Alþýðublaðið - 23.07.1948, Síða 3
"Föstudagur 23. júlí 1348.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
FOSTUBAGUR 23. júlí.
Ðáian Hvamms-Sturla 1183. A1
þýðubíaðið segir fyrir réttum 20
árum: „Nýlega kom til Lundúna
106 ára gamall Indíánahöfðingi,
er heitir Hvíti örninn. Hann hef
ur yfir að ráða hvorki meira né
minnia en 500 Indíánakynþáít-
um. — — Við tíðindamann
„Daily Mail“ sagði hann meðal
annars: „Ef þig fýsir að gera
eitthvað, þá gerðu það. Drekktu
mikið af vatni og baðaðu þig
oft í köklu vatni. Borðaðu á-
vexti og grænmeíi, lifðu áhyggju
laus og veríu starfssamur. Þess
um reglum fylgi ég. Þeim fyldgu
einnig foreldrar mínir. Faðir
minn varð 137 ára og móðir
mín 147.-------Ég hef átt 18
börn, og það elzta er 77 ára
gamalt. Barnabörn mín eru svo
mörg, að ég veit ekki skil nema
á helmingnum af þeim. Nú ætla
ég í fyrirlestraferð um Evrópu.
Hvíti örninn hefur talað“.
Sólarupprás var kl. 4.05, sól-
arlag verður kl. 23.01. Árdegis
háflæður var kl. 7.45, sídegis
háflæður verður kl. 20.03. Sól
er hæst á lofti kl. 13.34.
Næturvarzla: Reykjavíltur-
apótek, sími 1760..
Naeturakstur: B.S.R. sími
1720.
Veðrið l gær
Klukkan 15 í gær var norð-
an og norðvestan átt um allt
land, mest 6 vindstig á Hrauni á
Skaga. Á Suðurlandi var létt-
skýjað, en skýjað á Norður-
landi og sums staðar dálítil
súld. Sunnanlands var hiti víð-
ast 11—15 stig, en 6—8 stig á
Norðurlandi. Mestur hiti var í
Vestmannaeyjum, 18 stig, en
lægstur hiti 4 stig í Möðrudal.
í Reykjavík var 11 stiga hiti.
FSugferðir
LOFTLEIÐIR: Geysir kemur
frá London kl. 5—6 e. h.
FLUGÉLAG ÍSLANDS: Gull-
faxi fer frá Ósló kl. 9 og er
væntanlegur kl. 15 til Reykja
víkur.
AOA: í Keflavík kl. 7—8 árd.
frá New York og Gander til
Óslóar og Stokkhólms.
Skipafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
7.30 frá Borgarnesi kl. 18, frá
Akranesi kl. 20.
Foldin er í Reykjavík. Vatna
jökull er á Vestfjörðum, hleður
frosinn fisk. Lingestroom er á
leið til Amsterdam. Westror er
á leið til íslands.
Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss
fór frá Siglufirði 20. þ. m. til
Hamborgar. Goðafoss fór frá
Reykjavík 19. þ. m. til New
York. Lagarfoss er í Kaup-
mannahöfn. Reykjafoss er í
Reykjavík. Selfoss fór frá Amst
erdam í gærkvöldi eða í morg-
un til Antwerpen. Tröllafoss
er á leið til Reykjavíkur frá
Halifax. Horsa er á Akureyri.
Madonna . fór frá Reykjavík í
gær til Leith. Southernland fór
frá Antwerpen 20. þ. m. tíl
Rotterdam. Marinier fór frá
Reykjavík í gær til Leith.
Blö'ð og tímarit
Leikhúsmál eru nýlega kom-
In út. Efni m. a.: Gerd Grieg;
Rosmersholm; Refirnir; Út-
SKEMMTISTAÐIR:
Ilellisgerði Hafnarfirði
ið kl. 1—6 síðd.
Tivoli: Opið kl. 8—11.30.
Op-
Otvarpið
Þessi mynd er af aðalleikaran-
um í finnsku kvikmyndinni
„Litli fiðluleikarinn11, sem
sýnd er í Austurbæjarbíó í dag
og næstu daga. Drengurinn á
myndinni er íinnskur og heit-
ir Heimo Haitto. Var hann að-
eins 13 ára, þegar myndin val
tekin og var hann þá þegar orð-
inn stórfræguc fyrir fiðluleik.
varpsleikritin. Ritið er prýtt
fjölda ágætra mynda.
Brúðkaup
í dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Ingunn Guð-
mundsdóttir og Sigurður Kr.
Sigþórsson, Háteigsvegi 18.
Auður Vigfúsdóttir hár-
greiðslumeistari og Jón Þórðar
son, veitingaþjónn. Heimili
þeirra er á Njálsgötu 100.
Jóna Jónsdóttir, símamær,
Siglufirði og Guðmundur Bene
diktsson, prentari, ísafirði.
Á morgun verða gefin saman
í hjónaband í Landakirkju í
Vestmannaeyjum ungfrú Guð-
rún Sesselja Guðmundsdóttir,
Ofanleiti, Vestmannaeyjum, og
Jón G. Scheving bankaritari,
Vestmannabraut 48, Vestmanna
eyjum. Fósturfaðir brúðarinnar
séra Halldór Kolbeins fram-
kvæmir hjónavígsluna.
Mjóoaefni
Guðrún Haraldsdóttir, Selja-
veg 9, og Karl Guðbrandsson,
Barmahlíð 8.
Skemmtanir
KVXKMYND AHÚS:
Nýja Bíó (sími 1544): „Rödd
samvizkunnar". Dana Andrew’s,
Jane Wayatt, Lee J. Cabb. Sýnd
kl. 5, 7 og 9.
Austurbæjarbíó (sími 1384):
„Litli fiðluleikaj;inn“ (finnsk).
Heimo Hiatto, Regina Linnan-
heimo, Yalmari Rinne. Sýnd kl.
5, 7 og 9.
Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími
9184): „Iletjan í útlendingaher-
deildinni" (frönsk). Frenandet.
Sýnd kl. 7 og 9.
S AMKOMUHÚS:
Hótel Borg: Klassísk hljóm-
list kl. 9—11.
Sjálfsíæðishúsið: Dansleikur
Heimdallar kl. 9.
1930. Tónleikar: Harmonikulög
(plötur).
20.30 Útvarpssagan: „Jane
Eyre“ eftir Charlotte
Bronté, XXI. (Ragnar
Jóhannesson skólastjóri).
21.00 Tónleikar.
21.15 „Á þjóðleiðum og víða
vang'i“.
21.35 Tónleikar (plötur).
21.40 íþróttaþáttur (Brynjólfur
Ingólfsson).
22.05 Symfónsíkir tónleikar
(plötur).
Or ölfum ’áttum
Séra Árni Sigurðsson, frí
kirkjuprestur, er farinn í sum
arleyfi. í fjarveru hans annast
séra Ragnar Benediktsson Vest
urgötu 26C, afgreiðslu vottorða
úr kirkjukóg og önnur verk, er
safnaðarmenn óska. Hann er
til viðtals kl. 11—12 og 6—7
virka daga, sími 1812.
yrir
og efní í terpinæ
Viðskiptanefndin vill hér með ósk-J eftir að leyfis-
hafair fyrir herpinótum eða efni í herpdnætur tilikynni
nisfnidinni fyrir 1. ágúst n.k. hvort 'þeir, hafii fest kaup á
þsssari vöru skv. leyfunum og á hvaða stlgi kauphi séu.
Upplýsingar skuiu íylgja um afgreiðslutima og
annað, «er máli skiptir í þessu samhandi, t. d. hvort um
sé að ræða vetrar- eða sumarnætur.
Rey-kjavík, 22. júli 1948.
VIÐSKIPTANEFNBIN.
Ljámýs
Alþýðublaðið (20. júlí): „Það
var siður fyrr meir að halda
slíka fundi og-þeir báru oft til-
ætluð áhrif“. (Orðtækjarugling-
ur: bera árangur — hafa áhrif).
Morgunblaðið (22. júlí):
„Hann fann til sonarlegrar með
aumkunar með henni en jafn-
framt hrylti honnm við henni“.
(Ósvikið moðhausaþágufall).
Sport (12. júlí): >,Aftur
Trausta hafði maður ekki þorað
að vona með í öðru sæti“. (Var
furða, að allsherjarþingi Í.S.Í.
blöskraði málfarið!)
Þjóðviljinn (22. júlí): „Nú
sem fyrr reynir angi af þessu
ameríska auðvaldi að teygja
sýkilinn hingað til íslands".
(Heyr undur mikið!)
Állrl sklpshöfnirsiii færðar þakkir fyrir
vasklega framgöogy vlð björgiloIoa0
BENEDIKT ÖGMUNDSSYNI, skipstjóra á togararium
Júlí frá Hafnarfirði voru í gær afhent verðlaun fýrir
björgun 17 brezkra sjómanna af togaranum Lord Ross frá
Hull, er sökk fram undan Hafnarfirði 2. apríl síðast Iiðinn.
Afhenti Geir Zoega útgerðarmaður, umboðsmaður brezkra
togara hér á landi, Benedikt fagur-t og vandað gullúr’ frá
eigendum skipsins í Hull og færði hann jafnframt skipshöfn
Benedikts á Júlí alúðarþakkir fjrrir djarfa og vaska frarn
göngu við björgunarstarfið.
Minningarspjöld
1
Jón Báldvinssonar for-
seta fást á eftirtöldum stöð
um: Skrifstofu Alþýðu-
flokksins. Skrifstofu Sjó-
biannafélags Reykjavíkur.
Skrifstofu V.K.F. Fram-
sófcn, Alþýðubrauðgerð-
Laugav. 61, í Verzlun Valdi
mars Long, Haínarf. og hjá
Sveinbirni Oddssyni, Afcra
nesi.
Útbreiðið
ublaðið!
&lþýð
Við þetta tækifæri bauð
Geir Zöega og frú hans nokkr
um ges-tum heim á heimili
sitt hér í bænum. Meðal
gestanna voru auk heiðurs-
gestsins sjálfs, siglingamála
ráðherra, útgerðarráð Bæiar
útgerðar Hafnarfjarðar, full-
trúar frá brezka sendiráðmu-
stjórn slysavarnafélagsins og
íleiri.
í ræðu er Geir Zoega flutti
um leið og hann afhenti Bene
dikt Ögmundssyni björgunar
verðlaunin, gat hann þ;ess að
eigendur togarans Lord Ross,
hefðu nýlega beðið sig að af-
henda skipstjóranum á Júlí
hið vandaða gullúr, sem áður
getur, sem þakklætisvott fyr
ir hið gifluríka og vasklega
björgunarafrek, og jafnframt
bað hann skipstjóraínn að
færa skipshöfninni á Júlí al-
úðar þakkir fyrir djarfa fram
göngu við björgunarstarfið.
Að lokum fór Geir Zoega
nokkrum orðum um starf-
semi slysavarnafélagsins og
hinna ýmsu deilda þess um
landið, og kvað sjómanna-
stéttina seint geta fullþakkað
Nýr hamflettur
fæst nú daglega.
Lau'gavegi 78.
starf það, sem un.nið væri á
sviði björgunarmálanna.
Jafnframt þakkaði hann
skipaútgerðinni og öörum
skipum, sem jafnan væru-
reiðubúin að veiía aðsícð
nauðstöddum skipum.
Á síðustu 18 mánuðum
sagði hann að fjögur skips-
strönd hefðu orðið hér við
land, og hefði giftusamlega
tekizt til við björgun í öllum
þeim tilfellum. Fyrs-ta þeirra
var þegar Jogarinn Lois
strandaði við Grindavík í
janúar 1947 og allri skips-
höfninni var bjargað að eiri-
um undanteknum. • Þá var
Dhoon-strandið við Látra-
bjarg, en biörgunarstaríið
þar er sem kunnugt er víð-
frægt orðið. Þá strandaði
togarinn Epins við Malarrif
síðast liðinn vetur og var,
fimm af 19 manna áhöfn
bjargað þrátt fyrir framúr-
skarandi erfiðar aðstæður. og
loks gal Geir togarans Lord
Ross, sem sökk fram undan
Hafnarfirði 2. apríl s. l.,.eins
og áður segir, cn af því skipi
bjargaðist öll skipshöfnin. 17
manns, fyrir vasklega fram-
göngu Benedikfs Ögmunds-
.sonar skjpstjóra og skipshafn
ar hans á togaranum Júlí.
Að lokum talaði dr. Thorn
thon, fulltrúi í brezka sendi
ráðinu hér, er mætti við þetta
tækifæri fyrir hönd brezka
sendiherrans, sem er í sumár
leyfi. Bar hún fram þakkir
brezka sendiráðsins og
brezku þjóðarinnar til skips
hafnarinnar á Júii, en gat
þess jafnframt, að þetta væri
ekki í fyrsta S’.rin. sem ís-
lenzkir sjómenn kæmu brezk
I um stéttarbræðrum sínurn til
‘ihjálpar á hættunnar stund.