Alþýðublaðið - 04.03.1948, Síða 6

Alþýðublaðið - 04.03.1948, Síða 6
6 ALÞYÐUBLAÐJÐ Fimmtudagur 4. marz 1948. AÐSENT BRÉF Herra ritstjóri. Hingað bárust þær fregnir með raföldum Ijósvakans og meðflygjandi tilfæringum, að komin væri fram sú tillaga á alþingi, að stofna eitt herlið, eður þjóðvarnarfylkingu, og þykir mér tillagan næsta merki leg, svo nytsöm og merkileg, að mér þykir ólíklegt, að hún nái fram að ganga. Ekki dylst mér samt sem áð- ur, að tvíeggjað vopn gæti slík fylking reynzt undir yfirforustu óhlutvandra manna, og ýmis vandkvæði myndu á reynast að ganga svo frá reglum og á- kvæðum, að ekki yrði misnotað eða rangtúlkað. Tel ég einkum hættu á, að skipuð yrði hún iðjuleysis- og auðnuleysisgeml- ingum, sem góðir og gegnir á- hrifamenn væru orðnir þreyttir á að styðja og styrkja frænd- semi vegna með ráðum og fé úr eigin vasa, og þætti leikur á borði að koma þeim á föst laun við vandalítið og ábyrgðariaust starf, — því auðvitað mundi öll ábyrgð af starfi og athæfi slíkr- ar fylkingar lögð á herðar vald- höfum, að lagalega undan- skildu lauslæti, frömdu utan einkennisbúnings og öðrum eðlislega tengdum athöfnum. Úr slíkum efniviði yrði þjóð- varnarfylkingin verri en engin, mundi gera verkfall á fyrsta ári til þess að fá framgengt kröfum um flottari einkennis- búninga og áfengisafslátt, og hvergi finnast, eða reynast ó- starfhæf, þegar til ætti að taka. Nei, slík fyiking verður fyrst og fremst að skipast úr- valsmönnum, og tel ég, að þeir skuli, margra orsaka vegna, úr sveitum valdir. Ætti í því skyni að starfa ólaunuð mann- valsnefnd í sveit hverri eður sýslu, skipuð þrem mönnum, kosnum á hreppastefnu eða manntalsþingum, og enginn ungur maður mega skorast undan vali hennar. Skyldu þeir svo starfa í sveit sinni undir stjórn hreppstjóra: kasta ofur- ölvuðum aðskotadýrum út af dansleikjum, smala afréttar- lönd, þau er nú ekki verða lengur gengin sökum mannfæð- ar, stunda skipulagt minkadráp og berjast á annan hátt gegn afleiðingum menningarinnar. Þá skyldi og slcipuð yfirnefnd í hverjum landsfjórðungi, er réði hvenær kalla skyldi fjórðungs- sveitir til starfs, og landsyfir- nefnd, er réði almennu liðsút- boði fylkingarinnar. Skyldu yf- irnefndir skipaðar fulltrúum bænda og kaupfélaga, og hrepp stjórar sjálfkjörnir, en lands- yfirnefnd kosin af yfirnefndum og úr hópi þeirra. Ætti lands- yfirnefnd að starfa á eigin á- byrgð, án íhlutunarréttar lands- stjórnar, og standa landsmönn- um einum reikningskap gerða sinna. Yrði þá vald hennar mikið, og gæti hún t. d. látið fulltrúa úr fylkingunni gæta að, hvort opinberir starfsmenn mættu réttstundis til starfs og ynnu fyrir kaupi sínu, og jafn- vel víkja æðstu valdhöfum úr sæti, ef þeir brygðust almenn- ingstrausti. Þá ætti og fylking- in að hafa með höndum eftir- lit, er varnaði útgáfu klámrita og sýningu æsandi „listaverka", er annars espuðu fólk til ósið- 'semi og berrassaflakks á al- mannafæri, svo og standa heið- ursvörð við hingaðkomu er- lendra þjóðhöfðingja og opin- berar jarðarfarir og fleira og fleira. Sem sagt, ■— þörfin er brýn og verkefnin óteljandi, en allt veltur á gætni og fyrirhyggju í grundvallaratriðum. Virðingarfyllst. Filippus Bessason hreppstjóri. ' .... -íÆSI5' FLÖSKUBROT Jónas Jónsson vill að vænt- anleg þjóðvarnarfylking verði skipuð íþróttamönnum,- •-------einkum hlaupurum, því þá væri minnst hætta á að fylkingin gyldi afhroð á flóttan- um. Þjálfari skíðamannanna, sem komu allir heim aftur frá Stóra Móradal, segir í Akureyrar- blaði, að einn skíðamanna vorra hafi sigrað % af kepp- endunum á mótinu. Hins vegar getur þjálfarinn þess ekki, að sami maður hafi þá um leið beðið ósigur fyrir % keppendanna. Og ekki getur hann heldur um hver sá hluti keppendanna var, sem hann sigraði. Við, sem ekki erum sérfræð- ingar í faginu, getum samt sem áður gert okkur í hugarlund, að ekki muni það hafa verið sá hlutinn, sem skíðin voru fest við. — — — ■ ▲ Farfuglar munið aðalfund- inn í kvöld kl. 8,30 e. h. að Kaffi Höll. Fjölmennið stundvíslega. Stjórnin, Daphne du Maurier: DULARFULLA VEITINGAHUSIÐ ar, og hana sárverkjaði í höf uðið og sveið í augun og hún sá glottandi andlitin á þeim í gegnum móðu. Henni var hérumbil sama, hvað þeir sögðu héðan af, og hún kvaldist af, hve hana lang aði til að sofna og gleyma sér. Þegar þeir sáu, hve hún var dauf og niðurdregin, fannst þeim ekkert lengur til nærveru hennar koma. Jafn vel söngvarnir misstu allt bragð, og Joss Merlyn þreif aði niður í vasa sinn og fann þar spil. Þeir snéru undir eins frá henni, og að þessu nýja áhugaefni, og í þessu stutta hléi, sem Mary áskotn aðist dró hún sig lengra inn í hornið frá heitum, dýrsleg um dauninum af frænda sín um og lokaði augunum og reyndi að hagræða sér eftiir hreyfingum vaggandi. og skröltandi vagnsins. Hún var svo þreytt, að hún vissi ekki lengur af sér að fullu; hún sveif á takmörkunum milli draums og vöku. Hún fann til sársauka og til skrölt andi vagnhjólanna og heyrði í fjarska óm af samtali, en þertta eins og smáfjarlægð- ist; hún gat ekki fundið, að þetta væri nokkuð sér við- komandi. Myrkrið kom eins og guðsblessun yfir hana, og hún fann það, en svo vissi hún ekki af sér lengur. Þeg- ar vagninn hætti að hreyfast vaknaði hún aftur til lífsins, skyndileg þögn og kalt loft- ið, sem streymdi inn um op- inn gluggann framan í hana. Hún var ein í horninu. Mennirnir voru farnir og höfðu tekið ljósið með sér. Hún sat kyrr fyrst, því að hún óttaðist að þeir kæmu afitur og var óviss, hvað fyrir hafði komið, og svo þegar hún hallaði sér út að glugg- anum, kenndi hana óbæri- lega til og hún vár mjög stirð. Það var eins og sting- ur í öxkmum á henni, þar sem hún hafði dofn- að af kuldanum, og upp- hluturinn hennar var enn rakur eftir rigninguna fyrr um kvöldið. Hún beið andar tak og hallaði.sér svo áfram aftur. Það var enn mjög' hvasst, en rigningin helltist ekki eins niðuir og áður; það var aðeins örlítill suddi að sjá á gluggunum. Vagninn hafði verið skil- inn eftir í þröngu gili og voru háir bakkar til beggja handa,. og hesturinn hafði verið leystur frá. Gilið virt- ist liggja bratt niður og gat- an var óslétt og grýtt. Mary gat ekkert greint nema nokkra faðma fram- undan. Það var orðið mjög dimmt af nóttu og þarna í gilinu var alveg niðamyrk- ur. Það sáust engar stjörnur, og vindurinn, sem hafði ver- ið hvass uppi á heiðinni, var nú orðinn að ofsaroki og bar með sér raka þoku. Mary rak hendina út um gluggann og kom við gilbarminn. Fingur hennar komu við lausa möl og grastær, rennvotar af regninu. Hún tók í snerilinn á hurðinni, en hún var læst. Síðan hlustaði hún ákaft og reyndi að grilla í gegnum myrkrið, sem framundan var, niður gilið, og þá barst til hennar hljóð, dapurlegt og kunnuglegt í senn, hljóð, sem hún í fyrsta sinn á ævi sinni gat ekki fagnað, heldur kipptist hún við og fór um hana hrollur. Það var isjávarniðurinn. Gilið lá eins og gata niður að sjónum. Hún vissi nú, hvers vegna loftið var orðið kaldara og hvers vegna regnið féll svo léttilega á hönd hennar og hafði saltkéim. Háir gilbarm- arnir mynduðu skjól, svo að það virtist ekkj vera eins' hvasst eins og uppi á auðn- inni á heiðinni, en þegar komáð værf út úr gilimu, væri veðurofsinn enn ákafari og gnýrinn meiri. Það var heldur engin kyrrð þar, sem sjórinn féll upp að klettóttri ströndinni. Hún heyrði það aftur núna, niðinn og eins og istunu þegar öldurnar féllu á ströndina og soguðust út aft- ur; og síðan örlítið hlé meðan sjórinn safr.aði kröftum á ný — aðeins örstutt stund — og svo isfcall aldan aftur og brim ið ískraði við mölina og það urgaði í steinunum, sem drógust með útsoginu. Það fór hrollur um Mary; ein- hvers staðar þarna niður frá í myrkrinu biðu frændi henn ar og félagar hans eftir flóð- inu. Ef hún hefði getað heyrt óminn af þeim, hefði biðin í tómum vagninum verið þol- anlegri. Öskrin og hláturs- sköllin og söngurinn, sem þeir höfðu verið að herða sig upp með, hefðu verið henni til léttis, þótt ógeðsleg væru, en þessi dauðaþögn var ægi- leg. Þeir voru alveg niður- sokknir í istarfið. Nú þegar hún var aftur með sjálfrii sér og versta þreytan liðin hjá, fannst Mary alveg ómögu- legt að vera svona aðgerða- iaus. Hún aðgætti stærðina á glugganum. Hurðin var læst, það vissi hún, en henni tæk- ist nú kannske að mjaka sér út um þröngan gluggan. ÞáS var þess vert að hætta á það. Hvað sem fyrir kunni að koma í kvöld, var hennar líf lítils virði; frændi hennar og félagar hans gátu fundið hana og drepið hana, ef þeir vildu Þeir þekktu hvemig hagaði til þarna, en ekki hún. Þeir gætu rakið slóð hennar undir eins, ef þeir vildu, eins og blóðhundar. Hún hamað- isit við að troða sér út um gluggann, og hallaði sér aft- ur á bak, en þétta var enn erfiðara vegna þess, hve henni var illt í öxliinni og bakinu- Þakið á vagninum var sleipt og blautt svo að hún gat ekki náð neinu taki á því, e:n hún tróð sér og mjakaði gegnum opið og þá með því að ýtia allt hvað af tók, isvo að hana sárverkjaði, komust mjaðmirnar á henni í gegn, og gluggairaminn risp aði hana og það vair nærri liðið yfir hana. Hún missti fóitfestuna og jiafnvægið og féll aftur á bak úr gluggain- um niður á jörðina. Fallið var ekki hátt, en henni brá illa við, og hún fann að blóð .seytlaði úr isíð- unni á henni þar sem hún hafði rifið sig á glugganum, Hún hikaði við stundarkorn til að ná sér, og svo dróst hún á fætur og fór að fika sig áfram óvissum skrefum upp stiginrt, í skjóli af gil- Gullni lúðurinn hans Bangsa Svarta kisa lætur svo illa, að Bangsi eltir hana. Hún fer út á völlinn. Þegar Bangsi lítur yfir grasbala, sér hann ljómandi fallega, litla flugvél. „Nei, en hvað hún er falleg“, segir hann undrandi. „Ég hef aldrei séð svona fallega * flugvél. Hver skyldi eiga hana? Það er eng- inn sjáanlegur. Það er ekki furða, þótt þú værir æst, litla kista. Skyldi flugvélin gcta flogið. Hvað skyldi hún hafa verið hérna lengi?“. Þeir færa sig liægt og hægt nær flugvél- inni. KJARNAR er ódýrasf og skemmíilegas!. Fæsf í öllum bókabóium.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.