Alþýðublaðið - 26.08.1947, Síða 2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞriSjudagur 26. ágúst 1947.
LÖGTAK.
Eftir kröfu Trygginga-
stofnunar ríkisins og að
TÍndangengnum úrskurði
uppkveðnum 25. þ. m.,
verða lögtök látin fara
fram, á kostnað gj aldenda,
til (tryggingar ógreiddum
slysatryggingariðgjöldum
fyrir árið 1946, að átta dög
um liðnum frá birtingu þess
arar augiýsingar.
Borgarfógetinn
í Reykjavík.
Þriggja sfofu íbúS
með eidhúsi og öllum lífs-
ins þægindum á hitasvæð-
inu við Rauðarárstíg er til
sölu. íbúðin' er samboðin
hverjum þjóðhöfðingja.
Nánari upplýsingar gefur
Pétur Jakobsson,
Kárastíg 12. Sími 4492
Þvottamiðsföðin
Borgartúni 3.
Sími 7263.
Tökum blautþvoít.
Gúmmí-
■'V iV'
viogeroir
teknar aftur fyrst
um sinn.
Gúmmífatagerðin
Vopni,
Aðalstræti 16.
Ms. Dronning
Alexandrine
■fer til Færeyja og Kaup-
mannahafnar um 3. sept. n.
ik. Þeir, sem fengið ihafa lof-
orð fyrir fari sæki farseðla í'
■dag fyrir kl. 5 síðd. annars
seldir öðrum. Íslenzkir ríkis-
borgarar sýni vegabréf árituð
•af Iögreglustj. Erlendir ríkis-
borgarar sýni skírteini frá
Boi’garstjóraskrifstofunni.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Erlendur Pétursson.
Avarp um
r
Fjársöínun til Islendingahúss
í Kaupmannahöfn
-----------«-----------
í SLENDINGAR í KAUPMANNAHÖFN hafa löngum
fundið tii' þess, að mikil þörf væri á samastað þar í borg, sem
orðið gæti miðstöð islenzks félagslífs og athvarf íslenzkra
manna og kvenna, sem þar ættu langa eða skamma vist.
Margir Hafnar-íslendingar hafa lengi haft áhuga á þessu
máli og rætt það sín á milli, og á fundi 14- febr. 1945 ákáðu
stjórnir íslendingafélagsins og Félags íslenzkra stúdenta í
Kaupmannahöfn að stofna „Byggingarsjóð íslendinga í
Kaupmannahöfn“ og gengu frá stofnskrá hans.
í 2. gr. stofnskrárinnar segir svo:
„Markmið sjóðsins er að afla fjár til byggingar
húss, eða til kaupa á húsi í Kaupmannahöfn, er verði
samastaður íslendinga. Þar er ætlazt til að verði
bústaðir handa námsfólki, vistarverur handa gamal-
mennum, bókasafn, lestrarstofa o. fl.“
Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun, sem stjórnað er af 5
íslendingum, búsettum í Danmörku. Ríkisstjórn íslands, eða
fulltrúi hennar í Danmörku, tilnefnir endurskoðanda sjóðs-
ins, og skal haft samráð við hana um allar framkvæmdir
sjóðsins.
Vér undirritaðir höfum tekið að oss að verða fulltrúar
í nefnd, sem annast skal fjársöfnun hér á landi til Bygging-
arsjóðs íslendinga í Kaupmannahöfn. Þó að mikil breyting
sé nú s orðin frá þeim tímum, þegar allir íslendingár, sem
utan fóru til náms, leituðu til Kaupmannahafnar, þá er hitt
víst, að enn um langan aldur mun mdkill fjöldi íslendinga
dveljast í Kaupmannahöfn nokkurn hluta ævi sinnar. ís-
lenz-ka „nýlendan“ í Kaupmannahöfn er elzta, og mun lengi
verða stærsta, íslendingabyggðin á meginlandi Evrópu.
Nauðsyn þess og gagnsemi, að íslendingar eignist þar sama-
stað, ætti því að vera hverjum íslending augljós.
Vér vonumst því til, að allir íslendingar bregðist nú vel
við, þegar til þeirra er leitað um aðstoð til þess, að íslend-
ingar í Danmörku — æskulýður og gamalmenni — eignist
heimkynni, alíslenzkan samastað, sem orðið geti þeim í senn
til hjálpar og stuðnings í margvíslegum erfiðleikum og tengi
liður við ættland s;tt, tungu sína og þjóðerni- íslendingar
í öðrum löndum hafa löngum sýnt vilja og áhuga á því að
halda órofnum tenpslum við ættjörð sína. íslenzka þjóðin á
að sjá sóma sinn í því að styðja þá viðleitni eftir fremsta
megni.
Reykjavík 18. júní 1957.
Ólafur Lárusson
prófessor, formaður
Villijálmur Þór
forstjóri, gjaldkeri
Stefán Jóh. Stefánsson
forsætisráðherra
Þorsteinn Sch. Thorsteinson.
lyfsaii, varaformaður
Jakob Benediktsson
cand. mag., ritari
Guðmundur Vilhjálmsson
forstjóri.
Benedikt Gröndal
forstjóri
Vér undirritaðir mælum með framanskráðri áskorun:
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ, Bjarni Ásgeirsson, atvinnu-
málaráðherra, Davið Ólaísson, fiskimálastjóri, Einar Árna-
son forseti SÍS. Einar Olgeirsson, form. Sósíalistaflokksins,
Eysteinn Jónsson, menntamálaráðherra, Geir Hallgrímsson,
form. Stúdentaráðs, Guðmundur Hlíðdal, póst- og síma-
málastjóri, Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, Hallgrímur
Benediktsson, form. Verzlunarráðs, Helgi H- Eiríksson,
form. Landssambands ísl. iðnaðarmanna, Helgi Elíasson,
fræðslumálastjóri, Hamann Guðmundsson, forseti Alþýðu-
sambands íslands, Hermann Jónasson, form. Framsóknar-
flokksins, Jón Ásbjörnsson, forseti hæstaréttar, Jón
Pálmason, forseti sameinaðs alþingis, Jónas Þorbergs-
son útvarpsstjóri, Kjartan Thors, formaður Vinnuveit-
Mikið fjölmenni við
úfför séra Ólafs
Magnússonar.
ÚTFÖR séra Ólafs Magnús
sonar, fyrrverandi prófasts í
Arnarbæli í Ölfusi, fór fram
síðast liðinn laugardag, að
viðstöddu miklu fjölmenni.
Séra Ólafur var jarðsettur að
Kotströnd í Ölfusi.
Auk sóknarbarna hans og
sveitunga voru viðstaddir
jarðarförina fjöldi manna úr
öllum nálægum hreppum og
frá Reykjavík. Þar á meðal
mættu 14 prestar klæddir í
hempu, og báru nokkrir
þeirra kistuna úr kirkju.
Húskveðju flutti að Öxnalæk
séra Sigurður Pálsson í
Hraungerði, en í kirkju töl-
uðu Sigurgeir Sigurðsson
biskup, séra Helgi Sveinsson,
sóknarprestur í Hveragerði,
og séra Guðmundur Einars-
son, prófastur að Mosfelli er
jarðsöng. Söng anngðist
kirkjusöngflokkur Ölfusinga
undir stjórn Kjartans Jóhann
essonar og nokkrir menn úr
Karlakórnum „Fóstbræður“
í Reykjavík undir stjórn Jóns
Halldórssonar.
Eftir jarðarförina var öll-
um viðstöddum boðið til veit
inga heim að Öxnalæk, og
þáðu þar mikill fjöldi fólks
raUsnarlegar veitingar.
Fulltrúafundur
Norðurlandafélag-
anna.
=
FULLTRÚAFUNDUR
Norrænu félaganna allra
hefst 31. ágúst í Hindsgavls-
höll aðsetri Norræna félags-
ins í Danmörku. Enginn full-
trúi fyrir Norræna félagið
hér mun geta farið héðan
að heiman til þess að mæta
á fundinum, en Tryggvi
Sveinbjörnsson sendiráðs-
ritari í Kaupmannahöfn
mun mæta fyrir félagið. For
maður mótsms verður
Bramsnæs bankastj. danska
þjóðbankans.
'
Kaupum fuskur
Baldursgötu 30.
Munið Tivoli.
Minningarspjöld
Jóns Baldvinssonar forseta
fást á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Alþýðuflokksins.
Skrifstofu Sjómannafélags
Rvíkur. Skrifst. V. K. F.
Framsókn, Alþýðúbrauðg.,
Lvg. 61 og í verzl. Valdimars
Long, Hafnarfirði.
Þríhjól
Hlaupahjól
Rugguhestar,
Hjólbörur,
Bílar, stórir,
. Brúðuvagnar o. fl.
K. Einarsson
& Björnsson h.f.
Brunabófafélag
íslands.
vátryggir allt lausafé
(nema verzlunarbirgðir).
Upplýsingar í aðalskrif-
stofu, Alþýðuhúsi, (sími
4915) og hjá umboðs-
mönnum, sem eru í
hverjum kaupstað.
endafélags íslands, Kristján Guðlaugsson ritstjóri, Lúðvík
Guðmundsson, varaíorseti Stúdentasambands íslands, Ól-
afur Thors, form. Sjálfstæðisflokksins, Páll S. Pálsson, form.
Stúdentafélags Reykjavíkur, Pálmi Iiannesson, rektor, Sig-
urður Guðmundsson, form. Bandalags ísl. listamanna, Sig-
urður Guðmundsson, ritstjóri, Sigurgeir Sigurðsson, biskup,
Stefán Pétursson, riístjóri, Steingrímur Steinþórsson, bún-
aðarmálastjóri, Sverrir Júlíusson, form. Landssambands ísl.
útvegsmanna, Valtýr Stefánsson, ritstjóri, Þórarinn Þórar-
insson, ristjóri.