Alþýðublaðið - 25.05.1948, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 25.05.1948, Blaðsíða 1
Veðurhorfizrs Suðaustan kaldi og sums staðar lftilsháttar rignlng síðdegis. * i * XXVIII. árg. Þriðjudagur 25. maí 1948. 114. tbl. Forustiigrelns Fjandskapurinn við síld- ina. * * ! Överland í Síúdentafélagi Reykjavíkur: Töktiaiss tilréun kommúnista, a’ð draga skáidið inn ! fslenzkar innanlsn-dsdeih ur, vökto yndrun og andýð findarinanna ALÞYÐUBLAÐIÐ birt- ir á morgun grein eftir Guðmund Gíslason Haga- lín, sem höfundurinn nefn ir „Þú vínviður hreini, þú eilífi eini . . . “ Greinin er skrifuð í til- efni af grein Halldórs Kiljans Laxness í Þjóð- viljanum á sunnudagtnn um komu norska skáldsins og frelsishetjunnar Arn- ulfs Överlands hingað. LÝÐRÆÐISÞJÓÐIENAR verða að fcindast sterkum böndum til varnar til þess að friður haldist í heiminum, sagði Arnulf Gverland í Háskólanuin á sunnudagskvöld. Ekkert er j hættulegra friðinum en það, að lýðræðisþjóðirnar séu svo veik 1 ar, að þær verði freistandi bráð fyrir árásarríkin. Þær eiga að vera svo síerkar og sameinaðar, að Stalinisminn sjái sér ekki áimað fært en að hætta árásum á þær, og kynni þá svo að fara, ef Rússar fengju tíma t:l að hugsa sig um, að þeir sæju að það er þeim fyrir beztu að hætta árásastefnu sinni. Överland talaði á fundi í Stúdentafélagi Reykjavíkur, var fundurinn haldinn í fyrstu kennslustofu skólars sem var troðfull langt út úr dyrum. Kristján Eldjárn, for maður félagsins, setti fund- inn og bauð skáldið velkom- ið. Överland ræddi um lýð- ræði og einræði en kjarninn úr ræðu hans var sterk og ít arleg ádeila á höfuðvirki ein ræðisins í heiminum í dag, Sovétríkin. Rakti hann það, hvernig allt það, sem Rússar fengu eða ætluðu að fá með by.ltingunni, hefði glatast í gin Stalinismans, hvernig jörðum hefði verið skipt milli bænda og þær síðan dregnar undir samyrkjubú ríkisvaids ins, hvernig borgararnir hefðu gersamlega misst allt frelsi, en fengið í staðinn aö eins öryggi þrælsins. Þá rakti skáldið útþenslu Sovétríkjanma, jafnfram því, sem hann sýndi, að heims- veldisstefna Breta og Banda ríkjanna væri löngu horfin. Benti hanm á það sem dæmi, að Bandaríkin hefðu eftir síð ustu styrjöld fengið yfirráð yfir Kyrrahafseyjum, sem væru 2000 ferkílómetrar or hefðu 50 000 íbúa, en Sovét ríkin hefðu lagt undir sig lönd, sem væru ein milljón férkílómetrar og hefðu um 150 millj. íbúa. Það væri því ólíku saman að jafna, er rætt væri um yfirráð og heimsveld ísstefnu. Skáldið dvaldi alllengi við valdarán kommúnista í Ung- verjalandi og aréttarmorð Petkovs í Búlgaríu, og tók þetta sem dæmi um starfsað ferði.r ein.ræðiisins. Minntist hann á það, hvernig ungversk ir stjórnmálamenn hefðu, samkvæmt hinurn opinberu fréttum. gefið upplýsingar hver um annan eftir „lang- varandi og erfiðar“ yfir- heyrslur. Överland kvaðst tala fyrir hönd sjálfs sín og tugþúsunda annara, sem Ingóífur Arnarson selur fyrlr 15579 pund INGÓLFUR ARNARSON nýbyggingartogari Reykja- víkurbæjar, setti isölumet í Grimsby í gærmorgun. Seldi hann þar 4780 kits fyrir 15 579 siterlingspund, en það er langhæsta sala Ingólfs Arn- arsonar fram að þessu. og jafnframit hæsta sala, isem nokbur nýbyggingaritogari af minni gerðinni hefur náð. Skilnaðarmenn slofna flokk í Færeyjum FREGN frá Kaupmanna- höfn í gærkveldi hermir, að skilnaðarmenn í Færeyjum hafi istofnað nýjan flokk, sem þei,r kalla þjóðveldisflokk. Ætlar hinn nýi flokkur að vinna að skilnaði við Dan- mörku og. stofnun lýðveldis í Færeyjuin. , - T„,6yðingar svara áskar |U un öryggisráðsins jéf- Árabar biðja um 36 stunda frest Paasikivi forseti Finnlands Pekkala forsætisráðherra Finna Heimta, aó eftirmaður Leihös í ionan- ríkisráðuneytinu verði kommúnisti! PAASIKIVI FINNLANDSFORSETI veitti kommúmstan- um Leino lausn frá innanríkismálaráðherraembætti á sumui. daginn eftir að finnska ríkisþingið hafði lýst vantrausti sínu á ráðherranum. En fráför hans hefur framkallað alvarlegar við- sjár á Finnlandi. Koimnúnistar og bandamenn þeirra í „fólks- demókratabandalaghiu“ heimta, að eftirmaður Lemos í hman- ríkismálaráðherraembættinu verði einnig konunúnisti, og ógn. uðu í gær með allsherjarverkfalli í dag, þriðjudag, ef ekki yrði á það fallizt. Vantraustsyfirlýsingin áar, tíu finnska ríkisborgara Leino, sem er einn af for- sprökkum finnskra kommún ista og kvæntur Herthu Kuus ir.en, dóttur kvislingsins nafntogaða, sem dubbaður var t;.l forsætisráðherra í leppstjór.n Rússa í Terijoki. er þeir réðust á Finnland 1939, var samþykkt, er upp- lýst hafði verið, að hann framseldi Rússum árið 1945. án vitundar þings og sitjórn- Síld veiðist í ísafjarðarhöfn (Framh. á 8. síðu.) í GÆR veiddust 200—300 mál af landsíld á ísafjarðar- höfn. Er þetta talin mjög góð beitusíld. ________ Á áttræðisafmæli sínu í dag tekur sér Friðrik Friðriksson dr. theol, á móti ‘jgestum í hátíðasal K.F.U.M. og K.F.U.K. frá kl. 2—5 e. h. og tíu flóttamenn, er höfðust við á Finnlar.di. En það hef ur ekki farið dult. ,að Finnar hafa lengi grunað Leino um græsku af öðrum ástæðum. Hann hefur notað sér innan ríkismálaráðherraembættið til að troða kommúnistum í valdastöður innan lögregl- unr.ar, og blandast engum hugur um, að til þess vilja kommúnistar hafa aðstöðu áðstöðu áfram og því heimta þe;r að eftirníaður Leinos verði ejnnig kommúnisti. En til bráðabirgða tók við emb- ætti hans á sunnudaginn Kilpi menntamálaráðherra, sem er í „fólksdemókrata- bandalaginu“, og það er, sem kunrugt er, einnig forsætis- ráðhsrrann, Pekkala. Finnska Alþýðusamband- ið, sem er undir forustu jafn aðarmanna, tók í gær á- kveðna afstöðu gegn öllum pólitískum verkföllum og æsingum kommúnista út af þessu máli. STJORN ISRAELSRÍK IS svaraði í gær áskorun frá öryggisráði hinna sameinuðu þjóða um vopnahlé í Palestínu á þá leið, að hún væri fyrir sitt leyti reiðubúin að leggja niður vopn, ef Ar- abar gerðu það sama. En Arabaríkin báðu um 36 klukkustunda frest til svars, frá kl. 4 síðdegis í gær að telja. ÖryggisráSið samþykkti á laugardagskvehVð að skora á báða aðilg að hætta vopna- viðskiptum og gaf þeim frest til svars þar til í gær. Höfðu Arabaríkin haldið með sér fund um málið í Amman, höf uðborg Transjórdaníu og á- kveðið að fá frestinn til end anlegs svars framlengdan, og lýsíi hrezka stjórnin yfir því í gær, að hún myndi stvðja þá málaleitun þeirra, en jafn framt beita sér fyrir því, að Arabaríkin féllust á vopna- hlé. Stjórn Bandaríkjanna lagði um helgina mjög að báð um aðilum, að verða við á- skorun öryggisráðsins. Hairðir bardagar héldu á- fram í og umhverfis Jerúsal em í gær og eru nú einnig egipzkar hersváitir komr.ar þangað á vettvang, hafa sam einast hersveitum Transjórd aníu sunnan við borgina og sækja með þeim inn í hana. Gyðingar skýra nú einnig frá hörðum bardögum í Norð ur Palestínu. suður af-Gali- leuvaitni, þar sem hersveitir frá Sýrlardi og Jraq sækja inn í landið; en í fregn frá Bagdad í gær var frá því skýrt, að Sýrlendingar væru nú að hefia anikla sókn þar. Stjórn Suður-Afríku hefur nú bætzit við í hóp þeirra ríkja, sem hafa viðurkennt hið nýja Ísraelsríki. og er Suður-Afríka fyrsta landið í brezka samveldinu, sem við- urkennir bað. I ' Pifhjóli ekið á hjón —»-— Á LAUGARDAGINN ók mótorhjól á 'hjón, sem stóðu á gangstéttinni við Austurbæjar- bíó. Féllu hjónin við árekst- urinn og meiddist konan all- mikið. En maðurinn, sem ók mótorhjólinu, tók til fótanna og hljóp í burtu eftir að hann háfði valdið slys.Inu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.