Alþýðublaðið - 24.09.1948, Qupperneq 3
Föstudagur 24. sept. 1948
ALÞÝÐUBEAÐIO
3
Frá morgni tii kvölds
í DAG er föstudagurinn 24.
september. Þann dag lézt Niels
Finsen árið 1904. — Úr Al-
þýðublaðinu fyrir 25 árum:
Hlutaveltu retlar Sjúkrasamlag
Reykjavíkur að halda innan
skamms; hefur hér í blaðinu ver
ið skorað á bæjarbúa ao síyðja
hana með gjöfum. Ættu alilr að
bregðast vel við þessari áskor-
un, því að sjúkrasamlög eru hin
ágætustu styrktarfyrirtæki og
er nauðsvn að efla þau sem
mest“.
Sólarupprás var kl. 7,15. Sól
arlag verður kl. 19,23. Árdegis
háflæður e rkl. 9,40. Síðdegis-
háflæður er kl. 22,05. Sól er í
hádegisstað ltl. 13 20.
Næturvarzla: Lyfjabúðin lð-
unn, sími 1911.
Næturakstur: Bifreiðastóöin
Hreyfill, sími 6633.
VeðriS í gær
Kl. 15 í gær var hægviðri
um allt land, nema í Vestmanna
eyjum var austan kaldi eða
• stinningskaldi. Úrkomulaust
var um allt land að mestu og
léttskýjað nema á Austfjörð-
um. Mestur hiti á Norðurlandi
var í Grímsey og á Akureyri 8
stig en minnstur á Möðrudal á
Fjöllum 3 stig. Hiti á Suður-
landi var 7—9 stig mestur á
Síðumúla í Borgarfirði. Hiti i
Reykjavík var 8 stig.
Fíugferðir
LOFTLEIÐIR: Hekla tafðist í
Kaupmannahöfn vegna þess
að verið er að skipta um
hreyfla. Geysir fer til Kaup-
mannahafnar kl. um 8 árd.
Kemur aftur í kvöld.
AOA: í Keflavík kl. 7—8 árd.
frá New York og Gander til
Oslóar og Stokkhólms.
Sklpafréttir
Laxfoss fer frá Reykjavík kl.
7,30, frá Borgarnesi kl. 13. Frá
Reykjavík kl. 18, frá Akranesi
kl. 20.
Hekla er á leið frá Austfjörð
um til Akureyrar. Esja er í
Reykjavík. Herðubreið var á
Akureyri í gær. Skjaldbreið fór
frá Reykjavík kl. 20 í gær-
kvöldf til Húnafóla-, Skaga-
fjarðar- og Eyjafjarðarhafna.
Þyrill er í Reykjavík.
Foldin er á förum frá Aber
deen til Hamborgar. Lingest-
romm kom til Amsterdam í gær
kvöld. Reykjanes fermir í Hull
þ. 25. þ. m.
Hjónaefni
Nýlega opinberuðu trúlofun
sina, unngfrú Þorbjörg Kristins
dóttir E.A. (Kristins Ármanns
sonar yfirkennara). Sólvalla-
götu 29. og stud jur. Árni Sig
urjónsson (séra Sigurjóns Árna
sonar) Auðarstræti 19.
fþróítir
KR, 1. flokkur og Vestmanna
eyingar keppa í knattspyrnu á
íþróttavellinum í Reykjavík í
dag kl. 6.
Söfn og sýnin'gar
Listsýningin, Freyjugötu 41.
Opin kl. 12—10 síðd.
Norræn listsýning í sýningar
skála myndlistarmanna. Opin
kl. 2—10.
Þessa nýju gerð af einkabifreiðum fyrir almenning er ný-
lega farið að nota í Kaupmannahöín.
Skemmtanir
KVIKMYNDAHÚS:
Gamla Bíó (sími 1475: —
,Ástaróður“ (amerísk), Paul
Henreid, Katharine Hepburn,
Robert Walker. Sýnd kl. 7 og 9.
„,Landamæraróstur“ (amerísk)
Tim Holt. Sýnd kl. 5.
Nýja Bíó (sími 1544): —
,,Desembernótt“ (frönsk). Pierre
Blanchar, Renée Saint-Cyr. —
Sýnd kl. 9. , Skriðdýr“ Virgin
ina Grey, Rondo Hatton.
Sýnd kl. 5 og 7.
Austurbæjarbíó (sími 1384):
Lamarr, George Sanders, Louis
,,Kenjakona“ (amerísk). Hedy
Hayward. Sýnd kl. 9. „Snjallir
leynilögreglumenn. Litli og
Stóri. Sýnd kl. 5 og 7.
Tjarnarbíó (sími 6485): —
,Brothætt gler“ (ensk). James
Mason, Rosamund John, Ann
Stephens, Pamela Kellino. Sýnd
kl. 9. „Blesi“ Sýnd kl. 5 og 7.
Tripolibíó (sími 1182): —
,,Bernska mín“ (rússnesk). Al-
josja Ljarski, Massalitinova,
Trojanovski. Sýnd kl. 7 og 9.
„Kátir voru karlar“. Sýnd kl.
5.
Bæjarbíó, Hafnarfirði (sími
9284) „Ástríða" (sænsk) Georg
Rydeherg, Barbro Kollberg.
Sýnd kl. 7 og 9.
Hafnarfjarðarbíó (sími 9249):’
„Spjátrungurinn“ (merísk)
Red Skelton, Marilyn Maxwell.
Sýnd kl. 7 og 9.
S AMKOMUHÚS:
Breiðfirðingabúð: Almenn-
ingsdansleikur kl. 9 síðd.
Hótel Borg: Klassisk tónlist
frá kl. 8 til 11.30 síðd.
Ingólfscafé: Salirnir opnir frá
kl. 3 síðd. Hljómsveit frá kl.
9,30. síðd.
Sjálfstæðishúsið: Dansleikur
slysavarnafélagsins kl. 9 síðd.
Tjarnarcafé: Dansleiku*’ FIH
kl. 9 síðd.
SKEMMTISTAÐIR:
Hellisgerði, Hafnarfirði: Opið
kl. 1—6 síðd.
Tivoli: Opið kl. 8—11,30 sd.
Otvarpið
Slysavarnafé
far skemmtiferð að Jaðri þriojudagirm 28. sept. ef næg
þátttaka fæst. Konur eru beðnar að ákveða sig fyr.r
bugardagskvöíd. Allar upplýsingar hjá Rannveigu Vig-
fúsdóttur Austurgötu 40 simi 9290, frú Helgu Jónsdóttur
Ausíurgötu 16 sími 9197 og frú Ólafíu Þoriáksdóttur
Hverfisgötu 4 sími 8029.
Neíndin. •
Fimintuigur I dai
KROSSGÁTA NR. 103.
Lárétt, skýring: 2 Slátrar, 0
tala. 8 smábýli, 9 fæða, 12 næt
urdvöl, 15 ungviðin, 16 hjálpar
sögn, 17 útl. töluorð, 18 pestin.
Lóðrétt, skýring: 1. Krókur,
3 fór, 4 fætt. 5 leikur, 7 manns
nafn, 10 ílát, 11 arðan, 13 málmi,
14 ekk, 16 leyfist.
LAUSN Á NR. 102.
Lárétt, ráðning: 2 Aspar. C.
ak, 8 sag, 9 nag, 12 klandur, 15
fjara, 16 gló, 17 Ð. Ð. 18 krits.
Lóðrétt, ráðning: 1 Hanki, 3.
S.S. 4padda, 5 Ag, 7 kal, 10
gafli, llóraði, 13 njóta, 14 urð,
16 Gr.
20.30 Útvarpssagan: Jane
Eyre“ eftir Charlotte
Bronte, XXXVIII. (Ragn
ar Jóhannesson skóla-
stjóri).
Strokkvartettinn „Fjark
inn“: Kvartett í C-dúr
eftir Mozart.
„Á þjóðleiðum og víða-
vangi“ (Bárður Jakobs-
son).
íþróttaþáttur (Guðjón
Einarsson).
Fréttir.
Symfónískir tónleikar
(plötur).
Veðurfregnir.
21.00
21.25
21.45
22.00
22.05
22.55
Úr öllum áttum
Haustfermingarhörn séra JakT
obs Jónssonar og séra Sigurjóns
Árnasonar eru vinsamlega beð-
in að mæta í Austurbæjarskól-
anum kl. 5 síðd. í dag.
Bólusetning gegn barnaveiki
heldur áfram. Er fólk minnt á
að láta endurbólusetja börn sín.
Pöntunum veitt móttaka kl.
10—12 árdegis, nema laugar-
daga, í síma 2781.
KöM borð og
biifur veiziumaUir
sendur út um allan bæ.
SÍLD & FISKUR
FIMMTUGUR er í dag Jón
Maríasson, bankiastjóri við
Landsbanka íslands.
Jón Maríasson er ísfirðing-
ur, fædd'ur á ísafirði 24.
septenrber 1898, sonur hjón-
anna Maríasar Guðmunds-
sonar kaupmanns þar og konu
hans, Hólmfríðar Sigurðar-
dóttur. Hann stundaði verzl-
unarnám í Kaupmanna-
höfn og lauk þar verzlunar-
skólaprófi 1917, en áður bafði
hann stundað verzlunastörf
á ísafirði.
Hinn 1. janúar 1919 gekk
Jón Maríasson í þjónustu
Landsbanka íslands og hefur
alla tíð síðan verið fastur
starfsmaður þeirrar stofnun-
ar. Hann gerðist þá bókari við
útibúið á ísafirði og gegndi
því starfi óslitið, að undan-
skilinni hálfs árs dvöl í Land-
mannsbankanum í Höfn, þar
ti'l hann fluttist til Reykja-
víkur og tók við fulltrúa-
starfi í aðalbankanum hér í
aprílmánuði 1930-
Hinn 1. janúar 1934 var
Jón Maríasson ráðinn aðal-
bókari Landsbankans og
gegndi því starfi síðan, þar
til hann var ráðinn banka-
s'tjóri Landsbankans 23. okt.
1945, er Pétur Magnússon
sagði af sér bankastjórastarf-
inu, sem hann þá hafði gegnt
um nokkiur ár.
Meðan Jón Marías.son
dvaldist á ísafirði tók hann
nokkurn þátt í opinberum
málum þar. V'ar hann m. a.
bæjarful'ltrúi þar 1928—30
og í stjórnum ýmissa fyrir-
tækia á ísafirði.
Um næstu áramót á Jón
Maríasson 30 árai starfsaf-
mæli í Landsbanka íslancls,
og er það fátítt nú orðið, að
ferill manna sé svo óslitinn
við eina stofnun og eitt starf,
sem raun hefur á orðið um'í
Jón Maríasson.
Við Jón Maríasson kynnt-
umst fyrst fyrir nærfellt 25
árum, er hann átti erindi til
Austfjarða í þágu Lands-
bankans, og hefur sá kunn-
bigsskapur, ssm þá tókst með
okkur, haldizt síðan og auk-
izt. Við erum jafnaldrar og
litum um margt líkt á ýmsa
hluti þá þegar. Kunnings-
skapur okkar varð nánari,
þegar ég fluttist hingað suð-
ur, og þau ár, sym ég gegndi
bankaráðsmannsstörfum við
Landsbankann, kynntist ég
bezt Jóni og starfi hans,
dugnaði hans og ósérhlífni og
hinum einlæga vilja hans til
þess að vinna Landsbankan-
um allt það gagn, er hann
mátti. Árum saman gegndi
Jón Maríasson bankastjóra-
störfum í fjarvexu og veik-
Jón Maríasson
bankastjóri. !|
indum annarra bankastjórg,
auk aðalbókarastarfsins, og
þurfti þannig oft að vinna
tveggjá manna verk og það
stundum vandasöm og við-
kvæm störf. Kom honum þá
vel sú verklægni og hagsýni
við störf, sem hann er gædd-
ur í svo ríkum mæli. Þao
þótti því sjálfsagt, er Pétup
Magnússon var orðinn fjár-
málaráðherra og sagði af sér
starfi, að Jón Maríasson tæki
við starfinu, og var honurn
,veitt bankastjórastarfið mep
öllum atkvæðum bankaráðá-
manna, en slík veiting banký-
stjórastarfs mun ná'lega einL
dæmi í sögu bankans. Ségt'
bezt af þessu, hve óskiptjs
trausts Jón Maríasson r.avít
hjá bankaráðinu, sém þpi
stýrði bankanum. Hika
ekki við að fulþyrða, að Jóh
Maríasson hafði fullkomjegh
unnið til bess trausts.
Um áramótin 1938—1939
var Jón Maríasson sæmdajr.
riddarakrossi fálkaorðunncír
fyirir 20 ára starf sitt við
Landsbankann, og nú hefur
hann senn aukið 10 árum við
þá þjónustu. Ekki er að efa,
að margir vinir Jóns Marías-
sonar, samstarfsmenn og
frændur sækja. hann heirn, í
j dag og árna homum beilla á
þessum merku tímamótum í
ilífi hans. Og spá mín er sú,
að ekki muni skorta á rausp,
né risnu á heimili hans, þótt
enga eigi hann frúna ennþá.
Að lokum vil ég svo þakka
þér, Jón Maríasson, vináttu
þínai og velvild á þeim 25 ár-
um, sem nú eru senn liðin
síðan við hittumst fyrst í
farþegaklefanum á gömlu
Esju. Margt er nú orðið
breytt síðan — og við sjálfir
kannski mest. — En óneitan-
'lega er gaman að bafa lifað
þessi viðburðaríbu ár. Og sú
er ósk mín til þín á þessu
hálfrar aldar afmæli þínu,
að næstu 25 árin megi verða
þér ekki minni starfs- og
stríðsár, en þessi hafa verið,
því: ,,þar, sem við ekkert ei*
Framhald á 7. síðu.