Alþýðublaðið - 30.07.1948, Blaðsíða 7
ALÞÝPUBLAÐIÐ
Fösíudagur 30. júlí 1948.
Skemmtilegusiu
bækurnar.
til að hafa með sér í sumar-
leyfið eru:
Drábbari
Freistingin
Gullhellir Inkanna
Himnastiginn
Hirðingjarnir í Háska-
dal
í hýlli konungs
Leiksoppur örlaganna
Líf' og leikur
Maður frá Suður-Am-
eríku
Sco.tland Yard
St. Joseps Bar
Sægammurinn
Tvífarinn _
Úrvals ástarsögur X
Úrvals njósnarasögur
Úrvals leynilögreglu-
sögur
Úrvals leynilögreglu-
sögur
Víkingurinn
Þrenningin
Ævintýraprinsinn
22,00
14,00
20,00
20,00
12,50
25,00
25,00
25,00
28,00
25,00
20,00
25,00
20,00
10,00
17,00
10,00
12,50
14,00
10,00
10,00
15,00
25,00
20,00
18,00
Fást hjá öllum bóksölum.
íslenzku keppend-
urnir.
Framh. af 5. siðu.
þeirri grein í Berlín 1936, er
hann stökk 14,00 metra.
Torfi Bryngeirsson hefur
sett mörg met í stangarstökki
í ár, og keppir hann í þeii'ri
grein í London. Hann er 22
ára, og hefur stokkið hæst
3,95 cg ætti innan skarnms
að stökkva 4.00 m. Hann er
einnig góður spretthlaupari
og stökkvari.
Trausti Eyjólfsson er einn
af beztu spretthlaupurum
okkar, og verður hann í
sveitinni, sem keppir í 4x100
m. boðhlaupi Hann er 20
ára og' hefur hlaupið 100 m.
á 11,0 (10,9 í meðvind) og
200 m. á 22,4.
Vilhjálmur Vihmmdarson
er arinar keppandi okkar í
kúluvarpi, aðeins 19 ára gam
all. Hann hefúr náð næst
bezta árangri okkar í kúlu-
varpi. 14..85, og virðist enn
vera 1 framför.
Örn Clausen keppir í erf-
iðustu grein ólympíuleikj-
anna, tugþraut.. Hann er
mjög fjölhæfur íþróttámað-
ur og ér illmögulegt að spá
um, hvað hann kann að gera.
Hann er ágætur spreitthlaup-
ari og jafnigóður í öllum tíu
greinum keppninnar. Þeir
Clausenbræður eru 19 ára.
KRFÍ vill að ísland
gangi í UNESCO.
7. LANDSFUNDUR Kver.i-
réttindafélagis íslands, sem
haldi.nn var dagana 19. — 20.
júní í sumar samþykkti til-
lögu þess efnis, að skor.a á rík
isstjórnina að beita sér fyrir
því, að ísland gerist sem fyrst
þátttakandi í uppeldis og
fræðslumálastofnum samein-
uðu þjóðanna, UNESCO.
Síðustu spádómarnir
Framhald af 3. síðu.
og Finninn Valíe Rautio
koma líka til greina og vel
það.
KÖSTIN
Bandaríkjamenn verða
sennilega- sigurvegarar í þrem
ur köstunum. Steve Sey-
mour vinnur spjótkastið og
Fortune Gordien. tryggir
þjóð sinni tvímælalaust sig-
urinn í kúluvarpinu, þrátt
fyrir fjarveru Charles Fon-
ville. Raunar er Seymour
ekki eins öruggur um sigur
í spjótkastinu ög margir
hugðu lengi Vel, og þess ber
að gæta, að spjótkastið er
norræn íþrótt og mjög í
heiðri höfð hjá Finnum og
Svíum, og margar raddir
heyrast nú um það, að Banda
ríkjamenn ættu ekki að vera
of sigurvissir hvorki í spjót-
kastinu né kringlukastinu,
því að Finnar hafi oft kom-
ið á óvart í spiótkastinu á
ólympíuleikjunum, og Adolfa
Consonlipi hinn ítalski verð
ur áreiðanlega keppinautum
sínum í kringlukastinu þung
r í skauti. Nemeth frá Ung-
verjalandi þykir öruggur sig
urvegari í slegojukastinu að
flestra dómi annarra en Svía,
sem auðvifað vilja að Bosse
Ericsson vinni.
Tvísýnustu keppnisgrein-
ar ólympíulöikjanna í frjáls-
um íþróttum eru tugþraut-
in og 110 metra grindahlaup
ið. Rune Larsson hinn
sænski virðist nokkurn veg-
inn öruggur um að vinna
400 metra grindahlaupið, en
í 110 metra grindahlaupinu
vilja fáir verða til þess að
spá um úrsLit að öðru leyti
en því, að einhver þeirra Bill
Porters, Craig Dixons, Há-
kon Lidmans og Alberto
Trulzi verði sigurvegari. Sig
urvegarinn í tugþraut verð-
ur annað hvort A1 Lawrence
eða Irving Mondschein, en
hvor það verður er spurning-
in rnikla. Bandaríkjamenn
vinna 4x100 metra boðhlaup
ið, en úrslitin í 4x400 metra
boðhlaupinu eru nokkru tví-
sýnni, þó að Bandaríkja-
menn hafi einnig þar mestar
sigurhorfur.
Það er í raun og veru
skrítið hátterni að vera að
spá um úrslit í einstökum
greinum á íþróttamóti, sem
er í þann veginn að hefjast.
Úrálitin varSa orf|n kuinn
heimsendanna á milli eftir
fáa daga, og hvers vegna þá
ekki að bíða og sjá, hvað
verður? En fólk um heim
allari', íþróttafólk og áhuga-
fólk um íþróttir, er einmitt
að spyrja og spá um ihiriá
væntanlegu sigurvegara. —
Það unir ekki biðinni, en
brennur í skinninu. íslend-
irigar eru naumast undan-
tekning' í þessu efrii. Ég hef
því mirinzt á þá menn, sem
helzt þykja koma til greina
sem tilvonandi sigurvegarar
að dóird hinna fróðustu
manna. Eftir nokkrar klukku
stundir verða margar þess-
ar spásagnir orðriar úreltar,
en lesendur þessarar greinar
ættu að hafa að því leyti
gagn af þessum náfnalista,
að allir munu þei-r íþrótta-
garpar, sem hér liefur verið
minnzt á, koma viið sögu
ólympíuleikjanna. Þeir verða
fáir. sem sigra, en beir verða
margir, sem geta sér frægðar
orð, því að allir munu gera
sitt bezta.
Helgi Sæmundsson.
Fundur norrœnna bankastjóra.
. i
Þessi myna er frá fundi bankastjóranna inor rænu hér á dögunum. Þessir bankastjórar
sátu fundinn: Frá Danmörku: C. V. Brams nees, Ove Jepsen og Sven Nielsen. Frá Finn-
landi. S. Tuomiopa, K. Kvialho og C. G. Sundman. Frá Noregi Gunnar John, Arth. H.
Mathiesen og Fr. Odberg. Frá Svíþjóð Invar Rooth, Lennart Hammarskjöld og Erik West
erlind. Frá íslandi Jón Árnason, Jón G. Maríasson, Svanbjörn Frímannsson og Klem-
ens Tryggvason.
kallað: ómannúðlegur glæpu
»-----
Gagnorð samþykkt í bæjarstjórn Berlín-
ar í gær - kommúnistar gengu út.
BÆJARSTJÖRN BERLÍNAR samþykkti í gær, að sam
göngubann Rússa á Berlín væri „ómannúðlegur glæpur“.
Lögðu jafriaðarmenn fram tillögu þess efnis, og urðu miklar
umræður. Þegar auðséð varð, að mikill meirihluti bæjar-
stjórnairinnar var fylgjandi tillögunni, gengu allir fulltrú
ar Sameiningarflokks alþýðu (kommúnista) af fundi, þar
sem þeir vil-du ekki greiða atkvæði. Tillagan var samþykkt
með 88 atkvæðum gegn einu.
Tillaga jafnaðarmanna*
skonar einnig á hernámsþjóð-
irnar, og heimir.-n allan, að
veita Berlínarbúum aðstoð
sína. Sýnir þessi atkvæða-
greiðsla bæði skoðanir meiri
hlu-ta Berlínarbúa og hug-
rekki þeirra að samþykkja
svo gagnorða tillögu í návist
rússneska hersins.
Tveir lögreglustjórar er-u
nú í Berlín og skora þsir báð
á lögregluliðið að fylgja
ir
isér. Arnar þeirra er Markraf.
sem er á bandi Rússa og hef
ur komið sér fyrir við Alex-
anderpLatz, en hinn er fylgj-
andi Vesturveldunum og heit
ir Stumm.
Flutningum Vesturveld-
anna flugleiðis til Berlínar er
haldið áfram af meira krafti
eri nokkru sinni. Lýsti Bevin
því yfir í ræðu sinni, sem
skýrt er frá á fyrstu síðu
blaðsins að flutningUnum
yrði haldið áfram og þeir
auknir.
Rússa.r skýrðu frá því í
Berlín í gær að fyrsta skipið
væri komið tii þýzkrar hafn-
ar. með kornfarm til Berlín-
-ar. Segir í tilkynrdngunni, að
um helgina m-uni Rússar geta
fætt alla Berlínarbúa, ef þeir
vilja sækja vistir sínar inn á
rússneska hernámssvæðið.
Fáir hafá þó enn þá skráð sig
í hinum rýju verzlunum
Rússa.
Kvikmyndaleyfi
í skálum við Skúla-
götu fil 29. marz en
þá verða þeir rifnir.
BÆJARSTJÓRN sam-
þykkti í fyrradag með 8 at-
kvæðum gegn 7. að veita fé-
lagi nokkru, sem verið er að
stofna hér í bænum, leyfi til
kvikmy.ndareksturs í setuliðs
skálunum við Skúlagötu. og
gildir leyfið aðeins til 29.
marz næstkomandi, -en þá á að
rífa þessa br.agg.a, samkvæmt
fy-rri ákvörðun bæjarstjórn-
ar.
Fulltrúar Alþýðuflokksjns
og kommúnista lögðu móti
því, að leyfi þetta vrði veitt-
þar eð ákveðið hefði verjð,
að rífa skálana, og væri það
því bjarnargraiði að veita
Leyfið fyrir þessa fáu mánuði.
sem skálarnir -mættu standa
snn þá.
Bæj arst j órnarmeirihlutinri,
sjálfstæðismenn álitu hins
vegar, að ekki bæri að am-
ast við því þótt húsnæðið
væri notað til þessarar starf-
semi þar til skálarnir yrðu
rifnir í lok marzmánaðar.
Margir bílar hafa þeg
ar farið milli Pafreks-
fjarðar og Bíldu-
dals.
Fréttabréf frá BÍLDUDAL.
Á TÓLF SÓLARHRING-
UM ruddi jarðýta fyrir vegi
yfir Hálfdán, en svo n-efndist
fjallvegurinn milli Tálkna-
fjarðar ög Bíldudals. Var verk
ið framkvæmt undir verk-
stjórn Hildimundar Björns-
sonar, og er það talið vel og
fljótt af hendi -leyst.
Mikill áhugi er hjá Bíldæl
ingum á því að vegur þessi
verði fullgerður sem fyrst.
Allmargir brlar hafa þegar
farið á milli Bíldudals og
Patreksfjarðar, enda er nú
þurrkatíð. Unnið er nú að
vegagerð frá Bíldudal út í
Kelduda-li.
Gur.mar.
Bæklingur á ensku um
ólympíukeppendur
ISLENZKA ÓLYMPÍU-
NEFNDIN lét nýlega prenta
bækling á en-.sku um íslenzku
þátttak-endurDa í London,
sem þeir geta svo gefið kunn
ingjum, sem þeir eignast og
gæti kynnt íslenzkar íþróttir
og íþróttamenn. Jóhann Bern
hard rit-stjóri íþróttablaðsins,
tók bæklinginn saman. En í
honum er stutt grein um ís-
lenzkar íþróttir og síðan
myndir af öllum keppendum
okkar og stutt klausa um
hvern. Þá eru myndir af
ólympíunefnd og fleiri íþrótta
frömuðum.
Slíkur pési var einnig gef-
ir-in ú-t á -ensk-u fyrir Evrópu-
meistaramótið, og varð hann
geysi vinsæll meðal erlendra
íþróttamanna og hin bezta
kynning fyrir keppendur okk
ar.