Alþýðublaðið - 05.08.1948, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.08.1948, Blaðsíða 5
^imiötaÆagiir 16$ agást Íft8. R ÆSKIN OG DJOBFELAGIÐ Máfgagn S.U.J. Ritstjó rn: Sambandsstjórnin. íi Þ. Gíslason: RITSTJÓRI ÆSKULÝÐS- SÍÐUNNAR hefur beðið mig Eð skrifa nokkur orð í til- efni af grein. sem birtist í síðasta blaði Landnemans, málgagns Æskulýðsfylking- arinnar, en greinin, nefnist „Svar óskast“ og er eftir Ás- mund Sigurjónsson. Tilefni greinarinnar virð- Ist, að það hafi hneykslað höf undinn, að ungir jafnaðar- menn skuli á síðasta þingi sínu hafa skreytt fundarstað sinn með slórum myndum af Karli Marx og Jóni Baldvins syni. Greinin fjallar um það. hvað skilji unga jafnaðar- menn og unga kommúnista. Niðurstaða A. S. virðist í stuttu máli sú, að Alþýðu- flokkurinn aðhyllist alls ekki lengur málstað sósíalismans, jafnaðarstefnunnar. og þess vegna sé býsna smekklaust af ungum jafnaðarmönnum að hampa myndum af Karli Marx. Þegar því sé haldið fram, aðágreiningurinnséum leiðir að sameiginlegu mark- miði. þ. e. a. s. hvort vald- foylting sé nauðsynleg til þess að koma á þjóðskipulagi jafn aðarstefnunnar eða hvort leið laga og lýðræðis sé fær til þess, sé það blekking, því að Sósíalistaflokkurinn ætli sér að „framkvæma sósíalismann á íslandi á grundvelli hins borgara- lega lýðræðis“, þegar hann Iiafi unnið meirihluta þióð- arinnar til fylgis við sig. Það eina. sem í raun og veru geti skilið sósíalista og jafnaðar- menn sé því hvort þeir vilji framkvæmd sósíalismans eða ekki. Þessar skoðanir Á. S. eru að ýmsu leyti athyglisverðar, og þar eð búast má við. að hann sé ekki einn um þær, er vel þess vert að gera þeim nokkur skil. Ekkert þarf að fara á milli mála um það, hvað upphaf- lega hafi valdiðágreiningnum milli Alþýðuflokksmanna og kommúnista. Ástæðan var ekki sú, að Alþýðuflokkurinn foreytíi neitt um stefnu, held ur voru kommúnisfarnir í Alþýðuflokknum ónánægðir ineð stefnuna, eins og hún var og hafði verið og töldu fyrst og fremst rangt að ætla að treysta á lög og þingræði ein vörðungu til þess að hrinda jafnaðarstefnunni í frant- kvæmd. Það voru kommún- istarnir, sem ágreininginn gerðu og klufu síðan Alþýðu flokkinn. Þegar svo klofnings ílokkurinn 7 árum síðar leit- aði eftir sameiningu við Al- þýðuflokkinn eins og raun- ar kommúnistaflokkar allra nágrannalanda höfðu þá ver- Ið að gera við alþýðuflokk- ana, kom í ljós, að ágreining- tirinn var enn nákvæmlega hinn sami og áður. og kom þetta skýri fram í bréfaskipt- um milli flokkar.na. í einu bréfi 'samninganefndar Kommúnistaflokksins segir m. a.: 5,Við skulum báðir hreinskiínislega viðurkenna, að við aðhyliumst í þessu ntáli tvær ólíkar skoðanir, við kommúnistar þá byltingasinn uðu túlkun á marxismanum, og margir foringjar Alþýðu- flokksins kenningar ,,Revisi- onismans“ (endurskoðunar- stefnunnar).“ Vegna þessa á- greinings fyrst og fremst tókst sameining fíokkanna ekki, þótt nokkrir af leiðtog um Alþýðuflokksins brygðust flokki sínum og tækju upp samstarf við kommúnista þrátt fyrir þetta. en skoðanir þeirra. sem ráðið höfðu komm únistaflokknum og reypdust líka ráða Sósíalistaflokknum, breyttust vitanlega ekki neitt við það, að fá nokkra fyrrver- andi Alþýðuflokksmenn til liðs við sig. Enginn, sem vill vita það, þarf því að vera í minnsta vafa um. hvað olli klofningum í Alþýðuflokkn- um upphaflega og hvað fyrst og fremst hefur skilið jafnað- armenn og kommúnista síð- an. Ef einhverjir kommúnist- ar hafa skipt um skoðun og vilja nú fara að vinna að því „að framkvæma sósíalismann á íslandi á grundvelli hins borgaralega lýðræðis". svo að orð Á. S. séu nofuð. eiga þeir að snúa þaki við Sósíalista- flokknum og koma aftur í A1 þýðuflokkiun. Og þeir ungu menn, sem vaxið hafa upp síð an alþýðnhreyfingin á íslandi klofnaði, og hafa í raun og veru þær skoðanir á frain- kvæmd sósíalismans, sem Á. S. Iýsir. ejga alls ekki heima í Sósíalistaflokknum, heldur Alþýðuflokkmmi. Én hvað um þær getsakir að Alþýðuflokkurinn sé í raun og veru alls ekki fylgj- andi málstað sósíalismans lengur? Um þær er það að segja, að þær eru svo ger- samlega órökstuddar. að þær Verða að teljast ósvífnar. Mér er ekki kunnugt um. að nokk urn tíma hafi birzt nokkurt orð í nokkru málgagni Alþýðu- flokksins, er draga megi af þá ályktun. að hollusta Al- þýðuflokksins við hugsjónir jafnaðarslefnunnar um þjóð- nýtingu. áætlunarbúskap og jöfnuð í félagsmálum, sé ekki hin sama og hún hefur á- valt verið. Alþýðuflokkurinn hefur ekki haft fylgi til þess hér á landi, að hrinda þessari stefnu sinni í framkvæmd nema að nokkru leyti, en fyr- ir hans tilstilli hafa þó mörg framfaraspor verið stigin, en harla fá fyrir tilverknað Kommúnistaflokksins og Sósí alistaflokksins. Á. S. getur þess að jaínaðarmenn hafi haft meiri hluta í Svíþjóð, og samt bóli þar lííið á sósíal- isma. En hann getur þess ekki, hve naumur þessi meiri hluti hefur verið. og hann get ur þess hsldur ekki. að hann hsfur fvrst og frernst unnizt sem fylgi við dægurmála- stefnskrá. þar sem félagsleg- ar umbæiur og aukinn jöfn- uður hefur verjð aðalatriðið, en ekki þjóðnýting. Þessa dægurmálasíefnuskrá sína hafa sænskir jafnaðarmenn fengið aðstöðu til þess að framkvæma og gert það með svo glæsilegum hætti, að land þeirra hefur á því sviði verið öllum umheimi íil fyrirmynd ar. Ef stjórn sænskra jafnaðar manna hefði tekið að leggja höfuðáherzlu á þjóðnýtingu, þegar hún var komin til valda . Hópferðir fyrir skáta og gesti þeirra austur á Þingvöil um helgina verða sem hér segir: Laugardag 7. ágúst: Frá Reykjavík kl. 13, 15, 18 og 20. Frá Þingvöllum kl. 14, 16,30, 19 og 22,30. Sunnudag 8. ágúst: Frá Reykjavík kl 9, 13, 15 og 19,30. Frá Þingvöllum kl. 10,30, 14, 18 og 22,30. Farmiðar verða seldir í skátaheimilinu á fimmtudag og föstudag kk 19—21 og laug- ardag eftir kl. 13, Farið verður frá skáíah eimilinu. Mótsstjómin. með dægurmálastefnuskrá, þar sem lögð er megin áherzla á félagslegt réttlæti er hætt við að hún hefði fljótlega misst meiri hlutann. Ög ekki má Á. S. halda það, að bar- átta fyrir auknum jöfnuði, auknu öryggi og réttlæti í félagsmálum, sé alveg óskyld baráttu fyrir sósíalisma. Hann má vera viss um, að það hefði ekkert skaðað rússneska alþýðu, þótt valdhafarnir í Moskvu hefðu á undanförn- um 30 árum lagt svolítið meiri áherzlu á jöfnuð og réttlæti í félagsmálum, jafn- vel þótt einhver töf hefði orð ið á framkvæmd einhverra þjóðnýtingaráforma í bili, og það hefði vissuiega ekki orð- ið lakari sósíalismi í Rúss- landi fyrir bragðið. Og Á. S. getur líka verið alveg viss um, að hess verður ekki langt að bíða, að.^ænskir jafnaðar- menn taki víðtæka þjóðnýt- ingu á dægurmálastefnuskrá sína og framkvæmi hana. ef þeir fá aðstöðu til, eins og þeir hafa framkvæmt félags- málastefnuskrá sína. Brezkir jafnaðarmenn höfðu víðtæka þjóðnýtingu á kosninga stefnuskrá sinni 1945, og eru Framix. á 7. siðu. Bókin.sem veknr meiri alhygii og deilur en aliar aðrar 0G ÞEKKI Eflir Niels Dungai prófessor. Síðan það fréttist, að von væri á bók frá hendi Niels Dungai prófessors um viðskipti kirkjunnar og vísindanna nú og fyrr á öidum, hefur fólk rætt <um hana og deiit um hana. Hafa menn fyrirfram skipzt í floicka urn efni henn- ar, enda er hér um að ræða innlegg í mikið deilumái, trú og vísindi, blekk- ingu. og þekkingu. En það er sama hvaða skoðanir menn hafa á þessu efni og hvernig þeir ■skiptast í fiokka um það, bókinni og efni bennar verða menn að kynnast af eigin raun, en ekki sögusögnum annarra. Menn geta deilt um starf og stefnu kirkju og kenni- manna annars vegar og rannsóknir og niðurstöð- ur vísinda og vísindamanna hins vegar, mienn verða að veija milli blekkingar og þekkingar, kynna sér efni þessa einstæða og merka stríðs- rits — og taka síðan afstöðu. — Þessi bók hins vinsæla læknis og vísindamanns hefur sérstöðu í íslenzkum bókmenntum. Aldrei fyrr hefur ver- ið gerð grein fyrir skoðunum og niðurstöðum „trúléysingjans“, eins og menn kaila þann, sem gagnrýnir kirkjuna, af svo rnikiili hreinskiini og 1 hugdirfð og gert er í þessu riti. . m • • ■ Blekking og þekking fæst h]á öíhim bóksöíum. HELGAFELL

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.