Alþýðublaðið - 11.11.1947, Side 4

Alþýðublaðið - 11.11.1947, Side 4
ALÞÝÐUBLAÐBÐ Þriðjudagur 11. nóv. 1947. Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Fingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusimi: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h-f. Tvísöngur komm KOMMÚNISTAR eru kunnir að því að temja sér þann málflutning að segja eitt í dag og annað á morg- un, en það hefur löngum ver ið talið gleggsta dæmið um skoðanaleysi og hringlanda hátt. Málefnalega eru ræður þeirra og skrif flótti frá stað reyndum, en þessa andlegu fátækt sína reyna þeir jafn- an að dylja með stóryrðum um menn og málefni. * Þessi tvisöngur kommún- ista hefur sjaldan eða aldrei komið skýrar í ljós en í sam bandi við umræður þeirra um dýrtíðina og verðbólg- una og hin nýju viðhorf varð andi atvinnumál þjóðarinn- ar. Dag effir dag þreyta iþei-r um þessi efni furðulegan orðaleik í ræðu og riti og hafa í því sambandi efalítið slegið öll sín fyrxii met í þeirri list að segja eitt í dag og annað á morgun. Suma daga mætti ætla að , dís skynseminnar hafi baríð að dyrum hjá kommúnistum og heimamenn borið gæfu til þess að ljúka upp fyrir henni og hlýða á boðskap hennar. Þá flytur Þjóðviljinn fjálg- legar greinar um það, að at- vinnulif okkar sé að hrynja í rústir og atvinnuleysi á næsta leiti, ef ekki verði þeg ar í stað hafizt handa um róttækar og raunhæfar að- gerðiír til lausnar á vanda dýrtiðarinnar og verðbólg- unnar. Þá flytja kommúnist- ar þjóðinni samhljóða boð- skap og hánir ábyrgu aðilar þjóðfélagsins. Þeir virðast í’ senn gera sér vandann ljósan og hafa áhuga fyrir ráðstöf- unum sem til heilla horfi. En 'flesta daga eru komm- únistar í álpgum hins póli- tíska ofstækis og haturs. Þá flytur Þjóðviliinn stórýrtar greinar um, að allt sé í lagi varðandi atvinnulíf og af- komu þjóðarinnar. Þá er dýrtíðin og verðbólgan hiin mesta blessun að þeirra dómi, því að hin háa vísi- tala framfærslukostnaðar og hinn geysilegi framleiðslu- kostnaður á að hafa þau á- hrif eiin, að við getum selt afurðir okkar á erlendum markaði við mun hærra verði en ella! Þá láta komm- únistar stiórnast af ábyrgð- arleysi og fávizku tilhugsun- arinnar um það, að hrun og Öngþvei’ti verði áfall fyrir núverandi stjórnarflokka en vatn á pólitíska myllu þeirra. * .Þanniig er afstaða komm- únista í orði til stærstu vandamála líðandi stundar furðulegasti tvísöngur, sem íslenzk stjórnmálasaga kann frá að greina. En á borði eru Bókmenntakynning Helgafells. — Jón Sigurðsson og Þórbergur. — Snæfellingar fjölmenntu. — Ails staðar er ,,vont fó!k“. — Tíðarspegill. — Dýrtíðin og vélbátaflotinn. — Óþurrkamir og súg- burrkunin. — Talað um flugþjónustu. REYKVÍKINGAR tóku vel hinni fyrstu bókmenntakynn- ingu Helgafells. Um 700 manns hlýddu á lestur Jóns frá Kald- affarnesi og Þórbergs. Jón las kvæffi, þar á meffal eitt gull- fallegt kvæffi eftir Árna Pálsson prófessor, en hann mun hafa gert lítiff aff því að yrkja um dagana. Kvæffi hans kom manni því þægilega á óvart. Undarlegt er það, en kvæffalest ur Jóns Sigurffssonar í stórum sal fyrir fjölda manna verffur bragfflausari og daufari en lest- ur hans á Ijóffum í útvarp. Þetta held ég aff stafi af því aff frammi fyrir fólkinu les Jón al- veg eins og hann les í útvarp, en það er þó allt annað. Tón- tegund hans er sú sama, hann les of lágt og hann hreyfði sig lítiff, aðeins höfuðiff viff og viff. Það á viff í útvarpssal, en ekki frammi fyrir hundruffum áheyr- enda. SNÆFELLINGAR voru fjöl- mennir í húsinu. Þeir munu hafa búizt við að heyra eitthvað fallegt um sig sagt — og þeir fóru víst ekki erindisleysu. Þór- bergur las smákafla á víð og dreif úr hinu mikla verki sínu um ævi Árna Þórarinssonar. Og þar kenndi margra grasa. Gam- anið var stundum grátt, en gaman samt, fullkominn hum- ör, að minnsta kosti fyrir alla þá, sem kunna að lesa og kunna að hlusta. Ég sá Snæfellinga hrista höfuðin hvað eftir annað og einn þeirra, sem sat nálægt mér, skipti litum ótt og títt. EN ÞAÐ ER ÓÞARFI fyrir Snæfellinga að reiðast séra Árna eða Þórbergi. Það hefur nú einu sinni fallíð í hlutskipti þeirra að vera aldarspegill allra. Mér datt í hug að lestri Þórbergs loknum, að svona væri fólk alls staðar. Ekki allt fólk alls staðar, en eitthvað af fólki alls staðar. Séra Árni hefur haft auga fyrir því og skáldskapargáfa hans skýrt það með árunum. Þórbergur síðan fægt þær og í bókinni eignumst við lifandi' persónur, sem við munum aldrei gleyma. — Ég hygg að enginn hafi séð eftir því að koma í Austurbæjarbíó þessa stund. Og vonandi verð- _ur framhald á þessari starfsemi. ÁHORFANDI skrifar: „Nú er kominn nóvember og ekkert heyrist ennþá um tillögur þings og stjórnar um lækkun á dýr- tíðinni. Allir vona að nú líði ekki margir dagar þar til til skarar skríði með aðgerðir móti dýrtíðardraugnum. Mestur hluti af mótorbátaflotanum liggur í sárum, margir með sjóveðum, skuldum hlaðnir yfir höfuð. Eigendur þeirra þora ekkert að gera vegna óvissunnar um framtíðina. Væri þó full þörf á að fara að lagfæra eitthvað fyr- ir vetrarvertíð og má nú engan tíma missa, ef mótorbátaflotinn á almennt að fara á veiðar í vetur.“ „ÚTVEGSMENN hafa setið á fúndi í Reykjavík og rætt vandræðin. Ég veit ekki til fulls hvaða tillögur þar hafa verið samþykktar, en mér finnst að það, sem fyrst og fremst þurfi að gera smáútgerð- inni til góða, sé að lækka dýr- tíðina. í öðru lagi að hjálpa til að leysa bátana undan sjóveð- um. í þriðja lagi að veita þeim einhver skuldaskil eða lög- verndaðan greiðslufrest. Tvö síldarleysissumur hafa skapað mótorbátaflotanum mikla örð- ugleika, svo mikla, að hann al- mennt rís ekki undir þeim erf- iðleikum, nema að honum sé réttur stuðningur. Takmarkið verður að vera að allur flotinn geti verið að veiðum í vetur og íramvegis, þá er eg ekki hræddur við nein gjaldeyris- vandræði. Þessi mörgu og stóru skip okkar hafa mikla mögu- leika til að afla tekna í þjóðar- búið, en umfram alla muni ætti þing og stjóm að taka þessi mál föstum tökum. Það er út af fyrir sig ótækt að ekki skuli vera búið að leysa sjóveðskröf- ur skipanna. Mér er spurn: Á að láta lögfræðinga ná tangar- haldi á kröfunum og á svo að láta bjóða skipin upp og gera þau óstarfhæf í vetur? Þau verða það, ef þessi vandræði verðá ekki tafarlaust leyst. Eft- ir hverju er beðið?“ OG ENN FREMUR skrifar Áhorfandi: „Páll Zóphóníasson var að prédika fyrir bændum eitt kvöldið um fóðrun kúnna í vetur. Var það fróðlegt er- indi, fyrst og fremst fyrir bænd ur og um leið fyrir ýmsa aðra. Það voru stórmerkar upplýs- ingar um gæði töðunnar, s.em var súgþurrkuð í sumar sem Álþýðusamband Suðurlands vill Lækkun íramleiðslukostnaðar með lækkun vísitölunnar Telur gengislækkun ekki ráð til þess að sigrsst á dýrtíðinnf. STOFNÞING ALÞÝÐUSAMBANDS SUÐUR- LANÐS, sem 'haldiS var á Akran'esi dagana 1.—2. nóv- ember, gerði svohljóðandi samþykfct vaTðandi dýrtíðina og rá-ðstafanir til þess áð signast á hættum henmar: „Stofnþing A.S.S. telur, að þegar beri að gera ráð- stafanir til þess að lækka framleiðslukostnað útflutnings- afurða, svo að verð þeirra getx orðið samkeppnisfært við aðrar þjóðir á þeim mörkuðum, sem íeita þarf á. Þingið telur að fyrirsjáanlegt atvinnuleysi sé fram undan, ef ekki teks að auka og efla framleiðslu sjávaraf- urða og tryggja rekstur þeirra atvinnutækja, sem stofn- sett hafa verið í landinu. Síofnþingið telur, að áframhaldandi stöðvun fiski- skipaflotans og þar af Ieiðandi atvinnuleysi muni bitna mest á og koma harðast niður á vimiandi fólki. Telur þingið, að keppa beri að læklsun framleiðslu- kostnaðar á þann hátt, að vísitala lækki, en hlutfall milli kups og verðs innlendra neyzluvara almennings verði ekki óhagstæðara fyrir verkalýðinn en nú er. Til þess að lækka verð útlendra vara viíl þingið benda á þessar leiðir m. a.: 1. Milliliðir verði færri. 2. Fluíningum til landsins verði hagað þannig, að vörumar flyíjist beint til fleiri hafna en nú er. — Telur þingið, að lausn þessara mála fengizt bezt með því, að ríkið taki inn- og útflutningsverzlunina í sínar hendur, en á meðan sú skipan kemst ekki á, sé hlutur S.I.S. í innflutningsverzluninni gerður mun betri en nú er. Þá telur þingið, að nauðsyn beri til að gerðar verði róttækar ráðstafanir nú þegar til íausnar dýrtíðarmál- anna. — En ef færa þarf fórnir til niðurfærslu verðlags- ins í landinu, þá komi þær fórnir á alla þegna þjóðfélags- ins í hlutfalli við getu þeirra, og þá sérstaklega á þá, sem hreiðust hafa bökin. Þingið lítur svo á, að með gengislækkun læknist dýrtíðin ekki og bendir í því sambandi meðal annars á, að þrátt fyrir lággengi á íslenzkum peningum, er dýr- tíðin óvíða meiri en eimnitt á íslandi, og enn fremur, að kjör verkalýðsins batna ekki við aðeins fjölgandi krónur, en þau hatna við vaxandi kaupmáít króiumnar.“ leið. Telur hann þá töðu hafa inni að halda meira fóðurgildi en aðra töðu og sannast nú að sú aðferð að súgþurrka töðuna er rétt leið og ættu búnaðar- frömuðir og aðrir, sem með gjaldeyrismálin fjalla, að ein- beita sér að því að koma sem mestu af slíkum tækjum inn í landið og þá þarf líka að nota þau rétt. Þegar ístenzki bónd- inn hefur sigrazt á óþurrkun- um, þá hefur hann flutt sig um set og unnið stórsigur í barátt- unni við óblíða íslenzka nátt- úru.“ „EN ÉG VIL persónulega þakka þeim mörgu bændum fjær og n.ær, sem senda okkur mjólk nú á markaðinn hingað í bæina. Því að það megum við vita, sem drekkum mjólkina Fcamhald a 7. síöu. þeir hverja stund álagaþræl- ar ofstækisins oh hatursáns og alls óminnuyir boðskap- arins, sem beir bó flytja stundum í orði. í verfci hefur þáttur þeirra í dýrtíðarmái,- unum verið sá einn að efna til pólitískra verkfalla og magna kaupskrúfuna. Flokks þing þeirra, sem lauk störf- um fyrir nokkrum dögum, markaði þá stefnu í þessu efni, að haldiið skyldi áfram á sömu óheillabrautinni og fetuð hefur verið að undan- förnu. Þar var þess krafizt, að ríkiissjóður héldi áfram að ábyrgjast fiskverðið á . sama hátt og á þessu ári. En raun- hæfar tillögur um lækkun framfærslukostnaðarins og niðurfærslu dýrtíðarinnar hafa ekki heyrzt úr þeirri átt. Hin góða dís pclitískrar skynsemi og áþyrgðartilfinn- ingar hefur því áreiðanlegá ekki verið gestur flokks- þingsins. En haldi kommúniistar, að tvísöngur þeirra í orði verðá alvarlega tekinn jafnframt því, sem þeir í verki berjast gegn sérhverri tilraun til lausnar á vanda dýrtíðarinn- ar og verðbólgunnar, fatra þeir áreiðanlega villir vegar. Þjóðinni er ljóst, að lausn þessa vanda þolir enga bið, ef forða á atvinnuleysi og hruni. og hún mun á sínum tíma sækja til ábyrgðar þá j pólitísku ævintýramenn, ,sem kyrja tvísönginn, þegar 'aðgerða er þrýnust þörf.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.