Alþýðublaðið - 20.11.1947, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 20.11.1947, Blaðsíða 6
6 AUÞYÐUBLAÐSÐ Fimmtudagur 20. nóv. 1947. Á STOPFESTÖÐINNI. g)li ;s:«5 lí' MSU'i .'TT TtJF Það er kalt á stoppestöðinni í dag. Eins og uppi á hájöklum á þoxranum. Þar standa ungir menn, klæddir í skinnfóðraðar hettuúlpur. Með þykka hanzka á höndum og skíðaklossa á fót- um. Þrátt fyrir þennan skjól- góða og skynsamlega klæðnað, er þeim sárkalt. Þeir stappa nið ur fótum og raula ameríska jazzlagleysur til þess að koma aukinni hreyfingu á blóðið við vöðvaáreynslu og endurminn- ingar. Það er kalt. Þarna standa eldri menn með loðhúfur á höfði, ullartrefil \im hálsinn og klæddir svellþykkum stríðs- gróðafrökkum. En þessar skjól flíkur megna samt ekki að úti- loka kuldana og storminn frá líkama þeirra. Þeir berja sér. Og þeir af þeim, sem einhvern tíma hafa verið til sjós eða í vegavinnu, bölva um leið og þeir berja sér. Bölva taktfast við armsveiflurnar og púa. Þeir bölva kuldanum, storminum og þinginu. Sumir bölva strætis- vögnunum og bæjarstjórninni, og minnast um leið á það, að einhverntíma muni hafa komið til mála að reisa biðskýli á þeim stoppestöovum, sem mest eru áveðra. Þeir þykjast hvergi sjá þessi skýli. Einn kemur með þá skýringu, að tillagan hafi kom- ið fram á óhentugum tíma. Slík ar tillögur séu ekki sigurvænleg ar nema undir kosningar. Svo er stjórnmálunum og öllum, sem við þau fást, bölvað lengi og innilega. Jafnvel þeir, sem aldrei hafa verið til sjós taka undir. Svo segir einhver, að sjúkrasamlögin eða Rauði krossinn, já, jafnvel Slysavarna félagið eða Dýraverndunarfé- lagið ætti að hafa forgöngu um byggingu þessara skýla. „Þá fengjum við bara einn merkja söludaginn í viðbót!“ segir ann ar. Og nú er merkjasöludögun- um bölvað. Þá kemur fram sú tillaga, að efna mætti til happ- drættis, en þá segir einn, að þetta sé alltsaman til einskis, því fjárhagsráð muni aldrei veita fjárfestingarleyfi til skýlabygginga. Og um það leyti sem helzt lítur út fyrir, að allur söfnuðurinn sameinist í bæn fyrir f járhagsráði með orða lagi, sem hann álítur til þess henta, kemur lagleg stúlka, á að gizka sextán ára gömul á stoppestöðina. Ljómandi lagleg stúlka, smekklega máluð, með abstrakt varir og expressionist ískar augnabrúnir. Hún er klædd þunnri kápu, er flaksast frá henni og sér í næfurþunnar kjól innanundir, á fótunum ber hún gagnsæja silkistokka og reimaskó, sem virðast vera gexðir úr mismunandi löguðum götum og rifum. Á höfði ber hún hatt, sem situr ofan á koll- lokkunum eins og fugl, sem setzt hefur á þúfu til skammr- ar viðdvalar. Og henni er heitt. Funheitt. Þetta er ein af þeim stúlkum, sem hlýtur að sjóða á í sæmi- lega hlýu veðri. Karlarnir glápa á hana nokkra stund. Svo hætta þeir að berja sér og bölva. Ungu mennirnir hneppa frá sér úlp- unum. Og nú kemur strætisvagninn. Misheyrandi. Bjössi Ef samþykkt verður að brugga öl, sem menn geta orðið fullir af, — og ef það verður selt í öllum búðum, mega þá krakkar kaupa slíkt öl? Þá held ég að yrði nú fjör, maður, í efstu bekkjum barnaskólans! En ef ekki má selja þetta öl nema þetta og þetta gömlum strákum, verða þá allir að sýna einhvert vottorð frá prestinum, sem ætla að kaupa það? Lik- lega. Annars mundu allir strák ar, sem eru það stórvaxnir, svindla eins og á bíómyndirn- ar, sem eru bannaðar fyrir börn. Já, en hvernig fer, ef þeir eldri lána svo þeim yngri vott- orðin sín? John Ferguson: MADURINN I MYRKRINU Hún gekk hljóðlega. út úr herberginu og ég hlýt að hafa sofnað aftur, ;því að það næsta, sem ég heyrði, var, að tveir menn voru að tala sam- an í lágum hljóðum. — — Og þér meiddust sjálfur, meðan ég fór að skoða Iíkið,‘ heyrði ég að dýpri röddin, sem líklega hafði vakið mig, sagði. „Ég tognaði bara í ökla- liðnum“, tautaði hin röddin. ,,Við vissum ekki af hinum í bílnum eða hverrdg hann hafði komizt þangað. En þegar við vorum að snuðra þarna kringum flakið af bílnum, eftir að búið var að flytja iíkð burt, þá tók ein- hver eftir honum, þar sem hann lá fyrir neðan klettinn. Hann hafði legið þarna alla nóttna. Ég ranrí; þegar ég var á leiðinni til 'hans. Það var ekkert; en ég hvíli fót- inn með því að sitja hjá honum, þangað Itil hann kemur til sjálfs sín.“ „Hvað segja læknarnir um hann?“ „Þeir segja; að hann hafi fengið heilahiristinig, og að hægri öxlin sé úr liði og svo þreyta. En hann hafði með- vitund stundarkom • í gær, segir Jones hjúkxunarkona.“ ,;Jæja; það hefði átt að fresta réttarhöldunum þang- að til hann kom til sjálfs sín og hægt var að hafa uppi á Kinloch, ef það verður þá nokkurn tíma.“ ,,En Snargrove; það var ekki minnsti vottur um að hann væri í bílnum; og ég var ekki sjálfur viðstaddur, þegar honum hvolfdi. Sjáðu! Svona vildi það til,“ hélt McNab áfram eftir svohtla stund. ,,Ég átti að hitta Chance við Weslenhanger vegamótin í rökkurbyrjun. En ég var seinn fyrir vegna þess, að bíllinn bilaði hjá þess að bíllinn bilaði hjá Ashford. Þegar ég komst á staðinn, fann ég manninn, sem hafði ekið Chance; hann var með skilaboð frá honum. Ég átti að koma þangað, sem hann hafði skilið við Chance. Ég fór ekki; því að er ég hafði spurt manninn nokk- urra spurninga; þá komst ég að raun um, að Chance hafði haft heppnina með sér og hafði sjálfur ekki komið vegna þess, að hann vissi, hvar maðurinn var, sem við vörum að elta. Svo að ég fór á lögreglustöðina í Seabrook, þar sem ég lét þá vita um þetta, meðan bíllinn tók ben- zín á stöðinni á móti. Þeir á stöðnni hringdu strax í allar áttir, og hinn sniðugi lög- regluþjónn, sem þar var, gerði nauðsynlegar ráðstaf- anr til þess að stöðva allar ferðir frá nærliggjandi höfn- um. Þá fékk hann að vita um hollenzka flutningaskip- ið, sem átti að fara frá Dover kl. 11 um kvöldið, og þá setti hann vörð á veginn. Og svo fékk ég Large til þess að fara með mig til Stelling Minnis. Enn þá vissi ég aðeins nafnið á staðnum; en ekki á mann- inum, þó að ég gæfi lögregl- unni lýsinguna af honum, sem ég hafði fengið frá How- ley. í Stellng Minnis var ,Chance hafði spurt, er hann En þegar ég hafði spurt Large nokkurra spurninga, datt mér í hug að fara í veitinga- húsið, og þar hafði ég upp úr veitingamanninum, hvers Chance hafð spurt; eri hann kom þar fyrr um kvöldð. Og þá fékk ég að vita allt, sem ég þurfti. Ég held, að veit- ingamaðurinn hafi haldið, að við værum lögregluþjón- ar, sem værum að elta Chance og grunuðum hann um að brjótast inn í hús Sir Steph- ans Wyl. Svo að það var af vörum veitingamannsins, sem ég fyrst heyrði nafnið á morðingjanum frá Ealing. Við fundum hús hans undir eins, og eins og þú veizt, komumst við líka að því, að hann var farinn og hafði skilið Kinloch eftir í þetta skipti.“ Ég athugaði fingraför hans í morgun, og það stendur heima,“ sagði Snargrove. „En nafn hans kom okkur ekki svo á óvart; þegar þú hringd- ir til Scotland Yard“. ,,Hvað?“ æpti McNab. „Grunuðuð þið hann?“ „Ég hafði hann á lista yfir þá sem gætu komið til greina. Þú skilur, að auk þess að ég rannsakaði einkabréfin mjög nákvæmlega, þá fór ég vel yfir blað hins myrta, „Opnu augun“. Jæja; meðal þeirra greina, sem ég rak augun í; var þessi klausa; ,,Sá orð- rómur, að Sir Stephan Wyl muni verða frambjóðandi fyrir Byewiohflokkinn í Suf- folk, er tilhæfulaus. Við höf- um mjög góðar heimildir fyrir því; að Sir Stephan muni ekki komast að.“ Þetta kom i blaðinu laugardaginn 13. janúar.“ „Og Ponsonby Paget var myrtur þann 15. Wyl fór auðvitað að finna Paget út af þessu og fékk þá að vita, að Paget hafði komizt yfir upplýsingar um hann, sem htfðu gjöreyðilagt mannorð hans, ef þær heíðu verið birtar.“ .,Vafalaust,“ svmþykkti McNab. ,,En þú skiiur,“ héh Snar- grove áfram, ,;að r,afn Wyis var aðeins eitt af mörgum, sem voru alveg jafn líkleg, og sum enn þá líklegri, svo að þegar við fórum að skyggnast í hvað hann hefði verið að aðhafast þettn kvöld. þá komumst við að þvi, að MYNDASAGA ALÞÝÐU8LAÐS1NS: ÖRN ELDING HERBOÐI: Yfirforinginn. biður að skila þökk sinni og viður- kenningu fyrir frábært flugaf- rek og kveðst mundu sæma yð- ur heiðursmerki, ef þér væruð ekki á förum nú þegar. Auk þess minnir hann yður á, að þér eigið að mæta hjá klæð- skeranum, vegna væntanlegs dansleiks.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.