí syngja hér að þessu sinni, og hvar, — og hvenær og hvar aðgöngumiðar yrðu seld- ir. — Fertugsafmæli. Ásta Guðmundsdóttir, Suð- urgötu 33 í Hafnarfirði, gjald- keri Verkakvennafélagsins Framtíðin, er 40 ára í dag.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.