Alþýðublaðið - 09.03.1948, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 09.03.1948, Qupperneq 5
Þriðjudagur 9. marz 1948 AI.ÞÝOUBLAÐIÐ Birgir Einarsson: Fimmta grein Endurskoðun Svfsc G R R i B R ! S Meisfarakeppni Isfant Landsflokkaglíman verður háð 19. marz í Reykjavík. Glímt verður í 4 flo'kkum. I. fl. menn yfir 83 kg. II. fl. menn 'frá 77—83 kg. III. fl. menn undir 77 kg. IV. fl. drengir innan 18 ára. Keppendur tilkynni sig fyrir 12. þ. m. til formanns Glímuráðs Reykjavíkur, Tryggva Haraldssonar, Hring- braut 35. Reykjavík, 8. marz 1948. GLÍMURÁÐ REYKJAVÍKUR. LYFJALÖG „ENGINN má halda nokkra lyfjabúð, nema hann hafi þar til allranáðugast leyfisbréf vort og hafi unnið oss eið“. „Engjnn laborant eða destilla tor má heimulega eða opinber lega halda lyfjabúð gða búa til lyf . . . eigi mega heldur mat- erialistar, urtakramarar, sæt- indabakarar eða þess háttar menn hafa á boðstólum lyf.“ „Enginn empiricus, brucksnid- er, oculist, skottulæknir, eða slíkir umrenningar, karl eður kona, mega heimulega eða op- inberlega hafa á boðstólum nokkrar þær vörur . . . sem und ir lyfjabúðir heyra.“ „En ef nokkur verður uppvís að því að hafa slíkar vörur, efni eða lyf, sem bannaðar eru, þá skulu þær upptækar og sá, er þær finnast hjá, sektist að auk hundrað ríkisdölum, er að þriðj ungi falli til Vor, að öðrum þriðjungi til borgmeistara og ráðs á þeim stað, er slíkt kem- ur fyrir, og að þriðja þriðjungn um til lyfsalans þar . . .“ Þannig hljóða g'ildandi lyfja- lög, sem hér er birtur tæpur helmingur af. Lesendum til gamans má benda á, að sam- kvæmt niðurlagi þeirra, er lyfja gerð sú, sem fram fer utan apó- tekanna, t. d. hjá forstjóra Lyfjaverzlunar ríkisins, ólög- leg. Mætti lögum samkvæmt sekta hann hundrað ríkisdali, sem að einUm þriðja falli til for setans, sem arftaka konungs- valdsjns, öðrum þriðja til bæj arstjórnar og borgarstjóra, og að þriðja þriðjungnum til apó- tekaranna í Reykjavík. Lögin voru útgefin fyrir allt Danaveldi á einokunartímanum, árið 1672. Danmörk og Noregur hafa að sjálfsögðu endurnýjað löggjöfina hjá sér oftar en einu sinnj. Vér íslendingar erum ekki svo umbrotagjarnir menn, því að enn í dag, eftir 276 ár, eru þessi lög gildandi lyfjalög landáins. Með sama áframhaldi ættu þau á sínum tíma að kom- ast í tölu dýrgripa fornhelginn- ar, sem kynslóðifnar varðvejta við hjarta sér og telja helgi- spjöll að breyta eða endur- bæta. Undanfarin ár hafa þrjú frumvörp til nýrra lyfjalaga eða lyfsölulaga verið samin en ekk ert þeirra flutt á þingi. Það fyrsta var samið af stjórn skip- aðrj nefnd, sem Vilm. Jónsson landlæknir veitti forstöðu. Annað er einkafrumvarp Vil- mundar Jónssonar, nefndar- frumvarpið nokkuð breytt. Það þriðja er nýlega fullgert. Er það samið af Lyffræðingafélagi íslands og Apótekarafélagi ís- lands. Síðast nefnda frumvarpið tekur lyffræðileg spursmál til lausnar á sama. grundvelli og Norðurlandaþjóðirnar og þá einkum Danir byggja sín lyfja- lög á. Það segir fyrir um verk- efni, skilyrði og skyldur þeirra manna, sem að lyfjafræðistörf- um vinna, setur fram grund- vallárkröfur til lyfja, fram- leiðslu þeirra og allrar meðferð ar, stofnar til sérfræðinganefnd ar, sem annast skal ■ útgáfu lyfjaskrá og annarra fyrirmæla er að lyfjafræðistörfum lúta, og skal fylgjast með því á annan hátt, að nýjustu framfarir lyfja vísindanna sé hagnýttar eftir föngum, stofnar til sérfræði- legs lyfjaeftirlits, og reynir á annan hátt að sníða lyffræði- legri starfsemi þann stakk, sem að reynslu þjóðarinnar og ná- granna hennar þykja bezt hæfa þessari gagnmerku starfsgrein, gefur henni skjól til að dafna án þess að þrengja að um of. Frumv. landlæknis og nefnd- arinnar koma einnig inn á lyf- fræðileg atrjði að svo miklu leyti, sem þau taka eftir dönsku lög'unum, en gera þeim ófull- nægjandi skil. Hins vegar er þeim mun meiri áherzla lögð á stofnun einkasölu til ímiflutn ings og heildsölu lyfja, sem einnig skal hafa leyfi til lyfja- gerðar. Margir menn eru þeirrar skoð unar, að öll verzlun sé bezt kom in í höndum einkaleyfisfyrir- tækja. Mun landlæknir telja sig þar í hópi og er sízt við því að amast. Hins vegar gefur það hon um engan rétt til að staðhæfa, að tillögur lyfjafræðinga og apó tekara séu tillögur sérhagsmuna en í tillögum sínum mæli hann fyrjr munn þjóðfélagsins, því að ekki þykjast þeir standa þjóð félaginu utan gátta, sem eru á öndverðri skoðun í verzlunar- málunum, og telja sig finna henni nokkra stoð í fenginni reynslu þjóðarinnar af einka- sölum, þessari reynslu, sem oft er talin standa rótum í þeim vinnubrögðum og hugarfari, sem til einkasalanna stofnar, og margir einlægir unnendur sósí- alismans vilja skýra á þann veg, að í kapitalistísku þjóðfélagi sé ekki unnt að reka hálfkapital- isma og hálfsósíalisma í einum hrærigraut, án þess að til ófarn aðar horfi. Það er heldur ekki að sjá, að jafnaðarmannaflokk- ar Danmerkur, Noregs og Sví- þjóðar hafi talið sig forsvara „sérréttindaburgeisa", þegar þeir hafa skipað lyfsölumálun- um með þjóðum sínum mjög á þann sama hátt og hugsaður er í frumvarpi lyfjafræðinga og apótekara, en hafa hins vegar forðazt lyfjaeinkasölur. Annars er Vilm. Jónssyni fremur gjarnt á að tala um sjálfan sig og þjoð- félagið í einni og sömu and- ránni, eins og í huga hans væri harla lítill munur á þess- um aðilum. Minnir það óneitan- lega á hugsunarhátt einvaldans, sem sagði: „Ríkið, það er ég”. Varðandi lyfjafræðistéttina tel- ur hann fráleitt, ,,að hún megi vænta þess að komast nálægt því að geta sagt þjóðfélaginu fyr ir um skipun iyfsölumálanna í landinu, hvað þá sett því stól- inn fyrir dyrnar, þegar úrslit þeirra mála eru ráðin.“ Lyfja- fræðingar hafa í einfeldni álit- ið, að alþjngi setji þjóðinni lög og skipi málum hennar og úr- slitum'þeirra í því efni en ekki Vilm. Jónsson né neinn annar. Alþingi hefur enn ekki tekið skipun lyfsölumálanna til með ferðar og virðist því ótímabært að óttast, að v-crið sé að segja þjóðfélaginu fyrir í því efm eða einhver annar en alþingi muni gera það. Að vísu var stjórn- skipaðri nefnd falið á sínum tíma að gera tillögur um málið en landlæknir hefur á eindæmi breytt þeim tillögum. Sé ejn- hver að basla við að segja þjóð- félaginu fvrir í þessu efni, er það því varla annar en land- læknir sjálfur. Lyfjafræðingar hafa reyndar sern fleiri dirfzt að gagnrýna tillögur hans og benda á lejðir til endurböta á þeim. Sé það honum eitthvað til trafala, getúr hann vel nefnt það ,,að setja stólinn fyrir dyrnar", en ekki þjóðfélaginu heldur honum, og í augum lyfjafræð- inga er það sitt hvað. En það eru fleiri en lyfjafræðingar, sem syndga vjð þjóðfélagið með andstöðu við tillögur landækn- is. Engin ríkisstjórn hefur vilj að taka þær upp á sína arma. Vilm. Jónsson kennir það und- irlægjuhætti við „sérréttinda- burgeisa“. Stöku mönnum er svo farið, að þeir finna alltaf illar hvatir í gagnrýni annarra á gerðum þeirra og fá aldrei með tekið þann grundvallarskilning lýðræðis, að skoðanjr samborg- aranna geti verið jafn réttháar þeirra eigin og sprottnar af engu minni vilja til að leysa við- fangsefnin. Lyfjafræðjngar hafa ekki vilj að láta draga sig inn í deilur um réttmæti eða óréttmæti einkasölunnar, sem slíkrar. En þeir hafa talið hana utan lyf- fræðilegra spursmála og ekki viljað blanda henni inn í lyfja- lög. Alþingi getur hvort sem er stofnað hana með sérstökum lög um, hvenær sem því sýnist. En með því að landlæknir dregur einkasöluna og ,,lyfsölusjóð“ inn í þessar umræður sem máttar- stólpa tillagna sinna í lyfsölu- málum og reypir um leið að gera lyfjafræðjnga og apótek- ara tortryggilega, skal rökum þeirn, sem hann færir þeim til framdráttar, gerð hér nokkur skil. Lyfjaeinkasölunni er ætlað að lækka lyfjaverðið. Almenning- ur hefur nú fengið nokkura reynslu af verðlækkunaráhrif- um ejnkasalanna í þessu landi. En hefur lyfjaeinkasala í sér fólgin fyrirheit um betri raun? Nú kaupa apótekin meira eða minna af lyfjum sínum milli- liðalaust frá útlöndum og sum nær öll sín lyf. Þau beinu kaup mun ejnkasalan fyrirbyggja og hækka innkaupsverð lyfja með milliliðakostnaði sínum. Sé erf- itt eða ávinningslaust að reka einkasölu með einfalda stór- slumpavöru eins og bíla, timb- u.r, kol, olíu o. þ. h., sem kaupa má í skipsförmum frá einum og sama framleiðanda eða selj- anda, hvað mun þá um einka- sölu á lyfjum, sem eru marg- kynja vörutegundir, er hvergi er að fá frá einum framleiðanda né heldur í einu landi, og flutt er inn í sára litlu magni hver tegund, jafnvel þótt kaup fyrir alla þjóðina væri að ræða. Það magn, sem 135 þús. sálir nota af hverri lyfjategund er svo sára lítið, að það getur engin áhrif haft á verðtilboð á heims- markaðinum. Einkasölunni er ætlað að tryggja góð og ósvikin lyf. Eftir því mætti ætla, að nú séu flutt inn vond og svikin lyf. Lyfin, sem flutt eru inn í land- ið, fylgja lyfjaskrá framleiðslu- landsins og öðrum þar að lút- andi ákvæðum. Þau eru keypt frá fremstu lyfjaframleiðendum Bandaríkjánna, Bretlands, Sviss lands og Norðurlanda, og við þessa sömu framleiðendur myndi einkasalan skipta alveg eins og Lyfjaverzlun ríkisins gerir nú. Það yrði því engin breyting til batnaðar við til- komu einkasölunnar. Lyf jaeinkasölunni er ætlað að tryggja almenning gegn mistök um og vöruskorti. Lyfjanotkun getur verið ákaflega óviss. Lyfjabirgðir, sem undir venju- legum kringumstæðum endast lengi, geta horfið á svipstundu, ef óvæntan veikindafaraldur ber að höndum. Undir þeim kringunistæðum hefur það bjargað, að lyfjabirgðir hafa verið fluttar inn til fleiri staða en Reykjavíkur og af fleiri en einum aðila, sem leitað hafa mátt hver til annars, þar til nýj ar birgðir hafa borizt. Ef einka salan kemst á fót, liggja apótek in með ‘ engar birgðir. Lyfja- þurrð einkasölunnar verður um leið lyfjaþurrð alls landsins með þeim afleiðingum, sem það getur haft. Ef mistök verða í apóteki, ná þau ekki lengra en til þess takmarkaða hóps manna, sem skiptir við það. Verði hins- vegar mistök í einkasölunni, verða þau um leið mistök allra apóteka landsins, sem hið ranga lyf hafa keypt. Þannig er ,,ör- yggisaukningin11. Einkasalan á að hafa rétt til lyfjagerðar. Það er sama og éinkaréttur til lyfjagerðar, því að einkasálan situr að innkaups- verði lyfjaefnanna, en apótekin verða að kaupa þau með vérði einkasölunnar, og útsöluverð lyfsöluskrárinnar yrði vita- sliuld miðað við tilkostnað einkasölunnar, ef lyfjaverðið ætti ekki að stórhækka. Lyfja- gerðin væri þar með tekin af apótekunum með þeim afleið- ingum, sem drepið hefur verið á áður. Loks fær einkasalan greiddan skatt af apótekunum, sem heimtur er inn af svo köll- uðum lyfsölusjóði. Lyfjaeinka- salan verður því fyrirtæki, sem stóreykur hættuna af lyfja- þurrð og mistökum, hækkar inn kaupsverð lyfja til apótekanna, tekur af þeim alla lyfjagerð, á- kveður sjálf allt verðlag til þeirra, en þau fá hins vegar engu um ráðið útsöluverði frá sér, og tekur auk þess skatt af apótekunum til greiðslu rekst- urskostnaðar síns. Er nokkur furða, að undanfarandi ríkis- stjórnir hafi tekið tillögum land læknis með hægð? Þá er komið að hinni annarri máttarstoð frumvarps V. J. „lyfsölusjóðnum11 og hlutverki hans. Er það sérstakí fyrirtæki, sem ætlað er það höfuðverkefni að heimta skatt af apótekunum og veita fénu inn í einkasöluna. Til að skreyta þetta grófa hlut- verk er honum ánafnað það aukahlutverk að stuðla að stofn un og rekstri lítilla apóteka með styrkveitingum. Telur V. J. þetta atriði einn „aðaltilgang“ frumvarpsins, svo mikilvægan, að alls ekki megi hreyfa við fjölgun apótekanna í Reykja- vík, fyrr en írumvarpið hefur orðið að lögum. En þeir apótek- ara^ einir geta hlotið styrkinn, ,,er ekki ná þeim nettóhagn- aði . . . að þeir verði gjaldskyld ir í lyfsölusjóð . . . enda sé ekki til að dreifa ódugnaði eða van- rækslu í staríi“. Það eru með öðrum orðum apótekarar, sem rétt hanga í því að koma til út- svars og þó eiga þeir að hafa, Framh. á 7. síðu. , Útvega með stuttum fyrirvara Járn frá. Belgíu Smíðajárn, Plötujárn, svart og galvaniserað. Steypustyrktarjárn. Egiil Árnason Hafnarhúsinu. — Sími 4310.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.