Alþýðublaðið - 26.08.1947, Side 3
Þriðjudagur 26. ágúst 1947.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
Skýrsla Landsbanka íslands:
áfkoma þjóðarinnar árið 1946
ÁRIÐ SEM LEIÐ var mjög
hagstætt að því er snertir
verðlag á útflutningsafurð-
unum og gekk sala þeirra yf-
irleitt vel, þó að leita þyrfti
nýrra markaða fyrir sumar
helztu afurðirnar. Innanlands
var meira fjör í atvinnu og
viðskiptum en nokkru sinni
fyrr, og þjóðartekjurnar,
reiknaðar í krónum, munu
hafa náð nýju hámarki á ár-
inu. En samfara þessari vel-
gengni varð mikil breyting
til hins verra á gjaldeyris-
stöðunni, og voru horfurnar
á því efni orðnar mjög í-
skyggilegar í árslok. í byrj-
un ársins nam erlend eign
bankanna, að meðtöldum bið-
pundum en að frádregn-
um ábyrgðarskuldbindingum
þeirra, 435 millj. kr., en í lok
ársins var hún komin niður í
163 millj. kr., og þar af voru
131 millj. kr. bundnar á ný-
byggingarr eikning.
Á tímabilinu 1940—1944
varð að meðaltali 115 millj.
kr. aukning árlega á gjald-
eyriseign bankanna, og náði
hún hámarki í lok nóvember-
mánaðar 1944 með 586 millj.
kr. (að frá dregnum ábyrgð-
arskuldbindingum, sem
munu þá hafa numið tæplega
50 millj. kr.). Þessi gjaldeyr-
iseign stafaði bæði af tekjum
frá setuiiðinu og af hagstæð-
um viðsklptaástæðum út á
við á þessu tímabili. Hið síð-
ar nefnda var aðallega fólgið
í því, að verðlag útflutnings-
afurðanna steig yfirleitt
miklu meira en verð að-
keyptrar vöru, og jafnframt
sköpuðust möguleikar fyrir
fullkominni og hagkvæmri
nýtingu á framleiðslutækj-
um landsmanna. Verzlunar-
jöfnuður þessa fimm ára tíma
bils var 3o vísu ekki jákvæð-
ur nema um 58 millj. kr., en
það gefur ekki rétta mynd af
viðskiptastöðunni út á við,
þar sem bæði í sambandi við
útflutninginn og innflutn-
ingnn voru miklar duldar
tekjur. Séu þær reiknaðar
með kemur í ljós, að útflutn-
ingstekjurnar þessi ár hafa
verið 210—220 millj. kr.
hærri en gjöldin vegna inn-
flutnngsins. Halli á öðrum
liðum greiðslujafnaðarins, að
frá teknurn setuliðstekjun-
um, hefur varla numið háum
fjárhæðum. Hin hagstæða
viðskpitaaðstaða, sem landið
átti við að búa á þessum ár-
um, kemur enn greinilegar
fram, þegar þess er gætt, að
talsvert *hf innflutningnum
gekk beint til þarfa setuliðs-
ins, að notkun landsmanna
sjálfra á erlendum vörum,
bæði til neyzlu og verklegra
framkvæmda óx mjög mik-
ið, og loks að útflutningur-
inn hefur sennilega orðið
eitthvað meiri, ef erlent setu-
lið hefði ekki dvalið í land-
jnu.
Á árinu 1945 urðu þátta^
skil í gjaldeyrismálunum. í
stað aukningar á gjaldeyris-
eigninni varð þá um 100
millj. kr. lækkun á henni, og
stafaði það aðallega af stór-
auknum innflutnngi. Árið
sem leið keyrði um þverbak
í þessu efni, en þá lækkaði
gjaldeyriseign bankanna, að
frá dregnum ábyrgðarskuld-
bindingum þeirra, um 272
millj. kr., og var það rúmlega
helmingur erlendu inneignar
SKÝRSLA LANDS-
BANKA ÍSLANDS fyrir
árið 1946 er nýlega út kom
in og hefur inni að halda
mikinn og margvíslegan
fróðleik um atvinnulíf og
fjárhag þjóðarinnar á síð-
astliðnu ári.
innar í byrjun ársins. Kaup
bankanna á erlendum gjald-
eyri voru 324 millj. kr. og
var það^álíka há upphæð og
árið áður, en salan nam 324
millj. kr. og var það álíka há
upphæð og ánið áður, en
salan nam 581 millj. kr., á
móti 427 millj. kr. 1945. Hall-
inn á greiðsluviðskiptunum
við útlönd verður ekki
skýrður með því að vísa til
þelirrar ‘auknu þarfar fyrir
gjaldeyri, sem leiðir af ný-
byggingu atvinnuveganna.
Upphæðin, sem notuð var af
nýbyggingarreikningi á ár-
inu, 127 millj. kr., var aðeins
tæpur helmingur þess mis-
munar, sem var á gjaldeyris-
sölu og kaupum bankanna,
og hann samsvaraði ekki
nema 22% af upphæð selds
g.jaldeyris á árinu. Kröfurnar
til gjaldeyrisyfirvaldanna um
gjaldeyri til greiðslu á hvers
konar innflutningi og til ann-
arra þarfa voru gegndarlaus-
ar, og hlaut svo að vera vegna
hins stórfellda jafnvægis-
leysir, sem er á miíli verðlags
og tekna hér á landi annars
vegar og í viðskiptalöndun-
um hins vegar. Þetta mis-
ræmi var tilfinnanlegra á ár-
inu sem leið en áður, og var
ástæðan m. a. sú, að víða er-
lendis var létt á útflutnings-
hömlum og í staðinn lagt allt
kapp á að auka útflutninginn
sem mest, til að bæta gjald-
eyrisstöðuna og flýta þannig
fyrir viðreisninni. Innflutn-
ingsskýrslurnar bera það
með sér, að stórfelld aukning
hefur orðið á innflutningi
neyzluvara og þeirra „kapí-
tal“-vara, sem eru undirstaða
neyzlu, og er það, ásamt mik-
illi notkun gjaldeyris til ann-
ars konar neyzlu, aðalorsök
hallans á greiðsluviðskiptun-
um við útlönd. Getur þetta
engan veginn samrýmzt
þeirri stefnu, sem tekin hef-
ur verið í nýbyggingarmál-
um, því að hún er því að eins
framkvæmanleg, að dregið sé
til muna ur neyzlunni frá því
sem verið héfur síðustu árin.
Erfiðleikarnir, sem verið hafa
á öflun f jár til nýbyggingar-
innar, benda ákveðið til þess,
að sparnaðurinn sé ekki
nærri nógu mikill til, að ný-
byggingarframkvæmdirnar
geti orðið að veruleika, án
þess að fjárhag landsins sé
stefnt í voða. Áuk þess eru
horfurnar í afurðasölumál-
um allt annað en glæsilegár
þegar frá líður og þyrfti með
hliðsjón af því að auka sparn
aðinn og draga úr ótímabærri
fjárfestingu, til þess að kom-
izt verði hjá yfirvofandi
öngþveiti á sviði gjaldeyris-
málanna.
Á stríðsárunum var, eins
og vænta mátti, nær öll utan
ríkisverzlunin bundin við tvö
lönd, Bretland og Bandaríkin.
Útflutningsframleiðslan fór
svo að segja öll til Bretlands
samkvæmt heildarsamningi
milli ríkisstjórna landanna.
Fljótt eftir að stríðinu lauk,
vorið 1915, hófst útflutningur
til meginlandslanda, og var
hann talsverður þegar á því
ári, en aðalumskiptin urðu
þó, þegar tók fyrir sölu á
freðfiski til Bretlands frá
byrjun árs 1946. Tókst í stað-
inn að finna markaði á megin
'landinu fyrir freðfisk. Jafn-
framt var á ný tekin upp salt
fiskframleiðsla í allstórum
stíl, aðallega vegna þess að ís
fiskmarkaðurinn í Bretlandi
þrengdist til muna frá því,
sem áður var. Markaður fvr-
ir saltfisk var sama og enginn
á stríðsárunum og þurfti því
að snúa sér til hinna gömlu
kaupenda að þessari vöru.
Ýmsar aðrar afurðir, sem áð-
ur höfðu aðeins verið seldar
til Bretlands og Bandaríkj-
anna, voru nú jafnframt flutt
ar til meginlandslanda, oft
vegna þess að þar fékkst
hærra verð fyrir þær. Sum
hinna nýju viðskiptalanda
gátu ekki greitt afurðir, sem
þær vildu kaupa, öðru vísi en
með vörum, og þurfti þá að
gera viðskiptasamninga við
þau. Vörukaup frá sumum
meginlandslöndunum voru
þannig afleiðing af útflutn-
ingi þangað, en frá öðrum
löndum þar var beypt tals-
vert af vörum gegn greiðslu
í sterlingspundum, vegna
þess að þær fengust þaðan
með betri kjörum en fáan-
leg voru annars staðar. Hlut-
ur meginlrndslanda af út-
flutningnum 1946 varð
hvorki meiri né minni en
48 % af verðmæti hans, en
31% af innflutningnum kom
þaðan, enda er hann venju-
lega lengur að laga sig eftir
breyttum aðstæðum en út-
flutningurinn-
Opnun meginlandsland-
anna og matarskorturinn,
sem alls st iðar er fvrir hendi,
hafði það í för með sér, að
útflutningsafurðirnar seld-
ust yfirleitt fyrir hærra verð
en árið áður En þar á móti
kom talsverð verðhækkun á
aðkeyptri vöru og varð henn
ar alls staðar vart, en þó eink
um á vörum, sem fluttar voru
inn frá löndum á meginland-
inu- Verður bví að svo komnu
ekkert sagt um það, hvort
verðhlutfall útfluttrar og að-
keyptrar vöru hefur breytzt
landinu í vil á árinu, eða
hvort breytingin hefur geng-
ið í hina áttina. Auðsætt er,
að verðið, sem útflytjendur
fá. fyrir afurðir, sem seldar
eru samkvæmt jafnvirðis-
kaupasamningi, er ekki rétt
ur mælikvarði á hag íslends
af afurðasölu til viðkomandi
lands. Það, sem hér skiptir
máli, er, hve mikið af nauð-
synjavöru er hægt að fá frá
viðkomandi landi fyrir tiltek
ið magn af útflutningsvör-
um, enda séu þær seljanlegar
þar. Sumum hættir til að
gera of mikið úr söluverði af
Frh. á 7. síðu.
Danssýning, söngur
eftirhermur, gaman
þættir og leikþáttur
Fjölbreytt
skenimtiatriöi.
Dansað til kl. 1
)ar seldir
dag í
S j álf stæðishúsinu
MwmMm gerl á uin 101
jörðum á iiMafissvæÍiny
-----------«$>--
Framkvæmdirnar hafa kostað um
1,5 miilj. kr.
ENDURRÆKTUN hefur.
farið fram á um 150 hekt-
urum lands á öskufallssvæð-
inu, eða um það bil á 100
jörðum. Hefur nú verið varið
um hálfri milljón króna til
þessara framkvæmda, það er
til endurreisnar túna á ösku-
fallssvæðinu og til varnar
fyrir áframhaldandi eyðilegg
ingu af völdum öskufallsins.
Nefnd sú, sem landbúnað-
arráðherra skipaði á sínum
tíma til aðstoðar bændum á
öskufallssvæðinu, en í henni
eiga sæti Steingrímur Stein-
þórsson búnaðarmálastjóri,
formaður, Pálmi Einarsson
landnámsstjóri og Geir G.
Zoega vegamálastjóri hefur
nú að mestu lokið störfum.
í skýrslu nefndarinnar um
starfsemina á öskufallssvæð-
inu segir m. a.:
Endurræktun lands var
framkvæmd á ca. 100 jörð-
um á svæðinu. Endurrækt-
aðir voru 150 ha. lands.
Hafði nefndin 27 dráttarvél-
ar á leigu til þessara fram-
kvæmda, auk þess var unnið
nokkúð með Jeppabifreiðum
að ræktuninni- Nefndin lagði
til ræktunarinnar grasfræ og
sáðhafra, svo og áburð, en
bændur lögðu fram vinnu
sína við dreifingu áburðar,
sáningu og aðra vinnu við
frágang ræktunarinnar.
Neyzluvatn tók af 8 bæj-
um í Fljötshlíðinni vegna
þess, að lækir, sem neyzlu-
vatn var tekið úr, hafa til
þessa verið með vikuríram-
burði. Voru því strax i apríl
fyrir atbeina nefndarinnar
settar upp bráðabirgðaleiðsl-
ur frá öruggum vatnsbólum.
Var 8 býlum látin þessi hjálp
í té, og voru í bráðabirgða-
leiðslur þessar notaðar
gúmmíslöngur um tveggja
kllómetra langar, þar sem
ekki reyndist unnt að fá aðr-
ar leiðslur hentugri eða ó-
dýrari.
Rafstöðvar urðu ónothæf-
ar á mörgum bæjum, er
höfðu vatnsaflstöðvar. Feng-
inn var sérfræðingur frá raf-
magnseftirliti ríkisins til at-
hugunar á þeim og leiðbein-
ingar um endurbætur á
þeim.
Öskuhreinsun var íram-
kvæmd allmikið á túnum í
Fljótshlíð og undir Vestur-
Eyjafjöllum, og auk þess fór
mikil vinna í að hreinsa burtu
vikurskafla umhverfis bæina
þar sem vikurinn hlóðst upp
í sköflum. í þriðja lagi báru
lækir ojf þverár fram vikur,
svo að farvegir fylltust, og'.
framburður var stórfelldur
yfir nytjalönd, tún og engj-
ar. Varð stöðugt að vinna
með jarðýtum til að halda
farveginum opnum til að
hindra frekari stórskemmdir
af tilfiutningi þeirra á vikri
yfir nytjalöndin. Öskuhreins
unin var framkvæmd að
nokkru leyti með sjálfboða-
liðsvinnu, en að nokkru leyti
var hreinsunin gerð með vél-
um, einkum jarðýtum.
Nefndin kostaði flutning
sjálfboðaliðs frá Reykjavík,
Frh. á 7. síðu