Alþýðublaðið - 20.11.1947, Blaðsíða 8
vantar fullorðið fólk og ung-
'linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:
MELA
Fimmtudagur 20. nóv. 1947.
Ein mesta stórhríð á Norðurlandi í mörg ár:
MJóSkin skösnjíífasS í gær ©3 Istél v©n
um að mjólk fengist í dag-
----------------------<►-------
BLINDHRÍÐ OG ROK var á Akureyri í fyrradag og í
•fyrrinótt, og hefur verra veður ekki 'komið þar í mörg ár.
Kingdi niður svo miklum snjó, að aílar samgöngur við bæinn
á landi tepptust og •efcki várð komizt um bæinn sjálfan í bif-
reiðum, og voru Akureyringar þvi 'mjólfcuriausir í gær. Eftir
hádegið í gær bilaði rafmagnið og var það efcki fcomið í l'ag.
seint. í gærfcveldi.
HserlsiF? af snfé ©g fimm menn
uiinu aS me-kstri í gærdag.
----------«j>--------
SNJÓFLCÐ 'FÉLL á bæinn Gunnsteinsstaði I Langa-dal í
Kúnavaínssýslu í gærmorgun kiufckan 9. Mátti heita að bær-
inn fyHtist -af snjó á neðri hæðinni og unnu fimm menn í allan
gærd:g við að moka snjónum út. Ekkert stys varð þó að snjó-
ílcðinu. Enn fremur tók snjóflóðið með sér þak af fjárhúsi, og
ar.nar veggur þess lagðist flatur, og loks fór allmikið af heyi í
snjóflóðið. •
Samkvæmt upplýsingum*
frá fréttaritara blaðsins á
Akureyri í gærkvöldi, hefur
kingt niður fádæmá miklum
snjó á Akursyri síðast lið-
inn sólarhring, og allar sam-
göngur á landi við báeinn eru
tepptar. Kom því engin
mjólk til Akureyrar í gær
og er ekki útli't fyrir ;að nein
mjólk verði í dag. í gær var
þó skömmtuð svolítil mjolk,
sem eftir var frá deginum
áður.
Ekki var í gærkvöldi vitað
hvað olli rafmagnsbiluninni,
enda var ekki hægt að kom-
ast með línunni vegna óveð-
ursins. í gær var þó mun
betra veður og minni snjó-
bomu en í fyrradag.
Úr sveitunum í nágrenni
Akureyrar hafði fréttaritar-
inn ekki fengið neinar fréttir
í gærkvöldi, en ekki taldi
hann ósennilegt að orðið
hafi orðið á kvikfé.
Braggi í Laugarnes-
hveríi brann í gær
í GÆRKVÖLDI kl. 20,50
var slökkviliðið kvatt út.
Kviknað hafði í íbúðar-
bragga nr. 53 í Laugarnes-
kamp. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang logaði upp
úr norður hluta braggans, en
því tókst fJjótlega að ráða
niðurlögum eldsins. Annar
endi braggans brann allur að
innan og eyðilagðist að
mestu.
Kviknar í húsi
á Bíldudal
B"rá fréttaritara Alþýðubiaðsíns,
BÍLDUDAL í gaír
í GÆRMORGUN varð vart
elds í ihúsinu Bræðramynni á
Bíldudal. Slökkviliðið 'kom á
vettvang, og tókst strax að
kæfa eldirm. Kviknað hafði í
út frá reýkröri frá eldavél.
Skemmdir urðu nokkrar
yegna reýks og vatns.
»|q manné nefncl fpne
©g fi@!
nr sl
fH,
Sýningar a Skál-
holti byrj
' morgun
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ tilkyn.nti í gær, að skipuð
hefði verið ný néfnd til að endurskoða stjórnarskrána, og félli
þar með niður umboð fyrri nefnda í því rháSi. Nefndin er skip-
uð samkvæmt þingsályktun frá 24. maí 1947 og eiga sæti í
henni fulltrúar stjórnarinnar og stjórnarflokkanna.
í nefndínni eiga sæti þess-°
ir rnerni:
Bjarni Benediktsson dóms
málaráðherra, formaður, Ól-
afur Jóhannesson prófessor
og Gunnar Thoroddsen borg.
arstjóri, skipaðir af ríkis-
stjórninni án tilnefningar,
Gylfi Þ Gíslason prófessor,
skipaður samkvæmt tilnefn-
ingu Alþýðuflokksins, Hall-
dór Kriistjánsson frá Kirkju-
bóli, skipaður samkvæmt til
nefningu - Framsóknarflokks-
ins, Ein;ar Olgeirsson alþing-
ismaður, skipaður samkvæmt
tilnefningu Sameiningar-
flokks alþýðu — Sósíalista-
flokksins, og Jóhann Haf-
stein .alþingismaður, skipað-
ur samkvæmt tilnefningu
Sjálfstæðisflokksins. Þá hsf-
ur Haraldur Guðmundsson
forstjóri verið skipaður vara
maður Gylfa Þ. Gíslasonar í
nefndinni, og er ætlazt til,
að honum gefizt kostur á að
fylgjast með störfum nefnd
arinnar.
Samtímis þessari nefndar-
skipun falla niður umboð
nefnda þeirra, er áður hafa
starfað að endurskoðun
st j órnarskr árinnar.
Brezkur flugbátur
fórst í gærmorgun á eyju í
Ermarsundi. Einn maður fórst
og nokkrir særðust.
ANNAÐ KYÖLÐ byrjar
Leikfélag Reykjavíkur sýn-
ingar á Skálholti, hinum
stórbroína og sögulega sjón-
leik Guðmundar heitins
Kambans, og er gert ráð fyr-
ir að. Skálholt verði leikið
nokkrum sinnum til jóla.
Eins og mönnum er í
fersku minni, sýndi félagið
Skálholt veturinn 1945—-48,
og var það þá sýnt alls 40
sinnum við mikla aðsókn.
Lárus Pálsson setti leikinn
þá á svið og var leikstjóri
fyrst, ©n er hann fór utan
þann vetur, tók Haraldur
Björnsson við leikstjórninni,
og hefur hann istjómað æfing
um á leiknum nú að undan-
förnu.
Leikendur eru nú að mestu
þeir sömu og áður og fara
þau Regína Þórðardóttr og
Þorsteinn Ö. Stepensen með
aðalhlutverkin eins og þá,
það er að segja Regína leik-
ur Ragnheiði Brynjólfsdóttur
og Þorsteinn leikur Brynjólf
biskup.
Leikfélagið mun jafnf-’amt
Samkvæmt viðtali, sem
blaðið átti í gær við Hafstein
Pétursson, oddvita á Gunn-
steinsstöðum, sagði hann að
búast mætti við fleiri snjó-
flóðum í Langadanum, því
að' þar hefði kingt niður ó-
hemju lausasnjó síðustu
fimm daga. Frostharka hefur
einnig verið' og hefur frostið
mest orðið 17 stig. í gær var
mik.il snjókoma fyrir norðan,
en frostið fór minnkandi.
Sagði hann, að snjóflóðið
hefði fallið á um 300 metra
svæði og urðu einnig fyrir
því peningshús. Fjósið
skemmdist þó ekki, en fjár-
hús eyðilagðist og allmikið af
heyi fór úr heystæði. Eina
bótin er að ekkert fé er á
bænum, því að niðurskurður
fór fram í Langadalnum í
haust.
Bærinn á Gunnsteinsstöð-
um er tvílyftur. Er neðri
hæðin steinsteypt, en efri
hæðin er úr timbri. Brotn-
uðu gluggar í bænum og
flæddi isnjórinn inn í ganga
og stofur og fyllti bæinn að
rnestu. Miklar skemmdir
urðu inni í bænum og á hús-
munum.
ílfur strýkur úr vlsl
UM síðustu mánaðamót
strauk sextán ára piltur úr
vist í Höskuldarkoti í Njarð
víkum. Heitir hann Páll Hall-
grímsson, og er skráð heim-
ilisfang hans Kringlumýrar-
bletti, E-götu, hér í Reykja-
vík. Nokkru síðar sást hann
á Siglufirði, og nú fyrir viku
hér í Reykjavík. Hefur rann
sóknarlögreglan auglýst eftir
upplýsingum um dvalarstað
piltsins. Er hann lágvaxinn,
rauðhærður og í bláum
jakkafötum.
halda áfram sýningum á
gamanleikinn Blúndur og
Blásýra, en það leikrit hefur
nú verið sýnt 11 sinnum.
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:
Seltjarnarnes.
Talið við afgr. Sími 4900.
Samgöngur
stöðvast og
símar bila
ALLAR BÍLASAMGÖNG-
UR við Norður- og Austur-
land eru nú tepptar vegna
snjóa, svo og leiðin frá Borg-
arnesi til Stykkishólms og
Ólafsvíkur. Aftur á móti er
fært héðan upp í Borgarf jörð
og vestur í Búðardal hefur
einnig verið fært. Jl,oks eru
allar leiðir hér sunnanlands
færar, þar eð lítið hefur snjó
að hér syðra enn þá.
Samkvæmt uppýsingum,
sem blaðið fékk hjá Ásgeiri
Ásgéirssyni, fulltrúa vega-
málastjóra í gær, munu snjó
ýtur vegagerðarinnar moka á
þeirn leiðum, sem teppzfc
hafa, strax þegar hríðinni
slotar. Vegagerðin á snjóýt-
ur á Akureyri, Sauðárkróki
og Blönduósi, og mun þær
moka á Norðurleiðinni, en
snjóþyngslin eru þar mest í
Langadalnum og á Öxnadals
heiðinni. Þá er einnig ýta í
Borgarnesi og mun hún moka
af veginum íyrir vestan
Borgarnes, en snjóþyngslini
eru mest á Mýrunum. Aftur
á móti er Kerlingarskarð enn
þá færfc.
Áætlunarbílar, sem lögðu
af stað norður í. fyrradag
komust ekki nema til Blöndu
óss og sitja þeir þar. Hins
vegar mun vera þungt færi
víða á leiðinni til Blönduóss
og fer færðin að þyngjast
strax þegar kemur upp í
Norðurárdal.
SÍMABBILANIR
Símabilanir hafa ekki orð-
ið miklar í óveðrinu; þó var
í gær sambandslaust við
Siglufjörð og Sauðárkrók, en
hversu mikil bilunin er var
ekki vitað í gærkvöldi.
Þá voru í gær nokkrir erf-
iðleikar á símaafgreiðslu frá
Akureyri vegna rafmagns-
leysis þar í gærdag, en um
hilun á isjálfum símanum var
ekki að ræða.
FLUGSAMGÖNGUR
Flugsamgöngur við Akur-
eyri hafa nú legið niðri síð-
an óveðrið fyrir norðan hófst
og er önnur Douglas flugvél
Flugfélags íslands teppt fyr-
ir norðan. Venjulega skefur
þó af flugvellinum fyrir norð
an, svo að von er talin till
þess að snjóþyngslin þar séu
ekki alvarleg.
VEÐRIÐ í GÆR
Veðurstofan skýrði blað-
inu frá því í gær, að enn
væri 6—9 vindstig um allt
land og horfur á áframhald-
andi norðanátt með snjó-
koimu fyrir norðan. Hins veg
ar hafði frostið um allt land
minnkað nokkuð.