Alþýðublaðið - 15.10.1947, Side 3
Miðvikudagur 15. okt. 1947
ALÞYDUBLAÐIÐ
Opið bréf til ungkommúnisfa:
Persónulegar deilur vil ég ekki,
- en rökræður um málefni.
HERRA
JÖNSSON!
GUÐLAUGUR
„Margt kann ek segja tíð-
inda,“ sagði Þórður við Björn
í Bjarnar sögu Hítdæla-
kappa, og komu mér orð
Þórðar ósjálfrátt í hug þegar
ég las þitt seinasta bréf í
Þjóðviljanum 4. október s.l.
Það virðist vera að bera í
bakkafullan lækinn, að ég,
þessi „hugsjónaríki einfeldn-
ingur“, sem er of góður biti í
hundskjaft og þar að auki
blindaður eins og kettlingur,
fari að leggja út í það að
svara slíku gáfnaljósi, sem
þú ert. En í minni sælu ein-
feldni ætla ég nú samt að
gera tilraun til þess.
Ég verð að byrja á því að
segja, að mér finnst umræð-
urnar vera komnar langt út
fyrir það, sem í upphafi var
umræðuefnið, sbr. grein
mína í Alþýðublaðinu þann
27. ágúst s.l., en sú grein
nefndist „Kjörorðin og mark
miðið“. Þær ásakanir, sem
þar eru nefndar án tillits til
nokkurs stjórnmálaflokks,
hefur þú viljað færa yfir á
forustumenn Alþýðuflokks-
ins, og hefur þú gert það að
aðaluppistöðu greina þinna
beggja. Ég hef boðið þér að
ræða þessar aðdróttanir þín-
ar við viðkomandi aðila, en
þú hefur ekki þegið það boð
af ástæðum, sem þér eru
sennilegá betur kun.nar en
mér.
Aðaluppistaða greinar
minnar var hið margum-
rædda „lýðræði“, og talaði ég
þár helzt um kosti þess. Þrátt
fyrir það geng ég þess ekki
dulinn, að lýðræðið hefur
sína ókosti líka. T. d. telja
margir, að Hitler hafi náð
völdum á algerlega lýðræðis-
legan hátt, þegar hann braut
á bak aftur hið gamalkunra
Weimárlýðveldi, studdur af
þáverandi auðmönnum
Þýzkalands. Völd sín. notaði
hann síðan til þess að fyrr-
byggja, að nokkur annar
flokkur kæmist til valda, um
leið og hann leiddi yfir þjóð,
hver vísir af siíkri stefnu sé
að fá fótfestu í austri nú?
Hvað sem um það er, mun
tíminn leiða það í ljós.
Þrátt fyrir þessa ókosti,
sem erfitt mun veröa úr að
bæta, tel ég lýðræðið uppi-
stöðu þess, sem gera þarf, og
þá í þeim anda, sem ég iýsti
í umræddri grein minni 27.
ágúst s.l. — En þetta er að-
eins mitt álit og það sem mér
sjálfum finnst réit
>K
Unnusti Elizabetar kennir sjóliðsforingjaefnuni.
Ég ætla mér ekki að ganga
á snið við þína seinústu grein,
enda þótt það væri sennilega
viturlegast, — að vísu ekki.
fyrir það að o'reinin sé svo I Philip Mountbatten hefur nú, eftir hátíðahöldin í sambandi við trúlofun hans og El-
haldgóð að allt sé þar óhreif- (izabetar prinsessu, tekið upp kennarastarf á ný við sjóliðsforingjaskólann í Wiltshire á
Bretlandi, og því mun hann gegna þar til brúðkaup hans og prinsessunnar fer fram
í nóvember. Á myndinni sést Mountbatten í kennslustund hjá lærisveinum sínum.
anleg orð. Nei, þvert á móti
vegna þess,- að í þeirri grein
fjarlægist þú enn óðum hið
upphaflega umræðuefni.
Andi hinna merkilegu bréfa
þinna virðist bera þess ljósan
vott, að skoðanir þíuar séu
mótaðar að miklu leyti út frá
dægurþrasi dagblaðanna, en
allt of lítið af persónulegum
niðurstöðum sjálfs þín, enda
þót: þú gefir í seinasta bréfi
þínu í skyn, að þú hafir lesið
Karl Marx til grunna.
Ég ætla ekki að sinni að
gera það að þrætuatriði, hvor
okkar hafi lesið meira í rit-
um Karls Marx, enda er mér,
eins og ég hef áður sagt, ekk-
ert um persónulegar ádeilur,
hvort heldur er um að ræða
'flokksmenn eða andstæð-
inga; slíkur málflutningur
fær oftast lítinn hljómgrunn
meðal almennings, sem hugs-
ar málin til grunna. Einnig er
það staðreynd um slikan mál
flutning, að rök eru lítil fyrir
hendi og í öðru lagi lenda
hinar persónulegu ádeilur
venjulega á þeim, sem hefur
pær í frammi.
En um sannleiksgildi at-
riða þeirra, sem þú ræðir úr
sögu verkalýðssamtakanna
vil ég segja þetta eitt: Aflaou
þér upplýsinga frá Öllum hlið
um áður en þú skrifar slíkar
staðhæfingar, sem þú ræðir í
þinni síðustu grein.
Fulltrúafundur KRON gerir sam-
þykktir um skömmíunarmálin.
---------------«-----
99 fylStróar sáto fundinn.
99 FULLTRÚAR sátu hinn árlega fulltrúafund Kaup-
félags Reykjavíkur, sem haldinn var í Iðnó á mánudags-
kvöld. Voru margar tillögur samþykktar á fundinum,
meðal ann-ars um skömmtunarkerfið, hasarblöð, heirnilis-
vélar, lán til Dagsbrúnar og fleira.
Ég vil að lokum taka það
sína og mesfan hluta heims- j fram> sem eg raunar hef sagt
ins allt það bál, sem nær sex (þ-r ^gnrj ag eg er þPSS aibú
ara styrjöld hafði í för með
sér.
Þetta er glöggí dæmi þess,
að í skjóli málfrelsis og rit-
frelsis geta þróazt slíkir
menn og slíkir flokkar, sem
Hitler og flokkur hans, og
unnið það tjón, sem e. t. v.
seint verður bætt.
Getur ekki verið að ein-
inn að ræða við þig á grund-
velli greinar minnar „Kjör-
orðin og markmiðið", en þó
því aöeins, að rætt sé um
málefnin, sem þar er á
minnzt. Pcrsónulegar ádeilur
verður þú að gera þig ánægð-
ar. með að eiga sjálfur.
Eggert G. Þorsteinsson.
eftir Pétur G. Guðmundsson og Gunnar Leijström,
3. útgáfa, breytt, er komin í bókaverzlanir. Verð kr. 22,00
Bantanir sendist útgefanda:
H.F. LEIFTUR.
Tillagan um skömmtunar-
kerfið var sem hér segir:
„Full'trúafundur Kaupfé-
lags Reykjavíkur og ná-
grennis, haldinn 13. okt.
1947, telur að hið almenna
skömmtunarkerfi, er gekk í
gildi um s. 1. mánaðamót, sé
í veigamiklum atriðum stór-
gallað, svo að nauðsyn beri
til að bréyta því. Vill fund-
urinn sérstaklega benda á
eftirfarandi breytingar, er
hann telur mikilvægar.
1. Skömmtun á búsáhöld-
um og vefnaðarvörum verði
aðskilin.
2. Innkaupaheimild fyrir
tilbúnum fatnaði sé þannig,
að einnig verði heimilt að
kaupa fataefni og stakar flík-
ur út á sömu heimildina.
3. Tekið sé tillit til sér-
þarfa verkamanna, sjómanna
og annarra, er stunda vinnu,
sem hefur í för með sér mik-
ið fataslit. Á sama hátt sé
tekið tillit til sérþarfa manna
fyrir vinnuskófatnað. Einn-
ig sé tekið tillit til þarfa
skólabarna í þessu efni.
4. Benzínskömmtuninni sé
breytt þannig, að vörubif-
reiðum, leigubifreiðum og
sendiferðabifreiðum sé
tryggður svo ríflegur skammt
ur, að nægi til hóflegrar
notkunar miðað við stöðuga
atvinnu. Þyki þörf að tak-
marka frekar benzíneyðslu,
verði skammtur einkabif-
reiða minnkaður eða felldur
niður.
5. Skömmtunarseðlar fyrir
matvælum séu þannig prent-
aðir, að hver reitur beri með
sér hvaða vörutegund og
vörumagn fáist út á seðilinn.
Á reiti, sem gilda fyrir vefn-
aðarvörur, búsáhöld og hrein
lætisvörur, sé prentað nafn
vöruflokksins.
6. íslenzkar ullarvörur séu
ekki skammtaðar. -
Þá samþykbti fundurinn
að skora á félagsstjórn að
hætta innflutningi „hasar-
blaða“, en verja innflutnings
leyfum til kaupa á bókum
menningarlegs eðlis.
Um heimilisvélar var sam-
þykkt, að skora á Fjárhags-
ráð að sjá um, að innflutn-
ingur þeirra verði ekki stöðv
aður, meðan engar hömlur
eru settar á innflutning tó-
baks og áíengis.
Þá lýsti mundurnn sig
sarnþykkan ákvörðun félags-
stjórnar um lán til vöru-
kaupa til Dagsbrúnar, og
skoraði á verkamenn 'að
verzla meira hjá félaginu.
Loks taldi fundurinn, að
tillögur Hermanns Jónasson-
ar og Sigtryggs Klemensson-
ar; sem Sigfús Sigurhjartar-
son ftytur.á alþingi, varðandi
skiptingu innflutnings- og
gjaldeyrisleyfa, mundu bæta
úr þeim misrétti, er kaupfé-
lögin hafa búið við í þessu
máli.
vantar fullorðið fólk og unglinga fil blaðburðar
í þessi hverfi:
Njálsgötu
Seltjarnarnes
Kleppsholt.
Tjarnargötu.
TALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA.
Auglýslð í Alþýðublaðinu