Alþýðublaðið - 24.09.1948, Side 4

Alþýðublaðið - 24.09.1948, Side 4
AUÞÝÐI3BLAÐIÐ Fösludagur 24. sept. 1948» Útsefaadl: AlþýSoflokkuim Eitstjérl: Stefáu Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal Þingfréttír: Helgi Sæmnndsson Kitstjórnarsímar: 4901, 4902. Anillýsingar: Emilía Möller. Anglýsingasiml: 4906. AfgreiSslosimi: 4900. Aðsetnr: AlþýÓnhúsiS. Alþýð'nirentsmiSjan hX rr annars rr HÖFUNDUR fœnustugrein- ar Þjóðviljans í gær er meira en lítið seinheppinn í þjónk- un sinni við valdhafana aust- ur í Moskvu. Hann gerir Ber- iínarmálin að umraeðuefni og heldur því fram, að erfiðleik- arnir í sambúð fjórveldamna þar og raunar í Þýzkalandi yfirleitt séu augljós sök Vest- urveldanna- En Rússar eru buðvitað engilhreinir í þessu sambandi! Grei narhöfu n du r heldur því naest áfram og fjölyrðir um ráðstafanir Vesturveld- anna á hernámssvaeðum þeirra í Þýzkalandi. Fram- koma þeirra á að vera algert brot á sáttmála þeim, er sig- urvegararnir í styrjöldinni gerðu um hernám Þýzka- lands og meðferð þýzkra niála. En það er ekki minnzt á framkomu Rússa og ástand- ið í Austur-Þýzkalandi. Ó- hæfuverk Rússa í Þýzkalandi eru að dómi Þjóðviljamanna vafaiaust framm í anda sátt- mála fjórveldanna um her- nám landsins og meðferð þýzkra mála! * Þessi ununæli Þjóðviljans eru í meira lagi athyglisverð fyiir alla þá, sem fylgzt hafa með ^ Þýzkalandsmálunum eftii ófi'iðarlokin. Þau sýna a ovenjulega glöggan hátt, hversu blygðunarlausir starfs menn rússneska útibúsins hér a landi geta orðið. Þó kastar fyrst tólfunum, þegar gneinarhöfundur Þjóð- viljans eys úr skálum reiði sinnar yfir brezbu jafnaðar- mannastjórnina fyrir afstöðu hennar í Þýzkaíandsmálun- um og utanríkismálum yfír- Ieitt. Þegar hann hefur rang- fært stefnu hennar og störf á venjulegan kommúnistískan hátt, gerír hann sér lítið fyr- ir og slær þvi fram, að „hmn- ið í fylgi Verkamannaflokks- ms, sem fram hafi komið í siðustu kosmngum, sýni tví- mælalaust vonbrigði nokkurs hluta af þeim fjölda, er lyfti Attleestjóminni til valda“. Það væri víst ekki úr vegi að inna Þjóðviljann eftir því, a hvaða upplýsingum hann byggi staðhæfingu sína um betta stórfellda fylgishrun þrezka Alþýðuflokksins. oannleiburinn er sem sé cá að brezki Alþýðufl<Xk7rinn -.e-ur haldið svo glæsilega velli í hihum mörgu aukakosn mgum í valdatíð sinni, að það er einsdæmi um stjórnar- flokk þar í landi. En svo kem- ur Þjóðviljinn og tilkynnir lesenduin sínum, að brezki Alþýðuflokkurinn hafi beðið stórfellt fylgishrun! * Ennfremur verður naum- ast hjá því komizt, að b-enda Þjóðviljanum á það, að gagn- Einkennileg framkoma ráðamanna útvarpsins. — Leikur flutiur hér á erlendu máli. — Um barátt- una gegn áfengisflóðinu. — Hvað ber að gera? — Rödd að vestan. LEIKLISTARVINUR skrifar mér á þessa leið: „Ég get ekki orða bundizt yfir framkomu ráðamanna útvarpsins við okk- ur hlustenðurna. Á mánudags- kvöld var flutt í útvarpið leik rit á vegum sameinuðu þjóð- anna og mun það, eftir því sem stendur í Útvarpstíðindum hafa verið flutt í útvarp allra þeirra þjóða, sem eru í þessum alls- herjar félagsskap. Hér var leikn um endurvarpað frá Osló, en Ieiklistarráðunautur útvarpsins sagði frá því áður en leikurinn hófst hér, að það hefði orðið að samkomulagi að enduvvarpa frá Osló leiknum þetta kvöld um öll Norðurlönd. ÞAÐ MUN VERA RÉTT, að vel hafi Svíar og Danir getað skilið og fylgzt með í leiknum á norsku, enda er ólíku saman að jafna. Stutt er á milli land- anna og tungur þjóðanna þriggja svo skyldar að létt er að skilja. Við erum hins vegar í órafjarlægð og mjög undir hæl inn lagt hvernig endurvarp tekst og auk þess er áreiðanlega mikill meirihluti’ þjóðarinnar ekki svo vel að sér í norsku eða skandinavisku að hann geti haft not af leik, sem fluttur er á norsku. ENDA VARÐ SÚ RAUNIN HÉR. Endurvarpið tókst ekki vel, því að leikurinn var mjög hraður og svo fylgir honum mikill hávaði, en auk þess er maður ekki svo góður í norsku að maður gæti notið hans við þau erfiðu skilyrði, sem þarna voru. Ég verð því að láta í ljós megna óánægju mína með þessa framkomu. Hvers vegna var ieikurinn ekki þýddur á ís- lenzku og hann fluttur hér af íslenzkum leikurum?" SIGURLAUG, sem er búsett á ísafirði, skrifar mér á þessa leið: „Mikið er nú rætt og ritað um áfengið og spillinguna, sem því fylgir. Einhver amerískur andi í konulíki kom hér til að hughreysta og mynda samtök nokkurra ónafngreindra drykkjuræfla — nei, fyrirgef- ið — drykkjusjúklinga — það mun vera tízkuheiti þessara ræfla í dag. LEIDTOGAR ýmissa félaga með borgarstjórann í Reykjavík í broddi fylkingar rísa nú upp til að hefja björgunarstarf með al æskulýðsins, sem að þeirra sögu er að drukkna í áfengis- flóði. Vil ég nú beina þeirri fyrirspum til ykkar, sem að Jaðarfundinum stóðuð, hvort þið í raun og sannleika og af heilum hug viljið stöðva áfeng isflóðið eða ekki? EF SVO ER, þá skulið þið ekki ráðast á þá smæstu, held- ur þá hæstu, sem ósómanum valda. Byrjið á byrjuninni og snúið ykkur að réttum aðila. Hver er það, sem heldur stærstu drykkjuveizlurnar, hver er það, sem leyfir veitingahúsum ótak markaða sölu áfengis — og hver er það, sem hefur opnar vín- búðir víðs vegar um landið? ÞAÐ SKYLDI þó aldrei vera ríkisstjórnin í okkar menning- arlandi, sem veitir ósómanum á hvers manns leið í landinu. Hvers vegna gerir ríkisstjórnin okkar þetta? Jú. hún þarf á peningum að halda, til að halda uppi menntun og menningu inn an þjóðfélagsins, og peningarn- ir eru fljótfengnastir með því á líðandi stund, að æskan og fólkið yfirleitt kaupi áfengi •— og þar með vitið og velsæmið burt, og sýni sig svo á skemmti stöðunum og strætunum, sem öskrandi ófreskjur, mitt í allri menningurlni. ÞÉR LEIDTOGAR, sem hug- heilir viljið ósómann burt, snúið ykkur bara að réttum að- ila, og krefjizt þess í náfni aiira sannkristinna manna og kvenna að: Engar drykkjuveizlur verði haldnar, að vínveitingaleyfi verði tafarlaust tekin af ölluin veitingahúsum; sem það hafa, að öllum vínbúðum, hvar á land inu, sem þær eru, verði þegar lokað, og að allar vínbirgðir sem nú eru í landinu verði taf- arlaust sendar aitur til sarna rýni á utanríkisnaáiastefnu Bevins innan brezka Alþýðiu- flokksins hefur aldrei veriö máttlausari og vesalli en ein- mi'tt nú. Hinn fámenni hópur meðal þingmanna hans, sem um skeið írúði því, að hægt væri að efna til farsællar samvinnu við valdhafana í Kreml, hefur orðið fyrir.eft- irminnilegum vonbrigðum. Atburðirnir í Þýzkalandi að undanfÖmu, og þá ekki hvað sízt í Berlín, hafa valdið því, að gagnrýnendur Bevins eru þaghaðir, Konni Zilliaeus ekki undanskilinn, þó að Þjóðviljinn í gær neyni að slá hann til riddara gagnrýni og andstöðu: við utanríkismála- stefnu brezka Alþýðuflokks- ins- Þvættingur Þjóðviljans um, að brezki Alþýðuflokkur- inn gangi erinda íhaldsins í utanríkismálum. er auðvitað ekki sva-ra verður. Sá mál- flutningur verður naumast skilinn öðru vísi. en þaixnig, að hlutverk brezku stj órnar- innarsé að framkvæma stefnu stjórn'arandstöðunnar! Ham- ingja Þjóðviljans er heldur ekki meiri en það, að sama daginn og þessu er hp.ldið fram. í forustugrein blaðsins, birtist á forsíðu þ-ess frétt um, að kastazt hafi í kekki með Bevin og Butler, einum af forustumönnurh bi'ezka í- haldsflokksins, í umræðum um utanríkismál í neðri mál- stofu brezka þingsins, Þann- ig er allur þessi söguburður Þjóðviljans, sé -hann krufinn til mergjar. Þar rekur siig eitt á annars horn. Málflutning- urinn veröur í reyndinni sam- safn af heimskulegum og augljósum blekkingum. ifstofur vorar voruafsreiðslur verða lokaðár frá hádegi í dag, vegna jarðarfarar. Skipaútgerð ríkisins. Hlægilegar blekkingar Þjóðviljans um Verkalýðsfélag Akraness. .■» .... Saka félsgsstjórnma um að afhenda ekki kjörskrá áður en framboðsfrestur var úírunninn! ÞJÓÐVILJINN í gær birtir á fyrirferðarmikimi hátt þá lygafrétt, að stjórn Verkalýðsfélags Akraness hafi neitað for- tnanni kjörstjórnar félagsins irn kjörskrá þess og að hún sé geymd heima hjá fonnanni félagsins til þess að hann geti bætt inn á hana að vild. Þessar staðhæfingar kommúnistablaðs ins eru staðlausir stafir og sannleikur málsins sá, að meiri- íiluti kjörstjórnar leit þannig á, að formaður kjörstjómar hefði ekkert með kjörskrá félagsins að gera fyrr en framboðsfrestur væri útrunninn. Hitt er sömuleiðis þvætt- ingur. að kjörskráin sé geymd hjá formanni félagsins til þess að hann geti bætt inn á hana að vild sinni eins og lands, sem þær komu frá, og gjaldeyrinum, sem fyrir þær fór; verði tafarlaust skilað aft- ur. Þar með stöðvast flóðíð. ÞEGAR ÞÉR, leiðtogar æsk- unnar sýnið raunverulegar að- gerðir til úrbóta í vandamál- unum þá telcur mikill meiri hluti þjóðarinanr höndum sam- an við ykkur. En, ef þið ætlið áfram að káka eins og hingað til, aðeins til að sýnast, tekur enginn hugsandi maður mark á ykkur. ER ÞAÐ KANNSKI nokkur lausn ofdrykkjunnar eins og fram kom á Jaðarfundinum, að byggja og byggja drykkju- mannahæli — og að síðustu yrði öll þjóðin tælr á slík hæli. Er ekki raunhæfara, að korna í veg fyrir drykkjuna með út- rýmingu áfengisins, svo ekki þurfi að byggja slík hæli? ER ÞAÐ nokkur úrlausn á ofdrykkju æskunnar eins og kom fram á Jaðarfundinum, að byggja fleiri leikvelli eða því um líkt? Væri ekki raunhæfara, að þessi okkar villta æska stund aði hollari, eðlilegri, og lengri vinnu á degi hverjum, annað hvort til sjós eða lands? Er ekki iðjuleysið hættulegt? Að lok- um: Mæður og feður, fylgist vel með því, hvaða leiðtogar það eru, sem raunhæft vilja aðgerð ir í þessu máli, eða ekki. FYLGIST MEÐ kennurum barna ykkar — og þá ekki síð- ur hinurn svokölluðu íþrótta- mönnum, sem nú gala hæst um líkamsrækt og andlega heil brigðf meðal æskulýðsins, en mér hefur stundum sýnzt þeir hallast nokku.ð mikið Iíkam- lega, þegar þeir hafa komið hér út á landsbyggðina og verið að sýna listir sínar“. y Lesið Alþýðublaðið! ■ Þjóðviljinn beldur fram. Sannleikurinn er sá, að skrif- stofa félagsins er heima hjá formanni þess, og kjörskráin hefur að sjálfsögðu legio þar frammi. Hefur öllum félags- mönmim verið leyfilegt að athuga kjörskrá félagsins að vild sinni og taka .afrit af henni. Formiaður félagsins hefur unnið að því að endur- skoða kjörskrána, færa inn í hana nöfn nýrra félagsmanna og afrita hana. Hefur að sjálfsögðu aldrei komið ann- að til mála en að kjörstjórn fengi kjörskrána til fullra af- nota, en meirihiuti kjör- stjórnar leit svo að bana þyrfti ekki að afhe'nda fyrr en framboðsfrestur væri út- runninn og endurskoðun kjörskrárinnar af hálfu fé- lagsstjórnar væri lokið. Þessir atburðir í Verkalýðs félaigi Akraness eru mjög á aðra lund en í þeim félögum, sem kommúnistar ráða. Á Akranesi er kjörskrá verka- lýðsfélagsins opin öllum fé- lagsmönnum verkalýðsfélags- ins pg heimil þeim til afnota. En í Þróttj á Si'glufirði beittu kommúnistar þeim vinnu- brögðum að bæta mönnum inn á kjörskrá að vild sinni, eftir að allsherjaratkvæða- greiðsla var hafin, og í verka lýðsfélögunum á Akureyri neituðu þeir andstæðingum sínum um afnot af kjörskíám verkalýðsfélaganna. Þjóðvilj- inn heldur því fram, að at- hæfi samherjia hans á Siglu- firði og Akureyri sé á engan hátt ámælisvert, en hann ætl- ar að spriinga af beift yfir því, sem fram fer í Verkalýðsfé- lagi Akraness! Skriffinnum Þjóðviljans er með öðrum orðum fyrirmun- að að gera greinarrnun góðs og ills. Þeir 'strei'tast við að halda því fram, að svart sé hvítt en hvítt sé sva.rt. Auð- vitað er það skiljanliegt, að þeir beri kvíðboga fyrir kosn- ingunni í Verkalýðsf élagi Akraness. En mæða þeirra yrði áreiðainlega minni, ef þeii reyndu að harka af sér harm- inn.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.