Alþýðublaðið - 05.10.1947, Page 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
SDDDDdaanr, 5. oW. 194Z.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Bitstjóri: Stefáu Pjetursson.
Fréttastjóri: Beneðikt Grönðal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasimi: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Pólitisk straumhvörf
í Danmörku.
ÞAÐ getur varla verið
efamál, að fall „vinstri"
stjórnarinnar í fyrrinótt og
fólksþingskosningarnar, , sem
samtímis ... voru boðaðar,
sennilega. síðast í þessum
mánuði, þýði pólitísk straum
hvörf með hinni dönsku
frændþjóð okkar.
❖
Við síðustu fólksþingskosn
ingar, sem fóru fram fyrir
svo að segja réttum tveimur
árum, eða meðan hugirnir
voru enn í æsingu eftir hið
þýzka hernáni, tókst komm-
únistum að sundra svo röð-
um danska Alþýðuflokksins,
að hann tapaði átján sætum
í fólksþinginu af sextíu og
sex, sem hann hafði áður,
og taldi sér ekki fært að
taka á sig stjórnarmyndun.
Varð sundrungarstarf og
vinningur kommúnista því
til þess eins, að alþýðan
missti stjórnartaumana í
Danmörku og mynduð var
bændaflokksstjórn, hin- svo-
kallaða „vinstri" stjórn ynd-
ir forsæti Knud Kristen-
sens, sem síðan hefur farið
með völd, studd af hinum
borgaraflokkunum, íhalds-
flokknum og róttæka flokkn,
um.
Þessi stjórn hefur frá
upphafi haft andúð danskrar
alþýðu. En hún hefur einn-
ig orðið stuðningsflokkum
sínum vonbrigði, ekki hvað
sízt róttæka flokknum, sem
fyrir stríðið sat í stjórn,með
Alþýðuflokknum undir for-
ustu Thorvalds Staunings og
átti virðingarverðan þátt í
þeim stórfelldu efnalegu
framfiirum og félagslegu um
bótum, sem á þeim árum
gerðu Danmörku að fyrir-
myndarlandi. Undir hinni
borgaralegu stjórn Knud
Kristensens hefur Danmörk
dregizt aftur úr í þeim efn-
um. Stjórnin hefur reynzt
úrræðalaus gagnvart hinum
efnahagslegu vandamálum,
sem að hafa steðjað eftir
stríðið og gjaldeyrisforði
þjóðarinnar gengið til þurrð
ar, þó að lítið eða ekkert
hafi verið gert til þess að
rétta þjóðarbúskapinn við
eftir hernámið og búa í hag-
inn fyrir framtíðina. Með
réttu hefur því Hans Hed-
toft, forustumaður danska
Málverk, sem taka mann til sín. — Vinna á við
kynningu. — Hvað kosta túrarnir? — Skóla-
stúlta gerir við ullarsokka- — Berklavamardag-
urinn er í dag.
ÉG FÓR f FYRRADAG að
skoða málverkasýningu Sigurð-
ar Sigurðssonar í Listamanna-
skálanum. Þegar ég kom inn
virtist mér myndirnar gráar,
sveipaðar þoku' og engin þeirra
greip mig sterkum tökum.
Þetta kom -mer á óvart, því eg
vissi, að Sigurður Sigurðsson
Iiafði unnið að myndum sínum
af frábærri elju og fórnfýsi. Ég
spurði sjálfan mig: Eru mynd-
irnar 4 raun og veru þannig? —
Svo gekk ég um salinn, skoðaði
og horfði á þær. Smátt og smátt
hvarf gráminn og þokan. Nýir
litir birtust, nýr himinn og ný
jörð, ný hús og ný vötn — og
allt varð nýtt fyrir mér.
ÉG ER LEIKMAÐUR og ekki
gagnrýnandi. Ég segi frá þeim
áhrifum, sem ég verð fyrir á
málverkasýningum. Ég dvaldi á
sýningunni í eina klukkustund
og mér þótti því vænna um
myndirnar, sem ég dvaldi þar
lengur. Og ég hefði horft Iengur
á þær, hefði mannfjöldinn ekki
verið svo mikill,' að maður gat
ekki notið listarinnar til fulln-
ustu.
ALLAR MA'NBIR Sigurðar
Sigurðssonar eru „kultiverað-
ar“. t>ær eru vel unnar. Það er
auðséð að listamaðurinn hlífir
ekki sjálfum sér, að hann
hrekkur ekki undan fyrir erfið-
leikunum, að hann ræðst gegn
þeim og starfar, stritar, leggur
alla sál sína fram til þess að ná
því bezta, sem liann sér og finn-
ur.
SIGURÐUR SIGURÐSSON
er ekki af þeim skóla, sem
gerir kröfur til þess, að hann sé
sjálfur hæstiréttur um allt, sem
að list lýtur. Þess vegna stekk-
ur hann ekki burt frá fórnar-
kröfunum, þeytir penslinum
stefnulaust og af handahófi um
léreftið og öskrar framan í okk-
ur „Þetta er list, þó að þið skilj-
ið þáð ekki!“ Hann vinnur og
starfar, ann sér ekki hvíldar,
■fórnar samkvæmt kröfum list-
árinnar, gefur sér ekki frí fr
stritinu. Hann er góður lista-
maður og sannur. Ég vil hvetja
ykkur til að sækja ’ þessa mál-
verkasýningu, en þið megið
ekki dvelja þar skamma stund,
því að myndirnar ,,taka“'ykkur,
,„gefa“ ykkur fró og unað, '.og
hvort tveggja því meir sem þið
horfið lengur á þær.
KUNNUR BORGARI hringdi
til mín í gær og sagði: „Blöðin
eru alltaf að tilkynna hvað tog-
ararnir hafi selt fisk sinn fyrir
mikið. En hvers vegna skýra
þau ekki um leið frá því, hvað
hver túr hefur kostað?- Það er
að vísu gaman að fá að vita
fyrir hvað togararnir selja í
hverjum túr, en það er í raun
og veru einskis virði, ef maður
fær ekki uSh leið að vita, hvað
túrarnir kosta. Fólk getur hæg-
lega fengið alranga hugmynd
um það, hvað upp úr hverjum
túr fæst.“
ÞANNIG MÆLTI kunningi
minn. Og þetta er alveg rétt hjá
honum. Sannleikurinn er sá, að
þó að til dæmis Ingólfur Arnar-
son selji vel, eins og það er met-
ið nú, þá er kostnaðurinn gífur-
legur. Æskilegast værif ef við
gætum um leið og við skýrum
frá aflasölunum skýrt frá því,
hvað túrarnir kosta, en því mið-
ur er það enn ekki hægt. Skil
ég þó ekki hvers vegna ekki er
hægt að gera það. Þarna er ekk
ervað fela. Það er líka hagleg-
ast fyrir alla aðila að birta slík-
ar tölur.
-
SKÓLASTÚLKA skrifar á
þessa leið: „Hérna fyrir framan
mig á borðinu liggur hrúga af
leldgömlum, gatslitnum, útlend-
um ullarkvensokkum, sem ég
ætla að reyna að bæta og breyta
í nothæfar skjólflíkur, áður en
veturinn kemur með frost og
fannkynngi. Ullarkvensokkar
eru nefnilega eitt af því marga,
sem nú er ófáanlegt hér á
landi.“
„ÉG HEF OFT heyrt því
fleygt, að ungu stúlkurnar ís-
lenzku kynnu ekki að klæða
sig, þær gengju í næfurþunnum
Fcamhaid a 7. síöu.
verður haldinn í Breiðfirðingabúð í
kvöld kl. 10. Aðgöngumiðasala við
innganginn eftir kl- 8,30.
B. R.
óskast háifan eða allan aaginn.
Upplýsingar í skrifstofunni.
( ON )
aðstoðarlæknis á Kleppi er laus til um-
;sóknar frá 10. nóv. n. k. Lauriakjör sam-
kvæmt launalögum. Til þess er ætl-
azt, ajð aðstoðarlæknirinn starfi jafnframt
við lækningastöð spítalans, ef til kemur.
Umsóknir ásamt upplýsingum sendist til
skrifstofu ríkisspítaianna í Fiskiféiags-
húsinu fyrir 1- nóvember n. k.
3. október 1947.
Stjórnarnefnd ríkisspítalanna.
vantar fullorðið fólk og unglinga til blaðburðar
í þessi hverfi:
Barónsstíg
Grettisgötu
Njálsgötu *
Laugaveg
Túngötu
Mela
Seltjarnarnes
Kleppsholt.
TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA.
Alþýðublaðið. Sími
Alþýðuflokksins, sagt, að hin
borgaralega stjórn hafi ekki
reynzt vandanum vaxin og
að viðreisnarstarfið sé þar
af leiðandi enn óunnið.
❖
En jafnvel þótt óánægj-
an með ,,vinstri“ stjórnina
væri sívaxandi af framan
greindum ástæðum, var það
sérstaklega tvískinnungur
hennar í Suður-Slésvíkur-
málinu, sem nú svipti hana
þeim meirihluta í fólksþing-
inu, sem hún studdist við.
í þessu viðkvæma og vara-
sama máli gekk stjórnin að
minnsta kosti síðan í sumar,
í berhögg við áður yfirlýst-
an þjóðarvilja. Sem kunnugt
er. stóðu allir danskir stjóm-
málaflokkar að þeirri vilja-
yfirlýsingu rétt eftir stríð-
ið, að við suðurlandamærum
Danmerkur yrði ekki hrófl-
að, jafnvel þótt landinu stæði
nú til boða að innlima Suður
Slésvík. Það var þó viður-
kennt af öllum stjórnmála-
flokkum í Danmörku, að
ekkert gæti verið hættulegra
fyrir framtíð dönsku þjóðar-
innar en að fá stórt þýzkt
þjóðarbrot í Suður-Slésvík
inn fyrir landamæri Dan-
merkur. En Knud Kristen-
sen stóðst sem forsætisráð-
herra ekki freistingar hinnar
gömlu stórdönsku stefnu.
Hann hefur upp á síðkastið
farið lítt leynt með það, að
hann stefndi að "innlimun
Suður-Slésvíkur, og það varð
honum að falli. Róttæki
flokkurinn sagði upp stuðn-
ingi siínum við stjórn hans og
tók höndum saman við Al-
þýðuflokkinn um að steypa
henni í fyrrinótt.
*
Það er ekki talinn mikill
efi á því, að danski Alþýðu-
flokkurinn komi sem sigur-
vegari út úr þeim fólksþings-
kosningum, sem nú fara í
hönd. Dönsk alþýða hefur
fengið nóg af stjórn borgara-
flokkanna undanfarin tvö ár,
úrræðaleysi hennar í innan-
landsmálum og ævintýra-
pólitík í Suður-Slésvíkur-
málinu. Og hún veit nú, að
það er aðeins Alþýðuflokk-
urinn, sem tryggt getur
trausta stjórn bæði inn á við
og út á við. Þess vegna mbn
hún í þessum kosningum
fylkja sér einhuga um hann
og ofurselja sundrungarmenn
kommúnista þeirri gleymsku
og fyrirl'iitniingu, /sem íþeir
voru í áður í Danmörku.