Alþýðublaðið - 07.07.1948, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 07.07.1948, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Miðvikudagur 7. júlí 1948 LA PALOM, Sháldsaga eftir Frú Dáríður Ðulheims: Frú Dáríður Dulheims: FRÁ SJÁLFRI MÉR. — Kg hef aldrei verið mikið fyrir það gefin að auglýsa sjálfa mig, eða þá starfsemi mína, sem ég nefni t hina andlegu orku- veitingu“. En þótt ég sé sjálf mjög hlédræg að eðlisfari, finn ég og veit, að slík hlédægni lifnar á starfinu sjálfu, og hindrar það um leið, að almenn ingur fái tækifæri til þess að njóta af því góðs og blessunar. Og þar eð slíkt getur talist til syndar, eða því sem næst, hef ég ákveðið að rjúfa þögnina og skýra að nokkru leyti frá því, í hverju þessi „andlega orkuveit ing“ er fólgin, og hverja bless- un hún hefur upp á að bjóða. Þar eð ég hef oft rekið mig á, að menn hafa að öllum jafn- aði beztan skilning á fjárhags legri blessun, ætla ég fyrst og fremst að fara nokkrum orðum um þann fjárhagslega ávinning, sem margir hafa hlotið gegnum mig og starfsemi mína, „orku- veitinguna“. Það veitir mér líka 4ækifæri til að kveða niður þær gróusögur, sem óandlegt fólk og illa innrætt, hefur komið á kreik um þetta starf mitt. Til þess að gera skýringu mína sem aðgengilegasta, ætla ég að taka eitt dæmi. Nokkra unga menn langar til að komast áfram. Þeir eru stórhuga og ákveða að stofna fyrirtæki, en þá skortir peninga. Þeir . hafa heyrt minnar lítilmótlegu per- sónu og blessunarríku starfsemi getið, og þeir leita til mín og tjá mér vandræði sín. Þeir hafa næman skilning á starfsemi minni, eins og flestir stórhuga menn, og þeir segja mér, öldung is ótilkvaddir, að þeir hafi heit ið því a'ð leggja starfseminni all drjúgan styrk peningalega, ef vandræði þeirra leysist, og auð vitað fái ég fullan ráðstöfunar- rétt, viðvíkjandi því fé. Ég svara: „Þetta er nú allt gott og blessað, drengir mínir, — en nú er eftir að vita, hvað þeir á hinu sviðinu segja. Komið til mín aftur eftir nokkra daga“. Og næsta kvöld, þegar ég held fund með nokkrum vinum mín um; en meðal þeirra eru nokkr ir fjárhagslega vel stæðir menn, sem styrkja starfsemi mína með al annars vegna hinnar andlegu blessunar og fróðleiksþekking- arauka, en einnig vegna þess, að þeim hafa gefist vel fjárhagsleg ar ráðleggingar að handan, og gera satt að segja fátt í þeim bransa án þess að fá þaðan ráð í gegnum mig, — og á þessum fundi hittist svo á, að þeir fyrir handan, stinga upp á því, að fyrrnefndir fundarmenn láni ungu mönnunum, sem ég gat um áðan, nokkuð fé - til að hefja framkvæmdir og telja, að slík ráðstöfun muni hafa stóraukna orkuveitingu í för með sér til fundarmanna. Af þessu litla dæmi getið þið, háttvirtir lesendur mínir og unnendur starfsemi minnar séð, að starfsemi mín hefur einnig stórmerkilega „praktiska" þýð- ingu, fyrir utan allá þá dásam- legu blessun, sem henni fylgir. Og um leið getið þið séð, hversu. tilhæfulaust það mið er, þegar andstæðingar mínir telja, að ég sé að þessu til að hagnast á því, og þetta sé jafnvel blekking. Sjálf þigg ég ekki einn eyri fyr ir mig prívat; þessar litlu pró- sentur renna allar til starfsem- innar. Ég mun svo seinna ræða nán- ar andlegu hliðina á starfsem- inni. í andlegum friði Dáríður Dulheims. SLÁTTUV ÉL ARROTTUR. Þjóðlelkhúsniálinu Ioksins hjargað; Þéir, sem fóru um Hverfisgötuna í gær munu hafa sér þess merki, að loksins hefur tekizt að finna ráð, sem leitt geti þjóðleikhúsmálið til lykta, svo að allir megi vel við una og telja sér sóma að. Er nú sum sé byrj að að verpa að því moldarhaug mikinn, sem síðar kvað eiga að tyrfa. Kvað og hafa komið til mála að haugsetja þar ýmsa merka menn þjóðar vorrar; fyrst og fremst þjóðleikhúsnefnd ina. Skemmtiferðaskipið brezka, sem koma átti hingað síðastlið inn fimmtudag, getur ekki lagt úr höfn vegna sólskins. Skotun ,,En hve ég er annars heimsk,“ sagði hún. Koss hans hitti hana á hökuna. „Ég veit ekki við hvað ég var hrædd,“ sagði hún bros- andi og vék aftur á bak, svo að hann varð að sleppa henni. Öryggi hennar kom aftur, og hún var alveg búin að ná sér, þegar hún kom aftur inn í dagstofuna til Lísbeitar. En Þórgnýr Minthe, sem var vanur að ráða, stóð stundarkorn kyrr með útréft- ar hendur. Hann fálmaði út í lofitið og fann að hún var horfin. Þá varð hann sneypt- ur og það skyggði á allt kvöldið. Þessi létta, ölvandi gleði, sem hanm hafði fundið til áður, var nú horfin, og allt í einu stirðnaði hann allur aftur. Hann var aftur orðinn hinn alvarlegi Þórgnýr Minthe, hinn heppni og stillti málafærslumaður. Þessa nótt lá hann lengi vakandi. Hann va rekki að hugsa; það var ekkert sér- stakt vamdamál, sem hann vildi komast til botns í. Hann lá bara og' sá augu La Pa- loma fyrir sér í myrkrinú og spékoppinn í annari kinn hennar. Morguninn eftir, þegar hann kom inn í dagstofuna til þess að sjá morgunblaðið, var Geirþrúður þar inni. Hanm tók eftir því, og það kom ó- þægilega við hann, að Lísbet var ekki enn þá tilbúin. Hann vildi ekki horfa í augu gests síns, en horfði fram hjá henni og var feiminn eins og skóladrengur, og það gerði hann enn gramari. Þegar Lísbet kom stumdvís- lega, er þau skyldu setjast að morgunborðinu, var hún í um finnst óþarfa eyðsla að kaupa sólgeraugu handa skips stjórninni. fallega morgunkjólnum sín- um með knipplingunum. AIM af hafði hann dáðst að hom um, en nú fór það í taugarnar á honum að hún var ekki al veg fullklædd. Hann leit snögigt á ungu stúlkuma við hlið sér. í skærri morgunbirtunni var andlit hennar unglegt og blómlegt, en kona hans var föl og þreytuleg, og augu hennar daufleg og dökkir baugar undir þeim. Hann borðaði í flýti þegj- andi. Án þess að taka nokk- urt tilliti til hinna las hann í blaðinu, sem hann hafði breitt úr á borðinu við hlið- ina á sér. Strax, þegar hann var búinn að borða, stóð hann upp, stakk blaðinu í vasa sinn, til þess að fara með það í skrifstofuma með sér, kyssti Lísbet lauslega á kinnina, hneigði sig hátíðlega fyrir Geirþrúði og fór. Um leið og hann gekk fram hjá henni horfði hann á hana. Það var eims og hún henti gaman að honum. Og hann fylltist ósanngjarnri reiði. Hann beit á jaxlinn og gekk fijótt út úr stofunni. Um leið og hann skellti útidyrahurð- inni heyrði hann Lísbet hlæja. Það var svo óvenju- legt að hann nam staðar á efsta þrepinu. Hann heyrði Önnu læsa dyrunum á eftir sér. Það glamraði í mjólkur- flösku niðri á götunni. Hljóð- ið barst dauft ti'l hans. Hann rnurndi allt í einu eftir því, að harin hafði ekkert sofið um nóttina. Hann hitaði í lófana og hann flýtti sér að setja upp hanzkama. Honum fannst hann endilega þurfa að verj- ast einhverju, en hverju, vissi hann ekkj. aðeins að eitt hvað ásótiti hann, sem erfitt var að skilja. Þegar hann var kominn niður á götuna, fékk andlit hans sinn venjulega kulda- svip. Það var Geirþrúður, sem hafði komið Lísbet til að hlæja. Þegar Þórgnýr var búinn að loka huirðinmi á eft- ir sér, stóð hún upp og hermdi með stirðlegum lima- burði alveg eftir göngulagi Þórgnýs. Hún hafði líka náð dambslegum svip hans. Lísbet gát ekki stillt sig um að hlæja. Hún hló meira en hún hafði hlegið í mörg ár. Tárin runnu niður kinn- arnar á henni og hún hélt fyrir munninn. í fyrstunni mundi hún ekkert eftir því, að það var maður hennar, sem Geirþrúð- ur var að gera gis að. Og svo kærði hún sig kollótta. Hlát- urinn fékk alveg yfirhöndina yfir skynseminni. En niðri á götunni gekk Þórgnýr með mynd Geir- þrúðaP fyrir hugskotssjónum sínum, og lagið, sem hún var vön að raula, hljómaði svo þýtt fyrir eyrum hans. Hamn greip sig í því oft um daginn að vera að raula það. Hann hætti líka oft við vinnU sína til að hugsa um hvað það gæti verið, sem Geirþrúður varð svona hrædd við. Hann fann enga skýringu á því og hætti að hugsa um það. Hann var ekki vanur því, að Lís- bet væri með nokkra duttl- unga, og framkoma Geirþrúð ar fannst honum vera leynd- ardómsfull. En hræðsla hennar hafði þó ekki verið nein uppgerð og hún hafði verið mjög föl. Allan daginn langaði hann heim, þó að hann reyndi að slá því frá sér. Þegar hann loksins kom heim, voru þær ekki heima. Á skrifborði hans lá miði með stórri og barna- legri skrift Geirþrúðar, þar sem hún tilkynnti honum, að MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSlNSj ÖRN ELDING GREIr 'INN. Ja, svaraðu, maður ... NELSON: Ég skal svara þer greifi blyd. um ienjn. ... Við vimxum. Húrra! Hvers vegna er hundurinn á rölti sæll. ... Svara þér með púðri og ÞÁTTTAKENDURNIR: Við vinn- NELSON: Þeir vinna ema ... undir spilaborðinu?

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.