Alþýðublaðið - 12.05.1948, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 12.05.1948, Blaðsíða 3
vSl Miðvikudagfur 12. maí 1948 £i. :n ; %í, ' 1A ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 MIÐVIKUDAGURINN 12. MAÍ. — Vorvertíð á Suðurlandi hefst. — Þennan dag árið 1719 fæddist Bjarni Pálsson, fyrsti landlæknir á íslandi. — Sama dag fyrir 20 árum kepptu sjó- liðar af brezka herskipinu Doon við KR í knattspyrnu. Sagði Alþýðublaðið þá að Bretarnir ’ myndu hafa ætlað að hefna fyr ir ófarir frönsku sjóliðanna nokkru áður. Vonaði blaðið, að íslendingarnir verðu sóma sinn og heiður. Það gerðu þeir lílta, því að KR vann brezka heims- veldið með 12 mörkum gegn engu. Daginn eftir fór fram kappleikur milli KR og sjó- manna af brezku flutningaskipi og KR vann með 14 gegn engu. Sólarupprás var kl. 4.23, sól- arlag verður kl. 22.27. Árdegis- háflæður er kl. 8.35, síðdegishá- flæður kl. 21.00. Lágfjara er hér um bil 6 stundum og 12 mín- útum eftir háflæði. Hádegi í Reykjavík er kl. 13.24. Næfurlæknlr: í læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvarzla: Ingólfs Apótek, sími 1330. Næturakstur: Bifreiðastöð Reykjavíkur, sími 1720. Söfn og sýnlngar Myndlistársýning skólabarna 1 Listamannaskálanum kl. 10— 22. trúlofun sína ungfrú Svava Sigurðardóttir, Vitastíg 7, og Sigurður Ingimundarson, hús- gagnasmiður í Gamla kompan- íinu. Gjafir Gjafir til Blindraheimilis Blindravinafélags íslands: S. G. j til minningar um Pál Einarsson kr. 1000,- N. N. kr. 5,00. Einn- ig útvarpstæki frá Ingólfi ís- ólfssyni. Kærar þakkir, Þ. Bj. Slökkvitæki m Nokkur slökkvitæki eru til sölu. Upplýsingar hjá slökkvistöð Reyfcja víkurflugvallar. Flugvallarstjóri ríkisins. Tvö tónverk eftir Karl Ó. ólfsson flutt í Tripoli íþróttir Eins og getið hefur verið um í fréttum frá ÍSÍ, hefur íþrótta- sambandinu borizt boð frá Fim- leikasambandi Norðurlanda um það, að hér fari fram norrænt fimleikamót 1950—1951, í til- efni af þessu hefur ÍSÍ skipað þriggja manna nefnd til að at- huga möguleika á framkvæmd þessa máls og munu tillögur nefndarinnar liggja fyrir innan skamms. Nefndiná skipa þessir menn: Þorsteinn Einarsson form., Benedikt Jakobsson og Jón Þorsteinsson. Sem fulltrúa íþróttasam- bands íslands í hið nýstofnaða Norræna sundsamband hefur stjórn íþróttasambandsins skip- að Erling Pálsson og til vara Benedikt G. Waage. Flugferðir AOA: í Keflavík (kl. S—9 síð degis) frá New York, Boston og Gander, til Kaupmanria- hafnár og Stokkhólms. Skipafréttir „Laxfoss“ fer frá Reykjavík kl. 8, frá Akranesi kl. 9.30. Frá Reykjavík kl. 17, frá Akranesi kl. 20. Höfnin: Forseti kom af veið- um í gær, lítils háttar bilaður. Foldin kom til Amsterdam í gær. Vatnajökull er í Amster- dam, fer þaðan 15. þ. m. Linge- stroom er í Amsterdam. Mar- leen er á leið til Reykjavíkur frá Osló. Reykjanes er í Eng- landi. Brúarfoss er í Leith. Fjall- foss er á leið til Reykjavíkur frá Halifax. Goðafoss fór frá Amsterdam í gær til Boulogne. Lagarfoss kom í gær til Rotter- dam frá Reykjavík. Reykjafoss fór frá Keflavík í gær til Leith. Sænska leikkonan Viveca Lindfors. Selfoss er væntanlegur í dag til Rvíkur að norðan. Tröllafoss er í Reykjavík. Horsa var í gær úti fyrjr Hólmavík vegna dimmviðris. Lyngaa fór frá ísa firði í gær til Siglufjarðar. Varg væntanleg í dag til Reykjavík- ur frá Halifax. Aflasála: 21. apríl til 1. maí seldu 7 togarar og 5 vélbátar afla í Bretlandi fyrir samtals 2 917 000 kr. 3.—8. mai seldu 7 togarar afla sinn í Þýzka- landi. Afmæli Áttræður er í dag Magnús Torfason fyrrverandi alþingis- maður og sýslumaður. Hjónaefni Á laugardaginn opinberuðu Happdrætti. Dregið var í happdrætti Templara í gærkveldi. Vinning ar verða auglýstir síðar. Leiksýningar Fjalakattarins falla niður. Næsta sýning á mið vikudaginn kemur. Kvenfélag Neskirkju. Munið sumarfagnaðinn í kyöld kl. 8,30 í Oddfellowhúsinu uppi. Skemmtanir KVIKMYNDIR: Nýja Bíó: „Fjöreggið mitt“. Claudette Colgert og Fred Mc- Murry. Sýnd kl. 9. „Kúbönsk rúmba“. Sýnd kl. 5 og 7. Austurbæjarbíó: „Baráttan um barnssálina". Sýnd kl. 9. „Hótel Casablanca“. Sýnd kl. 5 og 7. Tjarnarbíó: „Oklahoma" John Wayne, Martha Scott, sýnd kl. 5 og 7. íslandsmynd Lofts sýnd kl. 9. Tripoli-Bíó: „Eyja dauðans“. Boris Karloff, Ellen Drew, Marc Cramer. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bæjarbíó, Hafnarfirði: „Sig- ur ástarinnar". Regina Linnan- heimo, Elsa Rantalainen. Sýnd kl. 9. „Ofvitinn“ Sýnd kl. 7. Hafnarfjarðarbíó: „Tápmikil og töfrandi“. Ginger Rogers, David Niven. Sýnd kl. 7 og 9. SAMKOMUHÚSIN: Hótel Borg: Danshljómsveit frá kl. 9—11.30 síðd. Ingólfscafé: Opið frá kl. 9 ár- degis. Hljómsveit frá kl. 9 síðd. Sjálfstæðishúsið: Kabarett Fóstbraeðra kl. 8,30 síðd. Tjarnarcafé: Sumarfagnaður Kvenfélags Neskirkju kl. 8,30 síðd. (uppi). — Danske skabet kl. 9 síðd. (niðri). KROSSGÁTA NR. 24. Lárétt, skýring: 1. Grimmur, 7. fraus, 8. óbundinn, 10. sam- tenging, 11. reiðihljóð, 12. kon- ungur, 13. samhljóðar, 14. fá eftir, 15. atviksorð, 16. ferð. Lóðrétt, skýring: 2. Forseta- bústaður, 3. blóm, 4. fanga- mark, 5. mannsnafn, 6. dúr, 9. þramm, 10. amboð, 12. merkið, 14. neyta, 15. tímamælir. LAUSN Á NR. 23. Lárétt, ráðning: 1. Valska, 7. fas, 8. traf, 10. óg, 11. lær, 12. æða, 13. al, 14. hrun, 15. óri, 16. flóni. Lóðrétt, ráðning: 2. Afar, 3. laf, 4. S. S., 5. afgang, 6. ætlar, 9. ræl, 10. óðu, 12. ærin, 14. hró, 15. ól. Sel- CJtvarpið 26.30 Frásöguþáttur: „Aldar- spegill“; minningar séra Þorkels á Reynivöllum (Gils Guðmundsson rit- stjóri). 21.00 Tónleikar (plötur). 21.05 Upplestur: Kvæði eftir Guttorm J. Guttormsson (Helgi Hjörvar les). 21.35 Sönglög („Dúr- og moll“ kvartettinn syngur; und irleikari: Skúli Halldórs- son). 21.35 Búnaðarþættir: Laust og fast (H. J. Hólmjárn ráðunautur). 22.00 Fréttir. 2205 Vinsæl lög (plötur), 23.00 Veðurfregnir. — Dag skrárlok. ÞAÐ er ekki á hverjum degi að fram koma stór tón- verk eftir íslenzka höfunda. Bæði er, að ekki er mikið af slíkum verkum samið hér á landi og skilyrði takmörkuð til að flytja þau, þótt sanún séu. Það hefði því átt að vekja ekki litla athygli með- al íslenzkra tónlistarvina, þegar flutt voru tvö slík verk í einu, annað þeirra nú í fyrsta skipti, á sameigin- legum tónleikum söngfélags ins Hörpu og Symfóníuhljóm sveitar Reykjavíkur í Tripoli leikhúsinu s. 1. sunnudag. Bæði tónverkln voru eftir Karl Ó. Runólfsson, en hann er nú meðal hinna afkasta- rt.eiri tónskkálda okkar. brátt fyrir mikið annríki við önnur störf. Hljómsveitar- svítan „Á krossgötum“, sem var annað þeirra verka, er hér var flutt, er samin fyr- ir nokkrum árum.og var þá flutt hér í fyrsta sinn. Vakti hun þá þegar mikla athygli, og nú stendur til að þetta verk verði flutt í sumar bæði í Danmörku og Noregi, — Það er á köflum nokkuð ný- stárlegur blær yfir þessu verki og þar gætir áhifa úr ýmsum áttum, margra í fyrsta skipti í íslenzkum tónbókmenntum. Hitt getur orkað tvímælis, hversu tek- izt hefur að fella þessi áhrif sarr.an í listræna heild, og heildarsvipur verkskis ber óneitanlega nokkurn keim af ,,tilraunamúsik“ hinna stærri tóniistarþjóða frá árunuiu eftir heimsstyrjöldina fyrri. Kantatan ,,Vökumaður, hvað líður nóttinnj..?“ við ljóð Davíðs Stefánssonar, er nýsamin og var nú flutt í fyrsta sinn. Þetta verk er tæplega eins ,,interessant“ eins og svítan, enda virðist tónskáldinu ekki vera kórinn eins innan handar og hijóm sveitin. Kemur þetta' m. a. íram í því, að mjóg skortir á stilrænt samræmi miiii kórkaflanna og þeirra kafla, þar sem hljómsveitin ber meginþungann. Kórmn nær sér sjaldan verulega á strik, og þar sem virðist eiga að stefna honum til mestra á- taka, t. d. í fúgatóköflunum, er jafnan eins og sveigt sé af, áður en hápunkti er náð. Af þessum sökum og vegna þess, að samskeyti eru sums staðar nokkuð losaraleg, verður verkið í heild dálítið stefnulaust og áhrifaminna en ella hefði orðið. — En þrátt fyrir þessa ágalla eru þá í kantötunni margir fagr- ir og veí gerðir hlutir, sem mundu njóta sín enn betur, ef verkið væri endurskoðað og ofannefndir byggingar- gallar þess Iagfærðir. -Það er góðra gjalda vert af Hörpu og Symfóníuhljóm sveitinni .að taka þessi verk til flutnings,,þvi að eitt höÞ uðskilyrði fyrir framfönam, á tónsmíðum hér á lándi eíns og annars staðar er það, að tónskáldunum gefist kostur á að heyra nýsamin verk sín og reyna áhrif þeirra á áheyr . endur. Bæði er, að siíkt er hinn bezti skóli tónskáidun- uni, og þau tónskáld liíca færri, sem nenna að fást við að semja tónsmíðar upp á von og óvon um það, hvovt þær verði nokkru sinni ílutt ar. Dr. Urbantschitsch stjórri- aði kór og hljómsveif á þess- um hljómleikum af sínum al kunna dugnaði, en mikið vantaði á nægilega æfiaigu til þess að viðfangsefnin nj-tu sín svo sem bezt gpt orðið, og mun þó stjcrnand- anum ekki um að kenna. — Einsöng í kantötunni sungu Óiafur Magnússon, sern gerði allerfiðu og fremur vanþakk látu hlutverki ágæí skil, og Bírgir Halldórssbn, sem einn ig skilaði hlutverki sínu mjög sómasamlega. Það er ástæða til að öska Karli O. Runólfssyni til ham ingju með þessi verk hans, og þjóðinni með það, að hún. skuli eiga tónskáld, sem hafa eiju og þrek til að semja slík verk, ekki betur en að þeim er búið velflestum. J. Þ. , þrír drengir i vegavinnu. Ný bók eftir Loft Guðmundsson. KOMIN er út ný bók eít'r Loft Guðmundsson rithql’- und. Nefnist hún Þrír dreúg ir i vegavinnu, og er gef'n. út af Norðra og er 4. bókin í óskabókaflokki útgáfunnar, en þetta er fyrsta íslenzka sagan í þeim flokki. Bókín fjallar aðallega iim þrjá unga drengi, sem. raðast í vegavinnu og gerist á einu sumri, Margt kátbroslegt og skemmtilegt kemur fyrir drengina bæði i samskiptum þeirra í milli og samskipí- um. þeirra við aðra vega- virmumenn. Bókinni, sem er 168 blað- síður að stærð, er skipt í átta kafla, sem bera þessi nöfn: Pési fer í vegavinnu, Fyrsti morguninn, Bændagiímæ, Skriðsund og hundasunck- Erjur, Sér grefur gröf , . , , Orustan við lækinn og Laug ardagskvöld. IE

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.