Alþýðublaðið - 24.06.1948, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.06.1948, Blaðsíða 4
4 _____________ ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. júní 1948. Úígefandi: AlþýSufIokkurinn. Ritstjóri: Stefán Fjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndai, Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglysingasími: 4908. AfgreiSslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýð’mrentsaiiðjan l*.f. Þakkarorð Þjóðfill- ans ffl Hsrmaniis ÞJÓÐVILJINN í gær mætti vera lærdómsríkt plagg fyrir flokksbræ'öur Hermanns Jónassonar. Þetta aðalmálgagn íslenzkra kom- múnista hyllir formann Framsóknarflokksins líkt og hann væri. kommúnisti, sem ætti merkisafmæli. Ástæð- an er hinn sameiginlegi mál- flutningur Hermanns og Þjóðviljans um inneignirnar erlendis. Kórinn tekur undir með einsöngvaranum, og lag- leysan er kyrjuð fullum hálsi, en hlutaðeigendur í- mynda sér, að þetta sé hinn snilldarlegasti söngur! Kommúnistablaðið tínir upp allar helztu blekkingar Hermanns Jónassonar um fjárflóttamálið og feitletrar dylgjur hans og árásir í garð núverandi ríkisstjórnar. Hinn sameiginlegi málstaður segir til sín. Þjóðviljinn og Her- mann hafa staðhæft opinber- lega, að tilgreindar upphæðir falinna íslenzkra inneigna væru „fundnar" véstur í Bandaríkjunum. En iaðspurð- ir neita báðir þessir aðilar að gefa nánari upplýsingar, af því að þær eru ekki fyrir hendi og fréttaburður þeirra slúður eitt. En þeim rennur hvorum um sig blóðið til skyldunnar við hinn, og nú reyna þeir í; sameiningu að klóra í bakkann. * Kermann Jónasson og Þjóð viljinn gera það að endur- teknu árásarefni í garð rík- isstjórnarinnar, að ekki hef- ur tekizt að hafa upp á hin- um erlendu inneignum. En ■þessar sakargiftir eru í senn heimskulegar og ó.sánngjarn- ar. Þessi fjárflótti hefur ekki átt sér stað í tíð núverandi ríkisstjórnar. og henni var því að sjálfsögðu ógerlégt með öllu að koma í veg fyrir hann. Hún hefur hins vegar gert allt, sem* hehni var auð- ið, til að afla upplýsinga um erlendar inneignir íslenzkra einstaklinga. og félaga. Þær tilraunir hennar hafa enn ekki borið árangur. En það stafar síður en svo af vilja- Oeysi hennareðayfirhylmingu eins og Hermann og komm- únistar vilja vera láta. Ríkis- stjórnir nágrannalandanna hafa heldur ekki reynzt þeim vanda vaxnar til þessa, að finna erlendar inneignir þegna.þeirra vestan hafs. Það er fyrst_nú, eftir að Banda- ríkjaþing hefur afgreitt lögin um Marshallaðstoðina, að hægt er að gera betta mál að milliríkjamáli. Þetta hlýtur Hermanni Jónassyni og sam- herjum hans í Kommúnista- flokknum að vera ljóst. En Bjarni í Nýja Bíói tekur til máis. — Ekki þeim að kenna. — Ailar sakir falla á gjaldeyrisnefml. — Rónimum gerð minkimn. —• Hve nær tekur foringi beirra til máls. — Bréf rnn hjáipfýsi. — Aðaismérki Islendinga. HUGHEILAR ÞAKKIR til allra þeirra. sem sýndu mér vinsemd og vk’ðingu í tilefni af 80 ára afmæli mínu. Góður guð 'Iauni ykkur öllum. Sigurveig Einarsdóítir, Kirkjuveg 10. Hafnarfirði. 4ra herbsrgja íbúð í itús: vdð HaHaveg,. laus 1. okt. á- samt tveggja herbergja íbúð í risi í góðri leigu til eins o,g h-álfs árs. Ennfremur íbúðarakipti víðs vegar um bseinn. Baldvin Jónsson, hdi. Sími 5545, Austurstræti 12. Gleymið ekki að við kaupum allair algengar vín- flöskur á 50 aura stykkið. — Móítaka í Nýborg. áfengisverzlun rfkisins. AÐ GEFNU TILEFNI sendir Bjarni í Nýja Bíói mér eftirfar- ancli pistil: „Hugsað get ég himin og jörð, en hvorugt smíðaff, af því mig vantar efnið í það“. í PISTLUM ÞÍNUM ávítar þú okkur, eigendur Nýja Bíós í Reykjavík,' fyrir ósmekklega umgengni og hraksmánarlegt útlit á nýbyggingu okkar við Lækjargötu, þar sem öðrum megin við inngang' í hina smekklegu skrifstofu Loftleiða er bogin rúða úr spegilgleri, en hinum megin járnplata í rúðu- falsinu. — Það er satt, að þetta er hörmulega rangeygt, og verð- ur þú ekki víttur fyrir þínar að- finnslur. Þær eru réttmætar og án efa af góðum huga sprottnar, því að ,,sá er vinur, er til vamms segir.“ EKKI VAR NÚ Þ.ETTA samt hugsað þannig í upphafi sem út- litið nú gefur til kynna. Keypt- ar voru til byggingarinnar þrjár bognar rúður, tvær sitt hvoru megin, en ein til vara. En nú var „eigi ein báran stök“ frem- ur en fyrri daginn. Ein rúðan brotnaði við uppsetningu, og geta slík óhöpp allt af hent, en hinar tvær voru settar í. Á páskadag síðast liðinn var svo önnur af þessum tveim rúðum brotin af völdum bifreiðar. Þá var eftir þessi eina, sem aðeins getur minnt á, hvernig útlitið á að vera. SKÖMMU SÍÐAR fórum við þess á leit við viðskiptanefnd, að fá gjaldeyris- og innflutnings leyfi fyrir nýrri rúðu, og nú fyrir nokkru barst okkur svarið. — Og svarið var neitandi. JÁ, HANNES MINN! Það eru fleiri en þú, sem eiga erfitt með að skilja þetta og hitt, og þess vegna vil ég taka mér þín orð í taunn — að vís örlítið breytt — og segja: Þar sem ég veit, að allir þeir, sem gjaldeyri úthluta, eru smekkmenn, á ég erfitt með að trúa, að þeir skuli ekki fyrir löngu hafa veitt leyfi til að kaupa nýja rúðu í þennan mikla glugga.“ TH. Á. skrifar mér á þessa leið: „Ekki veit ég, hvort það fer eftir því hvernig stendur á tungli, eða hvað það er annað, sem ræður því, þegar þið, hinir ágætu íslenzku blaðamenn, far- ið á túrana og íyllist vandlæt- ingu út af rónunum. Einmitt um þessar mundir virðist þið vera á einum þessara túra. Þú flytur, í horninu hjá þér, alllangt mál eftir Vídalín um róna, sem hann kveðst hafa verið samferða frá Hafnarfirði í áætlunarvagni." >,ÉG SKIL EKKERT í RÓN- UNUM, þeirn nafnkunnu mönn- um, að mótmæla ekki sjálfir slíkum skrifum. Því að það er sýnilegt, að hinn umræddi ölv- aði maður er ekki einn þ^irra. Og það er engin ný bóla, að nafn hinna eiginleg'u róna er lagt við'hégóma. Þeir eru ekki fleiri en bað að maður þekkir þá alla með nöfnum — átta eða tíu að tölu. Þeir eru að vísu auðnuleysingjar, brjóstumkenn- anlegir menn, sem þarfnast að- búðar, er þeir geta ekki veitt sér sjálfir. En ég hygg að lög- reglan myndi geta frætt þig um það, að yfirleitt valda þeir ekki óspektum í borginni. NEI, ÞAÐ ERU AÐRIR menn, oftast menn, sem telja sig í dag- legu lífi standa rónunum lang- samlega ofar, sem gera sér það að leik, að fara á fund rónanna, þegar þeir eru á fylliríi, koma öllu í bál og brand með fíflalát- um og koma rónunum í skömm. .Rónunum kemur aldrei til hug- ar, eða þá sjaldan að minnsta kosti, að stofna til óeirða. Þeir eru allt of veraldarvanir til þess. Þeir vita, hvað það kostar. „Dýr- asta gistihúsið í borginni“ kann- ast fleiri við en þeir. EN SÁ ER MUNURINN, að hæstaréttarlögmenn og yfir- læknar geta losnað við kjallar- ann með'því að greiða g.jaldið fyrirfram. Það geta rónarpir ekki. Annars býst ég við, að rónarnir, eða foringi þeirra, taki til máls þá og þegar. Það nær ekki nckkurri átt, að þeir svari ekki fyrir sig sjálfir.“ JÓN ÓL. skrifar á þessa leið: „Eitt dagblaðið skýrir frá því, að íslenzkir sjómenn hafi verið heiðraðir í Hamborg af borgar- stjórairum þar. Þetta gladdi. mig ósegjanlega mikið. Segir samá blað, að framkoma íslendinga í garð Þjóðverja eftir styrjöldina stingi mjög í stúf við framkomu flestra annarra þjóða. Þetta mun eflaust rétt vera. Það er leitt og meira en það til þess a'ð vita, að hatrið skuli oftast vera sett. í hásæti, en mannkærleikur og urnburðarlyndi sett tij hliðar. VIÐ SKULÚM EKKI vera nfeitt hreyknir af framkomu okkar við þýzku sjómennina s. 1. vetur; framkoman sú var sjálfsögð, og sýnir, að þi’átt fvrir innbyrðis deilur, er sú dyggð, sem kalla má hjálpfýsi og' lýsir mannkærleika, mjög rík í fari íslendingsins. Það er aðalsmerki og það aðalsmerkið er öllum titlum og tignarheitum æðra. Þetta skulum við jafnan hafa' í hyggju. Og þegar svang'an og klæðlítinn sjómann ber að garði, hvort sem hann er Þjóð- verji, Rússi, Finni o. s. frv., og hvort sem hann er hvítur mað- ur eða dökkur, þá eigum við að taka á móti honum með hjartað á rétíum stað. Það á að vera okkar aðalsmerki. VIÐ SKULUM EKKI fylla þann flokk manna, sem hatar og fyrirlítur sigraða þjóð. Við skul- um læra að fyrirgeía, og við skulum ekki erfa það, sem okk- ur var áður gert á móti. Við skulum reyna að stunda frið við allar þjóðir. Öfgar til vinstri og hægri ættum við að forðast. Meðalhófið er bezt, og á það ekki sízt við um viðskipti þjóða á milli, hvort sem er um efnaleg eða andleg samskipti að ræða. AÐALATRIÐIÖ Er'þETTA: Við skulum ekki ofmetnast af því, er við gerum gott. Hjálpum nauðstöddum, hvort sem hann er mitt á meðal vor eða á okk- ur er kallað úr fjarlægð til hjálpar sjúkum og svöngum. Þegar við látum eitthvað af hendi rakna, þá má ekki sú vinstri vita, hvað hin hægri gef ur. Það er hið sanna aðalsmerki og það á jafnan að vera merki íslendingsins". þó hika þeir ekki viS að halda þeirri firru fram, að það sé sök Emils Jónssonar viðskiptamálaráðherra, að ekki var hægt að gera mál þetta að milliríkjamáli fyrir hálfu ári! Þegar Þjóðviljinn hefur lapið upp þessar þlekkingar Hermanns Jónassonar, segir hann, að formaður Fram- sóknarflokksins túlki með þessum málflutningi sínum eðli þeirrar ríkisstjórnar, sem nú sé við völd, og hon- um finnst það „mikilla þakka vert“ að fá þessa frásögn um vinnuþrögð stjórnarinnar frá formanni eins stjórnmála- flokksins. Það er ekki nema von, að kommúnistar finni lyktina af þessum málflutn- ingi Hermanns Jónassonar og þakki þlekkingar hans, sem eru fram bornar í nákvæm- lega sama skyni og fleipur kommúnista sjálfra um hinar erlendu inneignir, nefnilega því, að rægj a.. núverandi rík- isstjórn! En ætli heiðarlegum mönnum í Framsóknar- flokknum þyki ekki leiðin- legt að horfa upp á þessi þlíðuhót kommúnista við flokksformann þeirra? * Þegar endurtekningu þlekkinganna og þakkarorð- unum tíl Hermanns Jónas- sonar er lokið, fjölyrðir Þjóð- viljinn mjög um það, hvað kommúnistar hafi verið á- fjáðir í það að taka sæti í stjórn undir forustu formanns Framsóknarflokksins, þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð! Mennirnir, sem skrifa Þjóðviljann, vita svo sem, hvað Hermanni Jónas- syni kemuj! Og þeir eru síð- ur en svo að leggja það á sig að hugsa til fortíðarinnar og viðburða hennar, þegar þeir telja sér hagkvæmt að slá formanni Framsóknarflokks- ins pólitíska gullhamra! En ætli -beir menn séu ekki fáir með þjóðinni, sem gera sér í hugarlund, að hér ríkti efnahagsleg og atvinnuleg velsæld op íslendingar væru 320 milljónum — eða þótt ekki væri nema 130 milljón- um — króna ríkari, ef komm- únistar isætu í ríkisstjórn undir forsæti Hermanns Jón- assonar? Myndi -ekki ein- hverjum verða það á að hugsa til áranna, þeg-a-r Bryn- jólfurogÁki sátu í ríkisstjórn og höfðu aðstöðu tisl að sýna fjármálavit sitt og fram- kvæmdagetu í verki? •— Skyldu glóþarnir hafa orðið spekingar, þó að iþjóðin hefði reynzt svo heillum horfin. að gefa Hermanni Jónassyni og kommúnistum kost á að láta sjúklega valdadrauma hans og þeirra verða að veruleika.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.