Alþýðublaðið - 04.02.1948, Qupperneq 8
x'
Gerist áskrifenciur
að Alþýðublaðinu.
Alþýðublaðið irm á hvert
J íheimili. Hringið í sítna
| 4900 eða 4906.
Börn og unglingar
Komið og seljið
ALÞÝÐUBLAÐE).
Allir vilja kaupa
ALÞÝÐUBLAÐ3Ð. 'rrM
Miðvikudagur 4. febr. 1948
Mikil þörí I viðgerðasföðvum íaS-
stöðva fyrir Vestfirði og Austurland
-----------------*------
Þingsályktunártillaga liannibals Valdi-
marssonar um tvær slíkar stöðyar.-
HVALVINNSLUSTÖÐIN í Hvalfirði er nú fullbyggð
og flestum vélum hefur yerið komið þar fyrir. Er gert ráð
fyrir, að veiði geti hafizt nú á komandi sumri. Nú hafa
nokkrir alþingsmenn lagt fram á alþingi frumvarp til laga,
er leyfi h.f. Hval að leigja þrjú erlend skip til veiðanna,
og mun hugmýndin vera að fá norska „hvalveiðimenn til
þess að feoma veiðunum af stað og þjálfa íslenzka hval-
v.eiðimenn.
Félagið hefur haft erlenda
sérfræðinga itil þess að sjá
um byggingu hvalveiðistöðv-
arinnar og er hún talin hiri
fullkomnasta til nýtingar
allra hvalafurða. Naut félag-
ið aðstoðar ríkisstjórnar og
Nýbyggingáirráðs til þess að
heíja starfsemi þessa, og
keypti það nokkuð laf setuliðs
eignunúm í Hvalfirði.
Fluiningsmenn iagánna eru
þeir Finnur Jónsson, Pétur
Ott’esen, Henmiann Guðmunds
son og Jörundur Brynjólfs-
son. Segja þeir meðal annars
í greinargerð með frumvarp-
HvalVinnslustöðin í Hválfirði íu
Frumverp á alþingi um að; leigja norsk
hvalveiðiskip tiS fyrstu velðanna.
Formannseíni komm
r • f r \l'i ‘ r r
umsta i „Vikmg
íékk 2 afkvæði.
AÐALFUNDUR Verka-
mannafélagsins „Víkingur‘!
í Vík í Mýrdal var haldirin
mýlega. Formaður félagsins
var kosinn Helgi Helgason í
stati Guðmundar Guðmunds
sonar, sem ibaðst nú undan
endurkosningu, en hann hef
íur verið formaður félagsins
í fjöldamörg ár. Aðrir í
stjóm félagsins voru kosnir:
Þórður Stefánsson ritaTi og
Einar Bárðarson gjaldkeri.
Þessi fundur sannaði enn,
Iive gersamlega kommúnist-
ar eru að verða áhrifalausir
í verkalýðsfélögunum úti á
landi. Þegar Guðmundur
Guðmundsson baðst undan
endurkosningu o'g Helgi
Helgason var boðinn fram í
bains stað í formannssætið,
buðu kommúnistar upp á
Sigurð nokkurn Gunnarsson
og fékk hann tvö atkvæði!
FULLTRÚI British Counsil
hér á landi, Mr. K- Willey, er
nú á förum héðan, og verður
fíkrifstofa Bristish. Council
þair með lögð niður hér. Tel-
ur þessi brezka menniingar-
stofnuru, að meiri þörf sé starf
fsemi hennar annars staðar, t.
d. í nýjum sambandslöndum
Breta.
Mr. Willey sagði í viðtali
við blaðið í gæir, að hanm
vomaðist !til, að samvinna
British Counsil og íslendinga
haldi áfram, þótt þau skipti
þurfi nú að fara fram. um
sfcrifstofunla í London. Sagði
Mr. Willey, að það væri sér-
staklega æskilegí, iað íslend-
ingar héldiu áfram að sækja
námskeið brezkra háskóla.
Mr. Willey hefur nú verið
skipaður prófessor í ensku
við háskólann í Bukarest í
Rúmeníu, Er honum mikill
sómi sýnduir með þeirri skip-
un.
miu:
,,Eins og kunnugt er, eru
engin hvalveiðiskip til hér á
landi, og enn höfum við
ekki á að skipa sjómömv
um, Sem þekkingu hafa
á hvalveiðum. Þær þjóð-
ir, sem stofnað hafa til hval
veiða hin síðustu ár, hafa all
ar fengið norska hvaiveiðisjó
menn fyrst í istað, en síðam
hafa innlendir sjómenn lært
af þeim. Þannig var það um
Þjóðverja, er þeir hófu hval
veiðar eftir styrjaldarlok.
Stjórn Hvals h.f. hyggst að
fara svipaða leið, að leigja
erlend hvalveiðiskip, en ráða
á þau mokkra íslenzka sjó-
menn, er læri allar veiðað-
ferðir, í því skyni, að áhafn
ir skipanma geti síðar orðið
alíslenzkar. Alþingi hefur áð
ur veitt tveimur félögum
heimild til )að mota erlend
hvalveiðiskip við veiðar hér
á landf
Það er mjög athyglisvert
fyrir íslendinga að jLába ekki
útlendinga eina sitja að hval
veiðum hér við land, og það
fremur sem hvalafurðir eru
mjög eftirsóttar og í háu
verði á erlendum markaði.
Færeyimgar hafa stumdað hér
hvalveiðar á undanfömum
árum af miklu kappi og flutt
héðan mikinn og dýrmáetan
afla. Fyrir istríð höfðu Norð-
ménn hér við land, utian iand
helgi, hvalvinnslustöðvar í
Faxaflóa og víðar, sem itóku
við afla veiðiskipanna.”
■Þorsteinn B. Jónsson.
Sijórn Málarasveina-
félagsins.
AÐALFUNDUR Málara-
sveinafélags Reykjavikur var
haldinn 25. janúar. Formað-
ur félagsins er Þorsteinn B.
Jónsson og var hann endur-
kosinn.
Aðrir í stjórn félagsins
eru: Ástvaldur Stefánsson
varaformaður, Ingólfur Áma
son rirtari, Guðmundur Ein-
arsson gjaldkeri og Sigfús
Sigfússon aðstoðarrifari.
í varastjórn voru kosnir
Ágúst Þórarinsson og Val-
geir Hannesson.
ÞAÐ KEMUR IÐULEGA FYRIR, að bátar verða að vera
lengri eða skemmri tíma með bilaðar italsöðvar, eða bíða
þess, að talstöðvar þeirra komi úr viðgerð í Reykjavík. Er
þess til dæmis skemmst að minnast, að vélbáturinn Björg
hraktist með bilaða talstöð, em ekki hafði fengizt gert við
í hálfan mánuð, og gait áhöfnin því ekki náð sambandi við
flugvélar og skip, sem leituðu bátsins.
Hannibal Valdimarsson, ur því rétt óg skyldu til <að
sjá um viðgerðir og viðhald
20 MENN höfðu í gærdag
tskráð sig atvinnulausa hér í
Reykjavík, en skráning at-
vinnulausra fer nú frám í
' ráðningaskrifstofu bæj arins,
iieins og lög mæla fyrir.
ræðir betta mál í greinargerð
með þingsályktunartillögu,
sem hann flytur á alþingi.
Er tillagan þess efnis, að
srtjóirriendum landssímans og
ríkisútvarpsins verð.i falið að
koma upp fyrir næsta haust
viðgerðastöðvum fyrir ital-
stöðvar, útvarpstæki og síma
áhöld á ísafirði fyrir Vest-
firði og Nesfeaupstað eða
Norðfirði -fyrir Austurland-
Slíkar viðgerðastöðvar eru
nú aðeins í Reykjavík og á
Akureyri.
í greinargerð sinni segir
Hannibal meðal annairs:
,,Á vélbátaflotanum á Vest
fjörðum og Austfjörðum er
mikill fjöldi talsitöðvia. í þess
um landshlutum eru einnig
komnar allmargar talstöðv-
ar á afskekkta sveitabæi.
Landssíminn er eigandi tal-
stöðvanna og tekur fyrir þær
árlega leigu- Hann eiim hef-
Efnt fil sýningarkennslu í með-
ferð og matreiðslu síldar hér
Kvenféíag Alþýðuflokksins gengst fyrir
námskeiðinu, sem stendur í þrjá daga.
-------------------♦-------
DAGANA 9., 10, og 11. þessa mánaðar verður efnt til
sýningarkennslu í meðferð og matreiðslu sildar fyrir at-
beina Kvenfélags Alþýðuflokksins. íslendingar hafa
lengi verið frægir fyrir það, hversu mikið þeir veiddu
af síld •— og hversu lítið þeir borðuðu iaf henni sjálfir. Nú
er allmikil hreyfing meðal kvenna til að bærta úr þessu og
„HEKLA“ skymiasiterflug-
vél Loftleiða kom frá París
rtil Reykjavíkuir á mil'li kl.
7 og 8 í gærkvöldi.
auka ueyzlu síldarinnar hér
Utanfélagskonum jafnt sem
félagskonum kvenfélagsins
er boðin þátttaka í þessu
sýningamámskeiði. Kennari
verður ungfrú Kristín Jó-
hannsdóttir og verður kennt
í itveim hópum þrjá daga vik
unnar. Kemur annar hópur-
inn saman kl. 4—6 síðdegis,
og á kvöldin kl. 8—10. Að-
göngumiðar að námskeiðinu
kosta aðeins 20 krónur og
má panta þá hjá hverfisstjór
um kvenfélagsins, eða Pál-
ínu Þorfinnsdóittir, sími 3249,
Guðrúnu Sigurðardóttir, sími
7826 og Elinborgu Láms-
dóttir, sími 3763.
Glöggt dæmi um það, hvers
á landi.
við föram á mis með því að
neyta ekki meiri síldar, geta
Islendingar séð hjá nágranna
þjóðum okfear, sérstaklega
Svíum og Dönum. Síldin er
holl og næringarrík fapða og
þar að auki mjög ódýr hér á
landi.
Það er eðlilegt ,að reyk-
vískar konur hafi sérsitak-
lega mikinn áhuga á að kynn
ast síldarmatreiðslu beitur
nú, þegar mörg hundrað þús
und mál síldar hafa verið
flutt á land í höfuðstaðnum.
Er því vafalaust, að konur
muni fjölsækja þetta nám-
skeið, sem Kvenfélag Al-
þýðuflokfesins gengst fyrir.
þessara tækja. Viðgerðár-
verkstæði eru nú aðeins í
Reykjavík og á Akureyri, og
er það því mjög mdklum erf
iðleikum bundið austan lamds
og vestan að fá gert við tai-
stöðvar og önnur slík tæk;',
fyrr en seint og síðar meir.
Talstöðvarnar eru af sjó-
mönnum taldar beztu örygg-
istækin, sem enn þá hafa
verið ítekim í inotkun hér á
landi. Þýðing þeirra fyrir af-
skekktar byggðir er og ómet
aruleg, og útvarp og sími eru
orðin svo þýðingarmikill þátt
ur í daglegu lífi fólksins, að
við það Verður ekki unað, ef
ekki er allt sem unnt er til
þess geirt að auðvelda öruggt
viðhald þessara dýrmætsj
tækja.“ •
Harðsfjórn í Rúmeníu
STJÓRNIR Breitlands og
Bandaríkjanna hafa sent
mótmæli til rúmensku istjórn-
arinnar út af því, að mann-
réttindi, sem tryggð era með
friðarsamningum við Rú-
meníu, hafi verið höfð að,
engu. Segir í mótmælunum,
iað andstöðuflokkar hafi ver-
ið gerðir áhrifalausir, blöð
þeirra ofsótrt, menn teknir
fastir án tilefnis og margir
hafi veikzt og látizt við
hörmulegan aðbúnað í fang-
elsum landsins.
Sverrir Kjærnested
kosinn formaður
Prentnemafélagsins
AÐALFUNDUR Prent-
nemafélagsins í Reykjavík,
var haldinn 2. febrúar s. 1.
Fráfarandi formaður félags-
ins, Sigurður Guðgeirsson,
flutti skýrslu félagsstjórnar-
innar. í stjórn félagsins
voru kjörmir: formaður Sverr
ir Kjærnested, varaformað-
ur Halldór Helgason, ritari
Gestur Árnason, gjaldkerí
Ólafur Karlsson og með-
stjórnandi Pálmi Arason.
Einnig var kosið í ritnefnd
Prentnemans, sem er mál-
gagn félagsins, og aðrar
fastanefndir.