Alþýðublaðið - 24.09.1948, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 24.09.1948, Qupperneq 6
ALÞYfHJBCAPIP s " '"'"'íT'WPP Föstudagur 24. sept. 1948» Bjössi BJÖSSI SPYR: Ég las í blöðunum í dag, að silkisokkar hefðu verið seldir á 80 krónur parið einhvers staðar í bænum. Nú spyr ég bara, — hvað fær seljandinn í sekt, — eða er þetta ekki of há álagn- ng? Eða á hvað keypti sá sem seldi og hefur hann eitthvert einkaleyfi á okri? Og hvernig var það með staka skóinn, sem sömu aðilar seldu á 150 krónur? Bjössi. P.S. Ég læt þess getið, að það er vinkona mömmu, sem hefur stílað þessa fyrirspurn. Persónu lega varðar mig ekkert um silki sokka eða kvenfólk. Sami Bjössi. FRÁ ÞINGINU. Fundir í spákvennaþinginu hafa haldið áfram með miklu fjöri að undanförnu og mikið verið starfað. Ég lofaði því síð- at að senda yfirlit yfir nefndar kosningar, en þar eð nefndirnar eru þegar orðnar svo fjölmarg- ar og alltaf bætast fleiri við, verð ég að láta mér nægja, að ísland á fulltrúa, — sem sé sjálfa mig — í fimm aukanefnd um, en þær eru allar með af- brigðum þýðingarmiklar, og auk þess munaði aðeins einu at kvæði að ég kæmist í aðalnefnd og það var meira að segja stung ið upp á mér í allsherjarnefnd, og hlýtur, enda þótt ég segi sjálf frá, að teljast mjög sóma- samlegt, þegar tekið er tillit til þess, hversu þjóð vor er fá- menn. Og á morgun held ég er- indi, sem nefnist: „Vitranir, dulsýnir og forspár í sambandi við Heklugosið á íslandi“, og hafa margir fullyrt, að það muni vekja geysilega athygli. Þess ber að geta, að þinginu hafa borizt margar góðar gjaf- ir; meðal annars hafa spila- verksmiðjur sent hverjum þing fulltrúa luxusspil og enn aðrar verksmiðjur hafa sent oss öllum kaffibolla. Vígði forseta þings- ins spilin með því að leggja stjörnu fyrir þingi sameinuðu þjóðanna og sagði hún fyrir ýmsa hluti; t. d. að ekki myndu takast fullar sættir í öllum deilumálum þess, og að Gromi- kó mundi líta þar inn og ef til vill ganga út þaðan líka . Meira hef ég ekki í fréttum að sinni. í andlegum friði. Ðáríður Dulheims. STOPPISTÖÐIN (Frh.) ið í skjóðu; væru enn mannýg og vildu ólm útí tilveruna og stánga bæði eingla og ára í rassinn. Hún hafði snæri all- lángt í höndum; sveiflaði því ótt og títt ýmist yfir höfuð eða undir iljar og lyftist þá frá gólfi svo hátt að undrun sætti. Og í hvert skipti semún lyftist upp varðún líkust fiður- og fjaðrareittri össu; hvöss augun sitt hvorumegin við mikið og bogið nefið störðundan hörðum brúnum uppí Ijósakrónuna, varavana munnurinn herptist saman og allur svipurinn var einsogún hefði fundið tilgáng lífsins. Snærið stöðvaðist þegarún varð mín vör. Komdinn góða mín; ég gekk inn ánþess að ég vissi afþví. Mér til mikillar furðu staðnæmdist hún með fætur á gólfi; ég bjóst einsvið að hún staðnæmdist miðja vegu milli gólfs og lofts starandi fjar rænum arnaraugum á Ijósakrón una; en svo athugaði ég það, að fjaðrareitt örn hlýtur að vera jarðbundinn eins og flekk óttur rollugemlingur. Hvað gerirðu líkamanum til viðhalds, góða mín. Ég. Ekki neitt. Almáttugur. Þú verður göm ul fyrir tímann; fitnar og færð óhreina og fúla vessa. Littu á mig, góða mín; ég er heldur meira en fimtug og ég hef vöðva og blóðið rennur í æðum mínum, tandurhreint og þrúng ið frumkraftinum sem steinolí Framhald. Leonhard Frank: .. MATTHILDUR hvor á annan. Fógetinn var þéttur maður, hafði oft jafn- að alvarleg ágreiningsmál milli þrjózkufullra bænda, og bóndinn hafði oft á sinni löngu ævi borið sigur úr být um í viðskiptum. En um heimanmund dótt- ur og tengdadóttur höfðu hvorugur háð baráttu fyrr, hér stóðu þeir á óvissri grund. Svo að það leit mjög vel út með heyfenginn hjá hon- um í ár. Fógetinn iðraðist strax að hann hafði tekið upp þetta umræðuefni. En það var of seint. „Vegna þess að engjarnar mínar era þær beztu hér um slóðir“. Það brá fyrir ánægju glampa í augum sjálfseignar bóndans rétt sem snöggvast; hann hafði af ásettu ráði far ið að tala um heyuppsker- una tiil að minna fógetann á, eins og af tilviljun, að Fjóla mundi giftast inn í ríka ætt. Hann barði beinaberum hnefunum í borðið- Hann gat selt hálfan heyfeng sinn þetta ár og þó fóðrað 42 kýr yfir veturínn og sett á 8 kvígur í viðbót. Og hann yrði brátt að stækka osta- gerðarhúsið. Hann var far- iim að selja ostana sína til Parísar. Þegar hann drakk hreyfð- ist Adamseplið á honum upp og niður. En svona stór jörð krafðist mikils fjár, og þó að hann léti ekki sitt eftir liggja þá var alltaf lítið um pen- inga. Og hvað nýju tækin í mjólkurbúið kæmu til með að kosta! Lærður maður eins og fógetinn var betur settur í þessu tiUiti. Hann vann allt með höfðinu. Féð streymdi tiil hans og var kyrxt í pen- ingakassanum hans. Vegna þess að hann þurfti hvorki að kaupa landbúnaðarvélar eða tilbúinn áburð. Og þegar öllu væri á botninn hvolft, þá voru það peningarnir, sem mest var undir komið. Hinn horaði og veðurbitni bóndi hvarflaði augunum órólega til og frá, og þegar hann hafði litið á mótstöðu- mann simi, leit hann undan, því að hann fann, að hann hafði komið upp um sig of fljótt. Fógetanum fannst það líka og nefndi rólega fimmtíu þúsund franka. Hnúaber hnefinn á borðinu fór að skjálfa- Hann hafði búizt við meiru, hugsaði fógetinn og var brugðið, og atlt í einu varð honum hálfbumbult. Ekkjan. sem beðið hafði eftir Marteini í meira en ár, kæmi með um hundrað þús- und franka í reiðu fé og jörð sína að auki sem heiman- mund. Svo að það var gagns laust að ræða minna en hundrað þúsund. Fógetanum var farið að líða betur í maganum. En blóðið streymdi fram í kinn ar honum. Jæja, fyrir hon- um mætti Marteinn giftast þessari skakkmynfiu. og nið- urníddri jörðinni hennar. „O, við mundum brátt koma jörðinni hennar í gott horf aftur“, sagði sjálfseign- arbóndinn brosandi; „og hundrað þúsund frankar og stór jörð gera skakkan munn að aukaatriði. En það er önn ur ástæða jafnframt — dótt- ir þín hefur misst heiður sinn. Þú æ'ttir að taka það meira til athugunar“. Kona fógetans, sem neri hendur sínar í næsta her- bergi, heyrði reiðióp og að lokum að skellt var skrif- stofuhurðinni. Hún þaut inn. „Hvað kom fyrir?“ Fógetinn sat við borðið ör- magna af reiði- Báðar hend- ur hans héngu máttlausar niður- millum fóta hans. „Þorparinn ásakaði mig fyr- ir að hún væri ólétt. Hann ætlar að svæla út úr mér pen inga. Hann heim’tar hundrað þúsund í reiðu fé“. „En. þú sagð’st láta hann fá áttatíu þúsund“. __ „Ég sagði honum auðvit- að, að hann skyldi fá fimm- tíu“. Hún talaði mjög hægt og hikaði við hvert orð. ,,Ef þú vilt að ég lifi þeirnan dag af, ef þú vilt að ég lifi þá kall- arðu á hann strax. Barnið okkar skal ekki deyja eitt, skal ég segja þér. Ég mun deyja með henni. Kallaðu á hann strax!“ Fógetinn þekkti ekki konu sína. „Ertu orðin vitlaus? Hvað meinarðu með því að tala. svona við mig?“ . ,„Ég meina það, sem ég segi. Og nú veizt þú, hvað mun koma fyrir“. Hún geyst ist út úr herberginu fjúkandi reið. Hann istarði á eftir henni í skelfingu. „Hef ég verið giftur þessum svarki í tutt- ugu ár?“ Hann gekk út að 'glugganum og horfði á bónd ann, sem var farinn að bjástra eifthvað við vélina, hafði gripið til þess, til þess að tefja tímann. „Fer hann ekki í gang?“ Þetta bragð til að taka upp samninga að nýju þekkti bóndinn yel frá viðskiptum sínum með kvikfénað, sem alltaf drógust á langinn heil an dag. En þar sem hann sá vel hina ýmsu kosti, sem samband við hinn virta fó- geta hefði í för með sér og hafði enn friemur fengið að vita í lánsstofnun einni, að ekkjan ætti aðeins tuttugu og 'fimm þúsund franka í peningum, þá sneri hann strax við og kallaði: „Vant- ar vatnssopa, býst ég við“. „Það er auðvelt að bæta úr bví. Komdu bara inn“. Þeir komust að samkömu- lagi um sextíu og fimm þús- und franka. Matthiiidur hafði fyl'gt móður Paulis til fógetans og g;engið síðan langa igöngu til að sjá fornar stöðvar og nam tnú staðar fyrir framan hús skólastjórans. Söngurinn, sem hún hafði sungið með blómálfunum effir leiksýn- inguna barst út um skóda- stofugluggann. Allt í einu hætti hann. Skólast j órinn skammaði þau: Þau görguðu þetta eins og hrafnar- „Þenn an söng varð að syngja með reglulegri hrifningu. Ef það var ekki hægt, þá var betra að láta það_ vera. Við byrj- um aftur. Ó, ættland mitt“. Hún gekk inn. Þarna stóð hann með skólastúlkunum og söng með þeim eins og tré með greinar alsettar fagn- andi fuglum. Matthildur MYNÐASAGA ALÞYÐUBtAÐSINSs ÖRN ELDING WELL TAKE ““LOOk, NURSE/ youVe GOTTWO RAPIOACTIVE /“^PATIENTSÍi PLISH PAP'S' ^EQUIPMENT > AWAVssv^ rNÖW, I S'POSE \\eVe GOT TO 4 >• GET THE TWO WOUNPEP RATS' TO THE HOSPITAL, WHAT'S THE NEEPLE ON THE P/AL JLIMPING AROUNP FOR?iTBSS5'j5 IMPOSSIBLE/ TWATS A GEIGER COUNTER/ IT ONLY REGISTERS LIN THE PRESENCE |í OF RAPIOACTIVE ^ ÓXSUBSTANCES/ SNDA ÞÓTT Kári áOiti spilaþorp- arana dauða, eru þeir með lífs- marki, og er stúlkan hefur gert að sárum þeirra, eru þeir born- ir í jeppann. — Og nú kemur nýtt á daginn.------

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.