Alþýðublaðið - 11.11.1947, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 11.11.1947, Qupperneq 7
Þriðjudagur 11. nóv. 1947. ALÞÝPUBLAÐIÐ 7 Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir GuHbrandur Magnússon, lézt á Elliheimilinu „Grund“ laugardaginn 8. þ. m. Sigríður Jónsdóttir, Jenny Guðferandsdóttir, Hermann Guðferandsson, Sigrún G. Andersen, Christian Andersen. Eiginmaður minn Ernst Schaal, andaðist 8. nóv. Unnur Auðunsdóttir Sehaal. ta---í-----------------♦ Bœrinn í dag. --------------------- Næturlæknir er í læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er i Laugavegs apóteki, sími 1618. Kaupmenn vilja jólaávexii. FJÖLMENNUR fundur matvörukaupmanna, sem haldinn var fyrir helgina, samþykkti að fara þess á leit váð ríkisstjórnina, að leyfður verði innflutningur nýrra og þurrkaðra ávaxta fyrir jólin, og ennfremur nauðsynlegar matvörur, sem fyrirsjáanlegt er að muni ganga til þurrðar. Fundurinn ræddi einnig tilmæli um að felldur verði niður matmálstími, en vinnu sími síðan styttur að sama skapi, og taidi fundurinn ekki unnt að ganga að því. Þá var rætt um skömmtun á benzíni til sendiferðabif- reiða og mótmælti fundur- inn þeirri skömmtun harð- lega. Grjólkasl í Kamp Knox. í FYRRAKVÖLD köstuðu vandalar einhverjir allstór- um steinum inn um tvo glugga á húsinu Skálholti við Kaplaskjólsveg, brutu rúður og lá váð. að menn hlytu meiðsli af grjótkastinu. Var lögreglan þegar kölluð á vettvang, en illvirkjarnir þá horfnir á hraut, svo að ekk- ert varð við gert. Húsið er í miðjum Kamp Knox og ræki- lega afgirt frá dögum her- námsins, svo að iilvirkjarnir munu hafa verið í kampinum. 700 manns á bók mennlakynn- inpnnl, UM ÞAÐ BIL 700 manns hlustuðu á bókmenntakynn- ingu Helgafells á sunnudag- inn, er þeir Þórbergur Þórð- arson og Jón Sigurðsson skrifstofustjóri lásu upp. Þórbergur las úr bók sinni ,,Hjá vondu fólki“, sem koma mun á markaðinn innan skamms, en Jón las kvæði eftir ýmsa höfunda. Bók- menntakynningunni verður væntanlega haldið áfram inn- an skamms. Jtjórn Félags Vesfur- íslendinga AÐALFUNDUR , Félags Vestur-íslenidiiniga í Reykja- vík var 'hialdi'nn 6. nóv. Stjórn félagsins var 'endurfcosin: Hálfdan Eiríksson 'form. Þórarinn Grimsison Víkingur ritari. Guðni Sigua'ðsson gjaldkefii. Varafoim. Sr. Jak- ob Jónsson. Dáleiðsla oq dáhrif. Framh. af 5 síðu. að slaka á augnvöðvunum. Og þennan hæfileika hafði hann áfram vegna fyrir- brigðis, sem nefnt er „sefjun eftir dáleiðslu“. Klein hefur iðulega um hönd skaðlausa tegund sefj- unar eftir dáleiðslu er hann hefur sýningar fyrir almenn- ing. Hann segir við dáþega: „Þegar þú vaknar, munt þú hafa óstjórnlega löngun til að selja blöð. Þú munt þrífa blaðapakka og reyna að fá alla áhorfendur til að kaupa eitt eintak. Löngunin hverf- ur þegar ég hrópa „kaldur“.“ Þegar dáþeginn vaknaði mundi hann ekkert eftir þess- ari fyrirskipun. En brátt varð hann eirðarjaus. Að lokum sagði hann við vini sína: „Það eru nokkrar stórfréttir í blöðunum. Allir þurfa að lesa þær.“ Hann greip pakk- ann, sem Klein hafði látið leggja á sýnipallinum, hljóp á milli áhorfenda og hróp- aði: „Extra“. Er Klein skip- aði, varð hann sauðalegur á svipinn og settist niður. Allir eru þannig gerðir að hægt er að dáleiða þá, en sumir neita ósjálfrátt að láta undan. Einnig er næmléiki fyrir dáleiðslu mismunandi frá degi til dags. Getur Klein venjulega dáleitt 70%. af þeim sem hann reynir við. Óttaslegið fólk er mjög vel fallið til dáleiðslu. Og af þeim sökum ná lýðæsinga- menn góðum árangri á þeim tímum þegar alþjóð er ótta- slegin. Almennt er gert ráð fyrir að ekki sé hægt að dálejða mann gegn vilja hans, en til eru þó undantekningar. Dá- leiddur maður fæst ekki til að gera neitt, sem stríðir í gegn siðferðisvilja hans ög ekkert, sem getur orðið hon- um háskalegt. Ekki er haégt að tæla stúlku í dáleiðslu og ekkir þýðir að segja dáleidd- um manni að stökkva út um gluggan. Ég hef séð þetta með eig- in augum. Stúlku var skipað að haga sér allmjög ósæmi- lega, og vaknaði hún þegar af dásvefinnum og kenndi óljósrar reiði. Verzlunar- manni var sagt að skrifa und- ir falska ávísun og barðist hann við sefjunina eins lengi og hann gat, en rissaði að Iok um ólæislegt klór. Ekki er rétt að fyrir komi að dávaldur eigi erfitt méð að vekja dáþegann. Jafnvel þótt dávaldurinn dytti dauð ur niður, mundi dáþeginn vakna eftir skamma stund. Sálsýkisfræðingur hefur sagt mér að hann noti dá- leiðslu við sjúklinga sína en vildi ekki láta um það getið. Sjúklingar mundu storma að mér og segja hver í kapp við annan: ,,Látið mig fá sefjun sem varir eftir dáleiðslu svo að ég geti sofið,“ eins og þeir væru að fara í lyfjabúðina og kaupa sér nokkrar aspirins- töflur. Vitaskuld gæti ég sefj að þá svo að þeir gætu sofið, en ég vil fá að vita hvers vegna þeir eiga bágt með svefn. Annars mundi þetta vera eins og fótbrotnum manni væri gefið kvalastill- andi eitur. Aukaþing Alþýðu- sambandsins. Framhald af 1. síðu. frlðarspillir -í einu og öllu. Þá taldi Jón það klofnings- starf að stofna Alþýðusam- band Suðurlands. Virtist hann vera búinn að gleyma því, þegar kommúnistar hér á árunum létu félög, sem þeir réðu. segja sig úr Alþýðu- sambandinu og stofna með sér sambönd utan vébanda þess. Næst talaði Lúðvík Jósefs- son í 45 mínútur, og átti það að heita skýrsla um stétta- ráðstefnuna, en var mest fimbulfamb um ástandið nú og hvaða leiðir í aðalatriðum bæri að fara. Var ræða hans full a'f blekkingum. mótsögn- um og ósannindum um mörg atriði. Mátti helzt skilja af- stöðu Lúðvíks á þá lund, að fulltrúar verkalýðsins ættu að taka höndum saman við þá útvegsmenn, sem mest vilja þrengja' kjör verkalýðs- ins í þeim aðgerðum, sem framundan eru. í hinu orð- inu taldi hann engra aðgerða i þörf, ríkið ætti að taka á- I byrgð á fiskverðinu og sízt lægri en síðast liðið ár. og afurðirnar bæri að selja Rússum og leppríkjum þeirra þær þjóðir myndu borga nógu hátt verð og þar væri nægar vörur að fá, og engu máli skápti, þótt sumar þeirra væru dýrar. Virtist þessi ræða Lúðvíks litla at- hygli vekja. Margir fulltrú- ar stóðu i smáhópum og skröfuðu um önnur mál og létú kenningar ræðumanns sg lilu skipta. Lúðvík er nokkur vorkunn, þótt hann liti hýru auga til Boga í Gerðum og annarra slíkra, þar sem Lúðvík er sjálfur útgerðarmaður og mun eiga við sín vandræði að stríða varðandi útgerðna. Alþýðusambandsþingið • hélt svo áfram störfum í gær og stóð fundur yfir fram á nótt. Fyrsti ræðumaðurinn í gær var Sigurjón Á. Ólafs- son, og ræddi hann ástand og horfur varðandi dýrtíðina, iverðbóíguna og atvinnulífið í landinu. Var ræða Sigurjóns f meginatriðum svar við ræðu Lúðvíks Jósefssonar. Dró Sigurjón ekki dul á að verkalýðurinn yrði að færa nokkrar fórnir í hlut- falli við aðrar stéttir þjóðfélagsins til þess að tryggja atvinnulífið í land inu og þar með að vísu sín- um mesta vágesti, atvinnu- 'leysinu, á bug. Sæmundur Ólafsson og Helgi Hannes- son flettu rækilega ofan af hinu pólitíska verkfallsbrölti kommúniista og misnotkun þeirra á heildarsamtökum verkalýðsins. HANNES Á HORNINU. Frh. af 4. síðu- (þó okkur þyki hún dýr), að margt erfiðið hefur sunnlenzki bóndinn lagt á sig í sumar til að halda lífinu í beljum sínum, sem framleiða hina góðu og okkur ómissandi mjólk. Þetta s.l. sumar var alveg óvenjulegt hér syðra og kostaði bændurna mikið erfiði og fyrirhöfn að ná í hey handa skepnum sínum. Verða þeir nú að bæta upp heyin með rándýrum fóðurbæt- iskaupum. En vonandi fer þetta allt vel, næsta sumar verður gott og þá gleymist erfiði hins mikla óþurrkasumars hér syðra 1947, sem mun vera einsdæmi í meir en 60 ár.“ SNÆ3JÖRN JÓNSSON skrifar: „Fyrir þá, sem ferðast til útlanda og oft eru lítt vanir slíkum ferðalögum, auk þess sem þeim er iðulega ekki önn- I ur tunga töm en móðurmálið, er það mikils virði að hitta fyr- ir lipurð og greiðvikni hjá þeim, er farkosti ráða og um fyrirgreiðslu sjá. Nú hefur um all-langt skeið fjöldi íslendinga ferðazt með vélflugu þeirri, er Flugfélag íslands hefur leigt af Scottish Airlines. Þetta fólk heyri ég mjög róma öll við- skipti við hið skozka félag og starfslið þess.“ „ÁHÖFNIN Á SJÁLFRI flugunni hefur lagt sig fram um að gera farþegunum ferðalagið sem þægilegast og ánægjuleg- ast, þótt mest hafi þar reynt á þernuna. Mun óhætt að full- yrða að Miss MacDonald hafi á unnið sér þakklætishug flestra þeirra með sinni snilldarlegu umhyggjusemi og fyrirmann- legu háttprýði. Sama er að segja um starfsfólk á skrifstof- unni og hótelinu í Prestwick. Þar er lipurð og greiðasemi svo sem bezt verður á kosið. Er það skylt og maklegt að við, sem þessa höfum notið, höldum því á lofti.“ 111 söiu tef-'éi 4na herbengja íbúð við Rauðaránstí'g, 2ja herbengja íbúð við Nesveg, 3j'a herbergja í- búð vi'ð Eskihlíð og lítið ei'nhýlishús við Baldursgötu. Baldvin Jónsson hdl„ Vesturgötu 17, — sími 5545. . TILKY frá Félagi íslenzkra iðnreknda. Fjárhagsráð hefur falið félagi voru að 'sencLa öllum verfcsmi'ðjum á íandinu isfcýnslu'eyðublöð til útfyllinigar. í skýrslum þessum á að láta Fjárhagsráði í té ýmsar upplýsinjgar um hráefnaþörf fynirtæfcjamma o. fl., og geta þau fyrintæki, sem eigi veita þessar upplýsiimgar, éklfci vænzt þess, að fá imnflutmnigs- og igjaldeyri'sleyfi til íramleiiðslu simnar. Þeir venksmiðju'eigendu'r, sem ekfci hafa enn fengið skýrsluformm í hendur, eru beðnir að gera þeigar við- vart til sfcrifstofu vorraa-. Jafnfnamt sfcal vafcin athygli allra skýrisilugefenda á því, iáð frestur til að skila skýrslunum hefur verið fram- lengdur til 20. þ. m. Félag íslenzkra iðnrekenda, Laugaveg 10. — Sími 5730.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.